Morgunblaðið - 08.11.1992, Page 2
EFNI
2 FRÉTTIR/INNLENT
MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 8. NÓVEMBER 1992
Tyrkneska forræðismálið
Dætur Sophiu
komnar fram
SOPHIA Hansen átti að fá að hitta dætur sínar á hóteli í Istanbul í
gær. Hasip Kaplan, lögmaður Sophiu, fékk þetta í gegn og naut hann
liðsinnis eins af átta lögmönnum Halims Als, föður stúlknanna.
Halim A1 gerði þá kröfu að Sop-
hia mætti ekki snerta dætumar, ein-
ungis tala við þær. Stefnumótið átti
að fara fram í veitingasal hótels í
Istanbul.
Samkvæmt upplýsingum sem lög-
Tónleikum
með Kris
Kristofer-
sons frestað
HINN þekkti söngvari, laga-
smiður og kvikmyndaleikari
Kris Kristoferson hefur af-
lýst öllu tónleikahaldi næstu
tvo mánuði vegna alvarlegra
veikinda í fjölskyldu hans.
Ljóst er því að ekki verður
af tónleikum sem fyrirhugað-
ir voru á Hótel íslandi 19. og
20. nóvember.
Kris Kristoferson var að
vinna við kvikmynd þegar veik-
indin komu upp og hefur vinnu
við myndina verið frestað. Að
sögn Ólafs Laufdals veitinga-
manns er stefnt að því að Kris
Kristoferson komi hingað til
lands við fyrsta tækifæri en
samkvæmt skeyti frá umboðs-
skrifstofu hans getur það ekki
orðið fyrr en í fyrsta lagi í lok
janúar eða byijun febrúar.
maður Sophiu hefur aflað sér fer
faðirinn í engu eftir leiðbeiningum
lögmanna sinna í þessu máli. Lög-
maðurinn segir að Halim A1 sé orð-
inn mjög uggandi vegna allrar þeirr-
ar fjölmiðlaumfjöllunar sem mál
þetta hefur fengið. Einnig sé hann
uggandi vegna þess að dómsmála-
ráðuneytið í Tyrklandi hefur kært
hann til saksóknara og krafist rann-
sóknar á öllum brotum hans á um-
gengnisrétti Sophiu Hansen við dæt-
ur sínar. Rannsókn á að fara fram
á meintum hótunum hans í garð
Sophiu og lögmanns hennar í Tyrk-
landi, Hasips Kaplans. Þung viðurlög
liggja við slíkum hótunum í Tyrk-
landi.
Stúlkumar, Dagbjört og Rúna,
hafa báðar verið settar í skóla. Sú
yngri gengur í skóla þar sem aðeins
er kennt úr helgibók múslima, kór-
aninum. Ekki fær hún aðra kennslu,
eins og t.d. í reikningi, skrift eða
öðrum greinum. Dagbjört, sú eidri,
gengur í annan skóla en Rúna. Hún
fær tilsögn í teikningu, reikningi og
tveimur öðrum hefðbundnum grein-
um, en megináherslan er lögð á
kennslu í kóraninum. Báðir skólarn-
ir eru reknir af strangtrúuðum mús-
limum.
Sigurður Pétur Harðarson, vinur
og aðstoðarmaður Sophiu, kveðst
hafa upplýsingar um það að dæturn-
ar hafi mátt sæta heilaþvotti, en
markmiðið með honum hafi verið
að þær gleymi móður sinni og snú-
ist gegn henni.
Réttað verður í tyrkneska forræð-
ismálinu í Istanbul næstkomandi
fimmtudag, 12. nóvember.
Morgunblaðið/Kristinn
Veðrið brást
Skíðafólk lét ekki þoku og slæmt skyggni í Bláfjöllum aftra sér
í gærmorgun og brá sér í fjöllin þegar skíðasvæðið var opnað 5
fyrsta sinn á þessum vetri. Skíðasvæðin í Skálafelli og í Bláfjöll-
um voru opin fram eftir degi. Að sögn Þorstéins Hjaltasonar
umsjónarmanns eru mörg ár síðan nægur snjór hefur verið í fjöll-
unum fyrir jól, en nú hefur fyrra opnunarmet, sem var 12. nóvem-
ber, verið slegið. „Þetta fór ekki eins fallega af stað og búist var
við,“ sagði hann. „Veðrið var aðeins á undan spánni. Færið var
að vísu ágætt, en þoka og lélegt skyggni."
