Morgunblaðið - 24.02.1993, Qupperneq 19

Morgunblaðið - 24.02.1993, Qupperneq 19
MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 24. FEBRUAR 1993 19 Lestrarkeppnin mikla haldin H! í öllum srumiskólum landsins u,—,[ O j VÉLASALAN H.F. ÁNANAUST 1, REYKJAVÍK. SÍMI 91-26122 50 stofnfélagar STOFNFUNDURINN var haldinn í húsnæði MS-félagsins við Aland og sóttu hann um 50 manns. Leitið upplýsinga hjá okkur. Allir grunnskólanemendur geta keppt til veglegra bókaverðlauna í lestri 8.-18. mars LESTRARKEPPNIN mikla heitir keppni, sem ákveðið hefur verið að gangast fyrir í grunnskólum landsins 8. til 18. mars næstkom- andi og hefst keppnin með því að blásið verður til hennar að morgni 8. mars klukkan 8:30 á Rás 2. Menntamálaráðuneytið, DY, Morgunblaðið, Ríkisútvarpið, Rás 1, Rás 2, Sjónvarp og Bókasam- band Islands standa að keppninni og verða veitt vegleg bókaverð- laun til hvers nemanda þeirra bekkja, sem sigra í keppninni, ein verðlaun í hverjum aldursflokki. Til greina kemur einnig að verð- launa þann skóia sérstaklega, sem sýnir góða frammistöðu. Tilefni þess að efnt er til lestrar- keppninnar eru fréttir af minnkandi lestri barna og unglinga og er von- ast til þess að keppnin muni hvetja til aukins bóklesturs og verði til þess að vekja athygli á því vanda- máli sem minnkandi lestur er. Þátttökurétt í Lestrarkeppninni miklu hafa allir bekkir grunnskól- anna, sem þátt vilja taka, en aðstoð og góður vilji kennara og skólayfir- valda er nauðsynleg forsenda þess að keppnin heppnist. Leitað hefur verið til Samtaka móðurmálskenn- ara og Skólastjórafélags Islands, sem hafa ákveðið að leggja málinu lið. Menntamálaráðuneytið styður þetta framtak og er vonast til að svo verði einnig meðal kennara og nemenda grunnskólanna en auðvit- að er hveijum kennara í sjálfsvald sett, hvort hann vill ljá þessu máli lið sitt. Fyrirkomulag Keppnin er bekkjarkeppni og mun menntamálaráðuneytið dreifa eyðublöðum fyrir þátttakendur og MND-félag- stofnað FRÁ stofnfundi MND-félags íslands. Formaðurinn, Rafn Jóns- situr fyrir borðsendanum. son, Rafti kosinn formað- ur MND-félagsins RAFN Jónsson var kosinn formaður MND-félags íslands á stofn- fundi félagsins á laugardaginn. í aðalstjórn sitja auk hans Jóna Alla Axelsdóttir og Sigríður Eyjólfsdóttir og varamenn eru Freysteinn Jóhannsson og Iris Gústafsdóttir. Um fímmtíu manns sóttu fundinn. Fyrir stofnfundinn starfaði sérstök undirbúningsnefnd, sem þau Jóna Alla, Rafn og Sigríður skipuðu. Á stofnfundinum gerði Rafn grein fyrir störfum nefndar- innar og samþykkt voru lög fyrir MND-félag íslands. Að loknum aðalfundarstörfum kvaddi sér hljóðs Jóhann Pétur Sveinsson, formaður Sjálfsbjarg- ar landssambands fatlaðra, og flutti nýja félaginu heillaóskir og það gerði einnig Oddný Lárus- dóttir, varaformaður MS-félags íslands, en í húsakynnum þess var fundurinn haldinn. MND-félag íslands vinnur að velferð þeirra, sem haldnir eru sjúkdóminum MND-hreyfitaug- ungahrörnun og er opið öllum, sem hafa áhuga á að leggja þeim lið. í lögum félagsins segir, að það skuli m.a. vera félags-, hags- muna- og kynningarvettvangur fyrir félafsmenn, stuðla að bygg- ingu á sérhönnuðu húsnæði fyrir MND-sjúklinga og standa að út- gáfustarfsemi. Undirbúningur að fyrsta félagsblaðinu er þegar hafinn. umsjónarmenn í skólana. Þau verða síðan fjölfölduð innan skólanna eft- ir þörfum. Hver bekkur verður að hafa tengilið eða umsjónarmann - gjarnan kennara - sem tekur við eyðublöðum sem nemendur fylla út fyrir hveija lesna bók. Á eyðublöðin skráir nemandinn nafn bókar, nafn höfundar, blaðsíðuijölda, skrifar örstutta umsögn um bók og nafn bekkjar, skóla og eigið nafn. Kenn- ari safnar þessum eyðublöðum sam- an fyrir bekkinn og gerir í keppnis- lok upp tölur um hver meðalfjöldi lesinna bóka í viðkomandi bekk hafi verið á keppnistímabilinu. Hann skráir einnig meðalíjölda les- inna blaðsíðna. Engar reglur eru um hvað eigi að lesa, nema hvað mælst er til þess að bækur sem nemendur lesi