Morgunblaðið - 02.03.1993, Page 21
MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 2. MARZ 1993
21
—
Formaður BSRB á baráttufundi bandalagsins í Bíóborginni
Baráttufundur BSRB
Morgunblaðið/Þorkell
Fundarmenn hlýða á mál Ögmundar Jónassonar, formanns BSRB í Bíóborginni í gær. Fremst á mynd-
inni má meðal annars sjá Sigríði Kristjánsdóttur formann SR og Einar Ólafsson bókavörð.
Samningsstaða næst
með verkfallsvopninu
ÖGMUNDUR Jónasson, formaður BSRB, sagði á baráttufundi banda-
lagsins í Bíóborginni í gær, að til þess að skapa sér stöðu til að fylgja
eftir kröfum sínum þyrfti BSRB að geta gengið til samningaborðsins
með verkfallsvopnið í hönd. Einungis væri um tvo kosti að velja í kom-
andi samningum, og væri hinn sá, að taka því sem viðsemjendur byðu.
Ögmundur sagði kröfugerðina
miðast að því að myndast gæti víð-
tæk samstaða um þær með öðrum
hópum launafólks, og þar væri fyrst
og fremst krafist umbóta í atvinnu-
málum. Þá væri miðað við 5% kaup-
máttaraukningu, er færa myndi
kaupmátt í sama horf og hann hafi
verið við upphaf þjóðarsáttar í janúar
1990. Þessu markmiði mætti ná fram
hvort heldur sem væri með hækkun
launa eða með lækkun tilkostnaðar
launafólks; en skerðing barnabóta
um hálfan milljarð, niðurfærsla
vaxtabóta og skattleysismarka og
hækkun vaxta í félagslega húsnæði-
skerfinu væru dæmi þess gagnstæða.
Barist fyrir lífmu
Í sama streng tók Sigríður Krist-
insdóttir, formaður starfsmannafé-
lags ríkisstofnana. Hún benti á að
atvinnuleysi hefði ekki verið jafnmik-
ið síðan á kreppuárunum, og þá, eins
og nú, hafí verkalýðshreyfingin bar-
ist fyrir lífi sínu. Lea Þórarinsdóttir,
formaður Póstmannafélags íslands,
sagði það eina af meginkröfum að
lækka vexti, og Ragnhildur Guð-
mundsdóttir, formaður Félags ís-
lenskra símamanna, mótmælti
áformum um einkavæðingu ríkis-
stofnana, sem hún sagði að þýddu
ekkert annað en atvinnuleysi. Þá
taldi Arna Jónsdóttir, varaformaður
Fóstrufélags íslands, að aðildarfélög-
um BSRB bæri að standa saman í
komandi samningaviðræðum, og
Einar Ólafsson, bókavörður og félagi
í starfsmannafélagi Reykjavíkur-
borgar, andmælti þeim áróðri sem
hafður hefði verið í frammi gegn
kröfum verkalýðshreyfinganna.
Fyrirtæki við Ingólfstorg senda Borgarráði Reykjavíkur mótmælabréf
Bíllinn má ekki víkja
INGÓLFSTORG og Steindórsplan liggja á teikniborði hjá Borgarskipu-
lagi Reykjavíkur, þar sem gert er ráð fyrir gagngerum skipulagsbreyt-
ingum. Gert er ráð fyrir að Ingólfstorg og Steindórsplan verði sam-
fellt göngu- og útivistarsvæði með tijágróðri og bekkjum, bílaumferð
víki til hliðar. Forráðamenn 30 verslunar- og þjónustufyrirtækja við
Ingólfstorg og í næsta nágrenni óttast þessa breytingu, segja að fram-
tíðarrekstri fyrirtækjanna sé stefnt í voða með því að fækka bílastæð-
um framan við húsin og hafa nú sent Borgarráði Reykjavíkur mótmæla-
bréf.
„Islendingar vilja stoppa beint
framan við verslunardymar. Þeir
koma varia niður í gamla miðbæinn
til að setjast á bekki, allra síst að
vetrarlagi," segir Hermann Jónsson,
úrsmiður í Veltusundi.
Barátta um bílastæði
„Aðalatriðið hjá okkur er að fá
að halda fleiri bílastæðum eða víkj-
andi bílastæðum. Þeir hjá Borgar-
skipulagi segja, að bílastæðum fækki
úr 30 niður í 17. Við viljum halda
því fram að þeim fækki úr 50 í 17,
ef bæði plönin eru tekin inn í. Eins
og veðráttan er í Reykjavík, eiga
þessar breytingar alls ekki heima
Jón Kr. Agústsson
prentari látinn
Jón Kristinn Ágústsson, prentari
og fyrrverandi formaður Hins ís-
lenska prentarafélags, lést í gær 75
ára að aldri. Foreldrar hans voru
Ágúst Jónsson og Þórdís Kristjáns-
dóttir.
