Morgunblaðið - 11.11.1992, Síða 44
oc ALFA-LAVAL
SINDRI
- sterkur í verki
MORGUNBLAÐIÐ, AÐALSTRÆTl 6, 101 REYKJAVÍK
SÍMl 691100, SÍMBRÉF 691181, PÓSTHÓLF 1566 / AKVREYRI: HAFNARSTRÆTI 86
MIÐVIKUDAGUR 11. NOVEMBER 1992
VERÐ I LAUSASOLU 110 KR.
Loðnuskipin eru
með megnið af
^íldarkvótanum
LOÐNUSKIP eru nú með um 80%,
eða 95 þúsund tonn, af 120 þús-
und tonna síldarkvóta á þessari
vertíð. Fimmtán af 78 hefðbundn-
um síldarbátum eru með 22 síld-
arkvóta en hver kvóti er 1.220
Sauðburður
Ber þrisvar
á rúmu ári
Blönduósi.
SÁ merkileg’i atburður átti
sér stað á bænum Bakka í
Vatnsdal að tvær kindur báru
í byijun nóvembermánaðar.
Onnur kindin fær aftur í vet-
ur og gæti því borið þrisvar
á rúmu ári.
Síðastliðinn miðvikudag bar
gemlingur einu lambi sem
drapst. Á sunnudag bar tvæ-
vetla tveimur lömbum. Annað
lambið drapst í fæðingu en hitt
er við bestu heilsu. Féð á Bakka
'*^ar í hólfi suður í brekku í vor.
Hrútar voru í hópnum og er
talið að kindurnar hafi haldið
upp á þjóðhátíðardaginn 17. júní
með þessum afleiðingum.
Tvævetlan, sem heitir Grá-
flekka, bar síðast 24. apríl í vor
og var tvílembd. Kristín Lárus-
dóttir húsfreyja á Bakka sagðist
vera mjög spennt fyrir því að
hleypa til hennar hrút á fengi-
tímanum nú í desember og
freysta þess að láta hana bera
í vor. Ef það gengur eftir mun
Gráflekka bera þrisvar sinnum
á rúmu ári.
Þessar umræddu kindur eru
að sögn Kristínar sérstaklega
~/aldar og keyptar hjá Sigurði
og Elsu á Stóra-íjarðarhomi á
Ströndum. Þær em baugóttar
af hinum fijósama Reykhóla-
stofni.
Jón Sig.
tonn. Þessir 15 bátar eru allir
tengdir vinnslunni, þ.e.a.s. fryst-
ingu og söltun. Flest þeirra 25-30
loðnuskipa, sem stunda síldveiðar
í vetur, eru hins vegar ekki tengd
síldarvinnslunni en þau eru mun
afkastameiri en hinir hefðbundnu
síldarbátar. Vinnslan óttast því
að fá ekki þá síld, sem hún þarf
til að geta staðið við samninga
um síldarsölu í vetur.
Á mánudag höfðu verið veidd um
70.000 tonn af síldarkvótanum og
af þeim 50.000 tonnum, sem eftir
er að veiða, telja þeir, sem frysta
og salta síld, sig þurfa 28.000 tonn,
eða 56%, en um 12.000 tonn hafa
farið til vinnslu á vertíðinni.
Sjá nánar fréttaskýringu í Úr
verinu bls. C6-7
Samningar Landsbanka íslands og SÍS verða undirritaðir í dag
Hömlur kaupa Samskip
og Regiim imdir nafnverði
SAMKVÆMT þeim samningum sem Hömlur hf., eignarhaldsfélag
Landsbankans og Samband íslenskra samvinnufélaga, hafa gert með
sér um kaup Hamla á ákveðnum eignum Sambandsins liggur fyrir
að Landsbankinn kaupir um 85% í Samskipum hf. á genginu 0,9 af
nafnverði, en það jafngiidir því að eignarhluti Sambandsins sé seldur
á um 720 milljónir króna. Þá kaupa Hömlur Reginn hf., sem Samband-
ið á 100%, fyrir mun lægra verð en bókfært verð er, sem var í árs-
reikningum Sambandsins fyrir árið 1991 tæpar 716 milljónir króna.
Forsvarsmenn Landsbankans og Sambandsins munu undirrita samn-
inga sín á milli kl. 11 fyrir hádegi í dag og bankaráð Landsbankans
mun funda um þá á morgun og taka afstöðu til þeirra, svo og sljórn
Sambands íslenskra samvinnufélaga.
Sambandið átti um síðustu áramót
90% hlut í Samskipum, samkvæmt
ársreikningi þess fyrir árið í fyrra.
Bókfært verð þess eignarhlutar var
um það bil 855 milljónir króna, en
Sambandið seldi fyrir nokkm Vá-
tryggingafélagi íslands nokkur pró-
sent í skipafélaginu á genginu 1,12
og var þar um skuldajöfnun við VÍS
að ræða, samkvæmt upplýsingum
Morgunblaðsins. Sé við það miðað
að Landsbankinn kaupi 85% í Sam-
skipum á genginu 0,9, yfirtekur
Landsbankinn þannig þennan eign-
arhlut Sambandsins í Samskipum,
fyrir 720 milljónir króna.
