Morgunblaðið - 24.02.1993, Síða 4
4
MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 24. FEBRÚAR 1993
Afurðaláii í sjávarútvegi
með óbreyttum hætti
BANKASTJÓRN Landsbanka ís-
lands ræddi á fundi sínum í gær-
morgun verðlækkun þá sem orð-
ið hefur á fiskmörkuðum í Evr-
ópu, og afurðalán Landsbankans
til sjávarútvegsins. Brynjólfur
Helgason, aðstoðarbankastjóri
Landsbankans, segir ekkert hafa
komið fram á fundinum sem geri
það að verkum að Landsbankinn
þurfi að breyta því fyrirkomulagi
sem nú er á afurðalánum, en
auðvitað verði bankinn að vera
á varðbergi gagnvart verðbreyt-
ingum á markaðnum. „Það er
engin nýlunda, og bankinn mun
hér eftir sem hingað til fylgjast
grannt með verðmyndun á þess-
um afurðum,“ sagði Brynjólfur í
samtali við Morgunblaðið í gær.
17 ára ungtingur
í gæsluvarðhald
17 ÁRA unglingur hefur verið úrskurðaður I 14 daga gæsluvarð-
hald að kröfu Rannsóknarlögreglunnar. Krafist var gæsluvarðhalds
meðan rannsökuð er'meint aðild unglingsins að fjölda afbrota á síð-
ustu viku og mánuðum.
Samkvæmt upplýsingum frá um helgina við að selja sígarettur
RLR hefur unglingur þessi ekki í nokkrum sölutumum í Austur-
hlotið fangelsisdóm eða ákæru áð- bænum en talið er að tóbakið hafi
ur. Hann var hinsvegar handtekinn verið þýfi úr innbroti i Mosfellsbæ.
„Við fylgjumst auðvitað með af-
urðalánamálum okkar af sérstakri
kostgæfni nú, ef einhverjar hug-
myndir eru á ferðinni um að meiri
verðlækkanir vofi yfir á mörkuðum
íslendinga, en verið hafa,“ sagði
Brynjólfur. Hann sagði að Lands-
bankinn teldi þó enga ástæðu til
þess að vera með sérstakar aðgerð-
ir, af þessum sökum, að minnsta
kosti ekki að óbreyttu ástandi.
Brynjólfur sagði að Landsbank-
inn hefði þegar kannað það hjá fisk-
sölusamtökunum, hvort um óeðli-
lega birgðasöfnun væri að ræða hjá
þeim. Hann sagði að vel gæti svo
farið, að slík staða kæmi upp, en
ef svo færi, þá yrði afstaða tekin
til nýrrar stöðu, þegar og ef hún
kæmi upp.
„Ef afurðaverð fer lækkandi, þá
þarf auðvitað að fylgjast með því í
sambandi við viðmiðunarverð,
þannig að til viðmiðunar verði ekki
notað lengi verð sem er mun hærra
en það raunverulega,“ sagði Brynj-
ólfur Helgason.
VEÐURHORFUR I DAG, 24. FEBRUAR
YFIRLIT: Milli Jan Mayen og íslands er vaxandi 970 mb lægð á leið norðaust-
ur en yfir Bretlandseyjum er 1.032 mb hæð. Skammt austur af Nýfundnalandi
er vaxandi 1.002 mb lægð sem fer allhratt austnorðaustur.
SPA: Suðvestan og síðar breytileg átt, gola og él víða um land en líklega
vaxandi austan- og suðaustanlands og snjókoma suðaustanlands síödegis.
Frost 0-6 stig.
VEÐURHORFUR NÆSTU DAGA:
HORFUR Á FIMMTUDAG: Norðaustanátt, allhvöss eða hvöss austast á land-
inu, en mun hægari i öðrum landshlutum. Él norðan- og austanlands en úrkomu-
litiö annars staðar. Frost 9-11 stig.
HORFUR Á FOSTUDAG: Fremur hæg norðanátt með éljum um austanvert
landið, en vestan- og suövestangola og úrkomulítið annars staðar. Frost 6-7
stig.