Jón hóf nám í Prentstofu Jóns
H. Guðmundssonar árið 1938 og tók
sveinspróf í setningu árið 1943. Að
loknu námi var Jón vélsetjari í Al-
þýðuprentsmiðjunni til ársins 1954.
Þá hóf hann starf sem vélsetjari í
Prentsmiðjunni Odda og starfaði
hann þar fram á áttunda áratuginn
þegar hann gerðist starfsmaður Líf-
eyrissjóðs bókagerðarmanna. Starf-
aði hann hjá lífeyrissjóðnum allt til
ársins 1989.
Jón vann mikið að hagsmunamál-
um prentara og var meðstjórnándi í
Hinu íslenska prentarafélagi á árun-
um 1956-64 og varaformaður félags-
ins 1965-66. Jón var formaður fé-
lagsins frá 1966 til 1971 og aftur
frá 1974-76. Hann var einn af stofn-
endum Prentnemafélagsins í Reykja-
vík árið 1941. Þá átti hann m.a. sæti
í orlofsheimilanefnd og fasteigna-
nefnd HÍP og sat í trúnaðarmanna-
ráði félagsins.
Jón var gerður heiðursfélagi
Prentnemafélagsins árið 1965 og
einnig heiðursfélagi í Hinu íslenska
prentarafélagi árið 1972. Jón sat í
ritnefnd Hestsins okkar, tímarits
Landssambands hestamannafélaga,
og starfaði einnig mikið innan Al-
þýðuflokksins og átti um tíma sæti
í stjórn hans.
Jón kvæntist Halldóru Ólöfu Guð-
héma.“ Hermann segist vera búinn
að skrá veðurfar í Reykjavík undan-
farin 2 ár, sem sýni að 310 daga
ársins sé varla hægt að vera úti,
hvað þá sitja á bekk og sóla sig.
Hermann segir að reikna megi
með ónýtri verslun í sumar vegna
framkvæmda, en þjónustufyrirtæki á
þessum stað megi ekki við slíku.
„Við óttumst um framtíðarrekstur
fyrirtækja okkar, ef þessar skipu-
lagsbreytingar ná fram að ganga,“
segir Hermann.
Módel af fyrirhugaðri skipu-
lagsbreytingu má skoða í Geysishús-
inu.
mundsdóttur árið 1938 en þau skildu.
Eignuðust þau íjögur börn: Sigurð
Grétar, Þóri Ágúst, sem lést skömmu
eftir fæðingu, Þóri Ágúst og Mar-
gréti.
0:
EINSTAKT
INNCÖNGlITILBOÐr
NÚTÍMALEGIR
MATREIÐSLl
KLÍBBLR
Matreiðsluklúbbur Vöku-Helgafells, Nýir eftirlætisréttir,
hittir beint í mark. Þessi nútímalegi klúbbur sendir
félögum mánaðarlega pakka með plasthúðuðum
uppskriftaspjöldum með áhugaverðum mataruppskriftum
og fróðleik um vín. Efnið er svo flokkað í handhæga
möppu og myndar hugmyndabanka fyrir heimilið.
Dagleg símaráðgjöf, matreiðslunámskeið, uppskrifta-
samkeppni, félagakort og margs konar fríðindi.
Engar skuldbindingar!
NýtUi þér ólrúlega hagstætt inngöngulilboð í klúbbinn!
FYRSTI BPPSKRIFTAPAKKIIMV
með 50% afslætti: AÐEINS 298 KR.
Fullt verð pakkans er 595 kr.
SFRII()\M Ð SAFNMAPPA
AÐ GJOF! Áætlað verðmæti 980 kr.
ÓKEYPIS TASKA! "
Ef þú skráir þ
innan 10
Áætlað útsöluverð 1.270
Samtals vcrðmæti
tiiboðs 2.845 kr.
...fyrir aðcins 298 kr.
MÖGULEIKI A ÓKEYPIS
HELGARFERÐ IYKIK
TVO TIL PARÍSAR!
Fyrir alla stofnfélaga
Ferða- og gistikostnaður
metinn á 94.000 kr.
HRINGDF STRAX I DAG!
siMirvrv er
(91) 6 88 300
EÐA SENDE SVARSEÐILINN
JÁ, ÉG VIL GERAST FÉLAGI f MATREIÐSLUKLÖBBIVÖKU-HELGAFELLS
NAFN
HEIMILI
PÓSTSTÖÐ
KENNITALA SÍMI
SENDU SEÐILINN í LOKUÐU UMSLAGI TIL: NÝIR EFTIRLÆTISRÉTTIR,
MATREIDSLUKLÍIBBUR VÖKU-HELGAFELLS, SÍDUMÍILV 6, 108 REYKJAVÍK