Morgunblaðið - 02.03.1993, Blaðsíða 30

Morgunblaðið - 02.03.1993, Blaðsíða 30
30 MORGUNBLAÐIÐ VIÐSKIPTI/flTVINNULÍF ÞRIÐJUDAGUR 2. MARZ 1993 Greiðslumiðlun Hagnaður Visa íslands um 124 milljónir KORTAVIÐSKIPTI með Visa-greiðslukort námu alls um 40,4 milljörð- um króna á sl. ári og jukust um 4,7 milljarða frá árinu áður eða 13,1%. Hagnaður af reglulegri starfsemi nam alls um 124,2 milljónum saman- borið við 64,9 milljónir árið áður. Eigið fé í árslok var um 530,2 milljónir. Aðalfundur Visa íslands var hald- inn föstudaginn 19. febrúar sl. Jó- hann Ágústsson, stjórnarformaður flutti skýrslu stjómar og kom fram að árið 1992 hafi verið fyrirtækinu hagstætt. Um þessar mundir eru lið- in 10 ár frá stofnun fyrirtækisins. Visakort eru nú á yfír 80% heimila í landinu og 60% allra landsmanna á aldrinum 18-67 ára eru korthafar Visa. Korthafar í árslok voru alls 95.204 talsins og hafði þeim fjölgað um 4.500 umfram það sem þeim hafði fækkað vegna uppsagna og kortsviftinga. Gullkort eru tæplega 12 þúsund talsins og fjölgaði um tæplega 3 þúsund. Farkort eru um 11 þúsund og ijölgaði um 1.500. Af heildarviðskiptum með kort námu viðskipti innanlands 34,6 millj- örðum en erlendis 5,8 milljörðum. í innlendum viðskiptum jukust boð- greiðslur mest eða um 28,5% og námu alls 3,8 milljörðum. Rað- greiðslur námu 2,7 milljörðum og jukust um 14%. Erlendir ferðamenn notuðu Visakort sín hérlendis1 fyrir 1,1 milljarð sem er hækkun um tæplega 100 milljónir. Færslufjöldi. jókst jafnt og þétt um tæplega 100 þúsund færslur á mánuði og námu greiðslur alls 11,4 milljónum. Rafræn viðskipti hafa aukist mjög og fara nú um 70% allra færslna fram á þann veg. Af þess- ari ástæðu hefur kortafals stórm- innkað og nam einungis um 1 millj- ón króna en til samanburðar má nefna að tékkafals nam álls um 30 milljónum. Þá töpuðu 2.500 manns korti sínu á árinu en tilkynnt var um 466 stolin kort. Stjóm Visa var endurkjörin á að- alfundinum en hana skipa þeir Jó- hann Ágústsson, aðstoðarbanka- stjóri Landsbankans, formaður, Sól- on R. Sigurðsson, bankastjóri Bún- aðarbanka íslands, varaformaður, Sigurður Hafstein, framkvæmda- stjóri hjá Sambandi íslenskra spari- sjóða, ritari^ og Björn Björnsson, bankastjóri íslandsbanka hf. með- stjórnandi. Hinir þrír fyrsttöldu hafa verið í stjórn fyrirtækisins frá upp- hafi en framkvæmdastjóri frá sama tíma hefur verið Einar S. Einarsson. Ferðaþjónusta BORGARSTJORAR ■— Þrír borgarstjórar voru á ísland- skynningunni í Hollandi. Á myndinni eru f.v. Val Dulst, borgarstjóri Haarlemmermeer Schiphol, Markús Örn Antonsson, borgarstjóri Reykjavíkur og Ed van Thijn, borgarstjóri Amsterdam. Flugleiðir með íslands- kynningu íHollandi Búist við að hollenskum ferðamönnum fjölgi í kjölfar umræðu um lagningu sæstrengs milli landanna HOLLENDINGAR hafa sýnt vax- andi áhuga á íslandi í kjölfar umfjöllunar hollenskra fjölmiðla um