Morgunblaðið - 11.11.1992, Síða 43
MORGUNBLAÐIÐ IÞROTTIR MIÐVÍKUDAGUR 11. NÓVEMBER 1992
4&»-
KÖRFUKNATTLEIKUR / ÚRVALSDEILDIN
Njarðvík mætir
Haukum
Njarðvík og Haukar eigast við
i 16-liða úrslitum í bikar-
keppni KKÍ, en dregið var á
skrifstofu KKÍ í gær. Þessi lið
léku einmitt til úrslita í bikar-
keppninni í fyrra og þá sigr-
aði Njarðvík í spennandi leik.
Annars voru það eftirtalin lið
sem drógust saman:
UMFN - Haukar, KR - ÍA,
UMFT - UMFG, ÍBK - ÍS,
UBK - UMFG-b, Snæfell -
Haukar-b, Valur - ÍR, UMFS
- Þór.
Leikirnir fara fram helgina
20. - 22. nóvember riæstkom-
andi.
ÚRSLIT
KR - Haukar 65:78
Iþróttahúsið á Seltjamamesi, Úrvalsdeildin
í körfuknattleik, þriðjudaginn 10. nóvember
1992.
Gangur leiksins: 0:2, 6:6, 18:18, 28:29,
38:38, 42:50, 54:64, 63:67, 63:75, 65:78.
Stig KR: Guðni Guðnason 17, Hermann
Hauksson 14, Larry Houzer 13, Lárus Árna-
son 5, Matthías Einarsson 5, Óskar Krist-
jánsson 5, Sigurður Jónsson 4, Tómas Her-
mannsson 2.
Stig Hauka: John Rhodes 27, Sigfús Gizur-
arson 16, Jón Amar Ingvarsson 14, Tryggvi
Jónsson 13, Pétur Ingvarsson 6, Ingvar
Sigurðsson 1, Sveinn Steinsson 1.
Áhorfendur: 133 greiddu aðgangseyrir.
Dómaran Kristinn Albertsson og Kristinn
Óskarsson, gerðu fullmörg mistök.
UMFT-UMFG 84:86
Sauðárkrókur, íslandsmótið í körfuknattleik
— Úrvalsdeild, þriðjudaginn 10. nóvember
1992.
Gangur leiksins: 11:13, 26:27, 33:33,
44:39 53:54, 60:66, 63:70, 72:75, 78:79,
82:82, 82:84, 84:84, 84:86.
Stig ÚMFT: Haraldur Leifsson 24, Valur
Ingimundarsön 21, Chris Moore 18, Pétur
Vopni Sigurðsson 9, Björgvin Reynisson 6,
Ingi Þór Rúnarsson 4, Hinrik Gunnarsson 2.
Stig UMFG: Dan Krebs 23, Bergur Eð-
valdsson 13, Guðmundur Bragason 13,
Hjálmar Hallgrímsson 13, Helgi Guðfmns-
son 11, Marel Guðlaugsson 10, Pálmar Sig-
urðsson 3.
Dómaran Víglundur Sverrisson og Jón
Bender. Dæmdu vel.
Áhorfendur: 550.
UMFN - ÍBK 30:65
íþróttahúsið í Njarðvík, íslandsmótið i
körfuknattleik — 1. deild kvenna, þriðjudag-
inn 10. nóvember 1992.
Gangur leiksins: 0:10, 9:22, 12:29, 15:29,
21:38, 25:49, 30:58, 30:65.
Stig UMFN: Pálína Gunnarsdóttir 9, Lovfsa
Guðmundsdóttir 8, Helga Friðriksdóttir 6,
Auður Jónsdóttir 4, Hólmfríður Karlsdóttir
2, Ólöf Einarsdóttir 1.
Stig ÍBK: Kristfn Blöndal 18, Anna María
Sveinsdóttir 13, Sigrún Skarphéðinsdóttir
10, Hanna Kjartansdóttir 8, Guðlaug
Sveinsdóttir 8, Elínborg Herbertsdóttir 6,
Olga Færseth 2.
Dómarar: Björgvin Rúnarsson og Pétur
Hólmsteinsson.
Áhorfendur: Um 50.
