Morgunblaðið - 11.11.1992, Síða 33

Morgunblaðið - 11.11.1992, Síða 33
MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 11. NÓVEMBER 1992 33 breyta til og að yfirmenn hans hafa verið ánægðir með störf hans. Það var gott að starfa með Jó- hanni. Hann var dugnaðarmaður sem vann öll sín störf af lipurð og samviskusemi, viðmótsþýður í um- gengni og hafði græskúlaust skop- skyn. Það var skemmtilegt að ræða . við Jóa. Hann var glettinn og kjarn- ' yrtur og kryddaði oft mál sitt með gamansögum. Margir gerðu sér , ferð að vigtinni til að spjalla við Jóa ' og það var sjaldgæft ef menn komu ekki glaðir á svip af hans fundi. Þó að glaðværðin væri ríkur þáttur ’ í fari Jóhanns var hann öðrum þræði dulur alvörumaður sem bar ekki vandamál sín á torg. Ég veit líka að hann velti stundum fyrir sér dýpstu ráðgátum lífsins, en í þann hugarheim sinn leyfði hann fáum að skyggnast. Þegar Jói var ungur hefur hann vafalaust ætlað að höndla hamingj- una eins og aðrir æskumenn. Það hefur honum víst ekki tekist að fullu frekar en öðrum, því í lífi manns skiptast á skin og skúrir. En á lífsgöngunni tókst honum óvenjulega vel að varpa birtu og hlýju til samferðamannanna. Við félagarnir í Goða kveðjum | þennan látna vin okkar með sökn- uði og trega og sendum konu hans og syni, svo og öðrum vandamönn- | um, dýpstu samúðarkveðjur. Blessuð sé minning Jóhanns Hjálmtýssonar. g Ólafur Þórhallsson. í dag er elskulegur vinur okkar jarðsunginn. Við undirrituð setjum hér niður nokkrar línur til að kveðja okkar góða og trygga vin og þakka honum samfylgdina undanfarin átta ár. Við Birkir (þá rétt tveggja ára) kynntumst Jóhanni Hjálmtýssyni eða Jóa eins og við kölluðum hann er við fluttumst í sama fjölbýlishús og hann 1984. Jói hafði þá átt um sárt að binda vegna fráfalls konu sinnar sem var nýlega látin eftir mikil og löng veikindi. Strax dróst , maður að honum vegna þeirrar góðvildar sem hann sýndi í við- móti. Börnin í húsinu kölluðu hann j öll afa sem hann var þeim með I sanni. Hann bauð þeim alltaf inn þegar þau bönkuðu hjá honum og . þá fengu þau alltaf eitthvað gott í munninn og léku sér að Legó-kubb- unum sem hann átti eða spjölluðu við hann um lífið og tilveruna. Birk- ir sonur minn var eitt af þessum bömum sem fékk að njóta þessarar samvistar við hann. í gegnum Birki og hin börnin kynntist ég Jóa og með tímanum tókst með okkur mik- il og góð vinátta sem helst má líkja við sambandi milli föður og dóttur. Hann vildi alltaf hjálpa upp á hlut- ina við okkur ef hann mögulega gat og var umhyggja hans alltaf mikil í okkar garð. Á nýársdag 1988 var Herdís ' Hauksdóttir þá kunningjakona mín stödd hjá mér þegar Jói kom yfír til mín og æxluðust hlutirnir þannig eftir þennan dag að með þeim tókst mikil og innileg vinátta sem endaði með giftingu þann sjötta júní síðast- liðinn. Með Herdísi og Jóa þróaðist yndisiegt samband sem gaf þeim báðum mikið og kunningsskapur okkar Herdísar breyttist í gegnum þeirra samband