Morgunblaðið - 24.02.1993, Qupperneq 42
42
BORÐTENNIS
MORGUNBLAÐIÐ IÞROTTIR MIÐVIKUDAGUR 24. FEBRÚAR 1993
rwi_K
■ ÞÓRDÍS Gísladóttir hástök-
kvari náði lágmarki fyrir heims-
meistaramótið í fijálsíþróttum ut-
anhúss, sem fram fer i Stuttgart í
sumar, með því að stökkva 1,87 m
í Svíþjóð um helgina.
■ LEYFILEGT er að senda þijá
menn sem ná svokölluðu A-lág-
marki, en það er 1,92 m og einn sem
nær_B-lágmarki. Það er 1,86 m.
■ ÍSLENSKU göngumennirnir á
HM í Falun færðust fram um eitt
sæti í 10 km göngunni vegna þess
að einn keppandi var dæmdur úr
leik vegna þess að hann notaði of
stóra augjýsingu.
■ DANÍEL Jakobsson hafnaði því
í 85. sæti í stað 86. sæti, Sigurgeir
Svavars í 91. sæti og Haukur Ei-
ríksson í 101. sæti af 112 keppend-
ura._
■ ÍTALSKA stórliðið Juventus
hefur augastað á franska landsliðs-
manninum Franck Sauzee, sem
leikur með Marseille, og einnig
króatíska framheijanum Alen
Boksic, sem leikur með liðinu, ef
marka má fréttir blaða í útlandinu.
U MARTINA Navratilova sigraði
hina 19 ára Monicu Seles, sem er
efst á heimsafrekalistanum í tennis,
á Opna kvennameistaramóti París-
ar um helgina.
■ SELES hafði sigrað í 34 leikjum
í röð, en Navratilova, sem er 36
ára, sagði að tími væri kominn til
að snúa blaðinu við. „Ef til vill var
ég heppin, en hún hafði unnið mig
þrisvar í röð og tími kominn til að
breyta til.“ Stöllumar hafa mæst
17 sinnum og var þetta 7. sigur
Navratilovu.
■ NAVRATILOVA var yfir sig
ánægð. „Það er gaman að sigra þá
bestu. Mér er sagt að ég sé sú elsta,
sem sigrar efstu stúlkuna á afreka-
listanum. Billie Jean King var
yngri, þegar hún vann mig 1980.“
Bikarbros KR-inga
Morgunblaðið/Jón Svavarsson
Sigursveit KR í bikarkeppni Borðtennissambandsins; frá vinstri: Tómas Guðjónsson, Jóhannes Hauksson, Elin Eva Gríms-
dóttir og Peter Nilsson með sigurbros á vör eftir sigurinn á Víkingum á mánudagskvöld.
KR-ingar bikarmeistarar
Lið KR varð bikarmeistari í borð-
tennis 1993; sigraði Víking í
úrslitaleik, 4:3, a mánudagskvöldið
í hörkuspennandi og jöfnum leik.
Staðan var 3:3 fyrir síðasta leik,
þannig að þar var um hreinan úr-
slitaleik að ræða. Svíinn Peter Nils-
son, þjálfari og leikmaður með KR,
tryggði félaginu sigur með því að
leggja Kristján Jónasson í síðasta
einliðaleiknum.
Annars urðu úrslit sem hér segir
(KR-ingar taldir á undan þar sem
þeir voru á heimavelli): Tómas Guð-
jónsson tapaði fyrir Kristjáni Jórias-
syni 21:17, 13:21 og 17:21. Peter
Nilsson sigraði svo Kristján Viðar
Haraldsson 21:9, 21:15 og Elín Eva
Grímsdóttir tapaði fyrir Aðalbjþrgu
Björgyinsdóttur 18:21, 16:21. í tví-
liðaleik höfðu svo Peter Nilsson og
Jóhannes Hauksson betur gegn
Kristjáni Jónassyni og Kristjáni
Viðari Haraldssyni 21:14, 21:18.
