Morgunblaðið - 24.02.1993, Page 20
20
MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 24. FEBRÚAR 1993
Helmut Kohl Þýskalandskanslari í Asíuferð
Reuter
Sir Anthony Hopkins ásamt
eiginkonu sinni, Jenni.
Hopkins
sleginn til
riddara
Elísabet Bretadrottning sló
í gær Ieikarann Anthony Hopk-
ins til riddara. Hopkins hlaut
Óskarsverðlaunin í fyrra fyrir
leik sinn í hlutverki mannæt-
unnar dr. Hannibals Lecters í
myndinni „Lömbin þagna“.
Bretar ósam-
mála Clinton
Breska stjómin er ósammála
ásökunum Bills Clintons
Bandaríkjaforseta um að Evr-
ópuríki styrki framleiðslu Air-
bus-flugvéla með ósanngjöm-
um hætti. Kom þetta fram hjá
ónafngreindum breskum emb-
ættismanni í gær. John Major
forsætisráðherra Breta hittir
Clinton í Washington í dag og
er búist við að viðskiptadeilur
Bandaríkjamanna og Evrópu-
bandalagsins verði þar ofarlega
á baugi.
Barist í
Sómalíu
Bandarísku hersveitimar í
Sómalíu gáfu sómölskum
stríðsherra, Mohamed Said
Hersi, frest til miðnættis í gær
til að skipa skæruliðum sínum
að fara úr borginni Kismayu í
suðurhluta landsins. Fregnir
hermdu að skæruliðamir hefðu
náð hluta borgarinnar á sitt
vald eftir harða bardaga við
fylgismenn annars stríðsherra.
Að minnsta kosti ellefu manns
biðu bana og 21 særðist.
EB verður ekki
að lokuðu virki
Nýju Delhí. Reuter.
HELMUT Kohl, kanslari Þýskalands, er á ferð um nokkur Asíuriki
og sagði í Singapore í gær að Evrópa yrði áfram opinn markaður
fyrir framleiðsluvörur ríkja utan álfunnar. Ástæðulaust væri að ótt-
ast að Evrópubandalagið myndi þrengja að innflutningi. „Þýskaland
mun aldrei verða hluti af evrópsku viðskiptavirki," sagði kanslar-
inn. Kohl sagði í Nýju Delhí á Indlandi á mánudag að tiu aðildar-
ríki Evrópubandalagsins að minnsta kosti myndu áfram stefna að
nánara samstarfi og einingu jafnvel þótt Bretar eða Danir staðfestu
ekki Maastricht-samninginn innan sex mánaða. Breskir embættis-
menn segjast furða sig nokkuð á þessum ummælum kanslarans.
Á Indlandi lofaði Kohl mjög þær
markaðsumbætur, sem verið er að
vinna að í indverskum efnahagsmál-
um, en hann kvaðst ekki geta
ábyrgst auknar fjárfestingar Þjóð-
veija á Indlandi. Áðstoðin við Rúss-
land og fyrrverandi lýðveldi Sovét-
ríkjanna hefði allan forgang. „Ef illa
fer í Rússlandi munum við öll þurfa
að gjalda það dýru verði,“ sagði
Kohl.
„Evrópubandalagið mun vinna
áfram að einingu 10 aðildarríkja
þess,“ sagði Kohl á blaðamanna-
fundi undir lok fjögurra daga heim-
sóknar á Indlandi. „Ég vona og
treysti því, að öll ríkin muni stað-
festa Maastricht-samninginn innan
hálfs árs en það mun þó engu breyta
um áætlanir okkar gerist það ekki.“
Almennt er búist við, að danskir
kjósendur samþykki Maastricht-
samninginn í maí og þá með þeim
undanþágum, sem um hefur samist,
en hann kemur til kasta breska
þingsins í júní eða júlí.
Breskir embættismenn segjast
fremur undrandi á yfirlýsingu Kohls
og segja hana ekki vera í samræmi
við fyrri fullyrðingar hans um, að
hann vildi, að öll aðildarrikin fylgd-
ust að. Þá bentu þeir á, að Kohl
hefði áður fallist á, að breska þingið
tæki sér sinn tíma til að afgreiða
samninginn. Einn þeirra sagði að
Kohl vildi sennilega þrýsta á Dani
og.Breta um að staðfesta samning-
inn. Embættismaðurinn lagði
áherslu á að sambandið á milli Kohls
og Johns Majors, forsætisráðherra
Bretlands, væri mjög gott.
í réttstöðu
HELMUT Kohl kanslari kannar heiðursvörð ásamt Goh Chok Tongs, forsætisráðherra Singapore, í gær.
Verður neyðargögnum varpað úr flugvélum yfir Bosníu?
Vandasamt o g hættulegt
Fljúgandi burðarklár
BANDARÍSK Hercules-flugvél á Keflavíkurflugvelli. Þessar vélar eru víða í notkun
enda hafa þær mikla burðargetu og þeim nægja stuttar flugbrautir.
Sareyevo. Reuter.
ÁFORM Bandaríkjamannaumaðvarpaneyð-
argögnum úr flugvélum til múslima í austur-
hluta Bosníu gæti bæði stofnað lífi áhafna
flugvélannaogþiggjendaájörðuniðriíhættu,
að sögn starfsmanna Sameinuðu þjóðanna
(SÞ).