möguleika á því að leggja raforkusæstreng milli landanna. Fyrirtæki Iðnlánasjóður jók útlán til fjár- festinga um þriðjung í fyrra HAGNAÐUR Iðnlánasjóðs á sl. ári var alls um 56,7 milljónir króna eftir skatta, afskriftir og framlag til afskriftarreiknings útlána sam- anborið við 124 milljóna hagnað árið 1991. Hins vegar þarf að taka tillit til þess að árið 1992 er fyrsta árið sem sjóðurinn er skattskyldur og nam skattur og ábyrgðargjald til ríkisins 62,2 milljónum. Ennfrem- ur þurfti að færa niður eignarhlut í öðrum félögum um 30 milljónir vegna lækkunar á gengi hlutabréfanna og er það fært sem gjöld í rekstrarreikningi. Þá var framlag í afskriftarreikning aukið á sl. ári og nam alls um 438,8 milljónum. Stendur afskriftarreikningurinn þá í 623,7 milljónum sem er um 4,8% af heildarútlánum. Beinar afskriftir námu 372,7 milljónum. Rekstrartekjur Iðnlánasjóðs voru alls 2.322 milljónir á árinu 1992 og fjármagnsgjöld 1.632 milljónir. Fjár- festingarlánadeild er langstærsta deild sjóðsins með útistandandi útlán samtals að fjárhæð 12.734 milljónir í árslok 1992. Útlán á sl. ári námu 2.359 milljónum en 1.801 milljón árið áður sem er um 31% aukning. Lánsbeiðnir voru samtals 4.297 millj- ónir á áriny sem er um 43% aukning milli ára. Samþykkt lán og styrkir frá vöru- þróunar- og markaðsdeild námu alls verkfræðingar: Samvinna - sameining? Umræðufundur 3. mars 1993 kl. 20.00. Aukin samvinna og jafnvel sameining Verkfræð- ingafélagsins og Tæknifræðingaféiagsins hefur verið til umræðu undanfariö og gefst nú félags- mönnum færi á að skiptast á skoðunum á fundi sem haldinn verður kl. 20.00 miðvikudaginn 3. mars í bídsal Hótels Loftleíða. Framsögumenn verða: Eírikur Þorbjörnsson, formaður Tæknifræðingafélagsins og Guðmundur G. Þórarinsson, varaformaður Verkfræðíngafélagsins. Vffill Oddsson, formaður Verkfræðingafélagsins, opnar fundinn. Fundarstjóri verður Þorsteinn Þorsteinsson. Eftir framsöguerindi verður orðið gefið laust og eru féiagsmenn eindregið hvattir til að mæta og láta skoðanir sínar á þessu mikilvæga máli í Ijós. 9 151 milljón en útlán í árslok námu alls 239 milljónum. Var eftirspurn eftir lánum svipuð og árið áður. Iðnl- ánasjóður tekur þátt í ýmsum sam- starfsverkefnum aðallega með Veit- ingu styrkja og taka alls 62 fyrir- tæki þátt í þeim. Innborgað iðnlána- sjóðsgjald til Vöruþróunar- og mark- aðsdeildar nam 118 milljónum. Hins vegar voru framlög og niðurfelld útlán og hlutabréf 102 milljónir og rekstrarkostnaður 16 milljónir eða sama fjárhæð og iðnlánasjóðsgjaldið. Endanlegar afskriftir deildarinnar námu 29,5 milljónum. Lántökur Iðnlánasjóðs námu alls 1.723 milljónum árið 1992 en þar af voru 1.450 milljónir hjá erlendum bönkum og 275 milljónir innanlands. Alls nema tekin lán sjóðsins 11.322 milljónum. Niðurstöðutala efnahags- reiknings er 14.750 milljónir í árslok og eigið fé 3.175 milljónir eða 21,5% af