Morgunblaðið - 02.03.1993, Side 4
4
MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 2. MARZ 1993
Danska skipið Skanlith varð vélarvana fyrir utan Grindavík
Hætta á að skip-
ið ræki upp á land
Grindavík.
DANSKA skipið Skanlith sem er um 1.000 tonn lenti í erfiðleikum
vegna vélarbilunar skammt austan Selatanga við Grindavík um há-
degisbil í gærdag. Skipið var á leið frá Þorlákshöfn til Grindavíkur
til að losa saltfarm. Þegar það átti skammt ófarið til Grindavíkur
sló aðalvél þess út og lét skipstjórinn það reka í átt að landi til þess
að ná festu fyrir ankeri og huga að biluninni. Ankerið náði festi
rúma hálfa mílu frá landi og tókst vélstjóranum um borð að gera
við bilunina sem var í undirlyftum vélarinnar og unnt var að sigla
skipinu inn til Grindavíkur fyrir eigin vélarafli. Fiskiskipið Júlli Dan
GK 197 var á veiðum skammt frá og var til taks danska skipinu.
Morgunblaðið hafði tal af skip-
stjóranum, Paul Pederson, skömmu
eftir komuna til Grindavíkur. „Aðal-
vél skipsins sló út þegar við áttum
fáeinar mflur ósigldar til Grindavík-
ur og ég lét þá skipið reka í átt
að landi til þess að geta bgitt anker-
um skipsins og stjóma því. Það
tókst og um hálftíma seinna var
viðgerð lokið og við sigldum því inn
til Grindavíkur. Ég tel ekki hafa
verið mikla hættu á ferðum þar sem
ankerið stöðvaði ferð skipsins,"
sagði hann við Morgunblaðið.
VEÐUR
Vorum í hættu
Stýrimaðurinn á Skanlith er ís-
lenskur og heitir Alexander Haf-
þórsson. Hann er nýbyijaður sem
stýrimaður og er í sinni fýrstu ferð
með skipinu. Hann telur að vélarbil-
unin hefði getað orðið til þess að
skipið ræki upp í land og ástandið
hafí verið óöruggt. „Við vorum vél-
arvana og þegar við náum ankeris-
festu erum við í 4-6 metra öldu og
vindurinn blæs að landi. Við höfðum
þó annað ankeri uppi auk þess sem
Morgunblaðið/Frímann Ólafsson
Komnir í höfn
ALEXANDER Hafþórsson stýrimaður Skanlith var kominn í dekk
til að stjóma löndun í Grindavík í gær.
Júlli Dan sem var að toga í ná-
grenni við okkur var tilbúinn til að
koma okkur til aðstoðar ef á þyrfti
að halda. Til þess kom þó ekki því
við gátum gert við sjálfír. Það var
þó gott til þess að vita að aðstoð
var á næstu grösum og við í áhöfn-
VEÐURHORFUR I DAG, 2. MARS
YFIRUT: Lægð yfir Grænlandshafi hreyfist norðaustur. Heldur kólnar í
veðri.
SPÁ: Suðvestanátt um allt land, hvassviðri eða stormur norðvestan-
lands, en annars heidur hægari vindur.
VEÐURHORFUR NÆSTU DAGA:
HORFUR Á MIÐVIKUDAG: Suðlæg eða suðaustlæg átt, sums staðar
nokkuð hvöss og aftur hlýnandi í bili. Rigning eða súld vfða um land,
einkum þó sunnanlands og vestan.
HORFUR Á FIMMTUDAG OG FÖSTUDAG: Vestlæg eða suðvestlæg
átt og hiti um eða rétt yfir frostmark um sunnanvert landið en norðaust-
anátt og frost á Vestfjörðum og á annesjum norðanlands. Ég víða um
land, þó llklega bjart veður á Suðausturlandi.
