Morgunblaðið - 24.02.1993, Side 13
MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 24. FEBRÚAR 1993
13
grundvallaratriði sem skapa þær
veðuraðstæður á jörðinni sem við
þekkjum:
1. Mishitun jarðarinnar, þ.e. að
það er heitara við miðbaug en á
pólsvæðunum (jörðin er hnöttur).
2. Jörðin snýst um sjálfa sig.
3. Jörðin hefur þyngdarafl.
Menn deila ekki lengur um þessi
atriði þótt það hafi verið gert áður.
Á sautándu öld féll eplið í höfuðið
á Newton, sem í framhaldi af því
setti fram hin þekktu lögmál kraft-
fræðinnar og færði honum sönnun
á þyngdarsvið allra massa og Gali-
lei hlaut bannfæringu páfans í Róm
fyrir að halda því fram að jörðin
snerist. Páfagarður viðurkenndi að
vísu ekki fyrr en nú nýlega, að páfi
hefði haft rangt fyrir sér en Galileo
rétt! Ég myndi ekki gefa mikið fyr-
ir veðurspár í dag, ef menn væru
ekki orðnir sammála um fyrmefnd
grundvallaratriði veðurfræðinnar.
En eftir umræðumar um fiskifræð-
ina í haust get ég ekki varist þeirri
hugsun, að þekkingin og spáhæfnin
í þeirri grein sé engan veginn kom-
in á það stig, að hægt sé að láta
efnahagslega tilvist íslensku þjóðar-
innar vera alfarið háða slíkum spám.
Og þar sem annar páfi (mr. Pope)
er æðsti prestur i kenningum og
útreikningum Hafrannsóknastofn-
unnar verð ég að vona að það taki
minna en 300 ár að fá úr því skor-
ið, hvort þær em réttar eða ekki.
En það er víðar sem skortur er
á þekkingu eða skilningi á hinum
ýmsu sviðum náttúmnnar. Ekki em
nema 20 ár síðan enginn jarðvís-
indamaður gat séð fyrir, að gos
hæfist í Heimaey. Og jafnvel þótt
fæmstu vísindamenn í sömu grein
væm staddir ofan í eldgýg með
mælitæki sín tókst þeim ekki að sjá
fyrir atferli fjallsins, eins og hörmu-
legt slys í Chile nú nýlega er sönnun
fyrir. Þetta er engum sagt til hnjóðs
heldur sýnir þetta aðeins hversu
langt við eigum í land með að skilja
hin ýmsu svið náttúmnnar og lífs-
ins. Ég verð hins vegar að gagnrýna
Hafrannsóknastofnun fyrir tvennt:
í fyrsta lagi fyrirvaralitla útreikn-
inga og ráðgjöf um magnveiðar á
flestum nytjastofnum á mjög um-
deildum og gloppóttum fræðilegum
gmnni. í öðm lagi gagnrýni ég, að
stofnun, sem hefur haldið því fram
í meira en tvo áratugi að sóknin í
þorskinn sé of mikil, skuli enga at-
hugasemd gera við þá staðreynd,
að sókn togaraflotans er nú í reynd
ótakmörkuð, meðan smábátaflotinn,
sem aldrei getur sótt til skaða, skuli
þurfa að vera að veiðum að hluta
til með leyfi togaranna!
Lokaorð
Þótt hér sé orðið langt mál um
stærsta hagsmunamál þjóðarinnar
hefur aðeins verið bent á nokkur
atriði sem gera núverandi kvóta-
kerfi ónothæft til að stjórna fisk-
veiðum á íslandi, auk þess sem ég
hef vaxandi efasemdir um forsendur
stjórnunarinnar. Um þetta kerfi,
sem ég ber svipaðan hug til og
Cató hinn gamli bar til Karþagó-
borgar, verður aldrei sátt um í land-
inu, hvorki í bráð né lengd. Það
þarf því að hljóta sem fyrst sömu
öríög og fyrmefnd borg Púnveija.
Umræða og vamir helstu hags-
munaaðilja fyrir framhaldi þessa
kerfís hefur oft verið rislág enda
málstaðurinn veikur. En ég held,
að botninum hafi veri náð núna
milli jóla og nýárs er veiðiheimildir
Færeyinga voru ákveðnar. Þar
hældist sjávarútvegsráðherra yfir
því, að hafa hjálpað frændum í nauð
af miklu örlæti með því að leyfa
þeim að veiða 700 tonn af þorski á
miðum okkar á þessu ári. Og tals-
maður greifanna mótmælti kröftug-
lega og taldi slíka góðmennsku
óheyrilega rausn. Þetta var mögnuð
deila í ljósi þess, að magnið sem
þessum vinum okkar verður leyft
að veiða er jafnmikið og það sem
deyr „náttúrulegum dauða“ á ís-
landsmiðum á minna en tveimur
sólarhringum, samkvæmt mæling-
um og kenningum Hafrannsókna-
stofnunar! Miklir höfðingjar erum
við, þegar góðvinir eiga í vanda.
Höfundur er veðurfræðingur og
formaður milliþinganefndar
Alþýðuflokksins um
sjávarútvegsmál.
Fyrst íslenskra ferðaskrifstofa bjóða
Heimsferðir beint leiguflug til Cancun
í Mexíkó, vinsælasta áfangastaðar
Karíbahafsins, sem sameinar
frábæran aðbúnað, ævaforna
menningu og sögu Mexíkó og fegurstu
strendur Karíbahafsins.
Brottfarardagar:
24. maí - 10. júní - 24. júní - 8. júlí -
22. júlí — 5. ágúst — 19. ágúst.
Verð frá kr.
59.900,-
*
I beinu leiguflugi.
Aðeins 150 sæti á þessu ótrúlega verði.
NYTT
* Karíbahalí
OKKAR VERÐ FRÁ KR. 59.900,
OKKAR VERÐ FRA KR. 19.900,
OKKAR VERÐ FRÁ KR. 26.900,
OKKAR VERÐ FRA KR. 34.900,
Bæklingurinn kemur á
föstudag og verður dreift í hús
á stór-Reykjavíkursvæðinu um helgina.
París
Verð frá kr.
19.900,-
Beint flug í júlí og ágúst, 30 sæti í
hverju flugi. Aðeins 90 sæti á þessu
ótrúlega verði.
Benidorm
Verð frá kr.
34.600,-*
Beint leiguflug í júlí og ágúst
í samvinnu við TURAVIA.
Ný, glæsileg íbúðarhótel.
*Ver& fyrir nuinninn m.v. hjón nwó 2 hiirn. 2—/ / úru í 2 rihitr.
i TURAUIA dSÍL^ HEIMSFERÐIR hf
air europa ^ Austurstru'ti 17, 2. hatð • Sími 624600