Morgunblaðið - 02.03.1993, Page 23
MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 2. MARZ 1993
23
Sprengjutilræðið undir World Trade Centre á Manhattan
Gæti tengst ferð Bills
Clintons til New Jersey
SPRENGJUTILRÆÐI UNDIR WORLD TRADE CENTRE
Öflug sprengja sprakk undir World Trade Centre í New York á
föstudag. Fimm fórust, tveggja er saknað og rúmlega 1.000 voru
fluttir á sjúkrahús, flestir vegna reykeitrunar.
New York. Reuter, The Daily .Telegraph.
SPRENGJUTILRÆÐIÐ undir
World Trade Centre á Manhattan
á föstudag kann að tengjast mis-
heppnaðri tilraun til að myrða
Bill Clinton, forseta Bandaríkj-
anna, sem heimsótti nágrannarík-
ið New Jersey í gær. Sprengjusér-
fræðingar bandarísku alríkislög-
reglunnar FBI hafa staðfest að
sprengju hafi verið komið fyrir í
bílageymslu undir skýjakljúfnum.
Þeir töldu ólíklegt að einhver einn
maður, til að mynda óánægður
starfsmaður í byggingunni, hefði
staðið fyrir sprengjutilræðinu.
„Við göngum ekki út frá því sem
vísu að hér sé um hermdarverka-
starfsemi einhverrar sérstakrar
hreyfíngar að ræða, en þetta er
möguleiki og við ætlum að rannsaka
hann ýtarlega," sagði James Fox,
yfírmaður FBI í New York. „Auk
þess vitum við um eiturlyfjasmyglara
sem eru reiðir út í bandarísku stjórn-
ina,“ bætti hann við og vísaði til
kólombíska eiturlyfjasmyglhringsins
Medellin.
James Fox sagði að líklega hefði
sendibíl eða fólksbifreið með allt að
680 kg af dýnamíti verið ekið inn í
bílageymsluna. Ekkert benti til þess
að plastsprengja, sem hermdarverka-
samtök beita oft, hafi verið notuð í
tilræðinu.
55 lýstu tilræðinu á hendur sér
Raymond Kelly, lögreglustjóri
New York-borgar, sagði að alls hefðu
55 manns hringt í lögregluna til að
lýsa verknaðinum á hendur sér. Enn
þykir þó líklegast að serbneskir þjóð-
ernissinnar hafí staðið fyrir sprengj-
utilræðinu. Óþekktur maður með
útlendan hreim hringdi í lögregluna
77 mínútum eftir sprengjutilræðið
og sagði að hreyfíng sem nefndist
Serbneska frelsisfylkingin hefði verið
að verki. Lögregluyfírvöld sögðu að
maðurinn hefði verið fyrstur til að
hringja í lögregluna og hann hefði
lýst því rétt hvar sprengjunni var
komið fyrir.
Radovan Karadzic, leiðtogi Serba
O Kl.17.18 á föstudag
Sprenging í bílageymslu
neðanjarðar. Rafmagns-
laust verður, símasamband
rofnar og eldvamarkerfi
óvirkt.
0 Steinsteypt gólf og veggir
hrynja niður á lestastöð.
0 Svartur reykjarmökkur
breiðist út um neyðarút-
ganga og lyftustokka.
O Þyrlur bjarga 28 manns
úr turnunum
0 200 böm, 5 ára, voru á
skoðunarferð þegar
sprengjan sprakk. 70 lokaðir
inni í lyftum í fimm tíma.
0 Tíu illa á sig komnir fundust
meðvitundarlausir í lyftu
nokkrum klukkustundum
eftir sprengjutilræðið.
Fullvíst talið að allt að 680 kg
af dýnamíti hafi verið komið
fyrir í bifreið í bílageymslunni.
World Trade Centre
Húsaþyrping með sjö byggingar.
í Bosníu, vísaði slíkum vangaveltum
á bug á sunnudag. „Það þarf heimsk-
ingja til að draga þá ályktun,“ sagði
hann.
Stjóm Bills Clintons veitti
Karadzic vegabréfsáritun til að taka
þátt í friðarviðræðum í höfuðstöðvum
Sameinuðu þjóðanna í New York í
gær. Gífurlegur öryggisviðbúnaður
er við bygginguna vegna viðræðn-
anna.
Bandaríkjastjórn hefur fordæmt
Karadzic sem stríðsglæpamann og
veitti honum aðeins leyfi til að halda
sig í höfuðstöðvum Sameinuðu þjóð-
anna og næsta nágrenni þeirra.
Karadzic lagði stund á bókmennta-
nám við Columbia-háskóla á sínum
yngri árum.
Verðir forsetans áttu bíla í
byggingunni
Um 100 bílar í eigu leyniþjón-
ustunnar, sem vemdar Bandaríkja-
forseta, voru geymdir í bílageymsl-
unni og hermt er að margir þeirra
hafi eyðilagst í sprengingunni. Bill
Clinton heimsótti í gær Rutgers-
háskóla í New Jersey, sem er um
65 km frá Manhattan. Fyrirhugað
hafði verið að bílum leyniþjónustunn-
ar yrði ekið til flugvallarins í New
Jersey til að taka á móti forsetanum.
Þeirri kenningu hefur verið varpað
fram að sprengju hafí verið komið
fyrir í einni af bifreiðum leyniþjón-
ustunnar og hún átt að springa þeg-
ar bílalest forsetans æki frá flugvell-
inum.
