Morgunblaðið - 02.03.1993, Qupperneq 16
16
MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 2. MARZ 1993
Lúmskur óvinur í felum
Skíðabogar
frá
Bílavörubúðin
FJÖÐRIM
SKEIFAN 2, SÍMI 812944
eftir VíkingH.
Amórsson
Illkynja sjúkdómar eða krabba-
mein eru því marki brenndir að
frumur í viðkomandi vefjum eða
líffærum, s.s. merg, eitlum, heila-
og taugakerfí, beinvef eða nýrum,
taka upp á því, af einhveijum or-
sökum, að íjölga sér óeðlilega,
hrúgast upp, fyrst staðbundið og
oft þannig að hnútar myndast eða
æxli. Frumurnar hafa síðar til-
hneigingu til að ryðja sér braut
út úr viðkomandi líffæri, teygja
arma sína víðs vegar um líkamann
og skemma þar út frá sér. Þetta
eru svokölluð meinvörp. Það er
langt í frá að allar hnúta- eða
æxlismyndanir í líkamanum séu
þessa eðlis. Meirihluti þeirra er
góðkynja, sitja á sínum stað og
gera ekki af sér óskunda nema
þá vegna þrýstings á aðliggjandi
líffæri ef fyrirferðin er mikil, en
frumurnar sem æxlið mynda bijót-
ast ekki út úr hnýði sínu eins og
þegar um krabbameinsvöxt er að
ræða.
Venjulegast eiga krabbameinin
upptök sín innvortis í einu ákveðnu
líffæri eða líkamsvef en geta þeg-
ar lengra líður brotist út úr um-
hverfí sínu, eins og áður segir, og
borist með blóðinu til annarra líf-
færa.
Þetta er lúmskur óvinur sem
hreiðrar um sig í felum og kemur
ekki upp um sig fyrr en bera fer
á sjúkdómseinkennum vegna trufl-
aðrar lífstarfsemi eða fyrirferðar-
aukningar gætir á yfirborði líkam-
ans. Þegar svo er komið er eins
víst að meinsemdin sé langt geng-
in.
Krabbamein eru ekki algeng í
bömum en þau geta komið fyrir
á hvaða aldri sem er, jafnvel verið
meðfædd. Sumar tegundir eru fá-
gætari hjá bömum en fullorðnum,
aðrar algengari. Eiginleiki krabba-
meinsframa og hegðun er mis-
munandi. Hvoratveggja fer eftir
aldri sjúklings og tegund krabba-
meinsins. Lækningin er fólgin í
lyfjameðferð, geislun eða skurðað-
gerðum. Stundum era tveir eða
allir þessir meðferðarþættir sam-
tvinnaðir.
Þó krabbamein séu ekki algeng
á bamsaldri er þetta samt sjúk-
dómur sem læknirinn verður að
vera á varðbergi fyrir. Vakni hinn
minnsti granur skal leitast við að
sanna eða afsanna tilvist hans með
tiltækum rannsóknum.
Miklar breytingar hafa orðið á
síðustu áratugum hvað varðar far-
aldsfræði sjúkdóma hjá börnum
og dauðsfallatíðni. Fyrir utan bætt
viðurværi og híbýlakost veldur þar
mestu um ný lyf, bóluefni og bætt
svæfínga- og skurðtækni. Dregið
hefur úr tíðni margra sjúkdóma
eða þeir algjörlega horfíð, eins og
t.d. barnaveiki, lömunarveiki og
berklar.
Áður fyrr ollu skæðir smitsjúk-
dómar tíðum dauðsfjöllum hjá
bömum, en nú er svo komið að
krabbamein er algengasta dánar-
orsökin næst slysum.
Veraleg umskipti hafa orðið á
síðustu 20 áram eða svo hvað
varðar lífslíkur bama sem fá
krabbamein. Sérstaklega á þetta
við um hvítblæði (levkemia) sem
á upptök sín í mergnum og er al-
gengasta tegund krabbameina á
þessu aldursskeiði.
Krabbameinstilfelli sem áður
virtust alveg vonlaus era nú vel
viðráðanleg og jafnvel má vænta
bata til langframa.
Það er alltaf sárt að vita þegar
fólk veikist af ólæknandi sjúk-
dómi, ekki síst þegar böm og ung-
menni eiga hlut að máli, sem öllum
fínnst sjálfsagt að eigi lífíð fyrir
sér.
Margt er mannanna meinið.
Örvinglun og angist fyllir huga
og hjörtu allra þeirra sem horfa
upp á barn veslast upp vegna ban-
væns sjúkdóms. Og bölið er mikið
sem fylgir langvinnum heilsu-
bresti, vanskapnaði, andlegum
vanþroska, fötlun af völdum slyss
eða sjúkdóms o.s.frv. hvort heldur
fyrir aðstandendur eða sjúklinginn
sjálfan.
Meðferðin sem krabbameins-
veik böm verða að gangast undir
er löng og ströng. Á ýmsu getur
gengið um árangur. Það er mikil-
vægt að meðferðin fari fram á
sama stað og sé stunduð af sér-
hæfðu starfsliði sem sjúklingurinn
kynnist smám saman sem og for-
eldrar.
Það fara miklir íjármunir og
tími í umönnun bama með slíka
sjúkdóma. Við sem frísk eram
verðum á alla lund að veita fólki
sem heyr slíka baráttu félagslegan
stuðning. Aðstæður mættu vera
betri á Bamaspítala Hringsins til
að veita krabbameinsveikum böm-
um og aðstandendum þeirra þjón-
ustu og aðhlynningu sem og öðr-
um er eiga við langvinn veikindi
að stríða. Reynt er samt að leggja
sig fram eins og frekast er unnt.
Fyrir nokkram áram eignaðist
Bamaspítalinn litla íbúð í næsta
nágrenni þar sem foreldri gefst
tækifæri til að búa ásamt bami
Víkingur H. Amórsson
„Meðferðin sem
krabbameinsveik börn
verða að gangast undir
er löng og ströng.“
sínu milli þess sem það kemur inn
á bamadeildina til meðferðar.
Helst er það fólk utan af landi sem
þarf á slíkri aðstöðu að halda.
Það er von allra sem nærri þes-
um málum koma að reist verði
sérhönnuð bamaspítalabygging á
Landspítalalóð, þar sem m.a. verði
sköpuð skilyrði fyrir aðstandendur
mikið veikra sjúklinga að dvelja
næturlangt nálægt bami sínu.
Höfundur eryflrlæknir á
Barnaspítala Hringsins.
/
BEINT
Eldhúsinnréttingar!
Gnótt af hagnýtum lausnum sem koma
þér á óvart (einkum á þessu verði).
Handunnar og vel hannaðar innréttingar
- með 5 ára ábyrgð að auki!
Baðherbergi!
Fallegar og rúmgóðar innréttingar
gerðar til að nýta rými baðherbergis til
fulls. Vönduð vara úr gegnheilum viði
eða plastlögðum spón. 5 ára ábyrgð!
Opið kl. 10-18, virka daga.
Verið veíkQmin
7
eldhus-
miðstöðin
Húsi Ormsson brœðra, Lágmúla 6, 108 Reykjavík
Sími 68 4910. Myndsendir 684914.
Rennihurðir og fellihurðir með spegli eða án - ný leið til að sníða
innréttinguna að þörfum þínum, á hreint ótrúlega lágu verði.