Morgunblaðið - 24.02.1993, Qupperneq 31
MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 24. FEBRÚAR 1993
31
Laufey Guðmunds-
dóttír — Minning
Fædd 14. júlí 1904
Dáinn 7. febrúar 1993
Laufey tengdamamma er dáin.
Hún dó í hárri elli, samt var hún svo
ung. Svo ung í anda og létt í spori,
að erfitt var að ímynda sér að hún
ætti stutt eftir. Okkur tengdadætur
hennar langar með fáeinum orðum
að minnast hennar.
Laufey fæddist 14. júlí 1904 á
Stokkseyri. Hún var eitt af tíu böm-
um Guðmundar Sæmundssonar,
kennara frá Hróarsholti í Flóa, og
eiginkonu hans, Eyrúnar Eiríksdótt-
ur frá Fellskoti í Biskupstungum.
Tvær systur á hún enn á lífi, Eyrúnu
og Lilju, og eru þær báðar eldri en
hún.
Laufey ólst upp í foreldrahúsum
á Stokkseyri, en réðist á unga aldri
í vist til Reykjavíkur, þar sem áfram-
haldandi skólaganga átti að fara
fram. Örlögin réðu því að úr því
varð ekki. Harmaði hún það alla tíð.
Hinn 11. júní 1932 giftist Laufey
Einari Óskari Þórðarsyni húsgagna-
smiði frá Suðureyri við Súganda-
flörð, sem látinn er og eignuðust þau
tvö böm, Þóri og Sigríði Ernu. Einn
son átti hún fyrir, Þorstein Hörð
Björnsson, sem Óskar gekk í föður
stað. Hún átti því láni að fagna að
sjá fjölskylduna sína dafna og
stækka og eru beinir afkomendur
hennar orðnir Qörutíu talsins. Lauf-
ey og Óskar bjuggu mestan hluta
búskapar síns á Leifsgötu 23. Þar
stóð heimili þeirra ætíð opið fyrir
ættingjum og vinum og þar var oft
glatt á hjalla. Ekki ósjaldan dvöld-
ust hjá þeim skyldmenni Óskars að
vestan til lengri eða skemmri dvalar.
Laufey og Óskar byggðu sér
seinna meir einbýlishús á einum fal-
legasta stað í bænum, Vesturbrún
10. Þar eignaðist Laufey langþráðan
garð sem hún sinnti af alúð og kost-
gæfni eins og reyndar öllu öðru sem
hún tók sér fyrir hendur. Mætti í
því sambandi nefna saumaskapinn,
því í þá daga var ekki hægt að
hlaupa út í búð til að kaupa, heldur
var það útsjónarsemin og myndar-
skapurinn sem réð því hvernig fólk
gekk til fara.
Síðustu ár ævi sinnar bjó Laufey
á Dalbraut 20. Þaðan var stutt í
laugarnar og stutt að fara að heim-
sækja Hadda og hans stóm fjöl-
skyldu. Þar var ætíð líf og fjör og
þar var hennar yndi.
Minning
Helga Sigurðardóttir
Fædd 7. nóvember 1911
Dáin 5. febrúar 1993
Helga Sigurðardóttir var jarð-
sungin frá Þjóðkirkjunni í Hafnar-
fírði hinn 19. febrúar síðastliðinn.
Helga fæddist í Hafnarfirði og var
dóttir Sigurðar Ólafssonar kennara
og Steinunnar Ólafsdóttur húsmóð-
ur. Hún var ein af sjö systkinum og
sleit barnsskónum í Hafnarfirði. Eft-
ir barnaskólagöngu hóf hún störf
sem vinnukona, en vann seinna við
ýmis störf, ejns og t.d. síldarsöltun
á Siglufirði. Á þeim tíma sem síldar-
ævintýrið blómstraði, fóru sögur af
því hversu fljót hún var að salta og
fylla tunnur.
Á þessum árum kynntist hún Njáli
Þórðarsyni, sem þá var nemi í Stýri-
mannaskólanum í Reykjavík. Síðar
giftust þau og stofnuðu heimili á
Akranesi, þar sem afí varð skip-
stjóri. Þau eignuðust fímm börn, sem
öll em á lífi. Þau eru Sigurbjörg,
sjúkraliði, búsett í Hafnarfirði, tví-
burarnir Sigurður Njáll, eftirlitsmað-
ur, og Sigurður Ellert, skipstjóri,
búsettir í Hafnarfirði, Steinunn, hús-
móðir, búsett í Reykjavík, og Elín,
bankastarfsmaður, búsett á Skaga-
strönd. Helga og Njáll bjuggu mynd-
arbúi, hlúðu vel að börnum sínum
og lagði amma sig alla fram við
uppeldið meðan afi var á sjó.