séu í eðlilegu sam- ræmi við getu og þroska hvers og eins. Reglur keppninnar eru rúmar enda tilgangur hennar fyrst og fremst að hvetja til lesturs með skemmtilegum leik. Þegar kennarar hafa gert upp tölur fyrir sinn bekk safna skóla- stjórar upplýsingum saman frá kennurum skólans og skila á einu eyðublaði niðurstöðum úr skólan- um. Fræðsluskrifstofur viðkomandi umdæmis taka við upplýsingum og síðan mun verða unnið úr þeim. Eins og áður segir verða veitt veg- leg bókaverðlaun til hvers nemanda þeirra bekkja sem sigra í keppn- inni, ein verðlaun í hveijum aldurs- flokki. Til greina kemur einnig að verðlauna þann skóla sérstaklega, sem sýnir góða fraromistöðu. Skólarnir eru beðnir um að halda eftir frumgöngum og verður kallað eftir þeim fyrir þá bekki, sem efst- ir reynast í keppninni. Reynist einn eða fleiri bekkir jafnir að titlafjölda verður meðaltal lesinna blaðsíðna látið skera úr. Reglur 1. Lestrarkeppnin mikla er bekk- jarkeppni. Öllum bekkjardeildum í öllum árgöngum grunnskólanna er heimil þátttaka í henni. 2. Allar bækur á íslensku eru gjaldgengar í keppninni. 3. Keppnin stendur um það hvaða bekkjardeild les flestar bækur að meðaltali á tímabilinu 8. til 18. mars. Keppnin hefst klukkan 8:30 hinn 8. mars og lýkur kl. 16:30 hinn 18. Verði tvær eða fleiri bekkj- ardeildir jafnar ræður blaðsíðu- fjöldi. Keppt verður í hveijum ár- gangi fyrir sig og verðlaun því veitt í hveijum aldursflokki. 4. Upplýsingar um lestur hverrar bókar eru skráðar á eyðublað, sem kennari eða umsjónarmaður heldur til haga. 5. Nemandi velur sér bækur til lestrar en ætlast er til að þær séu í samræmi við aldur og þroska hvers og eins. 6. Nemendum þeirra bekkjar- deilda sem sigra verður veitt vegleg bókaverðlaun, auk þess sem þeim og skóla þeirra verður veitt viður- kenning. Eyðublöð og upplýsingar verða sendar frá menntamálráðuneytinu. Þess er ekki krafist að bekkir skrái sig formlega í keppnina, heldur nægir að senda inn niðurstöður til sannindamerkis um þátttöku. Nið- urstöður úr hverjum skóla, þ.e. meðalfjölda lesinna bóka og blað- síðna í hveijum bekk sem þátt tek- ur í keppninni, sendist fræsluskrif- stofu viðeigandi umdæmis en frum- gögnum skal haldið eftir og þau geymd. Farið verður yfir frumgögn sigurvegaranna áður en verðlaun verða afhent. Allar fram- kvæmdir í sam- vinnu við fornleifadeild MORGUNBLAÐINU hefur borist eftirfarandi yfírlýsing frá Bessa- staðanefnd. Þar segir: „I athugasemdum ríkisendurskoð- unar við endurbætur og viðgerðir Bessastaðastofu í ríkisreikningi 1991 segir: „Eðlilegt hefði verið að forn- leifafræðingar hefði verið Bessa- staðanefnd og verkefnisstjóra til ráð- gjafar um framvindu verksins. Af þessu tilefni óskar Bessastaða- nefnd að taka fram. Allar fram- kvæmdir við Bessastaðastofu voru undirbúnar í náinni samvinnu við fornleifadeild Þjóðminjasafns ís- lands, þjóðminjavörð og fornleifa- nefnd eftir að hún var skipuð í mars 1990. Þegar nokkuð var liðið á verkið fundust við uppgröft mannvistarleif- ar frá upphafi Islandsbyggðar undir norðausturhorni Bessastaðastofu, utan hins forna Konungsgarðs. Fomleifanefnd óskar eftir því með bréfí 23. júlí 1990 að þessar minjar yrðu varðveittar og loftræstibúnaður hússins sem þar átti að vera, yrði staðsettur utan húss. Við þessum tilmælum var orðið og hönnun hússins breytt til sam- ræmis. Bessastaðanefnd harmar það ef skortur á upplýsingum frá nefnd- inni hefur leitt til misskilnings i þessu efni.“ JX CLIPTEC rofamir og tenglarnir frá BERKER gegna ekki aöeins nytjahlutverki, þeir eru Ifka sönn íbúöarprýöi! CLIPTEC fæst I ótal litasamsetningum og hægt er að breyta litaröndum eftir því sem innbú, litir og óskir breytast. CLIPTEC er vönduð þýsk gæðavara á verði, sem kemur á óvart! S 685854/685855 Vatnagörðum 10 Myndbond MetsÖfabktd á hverjum degi! RAFSTÖÐVAR Gott úrval diesel-rafstöðva í ýmsum stærðum. Hagstætt verð. Varahlutir og þjónusta. Þjónustusamningar.

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.