Morgunblaðið - 24.02.1993, Page 11
MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 24. FEBRÚAR 1993
11
Sinfóníuhljómsveit Islands
Aage Haugland ein-
söngvari á tónleikum
Þjóðleikhúsið
Dansað á haustvöku
ÞRIÐJU tónleikarnir í grænni
áskriftaröð Sinfóníuhljómsveitar
Islands verða á morgun, fimmtu-
daginn 25. febrúar. Tónleikarnir
hefjast klukkan 20.00 og eru ein-
göngu helgaðir rússneskri ball-
ett- og óperutónlist. Hljómsveit-
arstjóri er rússinn Edward
Serov, sá hinn sami og stjórnaði
tónleikum hljómsveitarinnar síð-
Stræti
sýnt áfram
VEGNA gífurlegrar aðsóknar
hefur verið ákveðið að halda sýn-
ingum á „Stræti“ eftir Jim Cart-
wright, sem sýnt hefur verið í
Smíðaverkstæði Þjóðleikhússins,
áfram enn um sinn. Sýningar hóf-
ust í byrjun leikársins og nálgast
þær nú óðum fimmta tuginn.
I fréttatilkynningu segir: „Stræti
var frumsýnt í Royal Court leikhús-
inu í London árið 1986 og vakti gíf-
urlega athygli. Höfundurinn var með
öllu óþekktur, en Cartwright sópaði
til sín öllum helstu leikskáldaverð-
launum Englands það árið.
Ein nótt í stræti fátækrahverfis
er sögusvið leikritsins. Það er
drykkjusvolinn og gleðimaðurinn
Scullery sem leiðir okkur um strætið
og kynnir okkur fyrir íbúum þess.
Verkið lýsir á hreinskilinn hátt hin-
um harða heimi fátækra borgarbúa;
dregur fram persónur, fyndnar,
daprar, auðmýktar en umfram allt
mannlegar sem þrátt fyrir atvinnu-
leysi og ömurlegar aðstæður eru
fullar af lífsþrótti og von.
Leikarar í sýningunni eru sjö tals-
ins: Ingvar E. Sigurðsson, Kristbjörg
Kjeld, Róbert Amfmnsson, Edda
Heiðrún Backman, Baltasar Kor-
mákur, Þór H. Tulinius og Halldóra
Bjömsdóttir.
-----» »4------
Leikflokkurinn á
Hvammstanga
Frumsýnir
Hreppstjórami
á Hraunhamri
LEIKFLOKKURINN á Hvamms-
tanga frumsýnir Hreppstjórann á
Hraunhamri eftir Loft Guð-
mundsson í dag, miðvikudaginn
24. febrúar. Sýningin er í Félags-
heimilinu á Hvammstanga og
hefst klukkan 21.
Leikstjóri er Hörður Torfason, en
rúmlega 20 manns starfa að sýning-
unni. Hlutverk í leikritinu eru átta.
Þau eru í höndum Guðmundar
Hauks Sigurðssonar, Lilju Hjartar-
dóttur, Júlíusar Guðna Antonssonar,
Jónínu Amardóttur, Eggerts Karls-
sonar, Hrannars Haraldssonar, Kol-
brúnar Jónsdóttur og Björns Sigur-
valdssonar.
Hreppstjórinn á Hraunhamri er
gamanleikur sem gerist í sveit á
Islandi á tímum seinni heimsstyrjald-
arinnar. Næsta sýning verður á
Hvammstanga sunnudaginn 28.
febrúar klukkan 16. Fleiri sýningar
eru fyrirhugaðar, auk þess em stend-
ur til að sýna leikritið í Varmalandi
í Borgarfirði og á Skagaströnd.
3M
Öryggisfilma
astliðinn fimmtudag. Einsöngv-
ari er Aage Haugland, bassa-
söngvari.
í fréttatilkynningu segir: Aage
Haugland er mörgum íslendingum
að góðu kunnur. Hann er óumdeil-
anlega einn af fremstu bassasöngv-
umm veraldar. Hann hóf söngferil
sinn í drengjakór í heimaborg sinni,
Kaupmannahöfn. Hann innritaðist
í Kaupmannahafnarháskóla í lækn-
isfræði og tónlist en sneri sér að
lokum alveg að söngnum. Haugland
er tíður gestur við helstu ópemhús
heims eins og Covent Garden í
Lundúnum, Vínaróperuna, Metro-
politan-óperuna í New York og La
Scala í Mílanó. Haugland kom síð-
ast til íslánds árið 1990 og söng
þá meðal annars í sinfóníu Sjosta-
kovits, „Babi Jar.“
A efnisskrá tónleikanna em
„Rómeó og Júlía, forleikur" og
Aage Haugland
„Aría Gremins úr óperunni Eugene
Onegin" eftir Tsjajkofskíj, „Söngur
víkingsins úr óperunni Sadko“ eftir
Rimsky-Korsakov, „Þáttur úr ball-
ettsvítunni Rómeó og Júlía“ eftir
Prokofiev, „Sál konungur“ og
„Khovantsjína, forleikur" eftir Mú-
sorgskíj, „Aría Kutuzovs úr óper-
unni Stríð og friður" eftir Pro-
koijev, „Polovtssían-dansar úr óp-
erunni Igor fursti“ eftir Borodin
og„Söngur Vaarlams úr óperunni
Boris Goudunov" eftir Músorgskíj.
