Morgunblaðið - 24.02.1993, Blaðsíða 12

Morgunblaðið - 24.02.1993, Blaðsíða 12
12 MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 24. FEBRÚAR 1993 ÓSKAPNAÐURINN MIKLI Grundvöllur atvinnuleysis og byggðaröskunar Síðari hluti eftír Magnús Jónsson í fyrri grein minni með þessu nafni lýsti ég nokkrum hliðum á því fyrirbæri sem ég tel vera mesta hneyksli íslandssögunnar, kvóta- kerfinu, og færði rök fyrir því að það sé bæði að raska byggð og skapa meira atvinnuleysi en þekkst hefur hér á landi í meira en hálfa öld. Þá er það skoðun mín að fyrr eða síðar leiði það til þjóðargjaldþrots, og að atvinnufrelsi einstaklinga í þessari undirstöðuatvinnugrein okk- ar sé senn liðin tíð. Bráðum geti Sjálfstæðisflokkurinn hrópað: Lengi lifi bæjqrútgerðin, sósíalisminn og þjóðnýtingin! En hugum nú að ann- arri hlið þessa máls. Deilt um grundvallaratriði Útilokað er að Qalla um stjóm fiskveiða án þess að minnast á upp- haf alls, þ.e. ráðgjöf og útreikninga Hafrannsóknastofnunar. Frá upp- hafi hafa menn deilt um aðferðir og niðurstöður og þar með ráðgjöf sérfræðinga hennar. Ekki síst hafa reyndir sjómenn dregið þær mjög í efa, en einnig allstór hópur lífræð- inga og vatnafiskifræðinga. Ég, eins og flestir landkrabbar, hef trúað því að þessi fræði væru á því þekkingar- stigi að ráðgjöf byggðist á traustum fræðilegum grunni. Þó hef ég hlust- að með talsverðri athygli á andstæð- an málfutning ýmissa fræðimanna án þess að taka afstöðu, enda þekk- ing mín lítil á þessu sviði náttúru- fræðanna. Örlítii breyting varð þó á því á nýliðnu ári. Fyrir tilviljun dróst ég inn í umræðu um nýliðun á þorski og tengsl hennar við ákveð- inn veðurþátt. í kjölfar mikillar umræðu um þessi mál sl. sumar höfðu sérfræðingar Hafrannsókna- stofnunar lofsvert frumkvæði að kynningu og umræðu um fiskifræði- leg málefni meðal náttúrufræðinga og voru haldnir fundir hálfsmánað- arlega síðustu fjóra mánuði ársins. Margt fróðlegt hefur komið fram á þessum fundum, en ég verð að játa að því meira sem ég hef heyrt þeim mun skelfingarfýllri verð ég. Méðal fiski- og lífræðinga eru nefnilega uppi deilur um þvílík grundvallarat- riði, að ég tel raunar ráðgjöf um nýtingu fískistofna vera meiri eða minni markleysu. Ég ætla bara að nefna nokkur dæmi um hvað menn eru enn að deila. Deilt er um hvort hér við land sé aðeins einn þroskstofn sem skipt- Magnús Jónsson „Við veðurfræðingar þekkjum vel líkön sem hafa reiknað úttil skiptis ísaldir eða hitaskeið og eru þó menn í þeim fræð- um mun betur sammála um grundvallaratriði en mér virðast menn vera á líf- og náttúrufræðum hafsins.“ ir máli eða hvort um sé að ræða marga staðbundna stofna, stofna sem kannski fara aldrei að neinu ráði út úr sama firðinum. Þá berast fregnir um, að þorskurinn geti verið að ferðast í risavöxnum torfum allt frá Kanada í vestri til V-Evrópu eða Barentshafs í austri á meðan menn hér telja slíkt ekki eiga sér stað, nema í fremur litlum mæii milli Grænlands og íslands. Sérfræðingar deila mjög um það hvort nauðsynlegt sé að hafa stóran hrygningarstofn eða hvort hann skipti litlu sem engu máli. Jafnvel að mjög stór hrygningarstofn geti leitt til hruns í nýliðun ef um er að ræða skort á æti. Og þrætt er um hvort hægt sé að byggja upp stofna og þá hvernig eigi að gera það. Hafró bendir á að tekist hafí með friðun að byggja upp 400 þúsund tonna síldarstofn á 20 árum en aðr- ir vísa til lítils árangur í uppbygg- ingu ýsustofns síðasta áratuginn og nú nýlega hefur komið fram, að nánast enginn loðnustofn (mældist 20 þúsund tonn) í Barentshafi frá árinu 1987 gat af sér loðnustofn sem mældist 5 milljónir tonna 1991! Þá þræta menn hart um hvort alltaf sé rétt að friða smáfísk eða hvort ekki sé jafnvel nauðsynlegt að veiða allar stærðir af físki og þá ekki síst smáfísk þegar lítið er af æti í sjónum. Ekki eru minni deilur um hvort hægt sé að byggja upp alla fiskistofna samtímis eins og hver og einn þeirra lifi sjálfstæðu lífí óháðir hveijum öðrum og án til- lits til fæðu. Og ekki eru síður skipt- ar skoðanir um hver hin náttúrulega dánartala sé, hvort hún sveiflist mikið eftir aldri eða átuframboði eða öðru, og hvaða máli það skipti. Sú fullyrðing að það skipti litlu máli í því líkani sem notað er á Hafró segir mér meira um líkanið en dán- artöluna. Við veðurfræðingar þekkj- um vel líkön sem hafa reiknað út til skiptis ísaldir eða hitaskeið og eru þó menn í þeim fræðum mun betur sammála um grundvallaratriði en mér virðast menn vera á líf- og náttúrufræðum hafsins. Og til að bæta gráu ofan á svart telja margir fískifræðingar, íslenskir og erlendir, að líkanið sé ónothæft og veiðiráðg- jöf undanfama áratuga hafi oftar en ekki verið bæði fískistofnun og fiskimönnum til meiri bölvunar en gagns. Páfadómur á íslandi? Hér hefur aðeins verið bent á nokkur atriði sem rökrædd hafa verið á fyrmefndum fundum. En hér er líka um að ræða slík grund- vallaratriði að ég lýsi furðu minni á sjálfsöryggi þeirra, sem telja sig geta ráðlagt veiði með þúsund tonna nákvæmni nokkur ár fram í tímann. Ég hef stundum verið að bera þetta saman við veðurfræðina. Segja má að í mjög einfaldaðri mynd séu þijú íigúsífer tiÍHafrsai i 0í o viju nfyíÉMö i hOki' | •' \ fjtaflt- \ 1 L ‘ iWtS)! .*•«>•• =' é- W ;; . V : i if* I * ( Mtesírpr ! XWtó&'bfAíhtr iiíSltSttaSíÖÍJrfVáí'V | VJ&u! v; <.• SÉRBLAÐ UM SlÁVARÚTVEG < * * ) fllarkaðir Fylgstu meb á mibvikudögum! Úr verinu kemur út á miðvikudögum. Þar er ítarleg umfjöllun um allt sem viðkemur sjávarútveginum, allt frá veiðum til sölu sjávarafurða. Nýjustu fréttir eru sagðar af sjávarút- veginum, birt eru aðgengileg yfirlit yfir aflabrögð, fréttir af fiskmörkuðum, kvóta, dreifingu skipa á miðunum og fleira. Úr verinu er blað sem allir lesa sem láta sig sjávarútveginn, höfuðatvinnuveg landsins, einhverju varða. - kjarni málsins!

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.