Elín Eva og Peter sigruðu Aðal-
björgu og Kristján Jónasson 21:19,
24:22. KR var þar með komið 3:2
yfir en Tómas Guðjónsson tapaði
fyrir Kristjáni Viðari Haraldssyni,
21:18, 18:21, 22:24. Um hreinan
úrslitaleik var því að ræða í lokin,
og Peter Nilsson sigraði Kristján
Jónasson, 21:12, 21:12.
Sigurganga
Norðmanna
heldur áfram
Stefania Belmondo stöðvaði sigurgöngu
Rússa í göngu kvenna
Belmondo sló í gegn
ítalska göngukonan, Stefania
Belmondo, sigraði í göngutvíkeppni
kvenna, sem lauk með 10 km göngu
með frjálsri aðferð í gær. Belmondo
fór fimmta af stað, 13 sekúndum á
eftir Larissu Lazutinu, sem sigraði
í 5 km göngunni á sunnudaginn <pg
8 sek. á eftir Lyubovu Egorvou. ít-
alska stúlkna fann sig vel í braut-
inni og náði þeim rússnesku fljót,
fylgdi þeim eftir og átti svo enda-
sprett sem færði henni sigur.
Belmondo, sem vonast eftir að
vinna 30 km gönguna eins og í Al-
bertville, varð að láta draga úr sér
tvo endajaxla fyrr í þessum mánuði
og missti af nokkrum mótum í
heimsbikarnum vegna þess. „Mér
liður mjög vel núna og finn ekki
fyrir neinu,“ sagði Belmondo. „Ég
reyndi aðeins að fylgja þeim rússn-
esku eftir og bjóst ekki við að mér
tækist svona vel upp. í 30 km
göngunni á laugardag ætla ég að
nota rússnesku aðferðina — byija á
fullu og reyna að halda út.“
Elena Valbe frá Rússlandi, sem
sigraði 15 km gönguna á föstudag
og vann þrenn gullverðlaun og ein
silfurverðlaun á síðasta heimsmeist-
aramóti, náði sér ekki á strik og
hafnaði í 6. sæti og var 58 sekúnd-
um á eftir sigurvegaranum.
NORÐMENN héldu sigurgöngu
sinni áfram á heimsmeistara-
mótinu í norrænum greinum í
Falun í gær. Þeir sigruðu í
sveitakeppni í stökki af háum
palli og unnu þar með fjórðu
gullverðlaunin á mótinu. ítalska
stúlkan Belmondo stöðvaði sig-
urgöngu rússnesku stúlknanna
ígöngu.
Espen Bredesen, sem vann svo
óvænt stökkið af háum palli á
sunnudag, var aftur í sviðsljósinu í
gær er hann náði besta árangrinum
í sveitakeppninni og tryggði sigur-
-inn öðrum fremur. Hann stökk 112
og 113 metra. „Við hefðum verið
ánægðir með eitt af fímm efstu
sætunum," sagði Bredesen. „Þetta
er hreint ótrúlegt."
Tékkar unnu siifurverðlaunin og
geta þakkað Jaroslav Sakala fyrir
það. Austurríksmenn með Andreas
Goldberger í fararbroddi náðu að-
eins þriðja sæti og þykir það ekki
gott á þeim bæ.
Norðmenn hafa nú unnið 12 verð-
launapeninga og verða að teljast lík-
. Jegir til að bæta við safnið í 15 km
göngunni í dag þar sem Dæhlie,
Ulvang og Bredesen eru taldir sigur-
stranglegir.
SKIÐI/ HMIFALUN
Reuter
Belmondo fljótust
Stefania Belmondo, fyrir miðri mynd, var röskust í göngunni í gær. Elena
Valbe frá Rússlandi er hér iyrst en Maijut Rolig í baksýn. Belmondo fór
fímmta af stað en náði keppinautunum fljótlega og vann með góðum enda-
spretti.
