Morgunblaðið - 24.02.1993, Side 15
MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 24. FEBRÚAR 1993
15
Sigurður E. Vilhelmsson
Hagnaðurinn er ótviræður
Sá hagnaður er af þessu hlýst
er margþættur. Tengsl Háskólans
við atvinnulífið, sem hingað til hafa
ekki verið of mikil, munu aukast
og eflast. Stúdentar öðlast mikla
reynslu við að takast á við raunveru-
leg vrkefni, sem mun nýtast þeim
við frekara nám og störf og þeim
gefst færi á að átta sig á þörfum
atvinnulífsins og hagræða námi sínu
eftir þeim. Vinnumarkaður stúdenta
verður opnaður upp á gátt og mögu-
leikar á hagnýtum störfum tengdum
náminu aukast að miklum mun.
Nýsköpun í íslensku atvinnulífi mun
eflast þegar fyrirtæki átta sig á
mögulegri þróunarsamvinnu við
Háskólann með þátttöku stúdenta,
því þeir eru mikið og lítt nýtt vinnu-
afl á því sviði. Samvinna af þessu
tagi er vel til þess fallin að beina
nýjum straumum og bæta menntun
stúdenta við Háskóla íslands. Slík
sókn inn á nýjar brautir er öllum
til góða; stúdentum, Háskólanum,
atvinnulífínu og þjóðfélaginu í heild.
Höfundur er líffræðinemi við HÍ
og skipar 15. sætiá lista Vöku til
Stúdentaráðs.
Uppfræðing er ekki
aflestur einn
Háskólanám það er ég hef kynnst
sem nemi í líffræðiskor er gott, svo
langt sem það nær. Ég hef lesið
margt og lært, um hugðarefni mín,
og notið við það stuðnings víðlesinna
kennara skorarinnar. En maður
verður ekki góður kokkur af því
einu að lesa matreiðslubækur,
hversu góðar sem þær eru. Til þess
að búa til góðan mat þarf maður
að prófa sig áfram og æfa sig til
að ná tökum á tækninni. Og til þess
að aðrir geti notið góðs af matseld-
inni þarf maður að vita hvað þeir
vilja. Það sama á við um námið.
Maður þarf að kynnast þeim vinnu-
brögðum af eigin raun sem maður
les um i bókum. Sjá hvernig tækin
vinna, hvað ber að varast, prófa sig
áfram og læra af mistökum sínum
og annarra. Það er og nauðsynlegt
að læra hvernig maður getur beitt
þekkingu sinni, í hagnýtum jafnt
sem fræðilegum rannsóknum, svo
hún nýtist flestum sem best því til-
gangur háskólanáms er að byggja
upp fyrir framtíð sem flestra.
Þegar þrengir að ber að
blása til sóknar
Það er ljóst að í Háskólanum býr
geysileg þekking, jafnt hjá kennur-
um sem nemendum. Þessa þekkingu
þarf að nýta betur en nú er gert.
Sú þekking sem kennarar búa yfir
er að miklu leyti virkjuð í gegnum
rannsóknarstörf þeirra, en hins veg-
ar er heill heimur opinn þeim er
nema vilja land og nýta sér þekk-
ingu nemendanna. Þegar að kreppir
í efnahagslífínu og atvinnuleysi
eykst er ljóst að hinn hefðbundni
vinnumarkaður ber ekki lengur
þann ijölda námsmanna er úr skól-
unum streymir á vorin. Þegar þann-
ig er ástatt er námsmönnum nauð-
syn að feta ótroðnar slóðir og nýta
sér það sem þeir hafa aflað sér með
setu á skólabekk, þ.e. þekkingu sína.
Það þarf að vinna markvisst að því
að afla nemendum verkefna, er
tengjast atvinnulífinu í landinu, sem
þeir geta unnið að undir handleiðslu
kennara sinna. Með samstilltu átaki
stúdenta, Háskólans og atvinnulífs-
ins ber að bijóta nýtt land til rækt-
unar og sá í það þeim vannýttu fræj-
um er finnast innan veggja Háskól-
ans. Uppskeran gæti orðið góð björg
í þjóðarbúið.
Þekking á þörfum þjóðfé-
lagsins er námsmönnum
nauðsynleg
Það er hveijum manni hollt að
öðlast víðsýni og vísindamönnum
er nauðsynlegt að kynnast aðferðum
annarra til að efla eigin rannsóknir.
