Morgunblaðið - 24.02.1993, Síða 27
MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 24. FEBRÚAR 1993
27
Jón Sigurðsson iðnaðar- og viðskiptaráðherra
Hlutafélög um ríkísbankana
Hlutabréfasala verður sérstök ákvörðun Alþingis
EINKAVÆÐINGARAFORM ríkisstj órnarinnar voru rædd í
tengslum við 1. umræðu um frumvarp Jóns Sigurðssonar við-
skiptaráðherra um breytingu á lögum um fjárfestingu erlendra
aðila I atvinnurekstri, nr. 34. frá 25 mars 1991. Viðskiptaráð-
herra greindi m.a. frá því að í undirbúningi væri frumvarp um
stofnun hlutafélaga um ríkisbankanna en frumvarpið gerði ráð
fyrir að ef til sölu hlutabréfa kæmi, þá myndi Alþingi taka
ákvörðun um það sérstaklega. Viðskiptaráðherra greindi einnig
frá því að til greina kæmi að stofna hlutafélag um Rafmagn-
sveitur ríkisins.
Frumvarp það sem viðskipta-
ráðherra mælti fyrir í gær er flutt
í þeim tilgangi að laga reglur um
Ú'árfestingu erlendra aðila í at-
vinnurekstri á ísland að ákvæð-
um samnings um Evrópskt efna-
hagssvæði, EES. Jafnframt eru
gerðar breytingar á lögunum í
átt til aukins fijálsræðis á þessu
sviði.
í framsöguræðu viðskiptaráð-
herra kom m.a. fram að í frum-
varpinu er áfram haldið núgild-
andi hömlum varðandi virkjunar-
réttindi vatnsfalla og jarðhita og
hlut í fyrirtækjum á sviði orku-
vinnslu og orkudreifíngu. En í
samræmi við ákvæði í viðauka
við samninginn um EES, væri
lagt til að frá og með 1. janúar
1996 nytu ríkisborgarar og lög-
aðilar frá hinum EES-ríkjunum
sama réttar til Ijárfestingar og
lögaðilar frá hinum EES-ríkjun-
um sama réttar til fjárfestingar
á þessu sviði og lögaðilar. En
viðskiptaráðherra benti á að í
rétti EES væri ekkert sem bann-
aði virkjunar- og veitufyrirtæki í
eigu ríkisins eins og nú tíðkaðist
hér á landi. Væru þessi fyrirtæki
hins vegar seld, mætti hins vegar
ekki mismuna á grundvelli þjóð-
emis þeim EES-borgurum sem
vildu kaupa hlut í fyrirtækjunum.
Viðskiptaráðherra sagðist telja
það mikilvægast að tryggja rík-
inu þau virkjunarréttindi vatns-
falla og rétti til auðlinda í jörðu
sem mestu máli skiptu. Við-
skiptaráðherra sagði að frumvörp
þar að lútandi hefðu verið samin
í iðnaðarráðuneytinu. Með því
væri tryggt að Alþingi og ríkis-
stjórn myndu hafa forræði um
nýtingu orkulindanna um alla
framtíð.
Það kom fram í ræðum stjórn-
arandstæðinga að þeir töldu litla
ástæðu til að hrófla við lögum
sem hefðu verið samþykkt með
stuðningi flestra þingmanna fyrir
tæplega tveimur árum og sú
reynsla sem væri komi af þessum
lögum væru um flest góð. Þeim
þótti sem að í þessu frumvarpi
ríkisstjórnarinnar væri „flest
opnað upp á gátt“ gagnvart fjár-
festingu erlendra aðila. Sýndist
Frumvarp til samkeppnislaga
Stjómarandstaðan
boðar hjásetu
SAMKOMULAG er um öll meginatriði í frumvarpi Jóns Sigurðs-
sonar viðskiptaráðherra til samkeppnislaga nema um 11. kaflann
sem tengist aðild íslands að evrópsku efnahagssvæði, EES. Ef
breytingartillaga um brottfall þessa kafla verður felld munu
stjórnarandstæðingar væntanlega sitja hjá við lokaatkvæða-
greiðslu.
Síðdegis í gær var til 3. um-
ræðu frumvarp viðskiptaráðherra
til samkeppninslaga. Samstaða
hefur verið milli stuðningsflokka
ríkisstjómarinnar og stjórnarand-
stöðunnar um efnisatriði frum-
varpsins önnur en 11. kafla lag-
anna. En hann varðar framkvæmd
samkeppnisreglna samkvæmt
samningum um Evrópska efna-
hagssvæðið, EES. Þar eru m.a.
ákvæði um samning EFTA-ríkja
um eftirlitsstofnun og dómsstól
að því er varðar samkeppnismál.
í umræðunum kvöddu stjórnar-
andstæðingar til þess að þessi
kafli laganna yrði felldur út en
frumvarpið afgreitt með góðri
Stuttar þing'ft’éttir:
Nægir ekki viðbótarbókun við
EES?
