Morgunblaðið - 11.11.1992, Síða 2
MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 11. NÓVEMBER 1992
Bæjarstjórn Ólafsfjarðar
Brottvikning Bjarna Kr. Grímssonar úr embætti bæjarstjóra í Ólafs-
firði var ti! umræðu á fundi bæjarsijómar þar í gærkvöldi. Umræðan
stóð í um þrjá tíma og komu fram i máli minnihlutamanna harðar
ásakanir á meirihluta Sjálfstæðisflokks. Tillögu minnihlutans um að
bæjarstjórn hafi forgöngu um að fram fari opinber rannsókn á við-
skiptum Fjskmars hf., sem einn bæjarfulltrúa var framkvæmdastjóri
fyrir, og Ólafsfjarðarbæjar, var vísað til bæjarráðs.
í tillögu minnihlutans um rann- slík rannsókn fari fram á vegum
sókn á viðskiptum Fiskmars og 01-
afsfjarðarbæjar segir að ekki verði
lengur við það unað að málið sé
óupplýst og því rétt að bæjarstjóm
hafi forgöngu um að leiða það til
lykta með opinberri rannsókn og að
bæjarráði verði falið að kanna með
hvaða hætti best verði staðið að slíkri
rannsókn. Sigurður Björnsson for-
-maður bæjarráðs og fyrrverandi
framkvæmdastjóri Fiskmars sagði
að hann hefði þegar óskað eftir að
Félag verksmiðjufólks
Kostnaðar-
lækkanir og
tilfærslur í
skattamálum
í ÁLYKTUN sem samþykkt var á
félagsfundi hjá Iðju, félagi verk-
smiðjufólks, kemur fram stuðn;
ingur við hugmyndir forseta ASI
um kostnaðarlækkanir og skattat-
ilfærslur, þ.e. hátekjuskatta og
fjármagnsteknaskatt, til lausnar
vanda í atvinnumálum.
Meðal þess sem kemur fram í
ályktuninni eru vaxandi áhyggjur af
atvinnuleysi og versnandi kjörum.
Fundurinn hafnar gengisfellingu og
telur hana verri kost en kostnaðar-
lækkanir þar sem gengisfelling
myndi raska öllum áætlunum fólks,
hækka lán og auka greiðslubyrðar
heimilanna.
-----»■■-»-«--
embættis ríkissaksóknara og á það
hefði verið fallist þannig að hann
myndi nú í dag, miðvikudag senda
gögn varðandi það mál. „Ég vil vísa
þessu máli sjálfur til saksóknara til
að sýna að ég hef hreina samvisku
í þessu máli,“ sagði Sigurður.
Bjöm Valur Gíslason, oddviti
minnihlutans í bæjarstjórn, gagn-
rýndi framgang meirihlutans í þessu
máli og sagði sjálfstæðismenn hafa
leikið bæjarfélagið grátt, flokkurinn
væri gegnsýrður af innanflokksátök-
um og ófær um að stjóma bæjarfé-
laginu. Þá sagði hann að ef farið
yrði eftir samningum sem legið
hefðu fyrir bæjarráði fyrir nokkru
myndi uppsögn bæjarstjóra kosta
bæjarsjóð tæpar 4 milljónir króna.
Óskar Þór Sigurbjörnsson, forseti
bæjarstjórnar, sagðist harma að
svona hefði farið en röð misklíðar-
mála hefði magnast upp í hatramm-
ar deilur milli manna sem enduðu
um þessum hætti.
Norræn menningarkynning hafin í London
Mesta lista- og menningarkynning, sem Norðurlönd-
in hafa staðið að sameiginlega á Bretlandi, hófst í
gær. Listahátíðin er haldin í Barbican menningar-
miðstöðinni í London. Forseti íslands var viðstaddur
setningarathöfnina í gær ásamt Margréti Dana-
drottningu, Koivisto, fo^seta Finnlands, og konungs-
hjónum Noregs og Svíþjóðar auk Elísabetar Bret-
landsdrottningar. A myndinni heilsar Bretadrottning
ljósmyndurunum Ragnari Axelssyni og Páli Stefáns-
syni, sem sýna myndir sínar í menningarmiðstöðinni.
íslandsbanki hækkar verðtryggða útlánsvexti um 0,25 prósentustig
Fylgjum eftir vaxtahækkunum
sem orðið hafa á markaðnum
- segir Ragnar Önundarson, framkvæmdastjóri hjá íslandsbanka
Ekkert lát
áskjálftum
við Kötlu
EKKERT lát er á sþjálftavirkn-
inni á Kötlusvæðinu og staðan
þar óbreytt frá því að skjálftarn-
ir hófust í sumar. Að sögn Páls
Einarssonar jarðeðlisfræðings
hefur skjálftavirkni af þessum
toga oft staðið lengi á árum áður
og því ekki hægt að tejja skjálfta-
virknina nú óeðlilega.
Sem fyrr mælast um 10 skjálftar
á viku, þeir stærstu í kringum 3
stig á Richter. Að sögn Páls hafa
rannsóknir á skjálftavirkninni nú
ekki getað leitt í ljós hvort um sam-
drátt eða þenslu er að ræða undir
jöklinum en þær rannsóknir halda
áfram.
