Morgunblaðið - 24.02.1993, Qupperneq 41
MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 24. FEBRÚAR 1993
Kristur er upprisinn
Frá Konráð Friðfínnssyni:
íslendingar eru kristin þjóð. Flest
böm þeirra em, sem betur fer,
skírð, fermd o.s.frv. En sannleikur-
inn er að sumir foreldrar skíra
hvorki né ferma böm sín og er slíkt
dapurlegt um að hugsa, svo mikil-
væg sem bamaskírnin annars er.
Fólk giftist þó ennþá, sumt hvert,
í það minnsta. Margir kjósa þó að
lifa í synd. Eins og t.d. sambúðar-
fólk gerir, samkvæmt skilgreiningu
heilagrar ritningar. Mættu kirkj-
unnar þjónar fyrir þær sakir vera
iðnari við að fræða fólk um hvað
Drottinn segir um hjúskapinn. „Að
sérhver yðar láti sér lærast að lifa
hjúskaparlífi við konu sína eina, í
heilagleika og heiðri, en ekki í
gimdarbruna, eins og heiðingjamir,
er ekki þeklq'a Guð.“ (Þesal: 4.4,5).
Nóg um það.
Hápunktur kristinnar trúar er
vitaskuld sá einstæði og stórfeng-
legi atburður sögunnar er Jesús
Kristur sigraði dauðann í eitt skipti
fyrir öll og reis upp til eilífs lífs og
bauð öllum, er þiggja vildu, hlut-
deild með sér í þeim gæðum. Líkt
og hann segir sjálfur
„Faðir, eg vil, að það sem þú
gafst mér, — að einnig þeir séu hjá
mér þar sem ég er, til þess að þeir
sjái dýrð mína sem þú hefir gefið
mér, því að þú hefir elskað mig
áður en heimurinn var grandvallað-
ur.“ (Jóh: 17.24.)
En staðreyndin er að mörgum
manninum hefur reynst það erfítt,
að ekki sé meira sagt, að trúa þessu,
gegnum tíðina. Þeir skilja m.ö.o.
ekki hvemig upprisa holdsins geti
átt sér stað. Vitandi sem er að allt
hold hverfur af beinunum fljótlega
eftir að maðurinn hefur verið jarð-
aður. Læknavísindin gefa heldur
ekki efasemdarfólkinu nein bita-
stæð svör varðandi þessa spum-
ingu, sem þó brennur á vöram fjöl-
margra. Þessir trúlausu einstakl-
ingar segja að við andlát mannsins
sé einfaldlega allt búið hjá honum
og láta þar við sitja. Rök í málinu
komast fráleitt að hjá þeim. Verkn-
aðurinn stríðir enda við heilbrigða
skynsemi oig rökrétta hugsun, að
þeirra áliti.
Áttum okkur samt á einu að Guð
spyr okkur ekki hvað við teljum
heilbrigða skynsemi, rökrétta hugs-
un og þar fram eftir götunum. Og
hann biður okkur ekki heldur endi-
lega um.það að skilja hvernig svona
nokkuð fær staðist. Hann veit
mætavel að slíkur skilningur er
manninum hvort eð er ofviða. Vit
mannsins og þekking hans á eigin
spýtur er enda hégómi í augum
Drottins. Og á einum stað Biblíunn-
ar segir almættið eitthvað á þessa
leið:
„Ég mun eyða speki spekinganna
og hyggindum hyggindamannanna
mun ég að engu gjöra.“
Það sem Guð biður okkur hins
vegar um alla daga, allar nætur,
sérhverja stund okkar auma lífs,
Hvað er heildrænt nudd
og dulskynjunamudd?
Frá Þorbimi Ásgeirssyni:
Eini skólinn sem kennir heild-
rænt nudd er Nuddskóli Rafns Geir-
dals. Þar var ég nemi á áranum
1989-1991 í kvöld- og helgarskóla,
sem taldi um tólf hundruð tíma, en
í klínik og nuddi varð ég að skila
átján hundruð tímum til að teljast
sveinn. Ég lærði í þessum skóla
heildrænt nudd, slökunarnudd,
punktanudd og aðrar greinar í
nuddi.
