Morgunblaðið - 13.10.1992, Qupperneq 43
MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 13. OKTÓBER 1992
43
Magnús Snæbjörns
son - Minning
Fæddur 22. nóvember 1918
Dáinn 4. október 1992
Dyrabjallan hringir — lengi — en
áður en nokkur nær að komast til
dyra hringir hún aftur. „Maggi
frændi er að koma,“ segir Lilja, kon-
an mín. Hún hefur á réttu að standa.
Maggi gengur léttstígur upp stigann,
þrátt fyrir stálkúlu í mjöðm, heilsar,
fer úr frakkanum og tekur af sér
hattinn. Svo sest hann við eldhús-
borðið og segir já takk þegar við
bjóðum honum kaffi. „Hvar er ösku-
bakkinn, kona?“ spyr hann og brosir
skelmislega til mín þegar Lilja hefur
upp hefðbundna ræðu sína gegn
reykingum.
Hann staldrar við um stund, spyr
tíðinda en segir þó fleiri, því að
Maggi Snæ er ættrækinn maður og
fylgist vel með högum síns fólks.
Eftir nokkra stund finnst honum
umræðuefnin tæmd, hann stendur
upp og segir: „Þetta dugir ekki“.
Klæðir sig í frakkann, setur upp
hattinn og fer. Hangs er honum ekki
að skapi. Hann siglir hraðbyri gegn-
um lífið og lækkar hvergi seglin.
Maggi Snæ var í mínum huga
ímynd íslenska sævíkingsins. Hann
var sjómaður meginhluta ævinnar,
harðduglegur til allra verka, sam-
viskusamur og trúr. En hann var líka
glettinn og gamansamur, ævinlega
til í græskulausa stríðni, ölkær í
góðu meðallagi og skemmtinn með
víni. Ég ætla að leyfa mér að sækja
stutta lýsingu á Magga í ævisögu
Jóns Steingrímssonar skipstjóra.
Hún segir okkur gjörla hvað skips-
félögum hans gegnum tíðina þótti
um hann, Jóni farast svo orð: „Magn-
ús Snæbjörnsson bátsmaður kom af
togurunum, verkmaður mikill og vel
liðinn vegna mannkosta.“
Maggi sagði mér eitt sinn fyrir
skömmu að það hefði verið sitt lán
að kynnast nánast eingöngu ágæt-
isfólki um ævina. Ég þakkaði þetta
nú frekast þeim eiginleika í skapgerð
hans að leita fyrst og fremst eftir
því jákvæða í hveijum manni. Hins
vegar gat ég engar brigður borið á
það sem hann bætti við: „Sérstaklega
hef ég nú kynnst góðum konurn,"
sagði hann. — Þegar ég kynntist
Magga fyrir 23 árum átti hann að
baki eitt hjónaband sem ég veit lítið
um annað en það að í því urðu til
góð böm sem urðu síðar að prýðilegu
fullorðnu fólki. En þama um 1970
áttu þau heima uppi á Bergþóru-
götu, hann og hún Rósa, Finnrós
Guðmundsdóttir. Þau bjuggu hvort
öðru notalegt heimili; hún var honum
kjölfestan í lífssiglingunni og hann
var henni nærgætinn og góður.
En allnokkru eftir lát hennar 1987
gerðist ævintýrið í lífi Magga Snæ;
ævintýri sem annars gerast bara í
sögum. Hann fann æskuástina sína
á ný. — Þegar hann var ungur mað-
ur á vertíð í Grindavík varð hann
ástfanginn af glæsilegri stúlku þar
í plássinu, Laufeyju Ámadóttur, sem
þá var bara 17 ára. En á lokadaginn
skildi leiðir, og þær lágu ekki saman
á ný fyrr en mörgum áratugum síðar.
Eg man vel þegar Maggi sagði
okkur þessi tíðindi. Hann var svo
ástfanginn að við urðum nánast
feimin. Hann minnti á skólastrák
sem talar um fyrstu ástina sína, eða
lítt lífsreyndan vertíðarpilt að vestan
sem hrífst af glæstri mey í Grindavík.
Þau áttu saman íjögur ár. Að vísu
brá allt of fljótt yfir þau skugga
baráttunnar við illvígan sjúkdóm. En
ég veit að Laufey er mér sammála
um það að betra er að hafa átt og
misst en að hafa aldrei átt.
