Morgunblaðið - 24.02.1993, Síða 1

Morgunblaðið - 24.02.1993, Síða 1
56 SIÐUR B/C 45. tbl. 81. árg. MIÐVIKUDAGUR 24. FEBRÚAR 1993 Prentsraiðja Morgnnblaðsins Kommúnistar og þjóðernissinnar fylkja liði á götum Moskvu Krefjast rétt- arhalda yfir Borís Jeltsín Moskvu. Reuter, The Daily Telegraph. UM 20.000 manns, einkum uppgjafahermenn með heiðurs- merki sín, kommúnistar og æstir þjóðernissinnar, fylktu liði á götum Moskvuborgar í mótmælagöngu gegn umbóta- stefnunni á degi hersins sem var í gær. Æpt voru vígorð gegn Borís Jeltsín forseta og þess krafist að hann og fleiri ráðamenn yrðu dregnir fyrir rétt. Valdaræningjar í fylkingarbij ósti í fremstu röð voru fjórir af leið- togum valdaránsins misheppnaða 1991, þeir Vladímír Kijútsjkov sem var yfirmaður öryggislögregl- unnar KGB, Valentín Pavlov sem var forsætisráðherra • Sovétríkj- anna, Valentín Varenníkov sem var yfirmaður landhersins og Oleg Baklanov háttsettur embættis- maður kommúnistaflokksins. Fjór- menningarnir eiga yfir höfði sér dauðadóm verði þeir fundnir sekir um landráð. Fólkið veifaði sovétfánanum gamla með hamrinum og sigðinni. „Svikarar, snautið burt frá Kreml!“ hrópaði Gennadí Zjúg- anov, leiðtogi hins endurreista kommúnistaflokks. Hópur mótmælenda réðst á fyrrverandi yfirmann lögreglunnar í Moskvu, Arkadíj Múrashev, sem kvaðst hafa átt leið um götuna. Nokkrir vestrænir blaðamenn sem reyndu að hjálpa honum urðu einn- ig fyrir barsmíðum. Vilja reisa 200 hæða skýjakljúf Tókýó. The Daily Telegraph. TVÖ byggingarfyrirtæki í Japan vilja reisa 200 hæða íbúðar- og skrifstofubygg- ingu og stuðla þannig að lausn fyrirsjáanlegs hús- næðisvanda í landinu á næstu öld. Láti fyrirtækin til skarar skríða verður þetta hæsta bygging heims og hægt yrði að ljúka henni á sjö árum. Gert er ráð fyrir að byggingin verði reist í 12 sívölum, 50 hæða ein- ingum, sem yrðu 50 metrar í þvermál hver. Byggingin yrði 800 metrar á hæð. Er hægt að búa svo hátt? Verkfræðingar fyrirtækj- anna viðurkenna þó að rann- saka þurfi frekar hvaða áhrif það hafi á fólk að búa á 200. hæð. Þjóðernissinnar sakaðir um valdasýki Pavel Gratsév varnarmálaráð- herra tók í gær undir varnaðarorð Jeltsíns frá mánudeginum og sagði þjóðernissinna í hernum reyna að æsa til andstöðu við löglega kjörin stjórnvöld. Hann sagði þessa menn vera valdasjúka og þeir yrðu að skilja að tilraunir ■MH þeirra væru glæpsamlegar ■ og gætu haft al- varlegar afleið- Gratsév ingar. Reuter Oþekkta hermannsins minnst RÚSSNESKIR hermenn halda á blómsveig við gröf óþekkta her- mannsins í Moskvu á degi hersins í gær. Viktor Tsjernomyrdín, for- sætisráðherra Rússlands, fór-fyrir göngu að gröfinni. Satta- tónní Sýrlend- ingum Jerúsalem, Damaskus. Reuter. SÝRLENDINGAR hafa gefið ótvírætt í skyn að þeir vilji taka á ný upp friðarviðræður við Israela á næstunni. Utanríkisráðherra Bandaríkj- anna, Warren Christopher, ræddi í gær við ráðamenn í ísrael um leiðir til að leysa deiluna um útlegð 400 Palestínumanna frá hernumdu svæðunum og sagði að viðræðurn- ar hefðu verið „góðar og gagnleg- ar . Árásum