Morgunblaðið - 11.11.1992, Qupperneq 4
4
MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR il. NÓVEMBER 1992
Morgunblaðið/Gunnar Blöndal
Utför Þórðar Þ. Þorbjarnarsonar
Útför Þórðar Þ. Þorbjamarsonar borgarverkfræðings var gerð frá Hallgrímskirkju í gær að viðstöddu
fjölmenni. Sr. Jón Bjarman jarðsöng. Utförin fór fram á vegum Reykjavíkurborgar í virðingarskyni við
hinn látna. Kistuna bám Davíð Oddsson forsætisráðherra, Markús Öm Antonsson borgarstjóri, Ólafur B.
Thors forstjóri, Birgir ísl. Gunnarsson bankastjóri, Tryggvi Ásmundsson læknir, Jón G. Tómasson borgar-
ritari, Guðmundur Kr. Guðmundsson arkitekt og Björn Björnsson prófessor.
VEÐUR
VEÐURHORFUR / DAG, 11. NOVEMBER
YFIRLIT: Fyrir sunnan land er all víðáttumikið lægðarsvæði sem þokast
austur.
8PÁ: Norðanátt, sumstaðar allhvöss vestanlands en heldur hægari ann-
ars staðar. Bjartviðri sunnanlands en él í öðrum landshlutum.
VEÐURHORFUR NÆSTU DAGA:
HORFUR Á FIMMTUDAG: Breytileg eða suðvestlæg átt, víðast gola
eða kaldi og fremur kalt. Él um suðvestan- og vestanvert landið.
HORFUR Á FÖSTUDAG OG LAUGARDAG: Breytileg átt, gola eða kaldi
og fremur kalt. Sumstaðar él á annesjum en annars þurrt og víða létt-
skýjað.
Nýir veðurfregnatímar: 1.30. 4.30, 7.30, 10.45, 12.45, 16.30, 19.30,
22.30. Svarsími Veðurstofu Islands — Veðurfregnir: 990600.
▼
Heiðskírt
/ / /
/ /
/ / /
Rigning
tik Gi A •
Léttskýjað Hálfskýjað Skýjað Alskýjað
* / * * * *
* / * *
/ * / * * *
Slydda Snjókoma
V ^ V
Skúrir Slydduél Él
Sunnan, 4 vindstig.
Vindörin sýnir vindstefnu
og f)aðrimar vindstyrk,
heil fjööur er 2 vindstig.^
10° Hitastig
Súld
Þoka
V
stig..
FÆRÐA VEGUM: (Kl.17.30ígær)
Hálka á vegum í nágrenni Reykjavíkur og austur um Árnessýslu en að
öðru leyti greiðfært og er vel fært um Suðurland til Austfjarða, en hálka
á fjallvegum.
Ágæt færð er fyrir Hvalfjörð um allt Vesturiand, vestur fyrir Gilsfjörð
en umtalsverð hálka er á þessu svæði. Klettsháls er ófær vegna veð-
urs. Fært er milli Patreksfjarðar og Tálknafjarðar en Hálfdán og Hrafns-
eyrarheiöi eru ófærar.
Greiðfært er norður yfir Holtavörðuheiði. Þar er hálka og ti! Hólmavíkur
og þaðan er stórum bílum og jeppum fært til ísafjarðar, skafrenningur er
á Breiðadals- og Botnsheiðum en þær eru færar.
Fært er um Norðurland og Norðausturland og allt til Austfjarða en hálka
er é fjallvegum.
Lágheiði og Axarfjarðarheiði eru ófærar vegna snjóa.
Upplýsingar um færð eru veittar hjá Vegaeftirliti í síma 91-631500 og
í grænni línu 99-6315. Vegagerðin.
VEÐUR VÍÐA UM HEIM
kl. 12.00 í gær að ísl. tíma
Akureyri Reykjavík hitl +1 0 voöur alskýjað léttskýjað
Bergen s rigning
Helsinkl 3 skýjað
Kaupmannahöfn 8 þokumóða
Narssarssuaq +11 léttskýjað
Nuuk snjókoma
Ósló 1 skýjað
Stokkhólmur s skýjað
Þórshöfn 6 skúr
Algarve 19 skýjað
Amsterdam 10 skúr
Barcelona vantar
Berlín 8 rigning
Chicago 8 alskýjað
Feneyjar 11 alskýjað
Frankfurt 10 skýjað
Glasgow 8 skúr
Hamborg 8 skúr
London vantar
Los Angeles vantar
Lúxemborg 10 skýjað
Madrfd 15 þokumóðá
Malaga 20 mistur
Mallorca 19 hálfskýjað
Montreal +4 skýjað
NewYork 2 léttskýjað
Oriando 22 skýjað
París 12 skýjað
Madeira 21 skýjað
Róm 20 þokumóða
Vín 6 hálfskýjað
Washington 2 mistur
Winnipcg +1 snjókoma
Gripinn í Ceuta með 10,5 kíló af hassi
Á yfir höfði sér allt
að fimm ára fangelsi
ÍSLENDINGURINN sem var handtekinn í spænsku fríhafnarborg-
inni Ceuta í Marokkó um síðustu mánaðamót með 10,5 kg af hassi,
á yfir höfði sér allt að fimm ára fangelsi, að sögn Marin Guðrún-
ar Briand de Crevecoeur, ræðismanns Islands í Malaga á Spáni.
Hún segir að afgreiðsla sakamála á Spáni taki langan tíma.