Ég ætla ekki að hafa þessi kveðju-
orð fleiri. Ég votta ástvinum Magga
innilega samúð mína og minna. Það
er huggun í harminum og eiga allar
þær góðu minningar sem Maggi læt-
ur okkur eftir.
Guðni Kolbeinsson.
í dag verður jarðsunginn frá Bú-
staðakirkju móðurbróðir minn og vin-
ur minn Magnús Snæbjömsson. Fyr-
ir hönd móður minnar, Sólveigar
Snæbjörnsdóttur og systkina, ætla
ég að minnast þessa góða drengs
með nokkrum fátæklegum orðum.
Samband okkar við Magga frænda,
eins og við kölluðum hann, var fast-
ur liður í tilverunni og við mátum
mikils hve mikinn tíma hann gaf sér
til að rækta frændsemina. Ef Maggi
gat ekki heimsótt okkur þá hringdi
hann til að fá fregnir af fólkinu og
þegar hann kom í heimsókn lífgaði
hann upp á daginn þegar hann heils-
aði með sinni glaðværu kveðju:
„Komið þér sælir, herra minn.“ Nú
er kveðjan hljóðnuð en minningin lif-
ir.
Magnús fæddist á Tannanesi í
Táknafirði 22. nóvember 1918, sonur
hjónanna Margrétar Guðbjartsdóttur
og Snæbjöms Gíslasonar. Systkina-
hópurinn var stór, ellefu böm, og
komust níu þeirra til fullorðinsára
og eru fjögur á lífi, Bergsteinn, tví-
burðabróðir Magnúsar, býr á Pat-
reksfirði, Sveinbjöm býr í Vest-
mannaeyjum, Guðrún og Sólveig eru
búsettar í Hafnarfírði. Látin eru
Lilja, Gísli, Guðbjartur og Kristín.
Magnús ólst upp í foreldrahúsum
á Tannanesi og síðan á Lambeyri í
Tálknafirði. Hann fór á sjóinn strax
eftir fermingu og varð sjómennska
og störf tengd sjómennsku hans
ævistarf. Magnús stundaði sjó-
mennsku á vélbátum frá Patreksfirði
og víðar fram undir tvítugt, en þá
flytur hann til Reykjavíkur og bjó
þar ávallt síðan. Gerðist hann togara-
sjómaður og sigldi meðal annars á
stríðsárunum til Englands. Eftir stríð
réðst hann til Eimskipafélags íslands
og sigldi á skipum þess um árabil.
Einnig sigldi hann með norskum
skipafélögum.
Á þessum árum eignaðist hann
marga vini og félaga og á góðri stund
var unun að hlusta á hann segja frá
ævintýrum sínum og félaga sinna
og fylgdu þá gjaman vísur með til
áréttingar. Þó oft gæfi á bátinn og
siglt djarft í lífsins ólgusjó þá náði
hann alltaf góðri lendingu. Þegar
Magnús hætti sjómennsku hóf hann
störf hjá vinafólki sínu sem reka
Seglagerðina Ægi í Reykjavík. Þar
undir hann hag sínum vel og lauk
sinni starfsævi. Fjölskylduhagir
Magnúsar vom þannig að hann
kvæntist Elínborgu Kristófersdóttur
og eignuðust þau þijú böm: Kristin,
kvæntan Auði Böðvarsdóttur og eiga
þau þrjú böm; Helga, hann fórst af
slysförum 17 ára gamall; Maríu
Mörtu, gifta Tryggva Tryggvasyni
og eiga þau þijú böm.
Elínborg og Magnús slitu samvist-
ir. Magnús bjó síðan með Finnrósu
Guðmundsdóttur. Hún lést 1987.
Síðustu árin bjó hann með Laufeyju
Ámadóttur frá Grindavík. í þijú ár
háði hann hetjulega baráttu við ill-
vígan sjúkdóm, studdur af konunni
sem hann dáði svo mjög. Að leiðar-
lokum þökkum við allt sem Magnús
gaf okkur og sendum Laufeyju, böm-
um hans og fjölskyldum þeirra inni-
legar samúðarkveðjur.
Grétar Ólafsson.