Árin liðu en vegna heilsubrests
neyddist afí til að hæætta sjósókn
og fluttust þau amma þá til Reykja-
víkur. Afi hóf störf hjá Fiskmati rík-
isins, amma vann hjá efnalaug hér
í borg, en réðst síðan til starfa í
þvottahúsinu á Loftleiðahótelinu. Afí
skildi vel þörf hennar fýrir því að
vera úti á vinnumarkaðnum, enda
var sambúð þeirra alveg einstaklega
góð. Hún undi hag sínum vel, því
að amma var mjög félagslynd kona
og hafði þörf fyrir að vera innan
um fólk. Hversu samtaka þau hjón
voru kom vel fram í utanlandsferð-
um þeirra í áraraðir.
Alltaf var gaman að koma og
hlusta á ferðasögur þeirra frá þeim
löndum sem þau höfðu ferðast til.
Heimili afa og ömmu var ávallt opið
fyrir okkur barnabörnunum og alltaf
var jafn notalegt að heimsækja.
Amma hafði sérstaka hæfileika til
að hlusta og einstakt lag á að fá
fólk til að trúa sér fyrir hlutum sem
það sagði ekki öðrum.
Um leið og ég kveð ömmu mína
Minning
Jóhanna Benedikts-
dóttir Eyri í Mjóafírði
Fædd 22. ágúst 1892
Dáin 16. febrúar 1993
í dag er jarðsungin frá Mjóafjarð-
arkirkju Jóhanna Benediktsdóttir frá
Borgareyri, húsfreyja á Eyri á sömu
lóð.
Hundrað ára afmælis Jóhönnu var
minnst hér í blaðinu 23. október sl.
Hér verða aðeins rifjuð upp örfá
atriði. Foreldrar hennar voru hjónin
Benedikt Sveinsson útvegsbóndi á
Borgareyri og María Hjálmarsdóttir
frá Brekku. Jóhanna var næst yngst
þrettán systkina sem öll komust til
þroska. Hún átti heima á Mjóafirði
alla ævi að undanskildu einu ári er
hún dvaldi norður í Eyjafirði við störf
og nám. Þar kynntist hún eigin-
manni sínum, Jóhanni Stefánssyni
frá Brattavöllum. Þau gengu i hjóna-
band 1915, byggðu sér hús á Eyri
1920 og sóttu bjargræði til lands
og sjávar að hætti sveitunganna.
Jóhanna lést 16. maí 1973. Einka-
sonur þeirra, Davíð, var fæddur 20.
október 1920, dáinn 3. mars 1936.
Einkadóttirin Ólöf fæddist 2. febrúar
1928 og býr á Eyri ásamt manni
sínum, Agli Stefánssyni.
Jóhanna Benediktsdóttir var
heilsuhraust alla ævi og liðu svo
hundrað árin að hún leitaði aldrei á
læknisfund svo vitað sé. Nokkrum
mánuðum eftir aldarafmælið, við
vetrarsólhvörfín, varð hún fyrir lítils
háttar óhappi og var flutt á sjúkra-
hús í Neskaupstað. Meiðsl hennar
greru en hún dvaldi á sjúkrahúsinu
enn um sinn. Að kvöldi 15. febrúar
lagðist hún til svefns á venjulegum
tíma, hafði raunar kennt lasleika
síðustu daga. Og þá var langt og
farsælt æviskeið á enda runnið.
Kallið kom næsta dag.
Við fráfall Jóhönnu Benedikts-
dóttur kveðja Mjófirðingar mæta
konu sem átt hefur samleið með
Laufey var heilsteypt manneskja,
föst fyrir og með ákveðnar skoðanir
á hlutunum. Henni varð ekki haggað
þegar því var að skipta. En hún var
réttsýn og vildi hag sinna nánustu
sem allra bestan.
Að' leiðarlokum viljum við þakka
henni allt sem hún var okkur og
bömunum okkar og óskum henni
velfarnaðar á ókunnum stigum.