í innilega vináttu sem stendur enn í dag. I janúar síðastliðnum brá skugga í líf þeirra er Jói veiktist skyndilega af alvarlegum sjúkdómi og þurfti að gangast undir mikinn uppskurð. Aðgerðin tókst vel og þau litu björt- um augum á framtíðina. En Drott- inn kallar þegar okkar tími er á enda runninn í jarðnesku lífí. 22. október segir sjúkdómurinn skyndi- lega til sín með þessum endalokum. Okkur sem þótti svo vænt um Jóa okkar eigum eftir að sakna hans mikið og stórt skarð er höggv- Iið í líf okkar allra sem þekktu hann, en í hjörtum okkar geymum við minninguna um hann og þökkum Ifyrir samverustundirnar sem við áttum saman bæði í gleði og sorg. Elsku Herdís okkar, við vottum _ þér og fjölskyldu hans okkar dýpstu I samúð. Megi Guð styrkja þig og fjölskyldu hans í gegnum þessa erf- iðu tíma. Svana og Birkir Már. Ásgeir Pétur Sigur Fæddur 30. desember 1905 Dáinn 2. september 1992 jonsson Minning Fram að 1932 hafði aðeins einn fastur kennari verið við Bama- skóla Dalvíkur. En þá var ákveðið að bæta öðrum við. Þessa nýju stöðu hlaut Ásgeir Pétur Sigur- jónsson. Ég hafði kennt við skólann í nokkur ár. Sannarlega var ég ánægður með breytinguna, hennar var mikil þörf. Um haustið, þegar leið að skólasetningu, beið ég með óþreyju eftir að sjá nýja kennar- ann. Hvemig skyldi hann líta út? Og hvernig ætli samstarf okkar verði? Svo hittumst við og ég mætti lágum og grannvöxnum manni, fríðum og glaðlegum, sem vakti strax traust mitt, ekki síst vegna prúðmannlegrar framkomu. Asgeir Pétur Sigjónsson, sem breytist í Sigurjónsson hér fyrir norðan, að hans eigin vilja, var fæddur 30. desember 1905 að bænum Fornustekkum í Horna- firði. Hjónin Sigjón Pétursson og Ingibjörg Gísladóttir vom foreldrar hans. Börn þeirra voru átta. Ás- geir var yngstur. Öll eru þau látin. Tvær systur Ásgeirs fluttust til Eyjafjarðar, Ástríður húsfreyja á Akureyri og Sólveig húsmóðir á Þrastarhóli í Möðruvallasókn. Henni kynntist ég lítillega og tel að þar hafi farið mæt kona. Ekkert_ veit ég um æsku og uppvöxt Ásgeirs. Tel að hann hafí átt glaða ungdómsdaga og uppeld- ið verið gott og hollt hjá foreldrun- um. Rúmlega tvítugur sest Ásgeir í Gagnfræðaskóla Akureyrar og tekur gagnfræðapróf 1929. Vorið 1932 lýkur hann námi í Kennara- skóla Islands og um haustið hlaut hann kennarastöðu á Dalvík, eins og fyrr er sagt. Þar vann hann sitt merka ævistarf. í 43 ár var hann fræðari og félagi barnanna á Dalvík, einnig kenndi hann í unglingaskólanum mörg ár að hluta. Á milli veru okkar Ásgeirs í Kennaraskólanum voru níu ár. Ásgeir kom því með smávegis nýj- ungar, sem skólanum kom að haldi. Samvinna okkar Ásgeirs varð strax með ágætum og hélst svo þau ellefu ár, sem við vorum sam- kennarar. Það var ekki síst lipurð, góðvild og samhug Ásgeirs að þakka. Það bar aldrei skugga á okkar samstarf. Ef til vill hjálpaði það, að ekki var langt bil á milli skoðana og hugsunarháttar okkar í skólamálum. Ásgeir var góður kennari, býsna