Maðurinn, sem er á þrítugs-
aldri, er í varðhaldi í Ceuta, en
ferðafélagi hans er laus úr haldi.
Marin Guðrún kvaðst eiga von á
því að maðurinn yrði sendur til
Cadiz eða Santa Maria þegar yfir-
heyrslum væri lokið í Ceuta, en
það gæti tekið talsverðan tíma.
Marin Guðrún kvaðst telja víst að
maðurinn yrði látinn afplána dóm
vegna hassinnflutningsins á meg-
inlandi Spánar.
„í augnablikinu gerist ekkert í
málinu. Hann er í fangelsi og hef-
ur viðurkennt að hafa átt það sem
var í bílnum hans. Nú bíður hann
þess að lokið verði við rannsókn
málsins og þá verður hann fluttur
yfir á meginland Spánar. Hann
keypti hassið í Marokkó en hvar
það var veit ég ekki. Hann fær
langan dóm fyrir 10,5 kg,“ sagði
Marin Guðrún.
Hún kvaðst telja líklegt að refs-
ingin yrði um 5 ár, ef miðað væri
við sambærileg mál. „Hann getur
ekki sagt að hann hafí keypt þetta
handa sjálfum sér, hér er um of
mikið magn að ræða,“ sagði Mar-
in Guðrún.
Um mánaðamótin september-
október var þrítugum íslendingi
sleppt úr fangelsi í Paris vegna
innflutnings á hassi. Hann hafði
búið á Suður-Spáni, en ekki er
vitað hvort hér sé um sama mann-
inn að ræða.
Bjöm Halldórsson, yfírmaður
fíkniefnadeildar lögreglunnar,
sagði mestur hluti þess hass sem
er á markaði á íslandi sé keyptur
í Afríku. Algengast sé að efnin
fínnist við innflutning frá megin-
landi Evrópu, einkum Hollandi.
Annar íslendingur á þrítugs-
aldri hefur setið í varðhaldi í Mala-
ga á Spáni í fjóra mánuði vegna
gruns um að hann hafí nauðgað
og sfungið með hnífí 68 ára gamla
þýska konu. Umræddur verknaður
er talinn hafa átt sér stað á heim-
ili konunnar, sem hefur búið í
Malaga í um 20 ár. íslendingurinn
hefur búið í Malaga undanfarið ár.
Marin Guðrún sagði að miklð
hefði verið unnið í máli mannsins.
Búið væri að ráða þriðja lögfræð-
inginn sem veijanda mannsins.
„Fyrsti lögfræðingurinn var
skipaður af ríkinu og fékk enga
greiðslu og því gerðist ekki neitt.
Nú höfum við fengið peninga til
að greiða veijendalaun og fengið
þriðja lögfræðinginn í því skyni.
Nú vonum við það besta,“ sagði
Marin Guðrún.
Frystitogaramir gera
það gott í Skeijadjúpi
FRYSTITOGARARNIR hafa verið að gera það gott utarlega í Skerja-
djúpi að undanförnu. Sjóli HF kom inn í síðustu viku með 325 tonn
af hausskornum og slógdregnum karfa á markað í Japan. Verð-
mæti farmsins er tæpar 50 milljónir króna. Aflann fékk Sjóli á um
18 dögum.
Haraldur Kristjánsson HF, sem
gerður er út af Sjólastöðinni eins
og Sjóli, er væntanlegur inn í kvöld
með nærri fullfermi, 280 tonn af
karfa á Japansmarkað. Aflann
fékk Haraldur á svipuðum tíma
og Sjóli. Þessi tveir togarar hafa,
ásamt mörgum öðrum, allt upp í
10 í senn, verið í Skeijadjúpinu i
um tvo mánuði og eru þeir komnir
með 1.200 til 1.300 tonn hvor upp
úr sjó á þeim tíma.
Frystitogararnir voru á svipuð-
um slóðum í fyrra og yar þá einn-
ig mjög góður afli, jafnvel betri
en nú. Góður markaður hefur ver-
ið fyrir karfann í Japan, en með
fjölgun skipanna, hefur heldur
þrengzt þar um, að sögn Helga
Kristjánssonar, útgerðarstjóra
Sjólastöðvarinnar.
Sjá nánari fréttir af aflabrögð-
um í Úr verinu bls. C4-5.
Sólbaðsstofuræninginn í gæsluvarðhald
Áður verið kærður fyr-
ir nauðgun og líkamsárás
MAÐUR sá sem rændi sólbaðsstofuna á Laugavegi 99 á mánudags-
morguninn hefur verið úrskurðaður í gæsluvarðhald til 25. nóvem-
ber nk. Þessi úrskurður var kveðinn upp að beiðni Rannsóknarlög-
reglu ríkisins í héraðsdómi Reykjavíkur í gærdag. Áður hefur mað-
ur þessi verið kærður fyrir nauðgun og líkamsárás.
Þórir Oddsson vararannsóknar-
lögreglustjóri segir að nauðgun sú
sem maðurinn er kærður fyrir hafí
átt sér stað í Hafnarfírði síðasta
sumar. Rannsókn þess máls er að
mestu lokið. Auk þess er maðurinn
ákærður fyrir alvarlega líkamsárás
og átti raunar að mæta hjá dómara
vegna hennar morguninn sem hann
framdi ránið á sólbaðstofunni. Mað-
ur þessi hefur oft komið við sögu
lögreglunnar áður.