HORFUR Á LAUGARDAG: Vestan- og suðvestangola eöa kaldi. Dáiítil slydda
eða súld suövestan- og vestanlands en bjartviðri annars staðar. Hiti 1 -2 stig.
Nýir veðurfregnatímar: 1.30, 4.30, 7.30, 10.46, 12.46, 16.30, 18.30, 22.30.
Svaraím! Veðurstofu fslands - Veðurfregnir: 990600.
O & A A Q
Heiðskírt Léttskýjað Hálfskýjað Skýjað Alskýjað
v ý ý
Skúrir Slydduél Él
/ / / * / *
/ / * /
/ / / / * /
Rigning Slydda
* * *
* *
* * *
Snjókoma
Sunnan, 4 vindstig.
Vindörin sýnir vindstefnu
og fjaðrirnar vindstyrk,
heil fjöður er 2 vindstig.
10° Hitastig
Súld
Þoka
V
dig..
FÆRÐA VEGUM: (Kl.17.30ígær)
Á Hellisheiði, í Þrengslum og á Mosfellsheiði er illfært vegna hvassviðr-
is og hálku. Vegir á Suðurlandi eru flestir færir en komin snjókoma og
skafrenningur víða með suðurströndinni. Á Snæfellsnesi eru íjallvegir
ófærir og þungfært um Bröttubrekku og Svínadal. Á Vestfjórðum eru
allar heiðar ófærar og víða þungfært á láglendi. Norðurleiðin er fær en
hvasst og skafrenningur á heiðum, einkum á Öxnadalsheiði.
Upplýsingar um færð eru veittar hjá Vegaeftirliti f síma 91-631500 og
á grænni linu 99-6315. Vegagerðin.
w VEÐUR VÍÐA UM HEIM kl. 12.00 í gær að ísl. tíma hlti veöur Akureyri 7 rigning Reykjavík +2 snjókoma
Bergen 2 skýjað
Helsinki +3 skýjað
Kaupmannahöfn +2 léttskýjað
Narssarasuaq +20 heiðskfrt
Nuuk +17 snjókoma
Ósló +11 akýjað
Stokkhólmur +3 snjókoma
Þórshöfn 6 akúr
Algarve 15 heiðskírt
Amsterdam 3 léttskýjað
Barcelona 10 heiðskirt
Beriin +2 skýjað
Chicago +9 þokumóða
Feneyjar S heiðskfrt
Frankfurt +2 skýjað
Glasgow 8 súld
Hamborg +1 iéttskýjað
London 6 léttskýjað
Los Angeles 12 rigning
Lúxemborg +3 snjóél
Madrfd 7 léttskýjað
Malaga 15 skýjað
Mallorca 8 alskýjað
Montreal +11 snjókoma
NewYork 0 heiðskírt
Oriendo vantar
París vantar
Madeira vantar
Röm 9 hátfskýjað
Vín +2 léttskýjað
Washington +1 skýjað
Winnipeg +28 léttskýjað
Morgunblaðið/Sigurður Sigmundsson
Bóndií vanda
UNNSTEINN Hermannsson bóndi í Langholtskoti. Staðfest hef-
ur verið að riðuveiki hefur komið upp í fjárstofni Unnsteins.
Riðuveiki finnst í
Hnmamannahreppi
Syðra-Langholti.
RIÐUVEIKI hefur verið staðfest á bænum Langholtskoti í
Hrunamannahreppi. Veikin greindist í tveggja vetra gam-
alli á sem sýndi sjúkdómseinkenni sem vöktu athygli bónd-
ans, Unnsteins Hermannssonar. Riðuveiki kom upp á næsta
bæ, Efra-Langholti, í júnímánuði 1988, en þá reyndist ung
ær vera með riðuveiki. Þá var alit fé skorið niður á þeim
bæ og var þar fjárlaust í tvö ár. Dýralæknir segir að búast
megi við að veikin leynist víðar á svæðinu.