Því er það svo að stór hópur stúd-
enta er lokið hafa háskólaprófi hér
heima heldur til útlanda til fram-
haldsnáms. Um það er ekkert nema
gott að segja, sérstaklega e_f tekið
er tillit til þess að Háskóli Islands
megnar ekki við núverandi aðstæður
að bjóða öllum nemendum upp á
nám til meistaragráðu eða annað
Skylda Háskólans er að
sínna þörfum þjóðfélagsins
J S B HRAUNBERGI
Frjtilsu tímamir hafa gengið alvegfrábcerlega vel
°S er greinilegt að þessi þjómista erþað sem beðið var eftír.
eins oft
FRJÁLSIR TÍMAR
• frjáls maeting og ástundun
Þessi kort bjóða uppá frjálsa mætingu, <
og þú vilt, innan þeirrar tímalengdar og á þeim
tímum dags sem þú sjált velur.
SVONA FERÐU t»Ú AÐ:
Þú kemur eða hringir í síma 79988 og pantar
kort. Fimm daga vikunnar getur þú mætt eins oft
og þú vilt.
Kortin kosta kr. 4.500,-
Nú bjóðum við uppá barnapössun alla dagana.
J S B SUÐURVERI
TOPPI TIL TÁAR
Námskeifi sem hefur veitt ótalmörgum
konum frábæran árangur.
Þetta kerfi er eingöngu ætlaö konum sem
berjast við aukakílóin. Uppbyggilegt lokað
námskeið.
-Fimm tímar í viku, sjö vikur í senn.
-Strangur megrunarkúr sem fylgt er eftir
daglega með andlegum stuðningi,
einkaviðtölum og fyrirlestrum um mataræði og
hollar lífsvenjur.
-Heilsufundir þar sem farið er yfir förðun,
klæðnað, hvernig á að bera líkamann og efla
sjálfstraustiö.
ÖNNUR KERFI
ALMENNT KERFI
RÓLEGT OG GOTT
PÚL OG SVITI
Hvernig getur hann sinnt þeim best?
eftir Sigurð E.
Vilhelmsson
Þegar minnst er á Háskólann sjá
menn oftast fyrir sér lokaða stofnun
þar sem fróðleiksfúsir stúdentar
hópst kringum lærða menn og lauga
sig í viskubrunnum þeirra. Stúdent-
arnir innbyrða visku lærimeistar-
anna eftir bestu getu og fylla upp
í og bæta við með bóklestri þess í
millum. Þessi viska er dýrmæt þeim
er hana öðlast, hvort heldur litið er
til þess andlega auðs er hún skapar
þeim er yfir henni búa, eða þess
veraldlega er hún veitir þeim er
hana kunna að nýta. Það er nefni-'
lega svo að þekking gagnast ekki
öðrum en þeim er hana öðlast, ef
hann getur ekki komið henni frá
sér, hvort heldur er í orði eða verk-
um.
framhaldsnám. Það er hins vegar
sorglegt að sjá hversu margir snúa
ekki aftur. Mikil þekking tapast úr
landi á þennan hátt og er það mjög
miður. Vissulega eru ástæður þessa
margar, en ein þeirra er sú að þekk-
ing manna á þörfum íslensks þjóðfé-
lags helst ekki alltaf í hendur við
aðra þekkingu þeirra. Menn fara út
í framhaldsnám án þess að hafa
hugmynd um hvort það nýtist til
starfa hérlendis eður ei. Því er það
svo að þegar þessir menn ljúka námi
eru atvinnumöguleikar þeirra hér-
lendis litlir, eða engir, og þeir ílengj-
ast erlendis. Það er dýrt fyrir ís-
lensku þjóðina að missa alla þessa
„Með samstilltu átaki
stúdenta, Háskólans og
atvinnulífsins ber að
brjóta nýtt land til
ræktunar og sá í það
þeim vannýttu fræjum
er finnast innan veggja
Háskólans.“
SUÐURVERI • HRAUNBERGI 4
þekkingu úr landi og nauðsynlegt
að sporna við fótum bið allra fyrsta.
Það verður best gert með því að
tengja atvinnulífið beint við námið
og veita þannig stúdentum innsýn
í þróun þess, og möguleika þeirra
til að hafa áhrif á hana.
INNRITUN HAFIN
ALLA DAGA
í SÍMA 813730 OG 79988
Sífeílt JTeiri nýta sér bamapössunina vinsælu
frá kl 10-16 aíla daga