Morgunblaðið - 13.10.1992, Blaðsíða 27
MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 13. OKTÓBER 1992
-<—-------------1; . >'■ • i ,■ i íí u.iu/'f 'i.n't
Par Stenbáck nýr forstjóri Norrænu ráðherranefndarinnar
Evrópuhrifningin má ekki verða til
að menn gleymi Norðurlöndunum
Morgunblaðið/Kristinn
Par Stenback forstjóri Norrænu ráðherranefndarinnar ásamt Eiði
Guðnasyni samstarfsráðherra Norðurlanda.
PAR Stenbáck, sem tók við
stöðu forstjóra Norrænu ráð-
herranefndarinnar þann 1.
september sl., er nú staddur
hér á landi. Hann átti í gær
fundi með ýmsum íslenskum
ráðamönnum eins og Vigdísi
Finnbogadóttur, forseta ís-
lands, Davíð Oddssyni forsæt-
isráðherra, Jóni Baldvin
Hannibalssyni utanríkisráð-
herra og Eiði Guðnasyni, sam-
starfsráðherra Norðurlanda.
Stenbáck, sem tók við stöðunni
af Norðmanninum Fridtjov Clemet,
er einn af reyndustu stjórnmála-
mönnum Finnlands. Hann sat á
þingi fyrir sænska þjóðarflokkinn
árin 1970-1985, var menntamála-
ráðherra 1979-1982 og utanríkis-
ráðherra 1982-1983. Hann var síð-
an framkvæmdastjóri fínnska
Rauða krossins í nokkur ár og aðal-
ritari Alþjóða Rauða krossins í
• •
Oryggisráðstaf-
anir í Angólu
HERMENN og lögregla unnu að því
að setja upp umferðartálmanir í
höfuðborg Angóla, Luanda, í gær,
en borgarbúar héldu sig flestir
innandyra af ótta við að skærumar
á sunnudag breyttust í blóðuga
borgarastyijöld. Luanda-flugvöllur,
sem lokað var á sunnudag af
öryggisástæðum, var opnaður aftur
í gær. Allt var þá með kyrrum kjörum
í borginni, en mikil spenna ríkjandi.
Dubcek þungt
haldinn
Alexander Dubcek fyrrverandi
leiðtogi Tékkóslóvakíu er þungt
haldinn í kjölfar þess að hann
slasaðist alvarlega í bílslysi í byijun
septembermánaðar. Að sögn
tékknesa heilbrigðisráðuneytisins
hefur ekki orið vart neinnar
framfarar hjá Dubcek þrátt fyrir
umfangsmiklar læknisaðgerðir.
Genf frá 1988 til þessa árs.
Stenbáck sagði á blaðamanna-
fundi, sem hann hélt í gær, að
hann tæki við starfí forstjóra No-
rænu ráðherranefndarinnar á mikl-
um umrótstímum. Forsætisráð-
herrar Norðurlanda hefðu á fundi
sínum á Borgundarhólmi í ágúst
ákveðið mjög róttækar breytingar
á norrænni samvinnu í ljósi breyt-
inganna í Evrópu. Væri hann nú á
hringferð um Norðurlöndin til að
kynna sér stöðu norræns samstarfs
í hugum stjómmálamanna í hverju
landi.
Hann sagði það enn vera mjög
opna spurningu hvað yrði um fram-
tíð samstarfsins og mikið svigrúm
til umræðu um þau mál. Líklega
væri það mesta hagsmunamálið
fyrir litlu Norðurlöndin, s.s. ísland,
að samvinnunni yrði framhaldið.