Nýir veðurfregnatímar: 1.30. 4.30, 7.30, 10.45, 12.45, 16.30, 18.30,
22.30. Svarsfmi Veðurstofu Islands — Veðurfregnir: 890600.
o & •ö Q Sunnan, 4 vindstig. Vindörin sýnir vindstefnu og fjaðrimar vindstyrk,
Heiðskírt Léttskýjað Hálfskýjað Skýjað Alskýjað heil fjöður er 2 vindstig.
/ / / * / * ★ * * • i. * 10° Hitastig
/ / / / / * / / * / * * * * * V V V y Súld \
Rigning Slydda Snjókoma Skúrir Slydduél El - Þoka ^
r/tntJ A VtUUM: (Kl. 17.30ígeer)
Á öllum aðalvegum landsins er ágæt færð, en sumstaðar er þó hálka
á heiðum og fjallvegum.
Upplýsingar um færð eru veittar hjá Vegaeftirliti í síma 91-631500 og
í grænni línu 99-6315.
Vegagerðin.
VEÐUR VIÐA UM HEIM
kl. 12.00 í gær að ísl. tíma
Hiti veður
Akureyri 9 skýjað
Reykjavík 6 rigning og súid
Bergen 1 léttskýjað
Helsinki +5 heiðskfrt
Kaupmarmahöfn 2 skýjað
Narssarssuaq +13 léttskýjað
Nuuk +19 snjókoma
Osló 0 heiðskírt
Stokkhólmur 0 skýjað
Þórshöfn +6 alskýjað
Algarve 10 léttskýjað
Amsterdam 3 þokumóða
Borcelona 1 rlgning
Bertin 4 hálfskýjað
Chicago +3 heiðskírt
Feneyjar 6 rigning
Frankfurt 6 mistur
Glasgow 4 snjóél á síð. klst.
Hamborg 3 skýjað
London 3 skýjað
LosAngeles 10 heiðskfrt
Lúxemborg 1 skýjað
Madrtd 2 skýjað
Malaga 9 léttskýjað
Mallorca 8 alskýjað
Montreal +13 skýjað
NewYork +5 skýjað
Orfando vantar
Parfs vantar
Madelra vantar
Róm 8 rigning
Vfn 4 skýjað
Washington +3 léttskýjað
Wlnnipeg 0 heiðskfrt
inni viljum koma kærum þökkum
til áhafnarinnar á Júlla Dan og til
björgunarsveitarinnar sem var lögð
af stað.
Ekki talin þörf á aðstoð
Alexander sagði að skipstjórinn
hefði ekki talið þörf á að kalla á
aðstoð þar sem skipið var stöðvað
auk þess sem Júlli Dan var til stað-
ar og viðbúnaður var um borð til
að þiggja aðstoð. Skipstjórum er
einnig uppálagt að þiggja enga
aðstoð ef unnt er að gera við sjálf-
ir. Hann gat þess í framhaldi að
venjulega væri vélstjóri ekki um
borð í skipinu en þar sem vél þess
hefði verið til vandræða að und-
anfömu hefði vélstjóri verið um
borð.
Svona óhöpp vekja alltaf þær
spumingar í Grindavík hvenær á
að kalla aðstoð til og björgunar-
sveitarmenn í Þorbimi voru ekki
ánægðir með gang mála í gærdag
þar sem hver mínúta er dýrmæt
þegar á aðstoð þarf að halda. Það
er hinsvegar alfarið á valdi skip-
stjóra hvenær hann telur þörf á að
kalla til aðstoð.
FÓ
Samstarf í sjáv-
arútvegsmálum
Auglýst eft-
ir forstjóra
til Namibíu
AUGLÝST var eftir forstjóra
til starfa í namibiska útgerð-
ar- og fiskvinnslufyrirtækinu
í Morgunblaðinu sl. sunnudag,
en eins og greint hefur verið
frá í frétt í blaðinu eru fulltrú-
ar fyrirtækisins væntanlegir
hingað til lands i marsmán-
uði. Ráðgert er að hlutafé fyr-
irtækisins verði allt að sex
miiljarðar ÍSK.