fjölhæfur, söngvinn og handlaginn. Þá var hann smekkvís og vandvirk- ur. Allur frágangur nemanda hans á störfum þeirra var með snyrti- brag. Þó að Ásgeiri tækist kennsla vel hjá öllum aldursflokkum, þá held ég að honum hafi tekist best að kenna yngri börnum. Hjá þeim var hann í essinu sínu. Hugsað var um það eitt að veita leiðbeiningar og hjálp. Hann var félagi þeirra, glaður og ljúfur og börnin höfðu miklar mætur á honum. Ásgeir var slyngur að fá nemendur til að vinna ýmis störf í þágu skólans. Kom það best í ljós í sambandi við aðal- skemmtun skólans. Þar sýndu bömin leikþætti, skrautsýningar, lásu upp og fleira. Þetta hafði Ásgeir undirbúið. Og mikinn tíma hefur hann lagt þarna fram. En hann var líka fús til hjálpar, hve- nær sem skólinn þurfti einhvers með og það yar á valdi Ásgeirs að bæta úr. Ásgeir var sérstakur vinur æskunnar og vann ýmislegt á hennar vegum utan skólans. Sannarlega var Ásgeir æskulýðs- leiðtogi Dalvíkinga langa tíð. Ásgeir gegndi margskonar störfum auk kennslunnar. Snemma gekk hann í Ungmenna- félag Svarfdæla. Varð hann þar ágætur liðsmaður og um skeið rit- ari félagsins. Hann sat lengi í skattanefnd og síðar umboðsmað- ur skattstjóra. Þá sat hann í stjórn Sjúkrasamlags Svarfdæla og Byggingarfélags verkamanna á Dalvík. Á sumrum vann Ásgeir við síldarsöltun á meðan hún var við lýði. Þá var byggingarvinna og margt annað, sem lagt var hönd á. Ásgeir var maður gróðurs og lifandi náttúru. Hann hafði næmt auga fyrir fegurð landsins og dá- semdum þess, enda hafði hann al- ist upp á svæði, sem á yfir að ráða stórbrotnara og fegurra landslagi en víða annars staðar og þangað leitaði hugurinn víst oft. Ásgeir var alla tíð hógvær og hæverskur. Hann ýtti sér aldrei fram fyrir aðra. Þá var snyrti- mennska hans áberandi. Hýrleiki hans og geðgæði voru ljós. Hann skipti örsjaldan skapi. En kæmi það fyrir stóð af honum talsverður gustur, en fljótt lygndi og allt féll í ljúfa löð. Þó að Asgeir væri al- vörumaður fór hið broslega ekki fram hjá honum. Hann ræddi um það og skemmti sér konunglega. Ásgeir kvæntist 1938 Þórgunni Loftsdóttur frá Böggvisstöðum, mikilhæfri konu. Hún lifir mann sinn. Börn þeirra eru tvö, Ingi- björg, gift Stefáni Jónssyni, skrif- stofumanni á Dalvík, þau eiga fjóra drengi, og Ásgeir Pétur, héraðs- dómari á Akureyri. Ásgeir andaðist á Fjórðungs- sjúkrahúsinu á Akureyri 2. september, eftir skamma legu. Þá er hann horfinn, þessi iðju- sami, ljúfi og heiðarlegi drengur. En minningin lifir. Ég þakka hon- um af öllu hjarta aðstoð og sam- starf þau ár, sem við vorum sam- kennarar og fyrir vináttu, sem ekki brást. Ég votta ástvinum hans samúð mína. „Þar sem góðir menn fara eru guðs vegir.