Morgunblaðið - 08.11.1992, Qupperneq 46
46
MORGUNBLAÐIÐ IÞROTTIR SUNNUDAGUR 8 NÓVEMBER 1992
KORFUKNATTLEIKUR / NBA-DEILDIN
Nær Chicago Bulls þrennu?
Boston Celtics afrekaði það síðast 1966
MEISTARAR Chicago Bulls eru taldir sigurstranglegastir í NBA-
deildinni íkörfuknattleik, sem hófst nú um helgina íBandaríkjun-
um og eiga þeir möguleika á aö verða fyrstir frá 1966 til að vinna
N B A-titilinn eftirsótta þrjú ár í röð, eða frá því að Boston Celtic
vann það afrek. Eins og ffyrra var einn leikur ífyrstu umferð-
inni leikinn i'Japan - Seattle og Houston mættust íYokohama
á föstudaginn. Leikurinn var liður íað kynna NBA-deildina í Jap-
an, en deildin er þegar orðin geysilega vinsæl f Evrópu og víð-
ar. „Við verðum að endurnýja ýmislegt hjá okkur og þá fyrst
viljann til að vinna þriðja árið í röð. Ástæðan fyrir því er að þó
nokkrar breytingar hafa verið á leikmannahópi okkar og óreynd-
ir leikmenn eru komnir í hópinn," sagði Phil Jackson, þjálfari
Chicago Bulls áður en tímabilið hófst.
Gunnar
Valgeirsson
skrifar frá
Bandaríkjunum
Það eru ekki aðeins breytingar
hjá meistaraliðinu, heldur
hafa miklar breytingar orðið á þjálf-
urum og leikmönn-
um hjá öðrum félög-
um. Níu nýir þjálfar-
ar verða í sviðsljós-
inu, meða[ þeirra
þjálfari „draumaliðsins" á Ólympíu-
leikunum í Barcelona. Chuck Daly
hætti hjá Detroit Pistons og tók við
New York Knickerbrockers. Liðið
er skipað mjög ungum og skemmti-
,uk>gum leikmönnum og nánast með
nýja leikmenn í flestum stöðum.
Chicago Bulls er að sjálfsögðu
talið sigurstranglegast í Austur-
deildinni, en þau lið sem koma til
með að veita meisturunum hvað
harðasta keppni eru talin Cleveland
Cavaliers, New York Knicks og
New Jersey Nets. í Vesturdeildinni
er Portland Trail Blazer talið sigur-
stranglegasta liðið á ný, en Phoenix
Suns og Utah Jazz eru talin helstu
keppinautar liðsins. Los Angeles
J^akers var talið þar með þar til í
vikunni að fréttir bárust um að
Earvin „Magic“ Johnson væri hætt-
ur við að að byrja að leika með lið-
inu á ný.
Þjálfaraskipti
Þar sem Chuck Daly tók við New
York Knicks (af Pat Riley, fyrrum
þjálfara LA Lakers — þeim brillíant-
íngreidda) var Ron Rothstein ráðinn
til Detroit, en hann er „Bjami Fel“
þeirra Detroit-manna, starfaði áður
sem íþróttafréttamaður í sjónvarpi.
Dan Issel hefur tekið við Denver
Nuggets, en hann er fyrrum leik-
maður liðsins. Doug Moe hefur tek-
ið við liði Philadelphia 76ers á ný
Og Garry St. Jean er orðinn þjálf-
ari Sacramento Kings.
Paul Westpahl hefur tekið við
stjórninni hjá Phoenix, en hann er
fyrrum leikmaður félagsins og tal-
inn framtíðarþjálfari í NBA-deild-
inni. Mörg félög hafa haft augastað
á honum, en hann vildi ekki fara
frá félaginu. Kaus að vera aðstoðar-
þjálfari hjá Phoenix.
Breytingar hjá New York
Mikið hefur verið um félaga-
Austurdeildin
Hér koma liðin sem leika í Austur-
deildinni. Röð liðanna er eins og
■> gengi þeirra er spáð í vetur. Sigur-
vegarinn úr hveijum riðli í deildunum
tveimur (austur og vestur) kemst í
úrslitakeppnina og síðan þau sex
félög sem ná bestum árangi í riðlun-
um tveimur í deildunum, en átta Iið
úr hvorri deild komast í úrslitakeppn-
ina.