í Langholtskoti er 270 fjár á
fóðrum og hefur féð gengið á
afrétti með öðru fé sveitarinnar
og því haft mikinn samgang við
það. „Þetta er mikið áfall,“
sagði Unnsteinn við tíðinda-
mann Morgunblaðsins. „Menn
vonuðu að tekist hefði að ein-
angra þetta tilfelli sem upp kom
í Efra-Langholti, en svo reynist
ekki vera. Það er hart að sjá á
eftir þessum fallega og vel
ræktaða fjárstofni sem ég tók
við af föður mínum og hann var
búinn að rækta allt frá fjár-
skiptunum árið 1952.“
Margir bændur á svæðinu
milli Þjórsár og Hvítár hafa
fengið hrúta frá Hermanni í
Langoltskoti til að kynbæta sitt
fé. Þessi tvö riðuveikitilfelli eru
þau einu sem hafa vertö stað-
fest á þessu stóra svæði í Ámes-
sýslu austan Hvítár.
Hættan til staðar
„Við þessu mátti búast,“
sagði Sigurður Sigurðarson,
dýralæknir á Keldum. „Riðu-
veikin er langvinn og getur leg-
ið niðri árum saman. Það er
hátt á fímmta ár síðan riðuveiki
fannst á næsta bæ, en dæmi
eru um að áður hafi veikin kom-
ið upp með lengra millibili. Við
vorum að vonast til að það
væri einangraður staður, Efra-
Langholt, en það hefur því mið-
ur ekki reynst vera. Það má
búast við að veikin kunni að
leynast víðar á þessu svæði, því
miður, úr því að þetta kemur
upp núna. Það liggur fyrir sam-
þykki stjómvalda að farga strax
öllu fé á bæjum þar sem riða
kemur upp og einnig verður að
lóga kindum sem hafa verið
seldar frá þeim bæjum. Niður-
skurður virðist það eina ráð sem
hefur dugað til að keyra riðu-
veikina niður. Á næstunni verð-
ur boðað til fundar með bænd-
um í þessari sveit til að hafa
samráð um hvernig brugðist
skuli við til að koma í veg fyrir
hugsanlega smithættu og varúð
alla til að veikin breiðist ekki
út,“ sagði Sigurður.
Sig. Sigm.
Dagsbrúnarmenn hjá olíufélögunum
Sairniingar samræmdir
KJARASAMNINGAR hjá Dagsbrúnarmönnum sem starfa hjá
olíufélögunum hafa verið samræmdir en nokkurt misræmi
var orðið á samningum þeirra þótt þeir væru í sömu störfum.
„Það var full þörf á að sam-
ræma samninga þessara manna
enda um það samið í síðustu
samningagerð,“ sagði Guðmundur
J. Guðmundsson formaður Dags-
brúnar í samtali við Morgunblað-
ið. Hann sagði að samræmdir
hefðu verið samningar starfsfólks
í portum olíufélaga, bílstjóra,
vaktmanna og bensínafgreiðslu-
manna.
Einkum orðalagsbreytingar
Guðmundur sagði að samræm-
ingin fælist fyrst og fremst í orða-
lagsbreytingum fremur en um
nýjan kjarasamning væri að ræða.
Viðkomandi starfsmenn olíufélag-
anna hafa í sumum tilfellum fjar-
lægst í samningum gegn um tíð-
ina. Guðmundur sagði að tíma-
bært hefði verið að samræma
samninga þeirra.
Hópur ungra
Eyjamanna
kemst hvergi
UM ÁTTATÍU ungmenni frá
Vestmannaeyjum, sem stödd eru
í Reykjavík á vegum skóla og
íþróttafélaga, komast ekki til síns
heima. Undirmenn á Herjólfi eru
í verkfalli og ekki hefur viðrað
til flugs síðustu daga.
Hópurinn er um 60 nemendur í
Framhaldsskólanum í Vestmanna-
eyjum og félagar í íþróttabandalagi
Vestmannaeyja. Ráðgert var að hóp-
urinn færi á heim á leið sl. sunnu-
dag en ekki hefur viðrað til flugs.
Hluti hópsins býr í skátaheimili
Skjöldunga í Reykjavík en flestir
hafa leitað til ættingja eða vina.