Morgunblaðið - 02.03.1993, Side 2
2
MOEGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 2. MARZ 1993
Varnarstöðin
í Keflavík
AWACS-
sveitin
leyst upp
Boston. Frá Karli Blöndal, fréttaritara
Morgunblaðsins.
BANDARÍSKI flugherinn til-
kynnti á föstudag að AWACS-
ratsjár- og eftirlitsvélar í Japan
og á íslandi yrðu kvaddar heim.
Þessi yfirlýsing vakti furðu vegna
þess að sú AWACS-vél, sem var
á íslandi, fór fyrir tæpu ári og
var greint frá þvi í Morgunblað-
inu í byijun april að hún kæmi
ekki aftur. Barbara Claypool,
majór í flughernum, sagði í gær
að tilgangur yfirlýsingarinnar á
föstudag hefði verið að binda
formlega enda á dvöl 960. flug-
vélasveitar á íslandi, eða gera
hana „óvirka“ eins og hún orðaði
það. Þýðir það að sveitin hefur
verið leyst upp.
158 manns töldust til flugvéla-
sveitar þeirrar, sem fylgdi AWACS-
vélinni. „Það hefur verið fækkað
jafnt og þétt I sveitinni frá því að
ljóst varð að þessar vélar voru óþarf-
ar vegna loka kalda stríðsins," sagði
Claypool í samtali við Morgunblaðið.
„Nú eru aðeins örfáir eftir úr sveit-
inni og hún hefur verið gerð óvirk.“
Tíu manns eftir
Að sögn Claypool verða um tíu
manns úr sveitinni þó eftir á ís-
landi. Sagði hún að það yrði gert í
því skyni að vera við öllu búinn, því
að ekki væri loku fyrir það skotið
að einhvem tíma yrði aftur þörf á
því að hafa AWACS-vél á íslandi.
Hermenn úr sveitinni munu fram-.
vegis verða staðsettir á Tinkerrflug-
herstöðinni ásamt starfssystkinum
þeirra í Japan, þar sem verið hafa
þtjár AWACS-vélar, en verða fram-
vegis tvær.
Skammstöfunin AWACS merkir
viðvörunar- og stjómkerfi í lofti.
Þessar vélar eru hemaðarútgáfa af
Boeing 707 farþegaþotunni. Ofan á
þeim er ratsjárskjöldur og er hægt
að nota þær til að rekja slóð ann-
arra flugvéla, hvort sem þær fljúga
hátt eða lágt, senda orrustuskipanir
og greina á milli flugvéla óvinar og
samheija. Vélamar hafa verið í notk-
un frá árinu 1977.
Morgunblaðið/Þorkell
Góuvaka við Sundin
NEMENDUR Menntaskólans við Sund halda Góuvöku hátíðlega þessa hátt. í gær var kvikmyndasýning í leikfímisalnum Brambolti. í leikhléi
dagana. Þá leggja þeir skólabækumar til hliðar og skemmta sér á ýmsan tróð Ginbandið upp og vakti mikla hrifningu nemendanna.
Víðtækt þorskveiðibann
verður sett um páskana
SJÁVARÚTVEGSRÁÐUNEYTIÐ hefur ákveðið að þorskveiðibannið
yfir páskahátíðirnar verði víðtækara í ár en það var í fyrra. Nú
verða allar veiðar með þorskfisknetum bannaðar á tímabilinu 6.
aprfl til 21. aprfl en í fyrra náði bannið frá 11. til 21. apríl. Sam-
hliða þessu hefur verið ákveðið að á sama tímabili verði bannaðar
allar veiðar innan ystu togveiðimarka á svæði fyrir Suðurlandi og
Vesturlandi frá Stokksnesvita vestur og norður að Bjargtöngum og
allar veiðar á Suðvesturlandi á svæði sem nær verulega út fyrir
ystu togveiðimörk.
Þorsteinn Pálsson sjávarútvegs-
ráðherra segir að hér sé um að
ræða einhveijar umfangsmestu
Kjúklingatilboð í verslunum Hagkaups
23 tonn á hálfum degi
HAGKAUP seldi 23 tonn af kjúklingum á tilboðsverði í verslunum sín-
um á sunnudag. Samsvarar það um tveggja mánaða kjúklingasölu í
verslunum fyrirtækisins.
Verð á kjúklingum var lækkað úr
620 kr. í 399 kr. kílóið, eða um 35%,
og í gærmorgun var útsöluverðið
aftur komið í 620 kr. Jón Ásbergs-
son, framkvæmdastjóri Hagkaups,
sagði að þegar verslanimar opnuðu
á sunnudag hefði verið biðröð við
þær allar. Klukkutíma síðar voru
birgðimar að verða uppseldar. Kjúkl-
ingamir voru seldir í stykkjum og
einnig tólf stykki í kössum.
Bjami Ásgeir Jónsson, fram-
kvæmdastjóri kjúklingaframleiðand-
ans Reykjagarðs, sagði að ekki væru
miklar birgðir af kjúklingum í land-
inu. Hann hefði selt Hagkaup ákveð-
inn tonnafjölda vegna þess að hann
hefði þurft að losa peninga.
t dag
Aukin fjárfesting
Fjárfesting í veiðum jókst um
96,4% á síðasta ári. 7
Fyrirsætan Björk
Kunnur breskur tískuljósmyndari
hefur áhuga á að fá söngkonuna
Björk Guðmundsdóttur til að sitja
fyrir á auglýsingamyndum 38
Ekki hafa verðmæti í bílum
Ekki verður ofbrýnt fyrir fólki að
skilja ekki eftir laus verðmæti í
bílum þegar þeir eru yfirgefnir,
segir í dagbók lögreglunnar 46
Leiðari
Verkföll leysa engan vanda
Iþróttir
► Hacken keypti upp samning
Arnórs Guðjohnsen við And-
erlecht. Ejjamenn fá leikmann
frá West Ham. Sigurður Grét-
arsson enn í uppskurð.