“ Helgi Símonarsou. Haukur Morthens söngvari - Kveðja Fæddur 17. maí 1924 Dáinn 13. október 1992 Ég vil minnast vinar míns Hauks í frekar stuttu máli vegna þess að öll þjóðin þekkir þennan ljúfa og góða dreng. Ég kynntist honum 1976 þegar ég ásamt Garðari Guð- mundssyni og Kristínu Lillendal vorum að syngja með hljómsveit hans á Hótel Borg. Ég fann fljótt hve hann var áhugaverður söngv- ari. Hann var nú reyndar maður sem var búinn að syngja frá því að maður mundi eftir sér. Ég er sennilega ekki sá eini sem man þegar lögin Hvar ertu vina og Til eru fræ komu svífandi á vængjum söngsins til allra sem unnu falleg- um melódíum á þessu fallega landi okkar til sjávar og sveita. Ef fólk ann góðum söng hljómaði rödd Hauks allt frá litlu útvarpi í smátr- illu úti á sjó til skemmtistaða vítt og breitt um landið. Mér hefur aldrei dulist hve ég var heppinn að kynnast Hauki. Ég gat alltaf leitað til hans með mín mál í sambandi við söngferil minn og þar fékk ég alltaf gott vega- nesti, sem sannaði það fyrir mér að maður ætti alltaf að reyna að gera sitt besta og vera um leið trúr sjálfum sér og þá líka um leið var maður trúr þeim sem á mann hlýða hveiju sinni. Ég var alltaf fastagestur hjá þeim hjónum þegar ég kom til Reykjavíkur, var þá stundum að vinna hjá þeim við húsamálningu þegar þau áttu heima í Heiðargerðinu. Þar voru alltaf góðar stundir og fann ég það alltaf með sjálfum mér þegar ég hélt heim hveiju sinni hve þau hjón höfðu miðlað mér góðu veganesti. Ragnheiður og Haukur voru bæði gersemar. Ég verð að geta þess hér að 1986 söng ég inn á hljóm- plötu með Hauki og fímm öðrum söngvurum. Þessa plötu gaf Hótel Borg út á vegum Ólafs Laufdals og að henni vann mikið vinur minn og hljómsveitarstjóri, Jón Sigurðs- son, en með honum vann ég mik- ið. Hann er nú líka horfinn, sá góði drengur, megi Guð blessa minningu hans. Svo þegar þessi góða danslagakeppnisplata kom út sþurði ég strax vin minn Hauk hvernig ég hefði staðið mig. Hann svaraði því strax á þann veg að ég var alsæll með þá útkomu. Ragnheiður mín, þakka þér allt liðið og góðu drengjunum þínum, móður þinni og tengdafólki öllu, sem ég þekki. Ég kveð svo minn góða lista- mann með þessum orðum: Sofðu vært hinn síðsta blund, unz hinn dýri dagur ljómar, Drottins lúður þegar hljómar hina miklu morgunstund. Verði, Drottinn, vilji þinn, vér oss fyrir honum hneigjum, hvort vér lifum eða deyjum, veri hann oss velkominn. (V. Briem.) Mjúk skal sængin lífs við ystu ósa unaðs njóttu bjartra meðal rósa. Jón Kr. Ólafsson söngvari, Bíldudal. Fyrirlestur um sorg Samtökin Ný dögun, samtök um sorg og sorgarviðbrögð í Reykjavík, standa fyrir fyrirlestri í Safnaðar- heimili Grensáskirkju fimmtudag- inn 12. nóvember nk. um efnið: Sorg foreldra og barna. Fyrirlesari er Bragi Skúlason, sjúkrahúsprest- ur Ríkisspítala. Fyrirlesturinn hefst kl. 20.30. _____________Brids________________ Umsjón Arnór G. Ragnarsson Bridsfélagið Muninn Sandgerði Önnur umferð í haustsveitakeppni fégsins var spiluð sl. miðvikudag en 9 sveitir taka þátt í keppninni. Sveit Karls G. Karlssonar er efst með 46 stig af 50 mögulegum. Sveit' Arneyjar er í öðru sæti með 41 stig og sveit Sigurðar Davíðssonar í því jriðja með 28 stig. Þriðjaumferðin verður