Ég horfi yfir hafið
um haust af auðri strönd,
í skuggaskýjum grafið
það skilur mikil lönd.
Sú ströndin stijála’ og auða
er stari’ ég héðan af,
er ströndin stríðs og nauða,
er ströndin hafs og dauða,
og hafið dauðans haf.
En fyrrir handan hafið
þar hillir undir land,
í gullnum geislum vafið
það girðir skýjaband.
Þar gróa i grænum hlíðum
með gullslit blómin smá,
í skógarbeltum blíðum,
í blómsturlöndum fn'ðum,
má allskyns aldin sjá.
Er þetta hverful hilling
og hugarburður manns?
Nei, það er fögur fylling
á fyrirheitum hans,
er sýnir oss í anda
guðs eilíft hjálparráð
og stríðsmenn guðs þar standa,
við stól hins allsvaldanda,
þar allt er eilíf náð.
(Vald. Briem)
Þegar við kveðjum hann afa okkar
og hugur reikar til liðinna ára finnst
okkur þessar ljóðlínur passa svo vel
við þar sem hans starf var mestan
hluta ævinnar tengt sjónum.
Það er bömum afar mikils virði
að njóta þeirra forréttinda að eiga
afa sem jafnframt er vinur þeirra.
Við nutum samvistanna við afa okk-
ar svo sannarlega. Afi var alltaf svo
ungur í anda, ljúfur og lífsglaður.
Sögurnar sem hann sagði okkur voru
eins og hafsjór í huga hans.
Alltaf var gaman að koma til afa
og tekið vel á móti okkur. Þá mætti
okkur alltaf sama góða viðmótið.
Þrátt fyrir veikindi hans síðustu
mánuðina var viðkvæðið eins og
áður, hann sagði alltaf að allt væri
í fínu lagi. Og okkur fannst það líka
vegna þess að honum var gefin svo
mikil lífsgleði.
Við bamabömin og bamabama-
börnin, sem hann sýndi sömu hlýj-
una, munum sakna hans.
Elsku Laufey, pabbi og mamma,
að endingu viljum við segja við ykk-
ur þetta vísubrot sem lýsir honum
afa svo vel:
Sérhvert vinarorð vermir
sem vorsólarljós.
Sérhver greiði og góðvild
er gæfunnar rós.
(Höf. ókunnur okkur)
Guð blessi minningu afa okkar.
Magnús, Dóra, Böðvar,
Tryggvi, Helga og Hildur.
Margar minningar koma upp í
huga okkar frá æskuárunum er við
nú í dag kveðjum Magga frænda.
Heimsóknir til ömmu Sólveigar og
afa Ólafs. Skemmtilegar stundir. Þar
átti Maggi frændi hlut að máli. Hann
var mjög oft hjá ömmu og afa og
það var hann sem kom með hlátur
og skemmtilegar sögur. Maggi
frændi var gæddur einstökum frá-
sagnarhæfíleikum og glaðværð og
voru sögumar sem hann sagði ófáar
og komu fólki alltaf í gott skap.
Góðmennska og tryggð í garð frænd-
fólks var eitt af hans aðalsmerkjum.
Hann hélt ávallt mikilli tryggð við
heimili okkar og það var alltaf gam-
an að sjá vinskapinn sem ríkti milli
föður okkar og hans. Maggi varð
þeirrar gæfu aðnjótandi að_ kynnast
yndislegri konu, Laufeyju Árnadótt-
ur. Umhyggja þeirra og hlýja í garð
hvors annars var einstök.
Elsku Laufey, við systur sendum
þér og öðrum aðstandendum sam-
úðarkveðjur. Guð geymi góðan
frænda og megi minningin um hann
lýsa okkur öllum veginn fram á við.
Sólveig, Hafdís og Snædís
Baldursdætur.
Vegna hagstæðra
samningagetumvið
nú boðið takmarkað
Electrolux í s s k á p a r
einstaklega
hljóölátir -
HUSASMIÐJAN
Heimasmiðjan
og sölustaðir um land allt.
magn Macintosh
Quadraásérlega
hagstæðu verði, frá
281.125,
Leitið tilboða i stærri kaup!
Apple-umboðið
Skipholti 21, Rvk.
S: (91)624800