ÍBK-stúlkur enn með fullt hús
Keflavíkurstúlkumar áttu alls kostar
við nágranna sína Njarðvíkinga í
Ljónagryflunni í Njarðvík í gærkvöldi
og sigruðu fremur auðveldlega. ís-
landsmeistarar ÍBK hafa því enn
ekki tapað leik og hafa nú unnið 8
leiki og eru þær einu sem ekki hafa
tapað leik. Njarðvíkurstúlkumar sitja
hins vegar á botninum og hafa tapað
öllum leikjum sínum. Þrátt fyrir sig-
urinn léku ÍBK-stúlkumar ekki sinn
besta leik og sannaðist þar enn einu
sinni að ekki má vanmeta andstæð-
ingana hversu lélegir sem þeir kunna
að vera. Björn Blöndal
í kvöld
Handknattleikur
1. deild'karla:
Garðabær: Stjarnan-KA......kl. 20
Kaplakriki: FH-Selfoss.....kl. 20
Seljaskóli: ÍR-HK...........kl. 20
Vfkin: Víkingur-Haukar.....kl. 20
Akureyri: Þór-ÍBV........kl. 20.30
1. deild kvenna:
Kaplakriki: FH-Valur........kl. 18
Selfoss: Selfoss - Víkingur.kl. 20
Strandgata: Haukar - Fylkir.kl. 20
Vestm’eyjar: ÍBV-Fram.......kl. 20
2. deild karla:
Digranes: UBK-Ármann........kl. 20
Blak
1. deild kvenna:
Hagaskóli: ÍS-Víkingur...kl. 19.45
1. deild karla:
Hagaskóli: ÍS - Þróttur Rvk.kl. 21.00
Morgunblaðið/Kristinn
Larry Houzer lék sinn fyrsta leik með KR í gærkvöldi og stóð sig ekki vel.
Friðrik Rúnarsson þjálfari KR vildi lítið tjá sig um framtíð hans hjá félaginu,
en sagði augljóst að þeir gætu ekki.unnið leik með úthaldslausum leikmanni.
Á myndinni má sjá bræðuma Pétur og Jón Amar Ingvarssyni reyna að stöða
Houzer, en KR-ingurinn Óskar Kristjánsson bíður átekta.
Vinnum ekki
leiki medút-
haldsiausan
leikmann -
- sagði Friðrik Rúnarsson þjálfari
KR eftirtapleik gegn Haukum
„ÞETTA var mikill baráttuleikur,
bæði liðin voru grimm en við
vorum grimmari," sagði Ingvar
Jónsson þjálfari Hauka, eftir sig-
ur á KR, 65:78, á heimavelli
þeirra á Seltjarnarnesi í Úrvals-
deildinni í körfuknattleik í gær-
kvöldi. „Það má segja að við
höfum unnið þetta á betri þjálf-
un. Við áttum augljóslega meira
inni þegar á leið og unnum á
því,“ sagði Ingvar.
Leikurinn var fyrsti leikur Banda-
ríkjamannsins Larry Houzer
með KR, og spurningunni hvort að
KSEB99BH hann væri sá maður
Stefán sem ^R er að leita
Eiríksson að, var ekki svarað í
skrífar gærkvöldi, nema þá
neitandi. Hann var augljóslega í lé-
legu formi, 10-20 kg of þungur og
var .orðinn máttlítill er á leið. f síð-
ari hálfleik sat hann eftir bæði í
vörn og sókn, sem gerði KR-liðinu
ill mögulegt að halda í við Haukana.
Friðrik Rúnarsson þjálfari KR var
að vonum þungur á brún eftir leik-
inn, og sagði það alveg augljóst að
þeir gætu ekki unnið leik með út-
haldslausan leikmann. „Þetta hrundi
þegar hann [Houzer] hætti að hlaupa
í vöm. Ég tók hann kannski of seint
út af,“ sagði Friðrik. Aðspurður hvað
það tæki langan tíma að koma hon-
um í form þannig að hann þyldi heil-
an leik sagði Friðrik að hann yrði
strax skárri í næsta leik. „Honum
gekk ekkert illa í byijun og var þá
betri en Rhodes, en var orðinn mátt-
laus fljótt,“ sagði Friðrik og vildi
ekki tjá sig nánar um framtíð hans
hjá félaginu.
Leikurinn var annars hálf dapur,
lítið var um tilþrif og bæði lið brokk-
geng. Staðan í hálfleik var jöfn,
38:38, en í síðari hálfleik náðu Hauk-
ar forystunni og héldu henni til loka.
John Rhodes var bestur Hauka,
gerði 27 stig, og Tryggvi Jónsson
FRJALSIÞROTTIR
var einnig góður. Hjá KR stóð Guðni
Guðnason að vanda fyrir sínu, sýndi •
frábær tilþrif í vöm og sókn, en aðr-
ir vom fyrir neðan meðallag.
Helgi hetja Grindvíkinga
Helgi Guðfinnsson, unglinga-
landsliðsmaðurinn efnilegi, var
hetja Grindvíkinga í leiknum gegn
Tindastóli í úrvalsdeildínni í körfu-
knattleik á Sauðárkróki í gærkvöldi^
Hann gerði sigurkörfuna þegar fjór-
ar sekúndur voru eftir og tryggði
sigur Grindvíkinga, 84:86.
Leikurinn var mjög jafn og spenn-
andi lengst af. Heimamenn voru betri
í fyrri hálfleik og höfðu fimm stiga
forskot í hálfleik, 44:39. í upphafi
síðari hálfleiks náðu Grindvíkingar
sér vel á strik og gerðu þá sex þriggja
stiga körfur og náðu mest 11 stiga
forskoti um miðjan hálfleikinn.