íslendingar hefðu ávallt fengið
mjög mikið út úr norrænu samvinn-
unni fyrir mjög lítið. „Ég hef orðið
var við að margir íslendingar ótt-
ast að þeim verði ýtt til hliðar þeg-
ar flest hin Norðurlöndin verða
komin inn í EB. Það er vissulega
mikill vilji til staðar að hafa íslend-
inga áfram með í samstarfi Norður-
landanna en það sem ég óttast eru
hugmyndir um að menn hafi með
sér samstarf án þess að stofnana-
binda það formlega. Ef slíkar stofn-
anir eru ekki til staðar er hætta á
að einhver verði stundum skilinn
útundan. Þá hefur norrænt sam-
starf tekið skref aftur á bak en
ekki fram á við,“ sagði Stenbáck.
Búkarcst. Reuter, The Daily Telegraph.
ION Iliescu vann sigur í síðari
umferð forsetakosninganna í
Rúmeníu á sunnudag, sam-
Hann sagði að nú væri alls stað-
ar fyrst og fremst rætt um Evrópu-
mál sem væri í sjálfu sér ekkert
slæmt. Samningurinn um EES
væri dæmi um að mönnum hefði
tekist að framkvæma eitthvað á
evrópskum vettvangi sem mistekist
hefði að gera á norrænum vett-
vangi. Hins vegar væri ákveðin
hætta fólgin í þeirri hrifningu sem
menn sýndu Evrópusamstarfínu -
hún mætti ekki verða til að menn
gleymdu að halda Norðurlöndunum
saman líka, einnig þeim sem ekki
gerðust aðilar að EB. Væri fyrst
og fremst rætt um ísland og hugs-
anlega einnig Noreg í því sam-
bandi. „Norræni valkosturinn er
enn lifandi valkostur," sagði
Stenbáck.
Stenbáck bætti við að þegar litið
væri til framtíðar væru flestir sam-
mála um að skera yrði niður í nor-
ræna samstarfskerfínu. Það væri
aftur á móti nauðsynlegt að menn
reyndu samtímis að greina þau
framtíðarmarkmið sem þeir teldu
rétt að setja sér. Á hvað ber að
leggja áherslu? „Þetta hefur því
miður ekki verið gert nema að tak-
mörkuðu leyti en án slíkrar grein-
ingar er hætta á að niðurskurður-
inn missi marks."
kvæmt bráðabirgðatölum sem
birtar voru í gær. Hiescu fékk
60,5% atkvæða en frambjóðandi
stjórnarandstæðinga, Emil
Constantinescu, aðeins 39,5%
þegar atkvæði höfðu verið talin
í 88% iqörstaðanna. Lokaúrslit
liggja fyrir í dag.
Iliescu er 62 ára að aldri og var
einn af forystumönnum rúmenska
kommúnistaflokksins í 36 ár, þar
til Nicolae Ceausescu einræðis-
herra var steypt af stóli í desem-
ber 1989. Iliescu var kjörinn for-
seti með 85% atkvæða í fyrstu
kosningunum eftir fall kommún-
istastjómarinnar árið 1990, sex
mánuðum eftir að hann hafði náð
völdum í byltingunni.
Kjörsóknin nú var áætluð um
73%, litlu minni en í þingkosning-
unum og fyrri umferð forsetakosn-
inganna 27. september. Flokkur
Iliescus, Þjóðfrelsisfylkingin, varð
þá stærsti flokkurinn á þinginu en
náði þó ekki meirihluta.
Emile Constantinescu boðaði
róttækar umbætur í efnahagsmál-
um í kosningabaráttunni en Iliescu
vill fara hægar í sakimar. Talið
er að ótti Rúmena við atvinnuleysi
og verðbólgu hafí verið forsetanum
til framdráttar. Einnig segja heim-
ildarmenn að stjómarandstæðing-
asr hafí látið hjá líða að reka áróð-
ur í sveitahéruðunum, þar sem
hartnær helmingur fólksins býr.
Þar hafí Iliescu því fengið yfír-
burðafylgi.
Franskir þingmenn, sem fylgd-
ust með kosningunum, sögðu að
þær hefðu „almennt" verið „lýð-
ræðislegar og frjálsar“. Talning
atkvæða hefði farið heiðarlega
fram en verið illa skipulögð og það
hefði hugsanlega getað leitt til
kosningasvindls.