Miðriðill:
Chicago Bulls
Cleveland Cavaliers
Charlotte Homets
Detroit Pistons
Atlanta Hawks
Milwaukee Bucks
Atlanthafsríðill:
New York Knicks
New Jersey Nets
Boston Celtics
Miami Heat
Philadelphia 76ers
Orlando Magic
Washington Bullets
Charles Barkley er byrjaður að leika með Phoenix, eftir gott gengi
með liði Philadelphia.
Charles Smith er kominn tii New
York Knicks frá L.A. Clippers. Hann
er mjög sterkur miðheiji.
Kóngurirm
Michael
Jordan hefur
verið lykilmað-
urinn hjá
Chicago Bulls á
sigurgöngu fé-
lagsins und-
anfarin tvö
keppnistímabil.
Tekst honum
að leiða lið sitt
til sigurs þriðja
árið í röð?
skipti hjá leikmönnum og er aðal-
ástæðan fyrir því að ákveðíð var
að hækka launaþakið hjá leikmönn-
um, þannig að aðeins tólf leikmenn
hjá hveiju félagi vom á ákveðnum
heildarlaunum. Það hefur gert það
auðveldara fyrir framkvæmdastjóra
NBA-félaganna að fá nýja leikmenn
til sín.
Mestu breytingarnar hafa orðið
hjá New York Knicks eins og fyrr
segir. Félagið hefur fengið mikinn
liðsstyrk í Charles Smith, sem er
mjög sterkur miðheiji, en hann kom
frá Los Angeles Clippers. Frá Clipp-
Miðvesturriðill:
Utah Jazz
San Antonio Spurs
Houston Rockets
Denver Nuggets
Minnesota Timberwolves
Dallas Mavericks
Kyrrahafsriðill:
Portland Trail Blazers
Phoenix Suns
Los Angeles Lakers
Golden State Warriors
Seattle Supersonics
Los Angeles Clippers
Sacramento Kings
Stöð 2 áfram
með NBA-þætti
STÖÐ 2 verður með sérstaka
umfjöllun um NBA-deildina í
vetur eins og undanfarin ár, í
íþróttaþætti sínum á sunnu-
dögum — og umsjónarmenn
eru þeir sömu og áður, Einar
Bollason og Heimir Karlsson.
Keppni í bandarísku atvinnu-
mannadeildinni í körfubolta,
NBA, hófst á föstudag og í þætt-
inum á Stöð 2 í dag verður spáð í
keppni vetrarins og liðin kynnt.
„Frá og með 15. nóvember
[næsta sunnudegi] má segja að
NBA-deildin fari af alvöru í gang
hjá okkur. Frá og með þeim degi
verður vikulega NBA-action þáttur
— sem ég vil reyndar leyfa mér
að lýsa eftir íslensku nafni á —
klukkan eitt, strax í uþphafi þáttar-
ins íþróttir á sunnudegi, og síðan
lýkur þættinum á því að sýndur
verður leikur vikunnar. Venjulega
verður það líklega 5-7 daga gam-
all leikur,“ sagði Heimir Karlsson
á Stöð 2 í samtali við Morgunblaðið.
Umræddur NBA-action þáttur
er byggður upp á ýmsum fróðleiks-
molum úr sögu deildarinnar og
svipmyndum af snilldartilþrifum
leikmanna fyrr og nú.
Heimir segir Stöð 2 engu ráða
um val á leik vikunnar, það væri
alfarið mál NBA-manna sjálfra
hvað þeir sendu frá sér. „Menn
hafa talsvert hringt og spurt um
þetta atriði og kvartað yfír því að
mikið sé um að sömu liðin sjáist á
skjánum. Áður fyrr virtist það
skipta litlu máli, menn hérlendis
héldu mest með Boston og Lakers,
en nú eiga menn orðið alls konar
uppáhaldslið í deildinni og vilja fá
að sjá þau.“
Stefnt er að því að sýna eitthvað
beint frá úrslitakeppninni í Vor, þó
ekkert hafi reyndar verið ákveðið
í því efni að sögn Heimis, en hann
lagði áherglu á að reynt yrði að
sýna alla úrslitaleikina sjálfa beint
— þ.e. þegar aðeins tvö lið verða
eftir í baráttunni. Sl. keppnistíma-
bil sýndi Stöð 2 þá beint að tveim-
ur fyrstu undanskildum.