Heimamenn voru ekki á því að gef-
ast upp og náðu að jafna leikinn
þegar fimm mínútur voru til leikslefcíT
og mínúta var eftir var staðan enn
jöfn, 84:84. Gestimir náðu að halda
boltanum í sókn þar til Helgi gerði
sigurkörfuna eins og áður segir.
Valur Ingimundarson reyndi sfðan
körfuskot um leið og leiktíminn rann
út en boltinn rataði ekki rétta leið.
Haraldur Leifsson var besti leik-
maður heimamanna, sem söknuðu
greinilega Páls Kolbeinssonar sem
enn er meiddur. Hjá Grindvíkingum
vom Krebs og áðurnefndur Helgi
bestir í annars jönfu liði.
Valur Ingimundarson, þjálfari og
leikmaður Tindastóls, sagðist ekki
vera ánægður með gengi liðsins.
„Það hefur gengið á ýmsu hjá okk-
ur. Við höfum verið með menru f—
meiðslum og eins hafa flestir leik-
manna liðsins legið í flensu. Við höf-
um ekki enn náð að sýna það sem í
okkur býr. En úrslitin em ekki ósann-
gjöm því leikurinn gat farið á hvom
veginn sem var,“ sagði Valur.
URSLIT
Mótframboð fyrir-
hugað gegn formanni
MIKLAR iíkur eru á að tvö
framboð verði til formanns
Frjálsíþróttasambands ís-
lands (FRÍ) á ársþinginu sem
haldið verður dagana 21. og
22. nóvember. Núverandi for-
maður, Magnús Jakobsson,
gefur kost á sér til endurkjörs
og hópur manna hyggst bjóða
fram mann á móti honum.
Magnús Einarsson formaður
fijálsíþróttadeildar Ár-
manns sagðist ekki geta borið á
móti því að verið væri að leita að
formannsefni. „Það er ákveðin
óánægja meðal nokkurra félga
með störf stjórnarinnar og menn
eru að líta í kringum sig eftir
nýjum formanni," sagði Magnús
við Morgunblaðið í gær en bætti
því við að á þessu stigi málsins
væri lítið um þetta að segja.
„Menn ætla samt ekki að gera
breytingar breytinganna vegna.
Ef það næst samstaða um mann
sem talinn er geta sinnt starfinu
betur en núverandi formaður, og
hann er til í slaginn, þá verður
mótframboð- á þinginu," sagði
Magnús.
Jónas Egilsson, formaður
fijálsíþróttadeildar ÍR, tók í sama
streng. „Ástæðumar fyrir
óánægjunni eru jafn margar og
einstaklingamir sem eru óánægð-
ir. Ég viðurkenni að ég hef spurt
menn hvort þeir séu tilbúnir að
fara í stjóm FRÍ en svörin hafa
verið mjög neikvæð, ekki sísts
vegna takmarkaðs áhuga manna
á að starfa með núverandi for-
ystu,“ sagði Jónas.
„Magnús [Jakobsson] sagðist
ætla að hætta í stjóm og menn
bundu vonir við að hann stæði við
það, en hann hélt áfram. Ef það
finnst frammbærilegur maður er
víst að hann fengi góðan stuðn-
ing,“ sagði Jónas.
Eitt af því sem menn em
óánægðir með hjá FRÍ er hversu
mikið sambandið skuldar, en sam-
kvæmt heimildum Morgunblaðs-
ins nema skuldimar nú 6,5 millj-
ónum króna og stjóminni hefur
ekki tekist að grynnka á skuldun-
um eins og til stóð.
Körfuknattleikur
1. deild karla:
ÍR-ÍS..........................66:52
NBA-deildin
Chicago Bulls - Indiana Pacers.102:97
Knattspyrna
England
Enska deildarbikarkeppnin, 3. umferð:
Watford - Leeds.................2:1
David Holdsworth, Jason Drysdale - Gary
McAllister.
■Þetta var þriðja tap Leeds á sjö dögum
og sjöundi leikur liðsins í röð án sigurs.
Watford mætir Blackburn Rovers á útivelli
í 4. umferð.
Wimbledon — Everton.............0:1
- Peter Beardsley (56.).
■Everton mætir Chelsea á heimavelli í 4.
umferð.
Skotland
Skoska úrvalsdeildin:
Partíck — Hearts....................1:1
Spánn
Sevilla — vináttuleikur:
Sevilla - Lazio (Ítalíu)............1:1
Francisco Pineda - Paul Gascoigne.
EM 21 árs landsliða
Edessa, Grikklandi:
Grikkland - Ungveijaland............2:1
Grikkland er efst með sex stig eftir þrjá
leiki, en síðan kemur Rússland með fjögur
stig eftir tvo leiki, Ungvcijaland þijú stig
eftir þijá leiki, Luxemborg með eitt stig
eftir tvo leiki og ísland með ekkert stig.
eftir fjóra leiki.