KORFUKNATTLEIKUR / NBA
Perkins til Seattle
Framheijinn Sam Perkins var á
mánudaginn látinn fara frá
LA Lakers til Seattle SuperSonics
í skiptum fyrir miðheijann Benoit
Benjamin og bak-
Gunnar vörðinn Doug
Valgeirsson ChristÍG. „Við þurf-
skrilar frá um að yngja iiðið
Bandarikjunum hjá okkur aðeins,"
sagði Jerry West, framkvæmda-
stjóri Lakers. Perkins er 31 árs
en Benjamin 28 ára og Christie
22 ára.
„Ég er undrandi og þetta kemur
mér á óvart,“ sagði Perkins en
bætti við að hann hlakkaði til að
taka þátt í baráttunni með Seattle.
Christie var valinn í háskólaval-
inu í haust en neitaði að skrifa
undir samning við Seattle og hefur
því ekkert leikið. Hann þykir þó
snjall leikmaður.
Á morgun, fimmtudag, er síð-
asti dagurinn til að skipta um lið
í NBA-deildinni í vetur. Forráða-
menn Detroit og LA Clippers hafa
viðurkennt að þeir séu að hugsa
um að skipta um leikmenn. Denn-
is Rodman færi þá til Clippers
fýrir bakvörðinn Gary Grant og
framvörðinn Lay Vaught.
ÚRSLIT
Valur-UBK 131:91
Valsheimilið, úrvalsdeildin í körfuknattleik,
þriðjudaginn 23. febrúar 1993.
Gangur leiksins: 0:2, 20:2, 28:16, 44:33,
64:37, 69:42, 79:49, 93:59, 123:89, 131:91.
Stig Vals: John Taft 34, Magnús Matthías-
son 29, Ragnar Þ. Jónsson 17, Símon Ólafs-
son 12, Matthías Matthíasson 11, Brynjar
Harðarson 8, Einar Ólafsson 7, Guðni Haf-
steinsson 7, Lárus D. Pálsson 6.
Stig UBK: Joe Wright 36, Hjörtur Arnar-
son 14, Þorvarður Björgvinsson 14, Davíð
Grissom 7, Björn Hjörleifsson 6, Árni Þór
Jónsson 5, Égill Viðarsson 4, Hjörleifur
Sigurþórsson 4, Starri Jónsson 1.
Áhorfendur: 70
Dómarar: Jón Otti Ólafsson og Víglundur
Sverrisson.
UMFG-UMFT 99:64
íþróttahúsið í Grindavík:
Gangur leiksins: 9:0, 19:4, 32:10, 45:18,
60:25, 63:33, 85:47, 96:51, 98:60, 99:64.
Stig IJMFG: Jonathan Roberts 27, Bergur
Hinriksson 20, Pálmar Sigurðsson 12, Guð-
mundur Bragason 12, Pétur Guðmundsson
12, Marel Guðlaugsson 8, Hjálmar Hall-
grímsson 6, Bergur Eðvarðsson 2.
Stig UMFT: Páll Kolbeinsson 14, Valur
Ingimundarson 14, Ingvar Ormarsson 11,
Karl Jonsson 8,.Ingi Þór Rúnarsson 8, Hin-
rik Gunnarsson 6, Björgvin Reynisson 3.
Dómarar: Kristinn Öskarsson og Kristján
Möller. Dæmdu mjög vel.
Áhorfendur: Um 250.
HM í Falun
Göngutvikeppni kvenna:
Fyrri hlutinn í göngutvíkeppninni var 5 km
ganga sem fram fór á sunnudag. Síðari
hlutinn fór fram í gær og þá voru gengnir
10 km með fijálsri aðferð.