á ísrael sleppt Athygli hefur vakið að Sýrlend- ingar, hörðustu andstæðingar Isra- ela um margra ára skeið, leggja áherslu á mikilvægi þess að friðar- viðræðumar strandi ekki endan- lega. Utanríkisráðherra Sýrlands, Farouq al-Shara, sleppti í fyrsta sinn á ferli sínum öllum hefðbundn- um árásum á ísrael á blaðamanna- fundinum með Christopher. „Við tókum vel eftir þessum skilaboð- um,“ sagði embættismaður í Jerús- alem. Bandaríkjastjórn hyggst senda herflugvélar með matvæli til Bosníu Serbar segja íhlutunina auka blóðsútheUingamar Brussel, Sanyevo. Reuter. BANDARISKA stjórnin hefur tilkynnt Atlantshafsbanda- laginu (NATO) að hún hyggist senda herflugvélar til Bosn- íu og láta þær varpa niður hjálpargögnum með fallhlífum til múslima. Stjórnarerindrekar í Belgrad sögðu að flutning- amir gætu hafist í lok vikunnar. Her Serba í Bosníu var- aði við því að slík íhlutun myndi leiða til enn meiri blóðsút- hellinga í Bosníu. Milan Gvero, yfirmaður hersveita Serba í Bosníu, fordæmdi áform bandarísku stjórnarinnar. „Það er því sem næst öruggt að þetta leiðir til gífurlegra hernaðaraðgerða og enn harðari bardaga í Bosníu, með ófyrirsjáanlegum afleiðingum." Bretar ekki með Douglas Hurd, utanríkisráðherra Bandaríkjanna, sagði að Bretar myndu ekki taka þátt í þessum aðgerðum. Hann fagnaði áformum bandarísku stjórnarinnar en bætti við að Bretar hefðu þegar sent frið- argæsluliða til Bosníu. Boutros Boutros-Ghali, framkvæmdastjóri Sameinuðu þjóðanna, sagði eftir fund með Bill Clinton Bandaríkja- forseta í gærkvöldi að þeir væru „fullkomlega sammála" í þessu máli. Friðargæsluliðum stefnt í hættu? Yfirmenn friðargæslusveita Sameinuðu þjóðanna í Bosníu- Herzegovínu óttast að matvæla- flutningar herflugvéla stefni lífi friðargæsluliðanna 7.500 í hættu þar sem Serbar kunni að grípa til hefndaraðgerða. Flóttamannahjálp Sameinuðu þjóðanna, sem annast matvælaað- stoðina við Bosníumenn, fagnaði hins vegar áformum Bandaríkja- stjórnar. Stofnunin telur að allt að 200.000 múslimar séu hjálparþurfí í Bosníu. „Það er þess virði að reyna allt sem tryggir fólkinu matvæli,“ sagði talsmaður stofnunarinnar í Genf. Sjá „Vandasamt og hættulegt" á bls. 20. Reuter Fiskmarkaður lagður í rúst RÚMLEGA átta hundruð franskir sjómenn ruddust inn á Rungis-fiskmarkaðinn i París í gær til að mótmæla auknum innflutningi ódýrs sjávarfangs frá Suður-Ameríku, Bretlandi og Rússlandi. Lágmarks- verð á fisk innan E6 París. Reutcr. CHARLES Josselin, sjávarút- vegsráðherra Frakklands, sagði í gær að framkvæmda- stjórn Evrópubandalagsins (EB) hefði lofað að setja lág- marksverð á fisk, sem fluttur er inn til aðildarrikjanna, eft- ir að franskir sjómenn höfðu gengið berserksgang um fisk- markað í París. Charles Josselin kvaðst hafa rætt við Jacques Delors, forseta framkvæmdastjórnar EB, og hann hefði sagt að stjórnin myndi setja lágmarksverð á inn- fluttan fisk á föstudag og að kaupmenn sem keyptu fisk á lægra verði yrðu skattlagðir. Sjá „Viðbrögð í sam- ræmi..." á bls. 21.

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.