Þjóðleikhúsið frumsýnir í dag-
„Dansað á haustvöku," eftir
írska leikskáldið Brian Friel.
Sýningin er á stóra sviðinu og
hefst klukkan 20.00.
„Dansað á haustvöku" gerist í
sveit á írlandi árið 1936 þar sem
Mundy-systurnar fimm lifa ein-
angruðu lífi í fátækt og striti. Ein
systranna, Chris, eignaðist eitt sinn
dreng í lausaleik með hjartaknús-
ara frá Wales sem átti í sveitinni
stuttan stans og það er í gegnum
augu drengsins sem við sjáum lífið
J^Ballybeg í hlýjum ágústmánuði.
Hann rifjar upp líf sitt með systr-
unum fimm í gleði og sorg. Þær
leggja sig allar fram um að lifa
heiðvirðu lífi, staðfastar í sinni
kaþólsku trú. En röskun verður á
lífi systranna þegar bróðir þeirra
kemur heim, mikið breyttur eftir
langa fjarvem. Einkennilegir hlutir
gerast. Systurnar einangrast og
verða smátt og smátt fordómum
þorpsbúa að bráð.
Í fréttatilkynningu segir: Höf-
undurinn, Brian Friel fæddist á
írlandi 1929. Hann hefur sent frá
sér á þriðja tug leikrita sem sýnd
hafa verið í helstu leikhúsum hins
vestræna heims. Hérlendis hafa
áður verið sýnd eftir hann leikritin
„írlandskortið" og „Heiðursborgar-
ar.“ „Dansað á haustvöku" var
frumsýnt í Abbey leikhúsinu í Du-
blin árið 1990 og hefur síðan hlot-
ið mörg verðlaun sem besta nýja
leikritið beggja vegna Atlantshafs-
ins.
Leikarar í sýningunni eru Anna
Kristin Arngrímsdóttir, Lilja Guð-
rún Þorvaldsdóttir, Ólafía Hrönn
Jónsdóttir, Ragnheiður Steindórs-
dóttir, Tinna Gunnlaugsdóttir, Erl-
ingur Gíslason, Kristján Franklín
Magnús og Sigurður Skúlason.
Sveinbjörn I. Baldvinsson þýddi
verkið, Sylvia von Kospoth er
dansahöfundur. Páll Ragnarsson
hannar lýsingu, leikmynd og bún-
ingar eru í höndum Guðrúnar Sig-
ríðar Haraldsdóttur og leikstjóri er
Guðjón P. Pedersen.
Fjáröflunardagur
Rauða krossins
EM&nsna er hefðbundinn fjáröflunardagur Rauða kxoss deildanna. Á
hverju ári síðan 1925 hafa böm og unglingar um land allt aðstoðað Rauða krossinn
við landssöfnun þennan dag.
Fénu sem safnast, er varið til margvíslegs hjálparstarfs, utan lands sem innan,
samkvæmt ákvörðun Rauða kross deildanna.
Við hvetjum alla landsmenn til að taka vel á móti sölubömunum þegar þau
bjóða áletraða penna til sölu og styrkja þannig hjálparstarf Rauða krossins.
MANNLEG REISN ER RÉTTUR ALLRA
ALÞJÓÐA rauði krossinn vill virkja sjálfboðaliða innan vébanda
SINNA TIL AÐ RÉTTA ÞURFANDI FÓLKI HJÁLPARHÖND OG MEÐ ÞVÍ STUÐLA AÐ
ÞVÍ AÐ FLEIRI GETI LIFAÐ MEÐ REISN.
ÞESS VEGNA HEFUR RAUÐI KROSSINN VALIÐ SÉR KJÖRORÐiÐ
„VlRÐUM HVERT ANNAÐ" Á YFIRSTANDANDI ÁRI.
Rauði kross íslands
Rauðarárstíg 18, 105 Reykjavlk, sími 91-626722
Neyöarsími fyrtr börn og unglinga. Rauöakrosshúsiö. Grænt símanúmer 99 66 22.
Trúnaöarsími fyrir 18 ára og eldri. Vinalínan. Grænt símanúmer 99 64 64.