Morgunblaðið - 24.02.1993, Qupperneq 5

Morgunblaðið - 24.02.1993, Qupperneq 5
MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 24. FEBRUAR 1993 5 Framkvæmdastjóri VSÍ um nemendafyrirtæki Höfum vaxandi efasemdir um at- vinnurekstur í HI ÞÓRARINN V. Þórarinsson, framkvæmdastjóri Vinnuveitenda- sambands Islands, segist gjalda varhug við áformum um at- vinnurekstur á vegum nemenda eða kennara í Háskóla ís- lands, sem sé í samkeppni við einkafyrirtæki. Röskva, samtök félagshyggjufólks í HI, hefur sett fram hugmyndir um nem- endafyrirtæki, sem tryggi nemendum vinnu við verkefni í þágu atvinnulífsins gegn greiðslu. „Við höfum haft vaxandi efa- semdir um þennan atvinnurekstur í Háskólanum, hvort heldur það er starfsemi nemenda eða kenn- ara. Við horfum á starfsemi stofn- ana Háskólans, sem allar flagga hinu góða merki skólans og starfa í skjóli hans en eru í hreinni sam- keppni við einkafyrirtæki, hver á sínu sviði,“ sagði Þórarinn í sam- tali við Morgunblaðið. Þórarinn sagðist ekki hafa séð hugmyndir um fjárhagsleg tengsl boðaðs nemendafyrirtækis. „En að því marki sem gert er ráð fyrir að það sé starfrækt í húsnæði skólans og nýti aðstöðu hans, er það fullkomlega óeðlilegt ef það er með einhveijum hætti í sam- keppni við atvinnufyrirtæki á al- mennum markaði," sagði hann. Rekstur í skjóli skattpeninga óeðlilegur Þórarinn sagði að tengsl Há- skóla og atvinnulífs, til að mynda með því að fyrirtæki tækju nem- endur í vinnu og þeir ynnu loka- verkefni á vegum fyrirtækja, væru af hinu góða. „Við höfum verið mjög jákvæðir fyrir framtaki, sem upp kom í fyrra, atvinnumiðlun, þar sem stofnað var til tengsla milli rannsóknarsjóða skólans og Keppt undir merki HÍ ÞÓRARINN V. Þórarinsson segir stofnanir Háskólans vera í sam- keppni við einkaaðila undir merki skólans. atvinnufyrirtækja. En atvinnu- rekstur í skjóli Háskólans, sem styrktur er með skattpeningum eða félagsgjöldum stúdenta, er fullkomlega óeðlilegur, ekki sízt meðán skyldugreiðslur í þessa sjóði eru þvingaðar fram.“ Hið íslenska náttúrufræðifélag Morgunblaðið/Þorkell Afhending viðurkenningar FREYSTEINN Sigurðsson, formaður Hins íslenska náttúru- fræðifélags, afhendir Elínu Pálmadóttur blaðamanni viðurkenn- ingarslqal fyrir mikið og merkilegt framlag hennar til almennr- ar kynningar á náttúrufræði. Elínu Pálmadóttur veitt viðurkenning HIÐ íslenska náttúrufræðifélag veitti Elínu Pálmadóttur, blaðamanni á Morgunblaðinu, viðurkenningarskjal fyrir skrif hennar um náttúrufræði og náttúru landsins um þriggja áratuga skeið á aðalfundi sínum á laugardag. í framhaldi af þeirri ákvörðun stjórnar félagsins að taka fyrir kynningu í fjölmiðlum varð ein- hugur innan hennar um að veita Elínu viðurkenningu fyrir mikið og merkilegt framlag hennar til almennrar kynningar á náttúru- fræði. Nefndur var í því sam- bandi fjöldi greina um náttúru- fræði og náttúru landsins, sem birst hafa eftir hana, einkum í Morgunblaðinu, um áratuga skeið. „Greinar þessar hafa ver- ið samdar af vandvirkni og þekk- ingu og á þann létta og auð- skilda hátt, sem hefur gert les- endum viðfangsefnið aðgengi- legt. Upplýsing, fræðsla og skemmtun af þessu tagi er ein- mitt óskamið Hins íslenska nátt- úrufræðifélags á þessu sviði,“ segir í orðsendingu frá stjóminni sem telur Elínu bera höfuð og herðar yfir annað fólk í blaða- mannastétt á þessum vettvangi. Villandi dagstimpill hindrar ekki sölu bauna ÚTRUNNINN dagstimpill á gul- um baunum, sem Ó. Johnson & Kaaber flytja inn, kemur ekki í veg fyrir að baunirnar séu seldar í verslunum, enda stimpiliinn að- eins til viðmiðunar fyrir verslanir, að sögn markaðsstjóra fyrirtækis- ins. Kona, sem keypti gular baunir í Hagkaupi í Skeifunni á dögunum, hafði samband við Morgunblaðið og sagði að sér hefði brugðið í brún þegar hún sá að strikað hafði verið yfir dagstimpil vörunnar með túss- penna, en tími baunanna var útrunn- inn 7. nóvember sl., miðað við stimp- ilinn. „Þurrkaðar baunir eru yfirleitt ekki dagsettar og þess þarf ekki samkvæmt íslenskum lögum, enda geymast þær í allt að fimm ár, sagði Olafur Ó. Johnson, markaðsstjóri Ó. Johnson & Kaaber. „Þessi sending kom dagsett til okkar, en dagsetn- ingin er eingöngu sett til þess að verslanir í Bandaríkjunum geti áttað sig á hvað er nýjasta varan í hillum þeirra. Við skýrðum þessi sjónarmið fyrir Hollustuvernd og sýndum þeim yfirlýsingu frá framleiðanda baun- anna og þeir töldu ekki ástæðu til að amast við því að baunimar færu á markað. Þær eiga að endast 3-4 ár í viðbót og hefur stimpillinn ekk- ert með líftíma vörunnar að gera. Þessar merkingar eru auðvitað vill- andi, en innkaupastjórar verslana hafa sætt sig við rök okkar.“ Jóhannes Gunnarsson, formaður Neytendasamtakanna, sagði að yfir- strikaðar merkingar eins og þama væri um að ræða væru ekki mjög traustvekjandi. Hins vegar hefðu samtökin fengið þær upplýsingar hjá Hollustuvernd að varan væri ekki farin að missa gæði á neinn hátt og gerðu Neytendasamtökin því ekki athugasemdir við vömna. er LADA SAFIR á 418 þásuud krómirS . o\\_UNUM. ÞAU TREYSTA A SAFÍRINN SINN K o _______ r Q cc VAU UM OG HALDA ÞVÍ FRAM AÐ cc 'LU OO Q <c I— % HÉR ER GREINILEGA ÁN/F. -n c— O- r— co -< i— o > >' ~n rn & \ % ^#JVIAI lAIIAIId HnNNVHDmSGAd 00 HnGDDABNHa^ <s> § C5 qv nnoA ÚVd 1N3S */V ^s va\n ÚTBORGUN ER AÐEINS 104.500,- ÍCRÓNUR OG AFBORGANIR ERU 10.051,- KRÓNA I 36 MÁNUÐI! Tökum notaða bíla sem greiðslu upp í nýja og bjóðtun ýmsa aðra greiðslumöguleilta. BIFREIÐAR & LANDBÚNAÐARVÉLAR HF. ÁRMÚLA 13.SÍMI: 68 12 00 BEINN SIMI: 3 12 36

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.