Sérstakar þakkir viljum við færa
Bergmanni, húsverði á Dalbraut 20,
fyrir margvíslega aðstoð við hana
og skjót viðbrögð þegar til tíðinda
dró. Tengdadætur.
vil ég þakka henni allar góðu stund-
irnar sem við áttum saman og allt
sem hún kenndi mér. Núna veit ég
að ömmu líður vel og hefur fundið
sólskinsstundimar sínar aftur.
Sökkvi ég mér og sé ég
í sálu þér
og lifi þínu lífi.
Andartak sérhvert,
sem ann þér guð,
finn ég í heitu hjarta.
(Jónas Hallgrímsson)
Sigurður Gíslason.
þeim svo lengi sem þeir hafa dvalið
í byggðarlaginu. Hún var heimakær
í hæsta máta en á heimili þeirra
Jóhanns mættum við öll hlýju og
glaðværð sem gott er að minnast
þegar leiðir skilja. Við Margrét send-
um Ólöfu og öðrum afkomendum
og ástvinum Jóhönnu á Eyri alúðar
kveðjur og biðjum þeim góðs.
Vilhjálinur á Brekku.
Stígvélin
sem
slegið
hafa
í gegn!
Le Chameau stígvelin eru...
• Fóðruð með Neoprene eíni
• Mjóghlýogþœgileg
• Meðflótumgúmmíbotni |
ogþvímjögstöm.
• Handunnin
■ Framleidd í Bottes Le
ChameauíFiakklandi.
Söluaðilar: Veiðarfœraverslanir, netaverkstœði. Umboðsaðili: ÍSDAN HF., s.91- 65 39 50
Word • Excel
Windows
Námskeið fyrir þá sem vilja nýta sér til hlýtar
þennan öfluga húgbúnað. Kenndar eru allar helstu
skipanir og leyst ýmis hagnýt verkefni. Námskeiðið
er alls 60 stundir að lengd og kennt er á kvöldin.
Vönduð handbókfráAldamótumfylgirmeð.
Nánari upplýsingar:
Tölvuskóli íslands
Höfðabakka 9 • Sími 67 14 66
• opið til kl. 22 •
1. þjóðntinjaþing
26. og 27. febrúar 1993
Þjóðminjasafn íslands efnir til 1. þjóðminjaþings
í safnhúsinu föstudag 26. og laugardag 27. febrúar
næstkomandi.
Dagskrá þingsins er sem hér segir:
Föstudagur 26. febrúar
Setningarathöfn.
Kl. 10.00 íslensk sönglög.
Ingibjörg Guðjónsdóttir syngur við undirleik
Jónasar Ingimundarsonar.
Kl. 10.15 Ólafur G. Einarsson, menntamálaráðherra:
Ávarp.
Kl. 10.30 Guðmundur Magnússon, þjóðminjavörður:
Þjóðminjasafn Islands á vegamótum.
Kl. 11.00 Samkeppni um merki fyrir Þjóðminjasafnið.
Björn Björnsson, formaður dómnefndar:
Afhent viðurkenning.
Kl. 11.15 Minjar og saga, Vinafélag Þjóðrninjasafns:
Afhent gjöf til Þjóðminjasafns íslands.
Hlé
Kl. 13.30 Sveinbjörn Rafnsson, prófessor:
Minjavernd á íslandi og alþjóðleg viðhorf.
Kl. 14.00 Umræður.
Kl. 15.00 Sigríður Sigurðardóttir, safnstjóri:
Byggðasöfnin - framtíðarsýn.
Kl. 15.20 Umræður.
Laugardagur 27. febrúar
Kl. 10.00 Ögmundur Skarphéðinsson, arkitekt:
Byggingarlist samtfmans: Hvað á að
vernda?
Kl. 10.30 Umræður.
Hlé
Kl. 13.30 Margrét Hermanns-Auðardóttir,
fornleifafræðingur:
Fornleifafræðin hornreka meðal
fræðigreina?
Kl. 14.00 Umræður.
Kl. 15.00 Af vettvangi minjavörslunnar.
Þóra Kristjánsdóttir, listfræðingur:
Altaristafla frá Stóra-Ási í Borgarfirði.
Hrefna Róbertsdóttir, sagnfræðinugr:
Elsta timburhús á íslandi?
Kl. 16.15 Guðmundur Magnússon, þjóðminjavörður:
Teknir saman þræðir.
Þingslit
Þátttaka er öllum heimil! Þátttökugjald er ekkert.
Þingdagana verður í Bogasal sýning á tillögum, sem
bárust í samkeppni um merki fyrir Þjóðminjasafn ís-
lands.
Þjóðminjavörður.