Morgunblaðið - 02.03.1993, Qupperneq 15
MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 2. MARZ 1993
15
Töfrar Guy Barkers
Jass
Guðjón Guðmundsson
Tónleikar Jazzkvartetts Reykja-
víkur og enska trompetleikarans
Guy Barkers hófust í hraðri
bíboppkeyrslu, Dance of the Infíd-
els, sem Charlie Haden og félagar
gera svo góð skil á Haunted Heart.
Þrátt fyrir að tempóið væri öllu
hægara í Sóloni íslandusi sl. laug-
ardag, var strax ljóst að hér var
á ferðinni trompetleikari í háum
gæðaflokki. Barker býr yfir mik-
illi tækni. Hann beitir hringöndun
í lengri sólóköflum, klýfur tóna
og þvingar þá með hálfum takka
niður, sem svipar ekki svo lítið til
Gillespie. En það er sjálfur blástur-
inn, „chopsið", sem vakti mestu
athygli undirritaðs, örnótumar
upp og niður tónstigann í snar-
stefjuninni og frábær tímaskynj-
un.
Sigurður Flosason útsetti allt
efni á efnisskránni, en var sjálfur
fullhlédrægur í allri framvindunni.
Hann lék þó heitan sóló í Ruby
my Dear. Á efnisskránni voru
Powell, Monk, Parker, Gillespie,
Dameron og fleiri höfundar. Þar
voru meðal annars tvær sölsur
eftir Gillespie. í Con Alma var
skipt úr vestanhafs bíboppi í afró-
kúbanskan takt og Gunnlaugur
Briem og Pétur Grétarsson tóku
á sig gervi Tito Puente og félaga.
Barker gelti á trompetið í suð-
rænni harmóníunni og Eyþór
hamraði salsastefíð eins og mam-
bókóngur. Einar Valur er afskap-
lega efnilegur trommari og hélt
hann uppi sjóðandi dampi á sim-
bölunum. Tómas var smekklegur
að vanda.
í heildina tekið var þetta með
eftirminnilegri og sérstæðari
djasstónleikum í langan tíma. Sig-
urður er metnaðarfullur djassleik-
ari og útsetjari og það er nýlunda
að menn taki fyrir vissar stefnur
og geri þeim skil á tónleikum, í
stað þess að fletta bara í Real
Book.. Ekki svo að Sigurður og
Jazzkvartett Reykjavíkur hafí ver-
ið því markinu brenndir, því þeir
hafa verið iðnir við að flytja frum-
samda tónlist. Barker er aufúsu-
gestur í landi trompetleikaraleys-
isins, og það kæmi ekki á óvart
þó hann ætti eftir að hasla sér
völl vestanhafs, í Englandi og ís-
landi er hann á toppnum.
Kripalujóga
Byrjaður daginn með kripalujóga.
Morguntimar: Þriðjud, og fimmtud.
kl. 7.00-8.00, mánud., miðvikud.,
föstud. og laugard. kl. 7.30-8.30.
Kynning á kripalujóga verður priðju-
daglnn 3. mars kl. 20.30.
Skeifunni 19,2. hæð, s. 679181 (kl. 17-19).
Bebop á Sóloni
Morgunblaðið/Kristinn
Arni Sigurjónsson
mælst til; slíkt bann hefði ég talið
atlögu að málfrelsi.
(3) Auglýsing Ölgerðarinnar er
ein hin þjóðlegasta sem sést hefur
í sjónvarpinu lengi: hún er hylling
til ferskeytlunnar. Þeir sem bjuggu
hana til eiga þakkir skildar. Hinum
vil ég ekki hrósa sem skammast út
í slíka menningarviðleitni en þegja
þunnu hljóði um flatneskjulega
moðsuðu sem birtist í auglýsingum
erlendra gosdrykkjaframleiðenda.
4) Loks tel ég smekkvísi Helga
bila þegar hann kallar sjónvarpið
„meinvætt í íslensku samfélagi".
Þó að sjónvarpið gæti verið miklu
betra, er það engin meinvættur.
En þann dag þegar sjónvarpsmönn-
um verður bannað með lögum að
vitna í Hallgrím Pétursson getur
það kannski orðið meinvættur.
Höfundur er ritstjóri Tímarits
Máls og menningar.
SVEFNSOFAR
INICE
Stærö: 175 x 100 x 80
Útdreginn: 130 x 195
Verö: 57.500 kr.
GOÐAI DAG
- eftir góöa nðtt
IREBECCA
Stærð: 136 x 90 x 73
Útdreginn: 130x200
Verö: 37.500 kr.
PAULINE
Stærð: 165 x 80 x 86
Útdreginn: 120 x 195
Verð: 51.500 kr.
ISESAM
Stærð: 145x85x70
Útdreglnn: 140 x 190
Verö: 56.000 kr.
Fallegu svefnsófarnir og svefnstól-
arnir frá Lystadún - Snælandi eru
góðir daga sem nætur. Þeir eru
sannkölluð híbýlaprýði og þægi-
legir að sofa á. Hönnunin er glæsi-
leg og fjölbreytt, form og lit.ir marg-
víslegir. Stærðirnar eru mismunandi
svo auðvelt er að fá sófa eða stól
sem hentar vel í allar stærðir
herbergja. Svefnsófi frá Lystadún -
Snælandi er tilvalinn í gestaher-
bergið eða sjónvarpskrókinn og
unglingarnir kunna vel að meta gjiNA
þægindin að því að hafa bæði rúm
og sófa til umráða. Og til að lífga upp
á tilveruna enn frekar er til mikið
úrval af púðum í fallegum litum.
Svefnsófi frá Lystadún - Snælandi
tryggir þér góðan dag eftir góða nótt.
JOSEPHINE
Stærð: 130 x 80 x 86
Útdreginn: 130x 190
Verö: 32.500 kr.
Stærð: 157 x 70 x 70
Útdregtnn: 135 x 190
VerÖ: 34.000 kr.
ell
•ess
I REBECCA-svefnstóll
Stærð: 71x90x73
Útdreginn: 65 x 200
Verð: 23.000 kr.
LYSTAD U N-SNÆLAN D hf
Skútuvogi II • 124 Reykjavík • Sími 814655 / 685588
Sendum í póstkröfu um land allt