niðurstöðutölu efnahagsreiknings. Af því tilefni stóð Flugleiðaskrif- stofan í Amsterdam nýverið fyrir nokkura daga vöru- og ferða- kynningu á Holiday Inn Crown Plaza hótelinu í Amsterdam. Með- an á kynningunni stóð hélt borg- arstjórinn í Reykjavík, Markús Orn Antonsson, tvö erindi um ferðamál, samskipti landanna og íslenska viðskiptahagsmuni. Nokkur ísiensk og hollensk fyrir- tæki tóku þátt ýsýningunni en með- al þeirra voru SÍF, Islenskar sjávar- afurðir hf., íslensk matvæli hf., Menja hf., Gosan hf., Sól hf., Viking Brugg og belgíska fyrirtækið Salm- on Superior Express í Ostende. Þá voru einnig kynningarbásar fyrir ýmis smærri fyrirtæki sem bjóða ullarvörur, fiskafurðir og aðrar ís- lenskar útflutningsvörur. Emil Guðmundsson, sölustjóri Flugleiða í Hollandi, segir kynning- una hafa tekist mjög vel og hún hafi vakið talsverðan áhuga ferða- frömuða og fjölmiðla. Vaxandi áhugi sé á íslandi og öliu íslensku í Hol- landi í kjölfar umræðunnar um raf- orkuútflutninginn. Kveðst hann bú- ast við að hollenskum ferðamönnum fjölgi hér þegar á þessu ári. Meðal íslendinga sem þátt tóku í landkynningunni yoru Helgi Ágústs- son, sendiherra íslands í Hollandi, Unnur Arngrímsdóttir, sem sá um sýningu á íslenskum fatnaði og matreiðslumeistararnir Hilmar B. Jónsson, Sigurður Hall og Ólafur Jónsson. Þrír ungir íslendingar sem I M P E X Sterkt • auðvelt • fljótlegt Hillukerfi sem allir geta sett saman mm í 1 ■Di 1 55 1 PBIffll —.—- 0DEXION SINDRI -sterkur í verki BORGARTÚNI 31 • SÍMI 62 72 22 eru við nám í Hollandi tóku þátt í kynningardagskránni, þ.e. Daníel Þorsteinsson, píanóleikari, Ingunn Ósk Sturludóttir, sem er að læra óperusöng og Helga Laufey Finn- bogadóttir, píanóleikari. Mí HOIMIMUIMARDAG- URINN — Veggspjald Hönnunardagsins var hannað af Kristínu Þorkelsdóttur, teikn- ara FÍT. Iðnaður Metþátt- taka íHönn- unardegi FORM ísland, félag áhugamanna um hönnun, mun ásamt húsgagna- og innréttingaframleiðendum gangast fyrir Hönnunardegi 4. mars nk., en slíkur dagur var haldinn í fyrsta skipti hér á landi árið 1988. Hönnunardagurinn byggist á sam- vinnu framleiðenda og seljenda með íslenskar hönnunarvörur þar sem fyrirtækin opna sýningarsali sína og kynna nýja hönnun og framleiðslu. Tilgangurinn er fyrst og fremst að ná saman fagmönnun í hönnum og öðrum sem annast val og innkaup á búnaði þar sem gæði hönnunar skipta miklu máli. Þá er markmiðið að vekja athygli á því sem vel er gert. í fréttatilkynningunni segir að metþátttaka í Hönnunardeginum sýni vilja framleiðenda til átaks á markaðnum í samkeppni við inn- flutning erlendrar hönnunar. Jón Sigurðsson, iðnaðarráðherra, afhendir viðurkenningu í móttöku sem hefst kl. 18.00 á Kjarvalsstöðum fyrir áhugaverðustu nýjungina á ár- inu. Verðlaunin eru 250 þúsund krónur sem iögð eru til af Iðnlána- sjóð og Iðnþróunarsjóð.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.