Morgunblaðið - 08.11.1992, Side 37
skildu fór pabbi að vinna sjálfstætt
við lagnir og hreinsun teppa.
Árið 1970 giftist pabbi Áslaugu
Guðmundsdóttur. Þeim varð ekki
barna auðið en þó var Jórunn,
frænka Áslaugar, mikið hjá þeim
sem bam. Samband pabba og Ás-
laugar leystist upp 6 árum seinna.
Arið 1977 tók pabbi saman við
Hönnu Hlöðversdóttur og bjuggu
þau saman ásamt þremur börnum
hennar. Endaði þeirra sambúð 4
árum seinna og bjó pabbi einn upp
frá því.
Hin síðari ár vann hann aðallega
sem sjálfstæður tjónaverktaki.
Reyndust Trygging hf. og Trygg-
ingamiðstöðin honum ákaflega vel
í veikindum hans síðustu árin.
Pabbi var mjög sjálfstæður per-
sónuleiki og vann sig út úr öllum
erfiðleikum af hörku og ósérhlífni.
Hvort sem það voru fjárhagslegir
örðugleikar, bakveiki sem hijáði
hann alla ævi eða krabbameinið sem
að lokum dró hann til dauða, þá lét
hann aldrei bilbug á sér finna. Kom
því mörgum af hans nánustu á óvart
hversu þungt hann var haldinn síð-
ustu árin.
MORGUNBLAÐIÐ
HUOAGUH14112 GIGAJaVlUOflOM
MIISININGAR SUNNUDAGUR B. NÓVEMBER 1992
37
Okkur bræðrum er mikill söknuð-
ur í föður okkar og þótti okkur leitt
að missa hann aðeins 61 árs gaml-
an. En við þökkum þær samveru-
stundir og góðu minningar sem við
eigum um hann. Einstök rósemi
pabba og trú hans á það góða gerði
honum lífið léttbærara og okkur
sem umgengust hann.
Blessuð sé minning hans.
Kjartan Bergsson og
Bergur H. Bergsson.
Mig langar til að minnast fáum
orðum vinar sem nú er látinn langt
um aldur fram eftir hetjulega bar-
áttu við einn af ógnvöldum mann-
kynsins, krabbameinið. Ég kynntist
Bergi strax á barnsaldri því hann
var þá kvæntur Jónu, æskuvinkonu
móður minnar. Bergur og Jóna
eignuðust tvo drengi, Berg og
Kjartan, báðir fyrirmyndarmenn
sem stofnað hafa eigin fjölskyldur.
Þó leiðir Bergs og Jónu skildu hafði
hann alla tíð talsvert samband við
mig og fjölskylduna.
Eg minnist Bergs sem ákaflega
greiðvikins og ráðagóðs manns,
enda eru ófá viðvikin sem hann
hefur gert fyrir mig bæði fyrr og
síðar og þykist ég vita að svo er
um marga fleiri sem hann hafði
samskipti við á lífsleiðinni. Heiðar-
leiki og góðvild voru áberandi þætti
í fari Bergs en hann var jafnframt
lífsglaður maður og átti hann gott
með að kalla fram glettni og gáska
þegar við átti, sem hafði ákaflega
góð áhrif á það fólk sem hann hafði
í nálægð sinni.
Þegar sjúkdómsins varð vart fyr-
ir nokkrum árum kom engin upp-
gjöf til greina hjá honum Bergi,
heldur var barist áfram af kjarki
og trú á framtíðina. Til marks um
viljann þá stundaði hann vinnu fram
undir það síðasta eða meðan nokk-
urt. þrek var eftir.
Með vonina eina að vopni réðst
hann einnig nýlega í kaup á nýju
húsnæði með tveimur sona sinna
en þeirra ávaxta fær hann víst ekki
að njóta í þessu jarðneska lífi.
Með þessari fátæklegu kveðju vil
ég kveðja góðan dreng og vin um
leið og ég og mín fjölskylda vottar
öllum aðstandendum dýpstu samúð.
Nú legg ég augun aftur
ó, Guð, þinn náðarkraftur
mín veri vöm í nótt.
Æ, virzt mig að þér taka,
mér yfir láttu vaka
þinn engil, svo ég sofi rótt.
(Ur þýsku - Sveinbjörn Egilsson)
Blessuð sé minning Bergs Sól-
mundssonar.
Milla.
Einbýlishús óskast
Leitum að góðu einbýlishúsi í Reykjavík, vestan Elliða-
áa, helst á Stóragerðissvæðinu, í Fossvogsdal eða Hlíð-
unum. Húsið þarf að vera 250-280 fm að stærð og
þar af 4 svefnherbergi.
Þeir, sem eiga hús sem þetta og vilja selja, vinsamleg-
ast leggi nöfn sín ásamt öðrum nauðsynlegum upplýs-
ingum inn á auglýsingadeild Mbl., merkt: „Trúnaðarmál
- 8250“ fyrir 13. nóvember.
Tannlæknastofa Grafarvogi
Hef opnað tannlæknastofu í verslunarmið-
stöðinni Hverafold 1-3.
Tekið er á móti símapöntunum.frá
kl. 10.00-12.00 og 13.00-16.00.
Auður G. Eyjólfsdóttir,
tannlæknir.
Lítið í glnggan um helgina
SÓFASETT — HORNSÓFAR — STAKIR SÓFAR
Ótal gerðir og litir í leðri. Hvíldarstólar við allra hæfi.
Borðstofuhúsgögn í mörgum viðartegundum.
Ný sending af enskum Chesterfield sófasettum úr leðri.
VI 11 / .« .
cd VamusM
S_------------------0.q—
Raðfööshr Ármúla 8, símar 812275 og 685375.
MARMOLEU
á MARMOLEUM gólfefnum
í verslun okkar að Síðumúla I4
frá mánudegi til laugardags
í tilefni nýrrar litalínu.
MARMOLEUM er unniö úr náttúrulegum
efnum og er því fullkomlega vistvænt.
MARMOLEUM fæst í 68 litum.
MARMOLEUM bý&ur heildarlausn í
gólfefnum með óteljandi samsetningar-
möguleikum.
Ólöf Flygenring arkitekt og Júlía P. Andersen
innanhússarkitekt ver&a í versluninni frá
klukkan 16-18 alla sýningardagana og
veita viðskiptavinum ókeypis ráðleggingar
um val á MARMOLEUM.
KJARAN
Gólf búnaður
SÍÐUMÚLA 14 • SÍMI (91) 813022