Tveir bandarískir lífefnafræðingar fá Nóbelsverðlaun í læknisfræði
Uppgötvuðu hvernig
fosfórleiðing fer fram
Stokkhólmi. Reuter.
TILKYNNT var í gær að tveir bandarískir llfefnafræðingar
hlytu Nóbeisverðlaunin í læknisfræði í ár. Verðlaunahafarnir
hafa einkum rannsakað starfsemi lífhvata, eða ensíma, og eru
þeir kunnastir fyrir að hafa á sjötta áratugnum skýrt hvernig
svokölluð fosfórleiðing fer fram. í henni felst að virkni ensíma
er breytt með því að setja á þau fosfathóp eða nema hann brott.
Verðlaunahafamir, Edwin
Krebs, 74 ára, og Edmond Fisch-
er, 72 ára, starfa báðir við Wash-
ington-háskóla í Seattle. Morg-
unblaðið sneri sér til Baldurs
Símonarsonar dósents á lífefna-
fræðistofu Háskóla íslands til að
fá upplýsingar um rannsóknir
þeirra Krebs og Fischers. „Þeir
hafa starfað lengi við rannsóknir
á ensímum, svonefndum pró-
teinkínösum, sem hvetja ábót
fosfats á önnur prótein og ens-
ím,“ segir Baldur. „Landi þeirra,
Earl W. Sutherland, hlaut Nób-
elsverðlaun í lífeðlis- og læknis-
fræði 1971 fyrir rannsóknir sínar
á verkan hormóna. Hormón eins
og adrenalín kemst ekki í gegn-
um frumuhimnur, en tengist hins
vegar viðtaka á ytra borði himn-
unnar. Viðtakinn breytir um lög-
un og miðlar um leið boði inn
í frumuna sjálfa. Sett er af
stað keðja flókinna efnabreyt-
inga, en eitt fyrsta skrefíð er
myndun efnis, hringaðs AMP,
sem virkjar próteinkínasa.
Próteinkínasi gerir síðan ann-
að ensím virkt með því að
hvetja ábót fosfats á ensímið.
Það ensím getur síðan virkjað
enn annað ensím með sama
hætti, og þannig er sett af stað
stigmögnunarferli, sem að lok-
um stuðlar að losun glúkósa
úr forðafjölsykrunni glýkóg-
eni í vöðvafrumum. Vöðva-
frumur nota síðan glúkósa til
að fá hreyfíorku, og þannig getur
dýr sem verður hrætt og fram-
leiðir um leið adrenalín, lagt á
flótta."
Það kom fram í máli tals-
manns Nóbelsnefndarinnar í gær
að vonir stæðu til að rannsókn-
ir þeirra Krebs og Fischers
nýttust við leitina að lyfi gegn
krabbameini. Um það efni seg-
ir Baldur: „Á undanfömum
árum hefur komið í ljós að
próteinkínasar koma mjög
víða við sögu í frumustarfsemi
af margvíslegu tagi. Svonefnd
G-prótein gegna lykilhlutverk-
um í ferlum sem leiða til þess
að virkni próteinkínasa örvast.
Einnig virkjar insúlín sérstaka
tegund af próteinkínasa, týr-
osínkínasa. Margir vaxtarþættir
hafa týrosínkínasavirkni, en
Stanley Cohen og Rita Levi-
Montalcini fengu Nóbelsverðlaun
árið 1986 fyrir uppgötvun þeirra.
Svokölluð æxlisgen skrá mörg
hver prótein sem hafa týrósínkín-
asavirkni og ef þessi gen virkj-
ast, geta þau valdið æxlisvexti.
Efni sem hindra virkni hinna
ýmsu próteinkínasa geta hugsan-
lega komið að notum sem lyf.
Rannsóknir Fischers og Krebs á
eðli próteinkínasa varpa þannig
ljósi á fjölmargt í eðlilegu starfi
frumunnar, en einnig ef eitthvað
fer þar úrskeiðis."