spiluð í kvöld kl. 20. Áhorfendur eru velkomnir. Bridsfélag Suðurnesja Lokið er fjörum umferðum af sjö í minningarmótinu um Guðmund Ing- ólfsson. Átta sveitir spila og eru spilað- ir tveir 16 spila leikir á kvöldi. Sveit Torfa Gíslasonar leiðir mótið með 88 stig af 100 mögulegum en „Uppreisn" fylgir þeim sem skugginn með 80 stig. Aðalfundur félagsins var haldinn sl. laugardag og kosin ný stjórn. Arn- ór Ragnarsson var kosinn formaður og með honum í stjórn eru Arnar Arngrímsson, Gunnar Siguijónsson, Hafsteinn Ögmundsson og Karl Her- mannsson. Að loknu stjómarkjöri var spilaður 10 para tvímenningur. _ Hann unnu Þórður Kristjánsson og Óli Þór Kjart- ansson. Birgir Scheving og Gunnar Guðbjömsson urðu í öðm sæti. Fimmta og sjötta umferð í sveita- keppninni verða spilaðar nk. mánu- dagskvöld í Hótel Kristínu í Njarðvík- um og hefst spilamennskan stundvís- lega kl. 19.45. Reyðfirðingar Austurlandsmeistarar í tvímenningi Austurlandsmót í tvímenningi fór fram í Neskaupstað 7. og 8. nóvem- ber. Úrslit urðu þessi: Austurlands- meistarar urðu Kristján Kristjánsson og ísak Ólafsson, Reyðarfirði, með 370 stig. Næstu fjögur sæti skipuðu: Ólafur Sigmarsson og Stefán Guðmundsson, Vopnafirði 262 stig Sigurþór Sigurðsson og Þorsteinn Bergsson, Egilsstöðum 242 stig Elvar Hjaltason og Jón Aðall, Borgarfirði 231 stig Óttar Ármannsson og Magnús Valgeirsson, Fáskrúðsfirði 215 stig Alla tóku 40 pör þátt í mótinu úr átta félögum. Keppnisstjóri var Krist- ján Hauksson. Á mótinu fór fram verðlaunaaf- hending fyrir bikarkeppni BSA sem staðið hefur frá ágúst til október með þátttöku 17 sveita. Hlutskarpastir urðu Malarvinnslan hf., Egilsstöðum, sem vann Herði hf., Egilsstöðum, í úrslitaleik. í sveitinni spiluðu: Sigurð- ur Stefánsson, Sveinn Heijólfsson, Sigurþór Sigurðsson og Þorsteinn Bergsson. Á mótinu afhenti Lífeyrissjóður Austurlands sambandinu stórgjöf til kaupa á gjafara, spilum og spilabökk- um. Ef heldur sem horfír munu Aust- firðingar gefa sfn eigin spil jafnvel á næsta stórmóti sem Bridsfélag Suður- fjarða stendur fyrir 27. desember. Gjafarinn verður staðsettur miðvæðis og mun örugglega eiga eftir að verða Austfirðingum til mikilla þæginda og auka til muna mót með forgefnum spilum. Reykjanesmót í sveitakeppni Reykjanesmótið í sveitakeppni verður haldið í samkomuhúsinu í Sandgerði helgina 21.-22. nóvember. Spila- mennskan hefst kl. 10 á laugardegin- um. Keppnisstjóri verður Einar Sig- urðsson Skráning er hafín hjá Jóni Steinar Ingólfssyni í síma 91-12952, Einari Sigurðssyni í síma 91-31249, Gísla R. ísleifssyni í síma 92-13345 eða hjá Eyþóri Jónssyni í síma 92-37660. Skráningu lýkur þriðjudaginn 17. nóv- ember. „Ve! heppnoð mynd- band um bridge" (Guðmundur Sv. Hermannsson Mbl.) Sölustaðir: Penninn, Mól og menning, Skífon, Skókhúsið, Frímerkja- og myntverslun Magna, Ljósmyndavörur, Bókval, Akureyri. Dreifing: Nýja Bíó hf. Sími 677577.

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.