Morgunblaðið - 24.02.1993, Page 43
I
I
I
I
I
I
I
I
I
I
I
I
5
I
I
I
MORGUNBLAÐIÐ IÞROTTIR MIÐVIKUDAGUR 24. FEBRÚAR 1993
HANDKNATTLEIKUR / LANDSLEIKUR
Mjog góo æfing
Bjarki Sigurðsson skorar í
gærkvðidi. í hálfleik I fyrri
leiknum sagði Þorbergur Að-
alsteinsson við strákana að
ef þeir sigruðu með 10 marka
mun eða meira yrði hann
uppáklæddur á bekknum í
seinni lelknum — og hann stóð
við það eins og sjá má á neðrl
myndinni.
bytjun
leik. Það tókst þeim því allir virtust
hafa reglulega gaman að því sem
þeir voru að gera. Nú er bara að sjá
hvort þessi stórsigur nægir til að
hleypa keppnisskapinu í Valsmenn á
nýjan leik.
Varnarleikur Vals var ágætur
framan af, eða þar til forskot þeirra
var orðið öruggt, þá slökuðu menn
örlítið á í vörninni. Brynjar gætti Joe
Wright löngum og gekk það ágæt-
lega. John Taft gætti hans einnig
um tíma með ágætum árangri en
engu að síður skoraði Wright 36 stig.
John Taft var bestur Valsmanna og
það er gaman að sjá þegar hann er
að brjóta sér leið að körfunni fram-
hjá sér miklu stærri mönnum og
leggja knöttinn í körfuna.
FOLK
BERGSVEINN Bergsveins-
son átti að vera annar markvörður
íslenska liðsins í gærkvöldi, en
hálsrígur kom í veg fyrir að hann
gæti leikið og var kallað á Sigmar
Þröst Óskarsson klukkutíma fyrir
leik.
UMGJÖRÐ leiksins var í
stakasta lagi og ekkert vandamál
á ferðum í sambandi við kynningu
ájeikmönnum eða spil þjóðsöngva.
ÞORBERGUR Aðalsteinsson
stjórnaði landsliðinu í 100. sinn í
landsleik í gærkvöldi.
■ PIOTR Dudzic (nr. 2) lék ekki
í fyrri leiknum, en var mjög góður
í gærkvöldi. Hann fór meiddur af
velli undir lokin.
■ / FYRRI leiknum gegn Pól-
verjum gerði íslenska liðið einu
sinni sex mörk í röð án þess að því
pólska tækist að svara fyrir sig. í
gær sögðum við að liðið hefði einu
sinni gert fimm mörk í röð og fjór-
um sinnum fjögur. Hið rétta er að
liðið skoraði einu sinni úr fimm
sóknum I röð og fjórum sinnum úr
Sórum sóknum í röð.
I GUÐFINNUR Friðjónsson,
stjórnarmaður í körfuknattleiks-
deild UMFG og faðir Helga sem
leikur með liðinu, rakaði af sér yfir-
varaskeggið eftir sigur UMFG í
r.
HANN hefur haft yfírvara-
skegg í 25 ár og þar sem Helgi
er nýorðinn 17 ára er þetta í fyrsta
sinn sem hann sér föður sinn skegg-
lausan.
ISLENSKA landsliðið í handknattleik komst í gærkvöldi enn einu
sinni að raun um að ekkert vinnst án öflugs varnarleiks og góðr-
ar markvörslu. Hvorugt vartil staðar ífyrri hálfleik gegn Pólverj-
um — og reyndar ekki heldur hjá gestunum — en sóknirnar,
utan fimm hjá hvoru liði, gengu upp, sem gerði það að verkum
að hálfleikstölur, 17:17, voru í hærri kantinum, svo vægt sétil
orða tekist. Hins vegar lokaði Sigmar Þröstur Óskarsson mark-
inu eftir hlé og vörnin var vel á verði, sem nægði til fjögurra
marka sigurs, 28:24.