Helstu úrslit:
1. Stefania Belmondo (Ítalíu).....40:19.0
2. Larissa Lazutina (Rússl.)......40:19.4
3. Lyubov Egorova (Rússl.)........40:19.7
4. Manuela Di Centa (Ítalíu)......40:20.4
5. K. Neumannova (Tékkn. lýðv.) ...41:15.5
Sveitakeppni í stökki af háum palli:
l.Noregi............................821.5
(Bjoön Myrbakken 107.0 m, 112.0 / Helge
Brendryen 110.0, 108.0/Oyvind Berg
102.0, 101.0/Espen Bredesen 112.0,
113.0)
2. Tékkneska lýðveldið..........772.1
(Martin Svagerko 99.0, 102.0 / Frantisek
Jez 100.5, 107.5 /Jiri Parma 102.5,
105.5/Jaroslav Sakala 105.0, 117.0)
3. Austurríki...................745.4
(Ernst Vettori 100.0, 103.5 / Heinz Kuttin
97.5, 105.0 / Stefan Horngacher 103.0,
102.0 / Andreas Goldberger 105.0, 107.5)
4. Frakkland...................724.2
5. Japan.......................716.0
6. Finnland....................702.7
7. Slóvenía....................671.0
8. Sviss...................... 652.9
Knattspyrna
England
Úrvalsdeild, mánudag:
Sheff. Utd. - Oldham..............2:0
Gannon 45., Littlejohn 77. 14.628.
Man. City - Sheff. Wed............1:2
(Niall Quinn 83.) - (Viv Anderson 72., Paul
Warhurst 81.) 1. deild:
Oxford - Grimsby.................0:1
Swindon - Tranmere...............2:0
SKOTLAND
Motherwell - Rangers..............0:4
- (Mark Hateley 2, Ally McCoist og Mitsja-
litsjenko eitt hvor)
Dundee - Celtic...................0:1
- (Andy Payton)
■Orðrómur er nú uppi um að Liam Brady,
stjóri Celtic, verði látinn fara frá félaginu
en hann hefur verið við stjórnvölin í tvö
ár. Rætt er um að eftirmaður hans verði
Lou Macari en hann er nú hjá Stoke og
hveru náð góðum árangri með liðið.
Keila
Bikarkeppni
Konur, 8-liða úrslit:
J. E.S.S. - Skutlurnar......1760:1570
Kúlumar - KR-M.S.F..........1578:1104
P.L.S.-HA!..................1949:2092
Afturgöngumar - Keilir......2040:1699
Karlar, 8-liða úrslit:
K. R.-P.L.S.................2197:2165
Úlfamir - Lærlingar.........2076:2027
Egilsliðið - Sveitin........1938:2151
M.S.F. - Keilulandssveitin..2207:2381
■Islandsmótið í parakeppni hefst í dag og
líkur á Jaugardag. Næst verður leikið 15.
mars í Islandsmóti liða.
Handknattleikur
Fram-ÍBV........................20:23
Laugardalshöll, íslandsmótið í handknatt-
leik, 1. deild kvenna.
Mörk Fram: Þórunn Garðarsdóttir 4, Díana
Guðjónsdóttir 3/3, Ósk Víðisdóttir 2, Ólafía
Kvaran 2, Margrét Blöndal 2, Margrét El-
íasdóttir 2, Steinunn Tómasdóttir 2, Hafdís
Guðjónsdóttir 2, Kristín Þorbjarnardóttir 1.
Mörk ÍBV: Andrea Atladóttir 11, Judith
Estergal 4, Ragna Jenný Friðriksdóttir 4,
Sara Ólafsdóttir 2, Lovísa Ágústsdóttir 1,
Katrín Harðardóttir 1.
FELAGSLIF
Stuðningsklúbbur ÍR
Nokkrir eldri félagar í ÍR hafa
ákveðið að stofna stuðningsmanna-
klúbb meistaraflokks félagsins í knatt-
spyrnu. Stofnfundur verður í kvöld
kl. 20 í Seljakirkju. Komist menn ekki
á fundinn en vilji ganga í klúbbinn
er hægt að hafa samband við Bjöm í
síma 71702 eða Vigni í 36657.