Fulltrúar SÞ sögðu að til þess að varpa
hjálpargögnum til jarðar af einhverri ná-
kvæmni yrðu flugvélamar að fljúga lágt og
þá yrðu þær auðveld bráð fyrir sveitir Serba
sem sitja um byggðir múslima í austurhluta
Bosníu.
Til þess að vera ekki í skotfæri við létt
vopn og loftvamavopn Serba yrðu flugvélarn-
ar að fljúga í meira en 1.500 metra (5.000
feta) hæð yfir jörðu. Væri neyðargögnunum
varpað út í þeirri flughæð væru líkurnar á því
að menn misstu marks verulegar. Við slíkar
aðstæður væm fólk og mannvirki í hættu því
oft væri allt að tonn af varningi á pöllum sem
varpað væri til jarðar. „Reynsla mín af loft-
flutningum af þessu tagi er sú að vandræðin
heflast þegar flugvélin er komin í 400 metra
hæð yfir jörðu," sagði Larry Hollingworth,
yflrmaður matvæladreifingar SÞ í Sarajevo.
Hann er fyrmm ofursti í þreska hernum.
Bandaríkjamenn vörpuðu matvælum til
Kúrda í fjallahémðum Norður-íraks og gekk
það erfiðlega þó aðgerðin yrði til að bjarga
lífi hundraða þúsunda manna. í fyrstu reynd-
ust fallhlífarnar of litlar og splundruðust vöru-
pallamir er þeir komu niður. Varð það til happs
að þeir lentu utan byggðar.
Áðstæður í Bosníu em mun erfiðari en í
írak. Þar vom engar loftvamir en talsmenn
Serba hafa sagt að flugvélamar verði ekki
látnar óáreittar þar sem hjálparflugið gæti
allt eins verið notað til að varpa niður vopnum
til múslima.
Serbar búa yfír loftvarnarskeytum og rat-
sjárstýrðum loftvamarbyssum. Brúki Banda-
ríkjamenn C-130 flutningaflugvélar, Herkúles,
sem eru tiltölulega hægfleygar myndu ormstu-
þotur frá flugmóðurskipum á Adríahafi að
öllum líkindum fylgja þeim til þess að veija
þær fyrir árás af jörðu eða úr lofti.
Reuter
Á útleið
GIUSEPPE Guarino, iðnaðarráð-
herra á Italíu, var rúinn miklum
hluta valda sinna um helgina
vegna meintrar fjármálaspilling-
ar. Búist er við afsögn hans á
næstu dögum.
* A
Ovissa á Italíu
Amato
heimtar
vinnufrið
Róm, Mílanó. Reuter.
GIULIANO Amato, forsætisráð-
herra Ítalíu, setti í gær þing-
mönnum stólinn fyrir dyrnar.
Annaðhvort lýstu þeir stuðningi
við samsteypustjórn sína eða
bentu á betri kost. Hann sagði
að stanslausar umræður um yfir-
vofandi fall sljórnarinnar hefðu
slæm áhrif á gengi lírunnar, sem
er undir miklu álagi, og gerðu
stjórnina lítt starfshæfa. Hún
hefur 16 atkvæða meirihluta á
þingi. Amato bauðst til að segja
af sér samstundis ef betri kostir
byðust. Að undanförnu hafa
nokkrir ráðherrar orðið að segja
af sér vegna tengsla við gríðar-
legt fjármálahneyksli sem liðs-
menn margra stjórnmálaflokka
eru flæktir í.
Tveir háttsettir starfsmenn ít-
alska fyrirtækisins Fiat voru h'and-
teknir á mánudag. Eru þeir grunað-
ir um aðild að spillingarhneyksli því
sem heltekið hefur Ítalíu að undan-
förnu. Handtaka mannanna, Franc-
esco Paolo Mattioli, fjármálastjóra
Fiat, og Antonio Mosconi, fram-
kvæmdastjóra tryggingadeildar
fyrirtækisins, er liður í rannsókn
yfirvalda í Mílanó á spillingu stjórn-
málamanna. Stjómmálamenn hafa
orðið uppvísir að því að þiggja
mútur frá stórfyrirtækjum og út-
vega verksamninga við ríkið í stað-
inn. Rannsóknin hefur tekið eitt ár
og hafa um hundrað manns verið
handteknir.
Ríkisstjórn Amatos hefur átt erf-
itt uppdráttar vegna spillingarmáls-
ins. Síðast á föstudag sögðu tveir
ráðherrar af sér vegna þess. Amato
brást skjótt við og skipaði nýja ráð-
herra um helgina. Einnig tók hann
einkavæðingarmálefnin úr ranni
Giuseppe Guarino iðnaðarráðherra
en búist er við að hann segi af sér
á næstu dögum.
-----» ♦ ♦--
Einvígi í
Manchester
Alþjóðaskáksambandið, FIDE,
tilkynnti í gær að heimsmeistara-
einvígið milli Garrí Kasparovs og
Nigels Shorts færi fram í borginni
Manchester í Englandi í haust.
Manchester býður 2,54 milljónir
svissneskra franka (110 milljónir
króna) í verðlaunafé. FIDE hafnaði
tilboðum frá Spáni og Jezdimir
Vasiljevic, eiganda Jugoskandic-
bankans, en hann skipulagði einvígi
Bobby Fischers og Borís Spasskíjs.