Steinþór
Guðbjartsson
skrifar
Sigmar Þröstur fór í markið um
miðjan fyrri hálfleik, þegar
staðan var 9:8. Hann tók þrjú skot
það sem eftir lifði
hálfleiksins, en
stöðvaði níu af 13
sóknum Pólveija
fyrri stundarfjórð-
unginn eftir hlé, varði þá m.a. eitt
vítakast, og markvarsla Eyja-
mannsins gerði gæfumuninn; sam-
heijar hans gerðu fjögur fyrstu
mörk hálfleiksins og Pólveijum
tókst ekki að brúa bilið, þó þeim
tækist einu sinni að minnka muninn
í eitt mark.
„Ég vissi ekki fyrr en klukkutíma
fyrir leik að ég ætti að spila og var
því ekki undirbúinn,“ sagði mark-
vörðurinn. „Því komst ég ekki al-
mennilega inní leikinn fyrir hlé, en
hugsaði um skotin og lærði á þá.“
Það var vonum seinna, því Pól-
verjar gerðu 11 mörk í fyrri hálf-
leik með langskotum og flest voru
þau eins — í gólfíð og inn eða í
hornin niðri. Hins vegar gerðu gest-
irnir aðeins tvö mörk með langskot-
um eftir hlé.
Sóknarleikur íslenska liðsins
gekk eins og til stóð í fyrri hálf-
leik, þó varnarleikur Pólveija hefði
verið allt annar og betri en í fyrri
leiknum. Fjölbreytnin var alls ráð-
andi, en ánægjulegast var að sjá
hvað leikkerfið, sem byggist á send-
ingu Sigurðar Sveinssonar á línu-
mann (Geir Sveinsson) eða leik-
stjómanda (Gunnar Gunnarsson),
var árangursríkt. Það gekk samt
ekki upp eftir hlé frekar en gegn-
umbrotin, sem skiluðu þremur
mörkum í fyrri hálfleik.
Allt annað var að sjá til Pólveij-
ana en í fyrri leiknum, því þó mark-
varslan-'haí'i verið slök voru leik-
mennirnir grimmir í vöminni og í
fyrri hálfleik réðu íslensku strák-
arnir illa við Bogdan Wenta og Pi-
otr Dudzic, sem sóttu upp kantana
og skoruðu hvað eftir annað yfír
eða framhjá vörninni. En liðið hélt
ekki út í 60 mínútur. Bogdan Kow-
alczyk, þjálfari, var samt ánægður.
„Markvarslan og dómararnir réðu
úrslitum, en annars var leikurinn
eðlilegur. Ég skil ekki enn hvað
gerðist í fyrri leiknum, en þetta var
allt annað og verður enn betra gegn
Haukum."
Þorbergur Aðalsteinsson, lands-
liðsþjálfari, var kátur með sóknar-
leikinn í fyrri hálfleik og mark-
vörslu og vöm eftir hlé, en sagði
að einbeitinguna hefði vantað í
varnarleikinn í fyrri hálfleik. „Við
leyfðum þeim að koma of nálægt
okkur í fyrri hálfleik, en ef til vill
er það eðlileg viðbrögð eftir fyrri
leikinn — menn em ósjálfrátt ör-
uggari eftir stórsigur. Annars er
alltaf erfitt að meta svona æfínga-
leiki og ég lít fyrst og fremst á
þetta sem mjög góða æfíngu."
BANDARÍKJAMAÐURINN Raymond Foster var rekinn af leikvelli
í Grindavík eftir fjórar mínútur þegar heimamenn tóku á móti
Tindastóli. Eftirleikurinn var Grindvíkingum auðveldur og þeir
sigruðu 99:64. Valsmenn unnu Blika stórt, 131:91, að Hlíðarenda
Grindvíkingar áttu ekki í erfíð-
leikum með að leggja Tinda-
stól af velli 99:64 í Grindavík í gær-
■■■■■■ kvöldi. Raymond
r , Foster var rekinn af
ó'lafsson leikvelli eftir fjög-
sWar urra mmutna leik
fyrir að hnýta í Krist-
inn Óskarsson, annan dómaranna.
