Morgunblaðið - 08.11.1992, Page 38
seei jiaaMavðM .8 auoAauvivius MnS\QM\AWVlWTA ŒÖAJaVÍUOflOM
ATVINNURAD-
OG SMÁAUGLÝSINGAR
•... GÝ■ Á.■' ;V.
i AUGL YSINGAR
Sölumaður
Heildverslunin Þokki hf. óskar að ráða sölu-
mann til sölu á snyrtivörum fyrirtækisins.
Umsóknar óskast sendar til Þokka hf., Faxa-
feni 9, 108 Reykjavík, fyrir 14. nóvember
1992.
Þokkihf.,
sími 677599, fax 677595,
Viðskiptafræðingur
- lögfræðingur
Fyrirtæki í vexti óskar eftir lögfræðingi eða
viðskiptafræðingi til samstarfs.
Svar leggist inn á auglýsingadeild Mbl. fyrir
fimmtudaginn 12. nóvember, merkt:
„Framtíð-10134"
Vélaviðgerðir
Óskum að ráða menn á verkstæði okkar til
viðgerða á þungavinnutækjum. Skilyrði er
að menn hafi reynslu í viðhaldi tækja og
geti starfað sjálfstætt.
Upplýsingar gefur Sigurður Jónsson
í síma 985-32997.
JVJhf.,
Drangahrauni 10-12,
Hafnarfirði.
Rannsóknastaða
við Þjóðminjasafn
íslands
Laus er til umsóknar rannsóknastaða í forn-
leifafræði við Þjóðminjasafn íslands, tengd
nafni dr. Kristjáns Eldjárns fyrrum þjóðminja-
varðar og forseta íslands.
Staðan er ætluð fræðimönnum er sinna rann-
sóknum á íslenskum forminjum eða öðrum
þáttum íslenskrar menningarsögu sem falla
undir verksvið Þjóðminjasafns íslands.
Ráðið er í stöðuna til eins árs að jafnaði og
má framlengja ráðninguna um allt að eitt ár
í senn. Þó er ráðningartími aldrei lengri en
þrjú ár samfellt. Staðan verður veitt frá.og
með 1. janúar 1993.
Áskilið er að sérfræðingur sem gegnir stöð-
unni birti í lok ráðningart'mabils fræðilega
skýrslu eða vísindalega ritgerð um
rannsóknir sínar.
Menntamálaráðherra veitir stöðuna að til-
lögu þjóðminjavarðar.
Umsóknareyðublöð fást á skrifstofu Þjóð-
minjasafnsins.
Umsóknir berist undirrituðum, sem jafnframt
veitir allar nánari upplýsingar, eigi síðar en
1. desember nk.
Þjóðminjavörður.
Hrafnista Reykjavík
Hjúkrunarfræðingar
Verkstjóri ívinnustofu
Staða hjúkrunarfræðings er laus frá byrjun
janúar á nýuppgerðri hjúkrunardeild þar sem
vinnuaðstaða er hin besta. Um er að ræða
60-80% starf, kvöldvaktir virka daga og
dagvaktir/kvöldvaktir aðra hvora helgi.
Unnið er eftir hjúkrunarskráningu.
Upplýsingar veita ída og Jónína í símum
35262 og 689500.
Óskum eftir verkstjóra í vinnustofu heimilis-
fólks frá 1. janúar 1993.
Handavinnukennaramenntun eða sambæri-
leg menntun æskileg.
Upplýsingar veitir Jóhanna Sigmarsdóttir í
síma 689500.
Krefjandi starf í
þróunardeild
Við leitum að dugmiklum og drífandi starfs-
manni er hefur til að bera frumkvæði, reynslu
af sjálfstæðum vinnubrögðum, reynslu af
vinnu við matvælaiðnað og góða tungumála-
kunnáttu. Æskileg menntun á einu neðantal-
inna sviða:
Matvælafræði
sjávarútvegsfræði
vélaverkfræði
Boðið er upp á góða vinnuaðstöðu, gott
starfsumhverfi, sanngjörn laun og fjölbreytt
verkefni.
Starfssvið:
• Þróun bitavinnslu með það að markmiði
að auka nákvæmni og möguleika á
vinnslu.
• Þróun sérvinnslu fyrir meginlandsmark-
aði Evrópu.
• Þróun pakkninga og annarra tilfallandi verk-
efna fyrir Evrópu- og Ameríkumarkað.
Nánari upplýsingar veitir Benjamín Axel
Árnason, ráðningastjóri Ábendis.
Farið verður með allar umsóknir og fyrir-
spurnir sem trúnarðarmál.
Vinsamlega sækið um á eyðublöðum sem
liggja frammi á skrifstofu okkar á Laugavegi
178(2. hæð á horni Bolholts og Laugavegar)
Sími 689099
iwx jor c x'. faoninctxr
Vantar
til lausastarfa
blaðamenn, Ijósmyndara, hönnuði og
auglýsingateiknara. Einnig fyrir viðskiptavin
á sviði andlegra mála vantar listamann eða
„síðuskreytara".
Sendið upplýsingar og sýnishorn af vinnu
sem fyrst til:
Litla útgáfuþjónustan,
pótshólf4238, 124 Reykjavík.
Skrifstofustarf
HOF sf. (eignarhaldsfélag Hagkaups og
IKEA) vill ráða starfsmann til skrifstofustarfa.
Helstu verkefnin í starfinu eru:
- Létt bókhaldsvinna.
- Ritarastörf.
- Símavarsla.
Æskilegt er að umsækjendur uppfylli
eftirfarandi skilyrði:
- Þekki ritvinnsluforritið Word og töflureiknin
Excel.
- Hafi grunnþekkingu á bókhaldi.
- Hafi stúdentspróf eða sambærilega
menntun.
- Séu eldri en 20 ára.
- Geti unnið langan vinnudag þegar þörf er á.
Umsóknum með upplýsingum um aldur,
menntun og fyrri störf skal skila til skrifstofu-
stjóra, Skeifunni 15, 108 Reykjavík, fyrir
13. nóvember nk.
Farið verður með allar umsóknir sem trúnað-
armál og öllum svarað.
Hofsf.
Lögfræðingur
Stór, opinber þjónustustofnun í borginni
óskar að ráða lögfræðing til starfa. Starfið
er laust strax eða samkvæmt nánara sam-
komulagi.
Starfssvið: Semja lögfræðilegar álitsgerðir
þar sem krafist er almennrar og haldgóðrar
þekkingar. Jafnt kemur til greina í þetta
starf nýútskrifaður fögfræðingur sem og
einstaklingur með starfsreynslu.
Góð vinnuaðstaða er fyrir hendi.
Um er að ræða sjálfstætt og krefjandi starf.
Launakjör taka mið af samningum B.H.M.R.
Allar nánari upplýsingar fást á skrifstofu
okkar. Farið verður með umsóknir sem trún-
aðarmál.
Umsóknir, er tilgreini aldur og starfs-
reynslu, sendist skrifstofu okkar fyrir 18.
nóv. nk.
Guðnt IÓNSSON
RÁÐCJÖF & RÁÐNINCARÞJÓNUSTA
TIARNARGÖTU 14, 101 REYKJAVÍK, SÍMl 62 13 22