í auglýsingunni er lýst eftir
forstjóra sem annist rekstur
verksmiðjutogara, uppbyggingu
fiskveiða og vinnslu, mótun og
uppbyggingu markaðsstefnu.
Ætlast er til að forstjórinn ráði
sér nánustu samstarfsmenn.
Hreindýr með net
á hornunum
Of styggt
til að nást
EFTIRLITSMANNI frá emb-
ætti veiðistjóra tókst ekki í gær
að komast nálægt hreindýri sem
flækt hefur höfuð sitt og horn í
netadræsu. Stóð til að reyna að
ná dýrinu og losa það við netið.
Hreindýrin eru í Lóni í A-Skafta-
fellssýslu. í gær fór eftirlitsmaður á
staðinn með deyfíbyssu en að sögn
Páls Hersteinssonar veiðistjóra
komst hann ekki nógu nálægt dýrun-
um. Ekki er hægt að koma deyfíbyss-
unni við á meira en 40-50 metra færi.
Páll sagði að dýrin hefðu verið
mjög stygg og greinilegt að þau
hefðu orðið fyrir ónæði af manna-
völdum. Því yrði beðið með aðra til-
raun til að komast að dýrunum í
nokkra daga þar til þau róuðust.
Fundur í Heijólfsdeilunni boðaður í dag
Tilboð um aftur-
köllun uppsagna
Á FUNDI í Herjólfsdeilunni hjá ríkissáttasemjara í gær gaf
stjóm Herjólfs út yfirlýsingu um að uppsagnir undirmanna á
Herjólfi yrðu dregnar til baka gegn því að gengið yrði til við-
ræðna um heildarkjarasamning starfsmanna á skipinu. Ákveð-
ið var að halda annan fund í dag eingöngu með fulltrúum
undirmanna, en þeim var sagt upp störfum á þriðjudaginn í
síðustu viku.
Sjómannasamband íslands
mætti á fundinn í gær fyrir hönd
sjómannafélagsins Jötuns í Vest-
mannaeyjum, en Jötunn hefur
neitað að eiga aðild að heildarkja-
rasamningi ‘allra starfshópa um
borð og hefur boðist til að fram-
lengja síðastgildandi kjarasamn-
ing. Uppsagnimar náðu til fímm
háseta og sjö þema. Verkfall
tveggja stýrimanna hefur staðið
frá því 3. febrúar eða í tæpan
mánuð.
Samhliða fundinum í Herjólfs-
deilunni verður einnig haldinn
samningafundur Sjómannasam-
bandsins með Vinnuveitendasam-
bandi íslands fýrir hönd Lands-
sambands íslenskra útvegsmanna
vegna kjarasamninga fískimanna.
Þess er vænst að formaður Jötuns
í Vestmannaeyjum verði á fundin-
um, en hann á sæti í samninga-
nefnd Sjómannasambandins.
Uppsögnum mótmælt
Uppsagnir undirmanna á Heijólfí
hafa vakið upp hörð viðbrögð verka-
lýðsfélaga. Stjómir Stýrimannafé-
lags íslands og Verkalýðsfélags
Vestmannaeyja hafa meðal annars
mótmælt uppsögnunum og skorað á
stjóm Heijólfs að draga þær til baka.
Játaði að
hafa tekið
málverkið
KONA viðurkenndi við yfír-
heyrslur hjá rannsóknar-
lögreglu ríkisins að hafa
stolið málverki eftir Karól-
ínu Lárusdóttur úr Hall-
grímskirkju og fært mynd-
ina Reylqalundi að gjöf.
Myndin, sem listakonan gaf
kirkjunni, hvarf úr kirkjunni á
fóstudag. Hún fannst á
Reykjalundi á laugardag, en
þangað hafði kona komið með
hana og sagst vilja gefa stofn-
uninni listaverkið.
Konan á við andlega erfíð-
leika að stríða. Henni var
sleppt að loknum yfír-
heyrslum, enda málið þá full-
upplýst.