Kristinn veitti honum fyrst tæknivæ-
íti en Foster lét sér ekki segjast og
var vísað úr húsi. „Það sem hann
sagði er ekki prenthæft," sagði
Krstinn eftir leikinn.
Heimamenn byijuðu betur og voru
búnir að skora 13 stig gegn 4 eftir
4 mínútur. Eftir að Foster var farinn
af velli var eftirleikurinn auðveldur
fyrir Grindvíkinga. Gestirnir gerðu
aðeins 25 stig í fyrri hálfleik og það
er vægast sagt sjaldgæft í úrvals-
deildinni.
Jonathan Roberts spilaði sinn
besta leik fyrir heimamenn síðan
hann gekk til liðs við þá. Bergur
Hinriksson spilaði einnig vel en í
leiknum fengu allir liðsmennimir að
spreyta sig og stóðu fyrir sínu.
Tindastóll náðu sér ekki á strik
eftir brottrekstur Fosters en gáfust
þó ekki upp þó við ofurefli væri að
etja. Páll og Valur voru skástir gest-
anna en aðrir áttu ágæta spretti.
Valsmenn ekki í vandræðum
Valsmenn áttu ekki í nokkrúm
vandræðum þegar þeir tóku á
móti Blikum að Hlíðarenda í gær-
kvöldi. Blikar gerðu
reyndar fyrstu körf-
una en síðan komu
20 stig í röð frá
heimamönnum og
ljóst í hvað stefndi. Valsmönnum
hefur ekki gengið vel að undanfömu
og vom greinilega staðráðnir í að
ná upp réttum anda í liðinu á nýjan
Skúli Unnar
Sveinsson
skrifar
Morgunblaðið/Ámi Sæberg
ísland - Pólland 28:24
Laugardalshöll, vináttulandsleikur í handknattleik, þriðjud. 23. feb. 1993.
Gangur leiksins: 2:0, 2:2, 7:7, 9:7, 14:14, 16:14, 16:16, 16:17, 17:17,
21:17, 21:19, 24:20, 24:23, 28:23, 28:24.
Mörk íslands: Sigurður Sveinsson 9/3, Bjarki Sigurðsson 5, Geir Sveins-
son 5, Héðinn Gilsson 3, Gunnar Beinteinsson 3, Gunnar Gunnarsson 2,
Konráð Olavson 1. Auk þess léku Sigurður Bjarnason, Einar Gunnar
Sigurðsson og Júlíus Jónasson en Gústaf Bjamason var á varamanna-
bekknum allan leikinn.
Varin skot: Guðmundur Hrafnkelsson 3 (þaraf eitt til mótheija), Sigmar
Þröstur Óskarsson 17/1 (þaraf fjögur til mótheija).
Utan vallar: Tvær mínútur.
Mörk Póllands: Bogdan Wenta 7/1, Piotr Dudzic 6, Piotr Badowski 6,
Dakiusz 2, Robert Nowakowski 1, Ryszard Lubaski 1, Piotr Przybecki 1.
Varin skot: Artur Gural 7 (þaraf þijú til mótheija), Andrzej Marszalek 2.
Utan vallar: Pjórar mínútur.
Dómarar: Óli P. Ólsen og Gunnar Kjartansson dæmdu ágætlega, en (s-
lenska liðið hagnaðist á þeim í seinni hluta síðari hálfleiks.
Áhorfendur: 228.
íkvöld
KÖRFUKNATTLEIKUR
Úrvalsdeild:
Stykkish.: Snæfell-ÍBK.......20
1. deild karla:
Akureyri: Umf. Ak.-Þór....20.20
HANDKNATTLEIKUR
1. deild kvanna:
Höllin: KR-Valur..........18.30
Höllin: Ármann - Selfoss.....20
Höllin: Fram-Vík..........21.15
Vestm.: IBV-Stjarnan.........20
Kaplakriki: FH-Fylkir........20
Strandgata: Haukar - Grótta ....18.45
Æfingaleikur:
Strandgata: Haukar - Pólland...20.30
KORFUKNATTLEIKUR
Foster rekinn útaf í