Samvmnulífeyrissjóðurmn
kaupir hæð í Sambandshúsi
AÐ ÞVÍ mun nú stefnt, að Samvinnulífeyrissjóðurinn leysi til sín eina
hæð í Sambandshúsinu á Kirkjusandi, og mun vera um það að ræða
að sjóðurinn jafni á þann hátt út skuldum Sambands íslenskra samvinnu-
félaga við sjóðinn. Samkvæmt upplýsingum Morgunblaðsins á Sam-
vinnulífeyrissjóðurinn veð í hálfri annarri hæð Sambandshússins fyrir
skuldum Sambandsins sem verður nú létt af Sambandinu með því að
sjóðurinn leysir til sín eina hæð hússins.
Sigurður Markússon stjómarfor-
maður Sambandsins sagði í samtali
við Morgunblaðið að hann gæti ekki
staðfest að Samvinnulífeyrissjóður-
inn væri að kaupa aðra hæð í Sam-
bandshúsinu. Aðspurður hvort slík
k-aup væru á döfinni, sagði Sigurður:
„Þetta er eiginlega hluti af þessu
heildarmáli og ég get ekkert um það
sagt.“
„Við höfum ekki keypt neitt enn-
þá. Ég veit ekkert hvað getur orð-
ið. Við hjá Samvinnulífeyrissjóðn-
um eigum eftir að gera upp okkar
mál við Sambandið. Það á eftir að
ræða þetta, en ég býst við því að
heildarpakkinn muni liggja ljós fyr-
ir þegar samningum Sambandsins
við -Landsbankann er lokið,“ sagði
Margeir Daníelsson, forstjóri Sam-
vinnulífeyrissjóðsins, þegar Morg-
unblaðið spurði hann hvort sjóður-
inn hefði leyst til sín aðra hæð í
Sambandshúsinu á Kirkjusandi, en
sjóðurinn á fyrir eina hæð.
Evrópskt efnahagssvæði
Hægt að afgreiða samn-
inginn í lok nóvember
- segir formaður utanríkismálanefndar
BJÖRN Bjaraason formaður utanríkismálanefndar Alþingis segist ekk-
ert sjá því til fyrirstöðu að Alþingi afgreiði samninginn um Evrópskt
efnahagssvæði fyrir nóvemberlok eins og um var samið milli forustu-
manna stjóraarflokkanna í vor.
„Ég sé ekkert því til fyrirstöðu en
menn vilja vafalaust ræða það í sinn
hóp á þinginu hvemig að þessu verð-
ur staðið," sagði Bjöm. „Það náðist
gott samkomulag um afgreiðslu á
tillögu um þjóðaratkvæðagreiðsluna
og ég á ekki von á öðru heldur en
það náist gott og víðtækt samkomu-
lag um hvemig staðið verði að loka
afgreiðslu EES-málsins þótt augljóst
sé að um ágreining verði að ræða
milli flokkanna um afstöðu í málinu."
Utanríkismálanefnd Alþingis hélt
fund á föstudag með Þór Vilhjálms-
syni formanni sérfræðinganefndar
utanrikisráðuneytisins, Hannesi Haf-
stein sendiherra og aðalsamninga-
manni Islands við Evrópubandalagið,
Guðmundi Alfreðssyni þjóðréttar-
fræðingi og Bimi Þ. Guðmundssyni
prófessor. Tilgangur fundarins var
að fræðast enn frekar um atriði í
samningi um Evrópskt efnahags-
svæði er varða stjórnarskrá íslands,
en allir þessir aðilar hafa sent nefnd-
inni greinar um þann þátt samnings-
ins.
Bjöm Bjarnason sagði að nefndin
hefði farið yfir þætti samningsins,
grein fyrir grein, og þessi fundur
hafi verið lokaumræða um stjórnar-
skrársþáttinn. „Ég á ekki von á því
að það hafi breytt sjónarmiðum
nefndarmanna, en þeir glöggvuðu sig
á þeim rökum, sem liggja að baki
áliti þessara rnanna," sagði Björn.
Utanríkismálanefnd hefur haidið
fjölmarga fundi um samninginn og
kallað til sín menn til viðræðna. Sagði
Björn að nú þyrftu nefndarmenn að
setjast niður og taka saman sín álit
og ganga frá þeim og taka ákvörðun
um að Ijúka endanlegri umfjöllun.
Sambandið mun á sínum tíma
hafa greitt' lífeyrisskuldbindingar
sínar í Samvinnulífeyrissjóðnum með
því að breyta þeim í veð í Sambands-
húsinu. Lífeyrissjóðsskuldbindingar
eru forgangsréttarkröfur í þrotabúi,
en ekki venjulegar skuldir. Búist er
við því að Samvinnulífeyrissjóðurinn
reyni í framhaldi þessara skuldaskila
að selja hæðina sem hann mun leysa
til sín, því sjóðurinn hefur enga þörf
fyrir aukið húsnæði.