Landsbankinn mun samkvæmt
upplýsingum Morgunblaðsins ætla
að reka Samskip til að byija með,
en stefnt verður að því að selja þessa
eign, sem og aðrar sem samningar
Atlantsflug stöðvar flugrekstur en reynir að afla aukins hlutafjár
Flugfélagið Atlanta tekur að
sér flug félagsins til Dublin
STJÓRN Atlantsflugs hf. ákvað í gær að stöðva allan flugrekstur
félagsins og var starfsmönnum kynnt þessi ákvörðun á fundi síðdeg-
is. Halldór Sigurðsson, stjórnarformaður Atlantsflugs, segir að áfram
verði látið reyna á hvort félagið fær flugrekstrarleyfi sitt endurnýjað
og i vikunni muni reyna á hvort tveir stórir fjárfestar komi inn í
félagið til að tryggja áframhaldandi starfsemi þess. Ástæða þess að
flugreksturinn var stöðvaður sé að félagið treysti sér ekki til að full-
nægja þeirri kröfu íslenskra stjómvalda að eigið fé nægi til að standa
straum af þriggja mánaða rekstrarkostnaði. Flugrekstrarleyfi Atlants-
flugs rennur út 31. desember nk. og átti félagið ólokið samningum
vegna 14 ferða fyrir Samvinnuferðir-Landsýn til Dublin fram til 15.
desember. í gær náðist samkomulag við flugfélagið Atlanta um að
^'’Ska þessum Ieiguflugsverkefnum svo engin röskun verði á auglýstri
áætlun. Hefur verið fengin vél frá danska flugfélaginu Sterling sem
mun annast þetta flug frá og með morgundeginum og verður hún
staðsett hér á landi þar til verkefninu lýkur.
Að sögn Þórhalls Jósefssonar,
deildarstjóra í samgönguráðuneyt-
inu, eru yfírlýsingar í fréttum um
að félagið sé hætt starfsemi ekki í
'saniræmi við bréf sem það sendi
ráðuneytinu í gær þar sem óskað
sé eftir fresti til að fá endumýjað
flugrekstrarleyfíð og að félagið sé
í viðræðum við tvo aðila um aukið
hlutafé. Sagði hann að endurnýjun
flugrekstrarleyfis félagsins væri nú
í athugun í ráðuneytinu.
Halldór sagði að félagið hefði
ekki getað skrifað undir neina nýja
samninga á meðan staðan væri eins
og hún er í dag og því verið talið
óafsakanlegt að halda flugi áfram.
Sagði hann að starfsmönnum
hefði ekki verið sagt upp störfum
en það yrði þó óhjákvæmilegt ef í
ljós kæmi að félagið fengi flug-
rekstrarleyfí sitt ekki endurnýjað.
Af fréttatilkynningu sem félagið
sendi út í gær mátti skilja að félag-
ið væri hætt starfsemi þar sem full-
reynt væri á undanfömum mánuð-
um að ekki tækist að afla nægilegs
hlutafjár. Halldór sagði að skýringin
á því væri sú, að eftir að fréttatil-
kynníngin hafí verið gerð hefði kom-
ið í ljós að ákveðið fyrirtæki ætlaði
að taka fyrir á stjómarfundi í dag
hvort það væri tilbúið til að leggja
fé í félagið.
Helgi Jóhannsson, forstjóri Sam-
vinnuferða-Landsýnar, segir að
stjórnendur Atlantsflugs hafi haft
samband við ferðaskrifstofuna og
aðvarað þá um yfírvofandi erfíðleika
og lagt að þeim að búa sig undir
að þurfa að gera ráðstafanir um
flug vegna ólokinna samninga og
hafí jafnframt komið með tillögur
um lausn málsins.
Samvinnuferðir hafi fyrst leitað
til Flugleiða og þótt félagið hafí
viljað taka verkefijið að sér hefði
það ekki verið mögulegt nema með
því að raska auglýstri áætlun ferða-
skrifstofunnar og flytja til farþega.
Því hefði verið gengið til samninga
við Atlanta með aðstoð Atlants-
flugs.
hafa tekist um, jafnskjótt og bank-
inn telur hagkvæmt.
Landsbankinn hafði þegar sam-
þykkt að Sambandið seldi Olíufélag-
inu 33% eignarhlut sinn í ESSO á
fimmföldu nafnverði, en gangverð
hlutabréfa í ESSO er 4,5 falt nafn-
verð. Landsbankinn og ESSO hafa
ekki gengið frá samningum um með
hvaða hætti eða á hversu löngum
tíma ESSO gerir þau kaup upp við
Landsbankann, samkvæmt upplýs-
ingum Morgunblaðsins, en þær
1.048 milljónir króna, sem ESSO
þarf að greiða fyrir bréf Sambands-
ins í ESSO, renna beint til Lands-
bankans.
Samþykki bankaráð Landsbank-
ans og stjórn Sambandsins ofan-
greinda samninga á fundum sínum
á morgun verður það Landsbanki
íslands sem fer með umboð fyrir
hönd Regins hf. eftir morgundaginn,
en ekki Guðjón B. Ólafsson, stjórnar-
formaður Regins. Morgunblaðið hef-
ur upplýsingar um að Landsbankinn
vilji hið fyrsta selja Reginn hf., og
þá mun einkum horft til þess hvort
ríkið sé fáanlegt að kaupa félagið,
en ríkið á eins og kunnugt er 52%
í íslenskum aðalverktökum.
Fólk slasað-
ist í bílveltu
BIFREIÐ valt á Reykjanes-
braut við Hvassahraun um kl.
20 í gærkvöldi. Einhver
meiðsli urðu á fólki, en þau
munu ekki vera alvarleg.
Bifreiðin fór út af veginum í
hálku og valt. Bifreið björgunar-
sveitarinnar í Sandgerði kom þar
að og flutti fólkið á heilsugæslu-
stöðina í Hafnarfírði. Lögreglan
i Keflavík sagði að vegna þessa
óumbeðna sjúkraflutnings björg-
unarsveitarinnar hefði hún ekki
fengið nákvæmar upplýsingar
um málið.