Morgunblaðið - 02.03.1993, Side 32
32
MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 2. MARZ 1993
Vetrarmót og aðalfundur hjá Fáki
Heildarskuldir
yfir 20 milljónir
_________Hestar____________
Valdimar Kristinsson
Heldur hefur skuldastaða Hesta-
mannafélagsins Fáks lagast á síð-
asta reikningsári sem er frá 1.
nóvember til 31. október þótt vart
sé hægt að segja að hún sé góð.
Heildarskuldir félagsins eru nú
rétt rúmar 22 milljónir króna sem
skiptast þannig að skammtíma-
skuldir eru tæplega 21 miljjón
króna en langtímaskuldir eru um
ein og hálf milljón króna. Heildar-
skuldir voru um 29 miiyónir. Þetta
kom fram í reikningum félagsins
sem lagðir voru fram á aðalfund-
inum sem haldinn var í síðustu
viku.
Munar mestu um sölu á jörðinni
Ragnheiðarstöðum og hesthúsum við
Bústaðaveg til Reykjavikurborgar.
Söluverð Ragnheiðarstaða var 11.5
milljónir og hesthússins 14 milljónir
króna. Athygli vakti að aðeins hefur
tekist að innheimta tæpan þriðjung
félagsgjalda og eru útistandi rúmar
tvær milljónir. Þá voru heimtur
vegna firmakeppninnar einnig slæm-
ar en hún skilaði aðeins tæpum 400
þúsund króna sem er tæpur helming-
ur af því sem inn kom árið áður. Þá
vekur athygli að þrátt fyrir endur-
skipulagningu á rekstri félagsins er
það rekið með tapi upp á sjöundu
milljón króna. í því sambandi er rétt
að geta þess að gerð var mikil and-
litslyfting á félagssvæðinu á síðasta
ári vegna afmælismótsins og Íslands-
mótinu sem haldin voru á árinu. Er
fákssvæðið orðið mjög glæsilegt eftir
þessar þörfu nýframkvæmdir og við-
hald. Reikningamir voru samþykktir
samhljóða
Stjórnarkosningar voru nokkuð
spennandi þegar kom að kjöri með-
stjómarmanns en Geir Þorsteinsson
sem gegnt hafði stöðu gjaldkera gaf
ekki kost á sér til endurkjörs. Viðar
Halldórsson sem var endurkjörinn
formaður með lófaklappi stakk upp
á Guðbjörgu Egilsdóttir sem verið
hefur gjaldkeri íþróttadeildar Fáks
en fyrrverandi formaður Birgir Rafn
Gunnarsson stakk upp á Valgerði
Gísladóttur sem setið hafði í vara-
stjórn. Valgerður hafði betur með
55 atkvæðum gegn 52. Af þessum
sökum tilkynnti Kristján Auðunsson
varaformaður að hann gæfi ekki
kost á sér til endurkjörs en skorað
var á hann að endurskoða afstöðu
sína en Kristján sat við sinn keip.
Var þá stungið upp á Guðbjörgu
Egilsdóttur utan úr sal en hún gaf
ekki kost á sér. Kom þá fram uppá-
stunga frá formanni um Jóhönnu
Arngrínmsdóttur sem setið hafði í
varastjóm og var hún kjörin með
lófaklappi. Illa gekk að fínna tvo
kandídata í stöðu varamanna en
stungið var upp miklum fjölda manna
en enginn gaf kost á sér fyrr en
þeir Sveinn Fjeldsted og Bragi Ás-
geirsson létu til leiðast og vom þeir
kjömir með lófaklappi.
Um helgina héldu Fáksmenn sitt
fyrsta vetrarmót þar sem keppt var
í tölti. Börn og unglingar voru í sama
flokki og ungmenni og fullorðnir
saman. Einnig var keppt í 150 metra
skeiði. Þátttaka var all þokkaleg og
tímar í skeiðinu bærilegir. En úrslit
urðu sem hér segir:
Tölt barna og unglinga
1. Saga Steinþórsdóttir á Heru frá
Hraðastöðum.
2. Rannveig Kristjánsdóttir á Erli frá
WHAEÞAUGL YSINGAR
Fiskvinnslufólk
Starfsfólk, vant snyrtingu, óskast til starfa
hjá frystihúsi KEA í Hrísey.
Nánari upplýsingar gefur verkstjóri
í síma 96-61710.
Umboðsaðilar
á landsbyggðinni
Við leitum að aðilum, sem hafa áhuga á því
að selja og kynna í sinni heimabyggð góðar
vörur, sem ekki eiga sér hliðstæðu á mark-
aðnum.
Sérstakt tækifæri til þess að skapa sér um-
talsverðar aukatekjur.
Upplýsingar veittar í síma 91-676869 frá
mánudegi til föstudags.
Alþjóða verslunarfélagið hf.,
Fákafeni 11, 108 Reykjavík.
Aðalfundur
Þróunarfélagsins
Þróunarfélag íslands hf. heldur aðalfund sinn
þriðjudaginn 9. mars nk. kl. 12.00. Fundurinn
verður haldinn á Hótel Sögu í Skála á 2. hæð.
Dagskrá samkvæmt félagssamþykktum.
Stjórn félagsins.
Fræðslufundur í Kársnessókn
Lífskjör eldri kvenna
á Norðurlöndum
2. fræðslufundur Kársnessóknar á þess-
um vetri verður í Borgum, Kastalagerði 7,
miðvikudagskvöldið 3. mars kl. 20.30.
Sigríður Jónsdóttir, félagsfræðingur, segirfrá
samnorrænni rannsókn á lífskjörum gamalla
kvenna á Norðurlöndum.
Allir velkomnir.
Fræðslunefnd Kársnessóknar.