Að mínu mati fékk ég góða
kennslu undir handleiðslu 9 kenn-
ara, þar af vora 3 læknar. Einnig
gekk ég í fjölbrautaskóla og tók
þar bóklegu fögin. Þegar ég hafði
fengið sveinsréttindin gekk ég í
Félag íslenskra nuddara.
Allir sem vilja tileinka sér nudd
þurfa að leggja allan hug sinn og
hjarta í starfið svo að kærleikurinn
nái að streyma til nuddþegans, eins
og hæfileikar nuddarans geta gefíð
honum. Nuddárangurinn mun alltaf
tengjast hugsuninni, næmni, trausti
og samandi beggja aðila til hvors
annars. Ef nuddarinn er með hug-
ann annars staðar en við starfíð
minnkar orkan frá honum og batinn
er ekki eins í sjónmáli. Aðeins með
því að hugsa með góðum huga til
nuddþega getur kærleiki, sem hefur
lifandi kraft, hjálpað með ómældum
árangri.
Til að geta náð því að vera heild-
rænn nuddari verður sá hinn sami
að trúa því, að líforkan berist á
milli lífvera og eigi þann kraft, sem
þarf til að hjálpa nuddþeganum.
Allir heildrænir nuddarar vita um
þessa orku og margir nuddþegar
finna fyrir henni og það veitir þeim
meiri unað og flýtir fyrir bata.
Það þurfa allir nuddarar að vita
að orka, sem kemur frá höndunum,
er lífsneisti sem flyst yfír til nudd-
þegans og skynjarar hans taka á
móti. í sumum tilfellum fer þessi
orka að hafa verulega bætandi áhrif
á sálarlíf nuddþegans. Þá hefur
nuddarinn náð svo góðum tökum á
starfi sínu, að hann hefur náð heild-
rænu nuddi sem er ræktun á með-
vitund hans.
Nudd er heilbrigðisgrein sem
vinnur á velferðarsjúkdómum,
streitu og líkamlegum afleiðingum
hennar og gefur manninum andlega
næringu.
Þegar nuddari nær sambandi við
lífræna orkustrauma og sálræna
eiginleika mannsins verður nuddið
að andlegri listgrein. Þá upplifír
nuddþeginn djúpa slökun, hug-
leiðsluástand og mikið orkustreymi.
Nuddarinn upplifír hugleiðslu-
ástand, orkustreymi í gegnum hann
ásamt tilfínningatengslum við
nuddþega. Það nefnist heildrænt
nuddþega.
Djúpskynjunarnudd er af sama
meiði en er í raun dýpra nudd, opn-
ar tilfínningalíf nuddþegans meira.
En ekkert slíkt getur gerst nema
með vilja og vitund nuddþega.
ÞORBJÖRN ÁSGEIRSSON,
Skeifunni 7, Reykjavík.
VELVAKANDI
GOÐ RÆÐA
Mig langaði að þakka sr.
Þóri Haukssyni fyrir sérstak-
lega góða ræðu sem útvarpað
var frá Árbæjarkirkju sl.
sunnudag. Kirkja sem hefur
svo góðan prest hlýtur að
vera vel á vegi stödd.
Laufey
TAPAÐ/
FUNDIÐ
Frakki tapað
Ljós, þunnur rykfrakki tap-
aðist á þorrablóti Þingeyinga í
Sóknarsalnum, Skipholti 50, sl.
laugardagskvöld. Finnandi vin-
samlega skili honum til hús-
varðar í Sóknarsalnum.
41
er að trúa með hjartanu og efast
ekki. Ekki einvörðungu í þessu
máli, er hér hefur verið tíundað,
heldur og í öllum öðram málum er
hann hefur opinberað fólkinu með
orði sínu í Biblíunni og sem allir
geta kynnt sér er það vilja. vegna
þess að upprisa holdsins mun ger-
ast á sínum fyrirfram ákveðna degi,
er enginn mannlegur máttur fær
breytt. En um þá stund og þann
tíma getur enginn maður vitað.