Lokað í viku
Stærstur hluti World Trade Centre
verður lokaður í að minnsta kosti
viku vegna sprengingarinnar og set-
ur það fjármálalífið á Manhattan úr
skorðum. World Trade Centre er
langstærsti vinnustaðurinn í fjár-
málahverfinu og sprengjutilræðið
hefur valdið ringulreið innan margra
stórra fyrirtækja. Japanskt verð-
bréfafyrirtæki tapar til að mynda
13,5 milljónum dala, jafnvirði 880
milljóna króna, hvern dag sem bygg-
ingin er lokuð.
Bílamarkaburinn
Smiðjuvegi 46E
v/Reykjanesbraut.
Kopavogi, simi
B71800
Subaru 1800i GL station '87, blásans.,
sjálfsk., ek. 110 þ. Rafm. í rúðum o.fl.
Gott eintak. V. 690 þ. stgr.
1 rHME20L
Subaru Legacy 1800 station '90. silfurgr-
ár, sjálfsk., ek. aöeins 45 þ. Toppeintak.
V. 1.280 þ. stgr.
..
•/ 1
ir
Range Rover 4 dyra '85, hvitur, 5 g., ek
aðeins 86 þ. V. 1.150 þ. Sk. ódýrari.
Daihatsu Feroza SX 4x4 '91, 5 g., ek; 11
þ. Veltigrind o.fl. V. 1.180 þ.
MMC Lancer GLXi 4x4 hlaðbakur '91,
vínrauður, 5 g., ek. 18 þ., ramf. í öllu,
þjóv.kerfi, fjarst.læsingar o.fl. V. 1.130 þ.
Bein sala. Sk. ódýrari.
Peugout 309 GL Profile '91,5 dyra, rauð-
ur, 5 g. Gott ástand. V. 595 þús. stgr.
Toyota Corolla XL 1.6 Liftback '91, 5
dyra, 5 g., ek. aðeins 20 þ. V. 960 þ. Sk. ód.
Lada Sport '84, ek. 95 þ. V. 95 þ.
Opel Kadett 1300 LS 5 dyra ’85, gott
útlit, nýl. uppt. vól. V. 260 þ.
Peugout 405 Ml 1600 '88, 5 g., ek. að-
eins 40 þ. 1900 vél. Ýmsir aukahl. V. 980 þ.
Toyota 4 runner V-6 '91, sjálfsk., ek. 22
þ. Einn m/öllu. V. 2,4 millj.
Toyota Hilux P-up 2WD ’85, 5 g., ek; 83
þ. V. 450 þ.
Honda Civic GTi-16 V ’88, 5 g., ek. 95
þ. Sóllúga o.fl. V. 690 þ. stgr.
Ford Bronco 8 cyl. (302) ’74, sjálfsk.
mikið endurnýjaður. Gott ástand. V. 480
þ. Góð lán.
Ford Econoline Club Wagon XLT 7.3 die-
sel 4x4 ’90, 12 manna. Sjálfsk., ekr 72
þ., 6 tonna spil, loftlæsingar, rafm. i rúðum
o.fl. V. 3.2 millj., sk. á ód.
MMC Lancer GLX '91, rauður, 5 g., ek.
40 þ. V. 840 þ. Sk. ód.
Toyota Corolla XL 3 dyra ’91, rauður, 5
g., ek. 25 þ. V. 820 þ.
Subaru Justy J-10 4x4 ’85, hvítur, ný yfir-
farinn. V. 230 þ. stgr.
Lancia Y-10 '87, 3ja dyra, ek. aðeins 47
þ. V. 160 þ. stgr.
Tilbob í ríkisvíxla fer fram
mibvikudaginn 3. mars
Á morgun fer fram tilboö í ríkisvíxla. Um er að ræða
5. fl. 1993 í eftirfarandi verðgildum:
Kr. 1.000.000 Kr. 50.000.000
Kr. 10.000.000 Kr. 100.000.000
Ríkisvíxlarnir eru til þriggja mánaða með gjalddaga
4. júní 1993. Þessi flokkur verður skráður á Verðbréfa-
þingi íslands og er Seðlabanki íslands viðskiptavaki
ríkisvíxlanna.
Ríkisvíxlarnir verða seldir með tilboðsfyrirkomulagi.
Lágmarkstilboð samkvæmt tilteknu tilboðsverði er
5 millj. kr. og lágmarkstilboð í meðalverð samþykktra
tilboða er 1 millj. kr.
Löggiltum verðbréfafyrirtækjum, verðbréfamiðlurum,
bönkum og sparisjóðum gefst einum kostur á að gera
tilboð í ríkisvíxlana samkvæmt tilteknu tilboðsverði.
Athygli er vakin á því ab 5. mars nk. er gjalddagi á tveimur
flokkum ríkisvíxla, þ.e. 3. og 5. fl. 1992 sem gefnir voru út
4. og 30. desember 1992.
Aðrir sem óska eftir að gera tilboð í ríkisvíxla eru
hvattir til aö hafa samband við framangreinda
aðila, sem munu annast tilboðsgerð fyrir þá og
veita nánari upplýsingar. Jafnframt er þeim sjálfum
heimilt að bjóða í vegið meðalverð samþykktra
tilboða (meðalávöxtun vegin með fjárhæð).
Öll tilboð í ríkisvíxlana þurfa að hafa borist
Lánasýslu ríkisins fyrir kl. 14, miðvikudaginn
3. mars. Tilboðsgögn og allar nánari upplýsingar
eru veittar hjá Lánasýslu ríkisins, Hverfisgötu 6,
í síma 62 60 40.
LÁNASÝSLA RÍKISINS
Hverfisgötu 6, 2. hæö, 150 Reykjavík, sími 91-62 60 40.
GOTT FÓLK / SÍA