Steingrímur J. Sigfússon (Ab-
Ne) upplýsti í gær í umræðum um
fmmvarp um fjárfestingu erlendra
aðila í atvinnurekstri, að honum
hefði verið tjáð að samkvæmt upp-
lýsingum frá utanríkisráðuneytinu
væru menn þar á bæ búnir að
afskrifa þann möguleika að það
nægði að gera einhvers konar bók-
un eða viðauka við samninginn
um Evrópskt efnahagssvæði, EES,
vegna brotthlaups Sviss. Stein-
grímur sagði að nú væru menn á
þeirri skoðun að fara yrði í samn-
inginn sjálfan; strika út nafn Sviss
og breyta nafgiftum á stofnunum
o.s.frv. Honum var því næst að
halda að þá yrði líka að fara í
gegnum það frumvarp sem nú
væri til umræðu sem og fleiri fylgi-
frumvörp EES.
Freddi efnir til NBA-Pepsi keppni
Bandaríkja-
ferð í verðlaun
Leiktækjasalurinn Freddi flutti
nýlega úr Tryggvagötu í rúmgott
húsnæði í Hafnarstræti 18.
Af því tilefni hafa eigendur stað-
arins ákveðið í samvinnu við Pepsi
Cola að efna til keppni í mjög vin-
sælu körfuboltaspili. Verðlaun eru
ferð fyrir tvo á NBA körfuboltaleik
í Bandaríkjunum. Keppnin hefst 6.
mars og stendur í 4 vikur. Er skrán-
ing þegar hafin hjá Fredda.
Leiktækjasalurinn Freddi er elsti
starfandi leiktækjasalur landsins.
Boðið er upp á mikið úrval leikja í
40 leiktækjum. Nýir leikir koma
reglulega beint frá framleiðendum.
Opið er alla daga frá 10-23,30. Ald-
urstakmark er 14 ár.
samstöðu og þingeiningu að öðru
leyti. Stjómarandstæðingar
minntu á að eftirlitsstofnunin og
dómstóllinn væru m.a. þeirra at-
riða sem margir teldu einna helst
bijóta í bága við stjórnarskrána.
Það var skoðun stjórnarandstæð-
inga að afdrif og/eða gildistaka
EES væri í svo mikilli óvissu að
ekki væri ástæða til að samþykkja
lagagreinar sem stæðust ekki
raunveruleikann og hugsanlega
eða mjög líklega yrði að breyta
fljótlega.
Þar eð stjórnarliðið fellst ekki
á brottfall 11. kafla lögðu stjórnar-
andstæðingar fram breytingartil-
lögu þess efnis að 11. kafli verði
brottfelldur. í umræðum boðuðu
talsmenn allra þriggja flokkanna
að þeir myndu að þessari tillögu
samþykktri styðja frumvarpið en
að henni felldri myndu þeir sitja
hjá.
Hringamyndun könnuð
Við þessa 3. og síðustu umræðu
gerði einnig Vilhjálmur Egilsson
formaður efnahags- og viðskipta-
nefndar grein fyrir breytingartil-
lögu sem samstaða tókst um í
nefndinni. Tillagan gerir ráð fyrir
að samkeppnisráð skuli á árunum
1993 og 1994 gera úttekt á stjórn-
unar- og eignatengslum milli fyrir-
tækja er starfa á íslenskum mark-
aði. Þetta skal gert til að kanna
hvort í íslensku viðskiptalífi sé að
fínna alvarleg einkenni hringa-
myndunar eða valdasamþjöppunar
sem geti takmarkað eða hindrað
fijálsa þróun viðskipta.
Það tókst að Ijúka 3. umræðu
í gær en lokaatkvæðagreiðslu um
frumvarpið og breytingartillögu
var frestað til næsta fundar sem
hefst kl. 13.30 í dag.
þeim það stórháskalegt efna-
hagslegum yfírráðum íslendinga
í eigin landi. Og það sérstaklega
þegar þetta væri saman við
einkavæðingaráform stjórnar-
flokkanna. Var mjög leitað eftir
svörum og skýringum viðskipta-
ráðherra um þessi áform sérstak-
lega varðandi ríkisbanka og orku-
fyrirtæki.
Opinber forráð í hlutafélögum
Viðskiptaráðherra ítrekaði að
ekkert í EES-samningnum bann-
aði opinbert forræði á orku- og
orkudreifingarfyrirtækjum. Þar
væri ekkert sem hindraði að Al-
þingi gæti haft áfram það skipu-
lag sem hefði verið; að fyrirtækin
yrðu í eigu ríkis og sveitarfélaga.