Aðeins Guð einn veit hann. Og vilj-
urðu heiðra skapara þinn skaltu
endilega trúa orðum hans sem eru
sannleikur og muna að þakka hon-
um einum alla hluti, því þú getur
ekki vanheiðrað hann meira enn að
trúa ekki því er hann segir.
Páll, sá stórmikli postuli og sam-
tíðarmaður Krists, kannaðist mæta-
vel við hina neikvæðu afstöðu
manna til upprisunnar. Þannig má
sjá að sá ágreiningur er spunnist
hefur um ofanritað efni er ekki nýr
af nálinni. Nei, aldeilis ekki, hann
hefur fylgt manninum frá alda öðli.
KONRÁÐ FRIÐFINNSSON,
Þórhólsgötu la, Neskaupstað.
EGLA
-röð ogregla
Margir litir margar stærðir.
Þessi vinsælu bréfabindi fást í öllum
helstu bókaverslunum landsins.
Múlalundur
Vinnustofa SÍBS
Símar: 628450 688420 688459
Fax 28819
vemti0
Pennavinir
Sautján ára þýsk stúlka sem
ferðaðist um ísland síðastliðið sum-
ar og heillaðist af landi og þjóð vill
eignast íslenskar pennavinkonur.
Áhugamáiin era útivist og ferðalög:
Christina Böhner,
Danziger Strasse 6,
D-6054 Rodgau 6,
Germany.
Nítján ára ítölsk stúlka með
áhuga á tónlist, tungumálum,
ferðalögum, bréfaskriftum, safnar
póstkortum:
Giovanna Petroni,
Via G. Da. Ravenna 22,
1-84100,
Salerno,
Italia.
Frá Hollandi skrifar símkorta-
safnari sem getur ekki um aldur
en vill komast í samband við ís-
lenska símkrotasafnara:
Gert Veenman,
de Zeeg 60,
NL-299I EK Barendrecht,
Holland.
Frá Ghana skrifar 27 ára stúlka
með áhuga á ferðalögum, tóniist
og kynnast menningu annarra
þjóða:
Veronica Turkson,
P.O. Box 46,
Cape Coast,
Ghana.
Tékknesk 25 ára stúlka með
margvísleg áhugamál:
Henriet Kisantalova,
TSK 9/16,
979 01 RIM,
Sobota,
Czechoslovakia.
Ferðahfiómlæld í
fermiitsarfaf
Ferðasamstæöan frá Goldstar er hlaðin
tækninýjungunum úr stóru stæðunum.
Hvort sem þú ert í próflestri eða partíi... eða kannski í urrandi útilegu, þá er
ferðasamstaeðan þinn félagi sem bregst ekki og heldur uppi dúndrandi stuði.
CD-340L er meö 25W masnara, „Ultra Bass Booster"
-bassahljómi, hljómstilli, FM/MW/LW-útvarpi, seislaspilara með
endurspilun, sýnishomaspilun, handahófsspilun, 32 lasa
minni, kassettutaeki, hljóðnema, heyrnartólstensi o.m.fl.
Vcrð aðeins 19.800,- kr. eða
Þetta er ferðasamstœðan!
Greióslukjör vi& allra haefi:
Umboðsmenn
um alit land!
SKIPHOLT119
SIMI 29800
BOSCH
TILBOÐ, SEM ÞÚ
GETUR EKKI HAFNAÐ!
BOSCH
ÍSSKÁPAR
M. FRYSTI
KGV 2601
150 cm.
KGV 3101
170 cm.
KGV 3601
185 cm.
Tilboðsverð
stgr.
54.012
56.794
59.576
Sfðast seldist allt saman upp!
Hvað gerist nú?
Jóhann Olafsson & Co
SUNDABORÍi M • 104 HKYKJAVlK • slMl 6KHSRH
Opnunartími mánudaga til föstudaga 9-12 og 13-18.
Lokað á laugardögum.