••
Olvuð kona
ók á vegg lög-
reglustöðvar
ÖLVUÐ kona ók bifreið sinni
á mikilli ferð á vegg lögreglu-
stöðvarinnar á Eiðistorgi um
kl. 4, aðfaranótt laugardags-
ins. Billinn er gjörónýtur eftir
ákeyrsluna. Auk konunnar var
eiginmaður hennar í bílnum
og voru þau flutt á slysadeild.
Maðurinn var mikið slasaður.
Eiginmaður konunnar skarst
á höfði og hlaut innvortis meiðsli.
Konan slapp hins vegar með
minni meiðsli. Ekki er nánar vit-
að um tildrög slyssins. Nætur-
vakt er ekki á lögreglustöðinni
á Eiðistorgi, en lögreglunni var
tilkynnt um atburðinn símleiðis.
Bíllinn, sem var af gerðinni
Skoda, er talinn gjörónýtur og
var fluttur á brott með kranabíl.
Spilað á kerfið
►Bamabætumar, mæðra- og
feðralaunin, dagvistunarrýmin,
námslánin, félagslega aðstoðin,
skatturinn og tryggingarkerfið eru
meðal þess sem kerfiskafaramir
svindla á./ 10
Ný kynslóð, breyttir
tímar
►Karl Blöndal skrifar um úrslit
forsetakosninganna í Bandaríkjun-
um, spáir í framtíðina og gerir upp
12 ára valdatímabil repúblikana./
14
Stefnir í óefni
►- segir Björgvin Lúthersson odd-
viti um atvinnulífið í Höfnum, en
bætir við að ýmislegt .megi þó gera
til úrbóta./16
Róm brennur
►Hilmar Kristjánsson ræðismað-
ur er fluttur heim frá Suður-Afríku
þar sem stjómmálaleg upplausn
og efnahagskreppa ógnar framtíð
landsins./18
Vermenn íslands
►Rætt við Hlyn Ingimarsson og
Steinar Berg Bjömsson sem báðir
era við störf í Austurlöndum
nær./20
Upphafið var virkjun
bæjarlækjarins
►Hugvitsmennirnir í Árteigi
framleiða heimilsrafstöðvar./22
Heimspeki, - framtíð-
arvon skólakerf isins
►Rætt við Matthew Lipman,
brautryðjanda í heimspekikennslu
bama./24
B
► 1-28
Lucia di Lammermoor,
Lucy Ashton eða Lýsa
á Lambamýri
►Donnizetti ferekki dult með
það, að hann sækir efnivið í ópera
sína út fyrir heimaland sitt, Ítalíu.
Lucia di Lammermoor, sú hin
ógæfusama, ber skoskt nafn,
nokkuð ítölskulegt þó, og hún
syngur á ítölsku. Hún hét upp á
ensku Lucy Ashton og var af aðals-
ætt sem kennd var við ættarsetrið
Lammermoor./l
Von Bubba Morthens
►Bubbi Morthens leiðir lesandann
í gegnum nýju plötuna sína, lag
fyrir lag./ 4
í þorpi þagnarinnar
►Listamaður verður að einangra
sig frá daglegu amstri, en enginn
fer frá sinni náttúra, segir Edda
Jónsdóttir myndlistarkona./ 8
Af ungu fólki
►Nýr greinaflokkur þar sem' ungt
fólk skrifar um ungt fólk og segir
héraf ferð 10. bekkjarÁlftamýrar-
skóla til Danmerkur í september
síðastliðnum./lO
Landhelgisbrjótur
býður til brúðkaups
►Gripið niður í endurminningar
Helga Hallvarðssonar skipherra,
sem nýlega vora gefnar út hjá
forlagi AmarogOrlygs./ 12
►
► FASTiR ÞÆTTIR
Fréttir 1/2/4/6/bak Kvikmyndir 17b
Leiðari 26 Fólk í fréttum 18b
Helgispjall 26 Myndasögur 20b
Reykjavíkurbréf 26 Brids 20b
Minningar 34 Stjömuspá 20b
íþróttir 46 Skák 20b
Útvarp/sjónvarp 48 Bíó/dans 21b
Gárur 51 Bréf til blaðsins 24b
Mannlífsstr. 6b Velvakandi 24b
Dægurtónlist 16b Samsafnið 26b
INNLENDAR FRÉTTIR:
2-6-BAK
ERLENDAR FRÉTTIR;
1-4