Rúmenía
Iliescu nær
endurkjöri
ÖRYGGIS OG
GÆSLUKERFI
FRÁ ELBEX
SPARIÐ TÍMA FÉ
OG FYRIRHÖFN
og skapið öruggari
vinnu og rekstur með
ELBEX sjónvarpskerfi.
Svart hvítt eða í lit,
úti og inni kerfi.
Engin lausn er of
flókin fyrir ELBEX.
Kynnið ykkur möguleikana.
Einar Farestveit & co M.
Borgartúni 28, sími 91-622900
Bílamarkaöurinn
Smiðjuvegi 46E
v/Reykjanesbraut
Kopavogi, sími
671800
Ford Sierra 1800 CL Sedan ’88, brún-
sans, 5 g., ek. 53 þ. Fallegur bíll. V. 570
þús. stgr.
Plymouth Laser RS Twin Cam 16v '90,
grásans, 5 g., ek. 33 þ. mílur, rafm. í öllu
o.fl. Sportbíll í sérflokki. V. 1690 þús., sk.
á góðum jeppa (ód).
Mazda 323 1.5 GLX Sedan ’88, hvítur,
sjálfsk., ek. 47 þ. V. 520 þús.
£
Chevrolet Silverado 1500 EFI ’90, rauð-
ur, 8 cyl., sjálfsk., ek. 29 þ., rafm. rúður,
ABS o.fl. Bíll fyrir vandláta. V. 1900 þús.,
sk. á ód.
MIKIÐ ÚRVAL JEPPA OG
FÓLKSBÍLAÁ STAÐNUM.
VERB OG KJÖR VIÐ ALLRA HÆFI.
Chevrolet Suburban 20 Silverado 6.2
diesel '85, ek. 94 þ., sjálfsk., mikið af
aukahl. Gott eintak. V. 1980 þús., sk. á ód.
BMW 518i '88, 5 g., ek. 43 þ. Toppein-
tak. V. 1290 þús. sk. á ód.
Toyota Corolla XL Touring 4x4 '89,
g., ek. 53 þ. V. 950 þús., sk. á ód.
Subaru 1800 DL Station 4 x 4 ’91, 5 g.,
ek. 42 þ. V. 1050 þús.
Toyota Corolla XL '90, 5 dyra, sjálfsk.
ek. 48 þ. V. 780 þús., sk. á ód.
Nissan Terrano 2.4i 4x4 ’90, 5 g., ek.
60 þ. V. 1750 þús.
Suzuki Vitara JLXi '91, mikið breyttur, ek.
40 þ. V. 1470 þús.
Fiat XVe Bertone Spider '80, 5 g., ek. 55
þ., sjaldgæfur sportbíll. Gott eintak. Nýsk.
'93. V. 430 þús.
Honda Prelude EX '87, sjálfsk., ek. 68
þ., sóllúga, rafm. í öllu. Fallegur bfll. V,
890 þús., sk. á ód.
Daihatsu Feroza EL-II ’89, 5 g., ek. 65
þ., mikið af aukahl. Mjög gott ástand.
V. 930 þús.
Isuzu Tropper LS '88, 5 g., ek. 109 þ
km., 7 manna, rafm. í öllu o.fl. V. 1150
þús., skipti.
Nissan Micra GL '89, 5 g., ek. 52 þ
V. 375 þús. stgr.
Nissan King Cap m/húsi '87, 6 cyl
sjálfsk., ek. 74 þ. Fallegur bíll.
V. 1080 þús. stgr.
Nissan 200 SX turbo Interc. '89, rauöur,
5 g., ek. 48 þ., sóllúga, rafm. í öllu o.fl
Vinsæll sportbíll. V. 1490 þús., sk. á ód
M. Benz 190 '87, rauöur, 5 g., ek. 53 þ.
V. 1550 þús.
Nissan Micra GL '84, 3 dyra, ek. 55 þ.
V. 190 þús. stgr.