ÍSLANDSBANKI hækkar vexti á
verðtryggðum útlánum um 0,25
prósentustig á vaxtabreytingar-
degi í dag, en vextir á óverð-
tryggðum útlánum breytast ekki
nema að víxilvextir lækka um 0,2
prósentustig í 11,60% og vextir
á yfirdráttarlánum lækka um 0,1
prósentustig. Utlánsvextir á
verðtryggðum lánum í algeng-
asta flokki eru eftir breytinguna
9,5%. Þá hækkaði ávöxtunar-
krafa á húsbréfum hjá Lands-
bréfum, viðskiptavaka húsbréfa,
17,95% I gær og hefur ávöxtunar-
krafan hækkað um fjórðung úr
grósenti á tæplega mánuði.
Ávöxtunarkrafa húsbréfa hefur
ekki verið jafn há frá í febrúar-
mánuði í ár.
Ragnar Önundarson, fram-
kvæmdastjóri hjá íslandsbanka,
sagði aðspurður um ástæður vaxta-
hækkunarinnar að þeir væru að
fylgja eftir vaxtahækkunum sem
orðið hefðu á markaðnum. Raun-
ávöxtun á spariskírteinum á eftir-
markaði á Verðbréfaþingi íslands
hafi hækkað frá september til októ-
ber og íslandsbanki hækki vextina
í samræmi við það. Algengustu
vextir á verðtryggðum útlánum hjá
bankanum séu nákvæmlega 2% yfír
vöxtum á eftirmarkaði eins og
gengið hafí verið útfrá.
Raunávöxtun á spariskírteinum
á eftirmarkaði á Verðbréfaþingi
íslands hækkaði í 7,54% í október
samanborið við 7,28% í september
eða um 0,26 prósentustig. Raun-
ávöxtunin var 7,10% í ágúst og
hafði þá sigið upp á við um 0,18
prósentustig frá því í maímánuði í
kjölfar kjarasamninga, en í tengsl-
um við þá voru vextir á spariskír-
teinum lækkaðir um eitt prósentu-
stig úr 7,5% í 6,5%. Þá gáfu innláns-
stofnanir út yfírlýsingar sem aðilar
vinnuinarkaðarins túlkuðu þannig
að viðmiðun við ákvörðun á vöxtum
algengustu flokka fasteigna-
tryggðra skuldabréfa yrði með um
það bil 2% vaxtaálagi á spariskír-
teini ríkissjóðs í frumsölu eða á
eftirmarkaði.
Annað útboð af þremur í ár á
spariskírteinum ríkissjóðs fer fram
f dag. Verða boðnar út 100-400
milljónir króna til 5 og 10 ára.
Aðrar innlánsstofnanir breyta ekki
vöxtum í dag að öðru leyti en því
að álag á kjörvexti í c-flokki hjá
Búnaðarbanka hækkar úr 1,75% í
2%.
Hagkvæmniathugun vegna sæstrengs samþykkt
Hollensku fyrirtækin bíða eftír
ákvörðun Reykjavíkurborgar
SAMNINGUR um hagkvæmniat-
hugun á framleiðslu, flutningi
og dreifingu raforku frá íslandi
um sæstreng til Hollands hefur
nú verið samþykktur af hinum
þremur hollensku fyrirtækjum,
PGEM, EPON og NKF Kabel.
Taka átti afstöðu til samningsins
á fundi borgarsljórnar sl.
fimmtudag en ákvörðun var
frestað til næsta fundar. Verk-
efnissljórinn, Jaap Sukkel, segir
framkvæmd hagkvæmniathug-
unarinnar bíða ákvörðunar borg-
aryfirvalda.
Harðar ásakanir vegna
uppsagnar bæjarstjóra
í dag
Hassmálið i Marokkó
íslendingurinn má búast við allt
að 5 ára fangelsi. 4
Forræðismáliö í Tyrklandi
Dómarí tekur ekki afstöðu til frá-
vfsunarkröfu Sophiu. 18
Tvíburarnir á Akranesi
Samningar náðust í gær milli
Feyenoord og Skagamanna. 42
Leiðari
Skuldastaða sjávarútvegsins 22
Bækur
► Ljóðahátíð í Lundi - Hvemig
var Federico? Um García Lorea
- Heimspekirit - Ljóðabækur -
Smásögur - Allsherjargoðinn -
Hundshjarta Búlgakovs
Úr verinu
► Loðnuskipin með megnið af
síldarkvótanum - Sjávarútvegs-
ráðherra Mexlkó lýst vel á sam-
vinnu við íslendinga - Ástand ís-
lenzka þorskstofnsins
Myndasögur
► Eldspýtnastokkaleikur -
Hver fær bréfið? - Falin setning
- Leikhúsin í landinu - Svör við
þrautum.
Nú eru staddir hér á landi 5
Hollendingar, þ. á m. yfirmenn yfir
fjórum af þeim fimm vinnuhópum,
sem hafa verið ákveðnir í tengslum
við hagkvæmniathugunina. Reykja-
vikurborg á eftir að skipa yfirmann
yfir hópnum um virkjanir. Hollend-
ingamir hafa verið að funda með
aðilum innan borgarinnar, þ. á. m.
rafmagnsstjóra, hafnarstjóra og
borgarhagfræðingi og í dag munu
þeir kynna verkefnið fyrir borgar-
fulltrúum.
„Vinnuhópamir sem hafa verið
myndaðir eru nú tilbúnir að hefja
vinnu við hagkvæmniathugun sem
væntanlega mun standa yfír í 1 lh
ár. Fyrsta stigið mun taka 6 mán-
uði þar sem við munum m.a. rann-
saka uppbyggingu kapalsins. Einn-
ig þurfum við að rannsaka ná-
kvæmlega þá leið sem strengurinn
þarf að fara eftir sjávarbotninum,
sérstaklega leiðina frá íslandi til
Færeyja,“ segir Sukkel.