Viðskiptaráðherra sagði að í
þessum umræðum hefði því verið
slegið fram sem staðreynd að rík-
isstjómin stefndi að þvi að einka-
væða orkufyrirtækin og bank-
anna. „Það er alls ekki svo að
það sé t.d. hvað orkufyrirtækin
varðar einhver ákvörðun tekin
um það að ríkið ætli að losa sig
við sinn hlut í orkuvinnslu eða
dreifíngu," sagði viðskiptaráð-
herra. En hins vegar greindi ráð-
herrann frá því að hins vegar
væru uppi áform um að breyta
rekstrarformi Rafmagnsveitna
ríkisins, að leita að þeirri skipu-
lagslausn sem best svaraði þörf-
um og kalli tímans og þeirra sem
þjónustunnar ættu að njóta. Við-
skiptaráðherra sagði að meðal
þess sem kæmi til greina væri
„hlutafélagsstofnun um Raf-
magnsveitur ríkisins, um önnur
orkufyrirtæki. En ég tel að á
þessu stigi ekki hafa verið til
umræðu að selja úr opinberri eigu
hluti í þeim fyrirtækjum. Það er
að sjálfsögðu mál sem Alþingi
getur hvenær sem er tekið
ákvörðun um. En tillögur um það
eru ekki á döfínni." Ráðherra
sagði það ekki hafa verið í undir-
búningi að breyta Landsvirkjun
í hlutafélag en væri það gert,
væri það á valdi Alþingis að búa
svo um hnúta að það fyrirtæki
yrði í eigu opniberra aðila ef það
væri niðurstaða þingsins.
Alþingi ræður bankasölu
Jón Sigurðsson sagði rétt að
mikið væri um það rætt að fínna
bönkunum hið besta skipulags-
form, m.a. hvort það væri ekki
skynsamlegt að rekstur allra fyr-
irtækja á þessu sviði liti sömu
reglum, lögum og starfsskilyrð-
um. Það mátti leiða að því líkur
að viðskiptaráðherra taldi hluta-
félagsformið um margt vænlegt
í þessu tilliti. Síðar í umræðunni
sagði viðskiptaráðherra að í und-
irbúningi væri frumvarp um
stofnun hlutafélaga um ríkis-
bankanna. „Ákvörðun um sölu á
hlutum í þessum félögum er sam-
kvæmt þeim hugmyndum alveg
sjálfstæð ákvörðun.“ Ákvörðun
sem krefðist atbeina Alþingis
sérstaklega en væri ekki fólgin í
samþykkt frumvarpsins.
MMM3
Úr kvikmyndinni „1492: Conquest of Paradise“.
Sagabíó sýnir
mynd um Columbus
SAGABÍÓ hefur hafið sýningar
á myndinni „1492: Conquest of
Paradise". Framleiðendur eru
Alain Goldman, Mimi Polk Sot-
ela og Iain Smith. Leikstjóri er
Ridley Scott og aðalhlutverk
íslenskur foringi í heim-
sókn hjá Hjálpræðishemum
OFURSTI Guðfinna Jóhannesdóttir, íslenskur Hjálpræðishersfor-
ingi ættaður úr Hafnarfirðinum, er stödd hér á landi um þessar
mundir í boði Hjálpræðishersins og mun tala á samkomum í Her-
kastalanum dagana 24.-28. febrúar og jafnframt verða Biblíulestr-
ar um helgina. Samkomur verða á hverju kvöldi nema á laugardag-
inn, en þá verða tveir Biblíulestrar eftir hádegi.
Morgunblaðið/Kristinn
Æft fyrir keppnina
Margir hafa skráð sig nú þegar
í NBA-Pepsi keppnina hjá
Fredda.
Ofursti Guðrún Jóhannesdóttir
hefur fyrr gegnt mörgum störfum
innan Hjálpræðishersins hér á
landi, bæði sem flokksforingi og
æskulýðsritari deildarinnar og
jafnframt verið leiðtogi Hjálpræð-
ishersins á íslandi og í Færeyjum.
í Noregi hefur hún einnig starfað
í mörg ár í flokknum (söfnuðum)
við aðalstöðvarnar, á Herskólan-
um og sem deildarstjóri. Hún er
eini íslenski foringinn sem hefur
orðið ofursti.
Hún er nú komin á eftirlaun,
en starfar við leitunarstöð Hjálp-
ræðishersins sem aðstoðar fólk við
að fínna týnda ættingja og vini.
(Úr fréttatilkynningu.)
eru í höndum Gérard Dep-
ardieu, Sigourney Weaver, Ar-
mand Assante og Angela Mo-
lina. 1
Sérhvert barn hefur heyrt sög-
una af því hvernig Kristófer Kól-
umbus lagði úr höfn á Spáni í
ágústmánuði 1492. Hann ætlaði
sér að fara í austurveg en fann í
staðinn hinn nýja heim, óspjallað-
an og ósnertan eins og Eden,
Ameríku. Isabella drottning og
Ferdinand konungur héldu honum
mikla veislu þegar hann snéri til
baka og lofuðu hann sem hetju
en það er mikið af sögunni sem
látið hefur verið ósagt.
En bak við goðsögnina um*
sæfarann er maður sem á voru
kostir og gallar. Jafnvel þótt för
hans hafí endað með sigri, kostaði
hún hann auðmýkingu, ofbeldi og
aðra hræðilega hluti.
Hvort sem hann var hetja eða
þijótur var hann sá fyrsti til að
sýna fram á leið milli Evrópu og.
Ámeríku og með því setti hann í
gang atburði sem hafa markað
djúp spor í veraldarsöguna.