ákvarðanir sem teknar hafa verið
um veiðibann í þeim tilgangi að
vemda þorskinn á hrygningartím-
anum. „Þessar ákvarðanir eru tekn-
ar með hliðsjón af því hve þorsk-
stofninn hefur verið lítill undanfarin
ár og hve niðurstöður seiðamælinga
hafa sýnt litla nýliðun undanfarin
tvö ár,“ segir Þorsteinn. „Sökum
þessa höfum við verið að stórauka
vemdaraðgerðir sem við vonum að
skili okkur árangri síðar. í þessu
sambandi má nefna mikla aukningu
á skyndilokunum svæða þar sem
mikið verður vart við smáfisk, eða
undirmálsfísk, og má nefna sem
dæmi að frá áramótum nú hafa 50
slíkar skyndilokanir orðið en á sama
tíma í fyrra voru þær 19 talsins.“
Samráð við hagsmunaaðila
í máli Þorsteins Pálssonar kom
FlugAdrkjar Flugleiða
Agreiningur
er um vinnu-
fyrirkomulag
FLUGVIRKJAR hjá Flugleiðum
mættu ekki til starfa í nýja fiug-
skýlinu á Keflavíkurflugvelli í gær
vegna ágreinings við sljórnendur
félagsins um túlkun samkomulags
sem félagið gerði við flugvirlga
árið 1991 um vinnufyrirkomulag
í flugskýlinu.
Að sögn Einars Sigurðssonar,
blaðafulltrúa Flugleiða, felur sam-
komulagið í sér að vinnustaður flug-
virkja flyst til Keflavíkur.
Hálfdán Hermannsson, formaður
Félags flugvirkja, vildi ekki tjá sig
um málið.
fram að fyrrgreindar ákvarðanir
hafa verið teknar í samráði við
helstu hagsmunaaðila í sjávarút-
vegi, bæði útvegs- og sjómanna.
En tillögugerðin sjálf var unnin í
samráðsnefnd um bætta umgengni
um auðlindir sjávar sem sjávarút-
vegsráðuneytið skipaði í október
1991 undir forystu Bjöms Dag-
bjartssonar.
í lokaskýrslu sem nefndin skilaði
af sér nýlega kemur m.a. fram að
hún leggur til að bannaðar verði
allar veiðar í allt að tvær vikur fyr-
ir Suðurlandi og Vesturlandi þegar
fiskifræðingar telja hrygningu
þorsks í hámarki. Þekkt staðbundin
hrygningarsvæði verði með sama
hætti friðuð í tvær til þijár vikur
fyrir öllum veiðum á vorin og reglu-
gerðum beitt í ríkara mæli til vemd-
unar ungfíski hveiju sinni.'
Hafrannsóknastofnun útfærði
síðan tillögur nefndarinnar og nið-
urstaðan varð framangreindar lok-
anir auk þess að hvað varðar stað-
bundin hrygningarsvæði var ákveð-
ið að banna allar veiðar á Stöðvar-
firði og Gunnólfsvík á sama tíma
og hið almenna bann gildir, það er
dagana 6.-21. apríl.
Jafnframt þessu er áréttað að
bann við veiðum krókabáta frá
3.-12. apríl stendur óbreytt auk
þess að allir smábátar falla undir
veiðibannið sem gildir til 21. apríl.
Pjögnrra ára íslenskur hjartaþegi
Farinn að sitja
uppi og mála
„HANN hefur verið vakandi af og til eftir aðgerðina. Þá situr
hann uppi og er aðeins farinn að leika sér, mála og svoleiðis,"
sagði Helga Snorradóttir, móðir Snorra Ásbjörnssonar, fjögurra
ára hjartaþega á Östra-sjúkrahúsinu í Gautaborg, þegar rætt var
við hana í gær. Engin merki um að líkami Snorra hafni hjartanu
hafa enn komið fram, en hjartað var grætt í hann aðfaranótt
fimmtudags.
Foreldrar Snorra, Helga og
Ásbjörn Helgi Ámason, og systk-
ini hans, 6 ára stúlka og 8 vikna
drengur, fylgdu honum til Gauta-
borgar fyrir rúmum tveimur vik-
um. Það var síðan á fimmtudag
sem nýtt hjarta var grætt í
Snorra.
Helga sagði að honum liði
þokkalega. „Hann er að vísu mátt-
lítill, eins og hann var fyrir að-
gerðina, en þetta kemur með tím-
anum,“ sagði hún. Aðspurð um
hvort Snorri hefði eitthvað sagt
um umstangið í kringum aðgerð-
ina sagði hún að hann hefði ekk-
ert rætt um þetta, „enda er hann
orðinn vanur öllum mögulegum
sjúkrahúsum," bætti hún við.
Helga sagði að aðbúnaðurinn á
spítalanum væri til fyrirmyndar,
en ekki er vitað hvað Snorri þarf
að dveljast þar lengi.
Hróðmar Helgason hjartasér-
fræðingur hafði eftir lækni á
Ostra-sjúkrahúsinu í gærmorgun
að meðferðin hefði gengið vonum
framar enn sem komið væri. Hann
sagði að Snorri yrði á lyfjum til
að koma í veg fyrir bráðahöfnun
næstu 2-3 vikurnar en eftir að
hann yrði tekinn af þeim kæmi í
ljós hvort höfnunareinkenni gerðu
vart við sig. Snorri er fjórði og
langyngsti íslenski hjartaþeginn.