SJÁLFSTflEÐISFLOKKURINN
I- í I. A (i S S T A R F
Laugardagsfundur með
Þorsteini Pálssyni
Næsti laugardagsfundur með ráðherra
verður næstkomandi laugardag, 6. mars,
milli kl. 10-12 í kjallara Valhallar.
Þorsteinn Pálsson, sjávarútvegs- og dóms-
málaráðherra, verður gestur fundarins.
Að lokinni framsögu ráðherrans verða
fyrirspurnir og umræður.
Athugið að fundurinn hefst stundvíslega
kl. 10 og verður slitið á hádegi.
Vörður, Hvöt, Óðinn og Heimdallur.
í hvað fara tekjur
Reykjavíkurborgar?
Hvöt, félag sjálfstæðiskvenna í Reykjavík,
heldur opinn félagsfund um borgarmál í
Valhöll, Háaleitisbraut 1, nk. miðvikudag
kl. 17.00.
Frummælandi:
Július Hafstein, borgarfulltrúi.
Umræður og fyrirspurnir.
Fundurinn er öllum opinn.
Stjórn Hvatar.
2ja herb. íbúð til leigu
Mjög góð 2ja herb. íbúð á 2. hæð í fjölbýli
ásamt bílskýli til leigu. Laus strax.
Tilboð sendist auglýsingadeild Mbl. fyrir
6. mars merkt: „Fjölbýli - 8264“.
Skrifstofu-, verslunar-
og lagerhúsnæði
Til leigu 288 fm skrifstofu- og lagerhúsnæði
á 1. hæð í nágrenni við tvo stórmarkaði.
Verslunarhúsnæðið er með stórum gluggum
og parketlagt. Lagerhúsnæðið er með stór-
um og góðum innkeyrsludyrum. Lóð er
fullfrágengin með góðum bílastæðum.
Ef áhugi er fyrir frekari upplýsingum vinsam-
legast hafið samband við Ómar Friðþjófsson
í síma 671717.
Enskunám
Er ekki rétt að bæta við enskukunnáttuna?
Skólinn, English 2000, School of English, í
Bournemouth, býður þig velkominn til náms.
Upplýsingar gefur Páll G. Björnsson,
sími 98-75888, heimasími 98-75889.
Jóga fyrir eldri borgara.
Kennt á mánudögum og fimmtu-
dögum kl. 10.
Kennari: Hulda Sigurðardóttir.
Upplýsingar gefur Hulda í síma
675610 eftir kl. 19.
Jógastöðin Heimsljós.
Bæn og trúarlff
ADKFUK
Holtavegi
Hr. Sigurbjörn Einarsson, biskup,
hefur biblíulestur, síðari hluti.
Allar konur velkomnar.
Spíritistafélag íslands
Skyggnilýsingafundur
með breska miölinum Dennis
Burn’s verður 4. mars á Smiðju-
vegi 13a, kl. 21.00 (Kiwanishúsið).
Húsið verður opnað kl. 20.00.
Aðgangur ókeypis meðan hús-
rúm leyfir. Kaffi selt á staðnum.
Stjórnin.
□ HLfN 5993030219IVA/2 Frl.
□ HAMAR 5991030219 I Frl.
I.O.O.F. Rb. 4 = 142328-Lh.
□ EDDA 5993030219 I 1 Frl.
Spíritistafélag íslands
Miðlarnir Dennis Burn’s og Anna
Carla munu starfa hjá félaginu
með einkatíma. Dennis verður
með nýjung: 15-20 manna
skyggnilýsingafundi. Allirfá lest-
ur. Tímapantanir í síma 40734
frá kl. 10.00-22.00 aila daga.
Reykjavíkurmeistaramót
í 3x 10 km skíðaboðgöngu fer
fram í Bláfjöllum nk. laugardag,
6. mars, kl. 14. Bækistöð er í
gamla Breiðabliksskálanum.
Skráning í slma 12371 fyrir kl.
18 föstudaginn 5. mars.
Ef veður er óhagstætt, kemur
tilkynning i Ríkisútvarpinu kl. 10
keppnisdaginn.
Stjórn Skíðafélags
Reykjavíkur.
O EDDA 5993030919 II
□ FJÖLNIR 5993030219 III
□ Sindri 599303027 - I
UTIVIST
Hallveigarstíg 1 »sinii 614330,
Helgarferðir 5.-7. mars:
1. Tindfjöll á fullu tungli.
Farið í göngur um Tindfjallajökul
og á Ými (1462). Gist verður (
neðsta skála. Fararstjóri: Egill
Einarssson. Örfá sæti laus.
2. Básar við Þórsmörk.
Þórsmörkin og Goöalandiö í
vetrarskrúða. Gönguferðir við
flestra hæfi. Upplagt að taka
gönguskíðin með. Gist í vel út-
búnum skálum Útivistar.
Fararstjóri: Björn Finnsson.
Nánari upplýsingar og miðasala
á skrifstofu Útivistar, opið frá
kl. 12-17.
Útivist.
FERÐAFELAG
® ÍSLANDS
MÖRKINNI 6 ■ SÍMI 68253?
Miðvikudagur 3. mars
kl. 20.30:
Myndakvöld
Ferðafélagsins
í Sóknarsalnum Skipholti 50a.
Fjölbreytt myndefni. Fyrir hlé
munu þau Árni Tryggvason og
Ebba Salvör Diðriksdóttir sýna
myndir úr ferðum víða að, m.a.
frá jöklaferðum, bakpokaferð-
um t.d. „Laugar - Þórsmörk",
vetrarútilegum, isklifri og
hestaferð. Eftir hlé sýnir Bolli
Kjartansson frá Ferðafélags-
ferðum til Suður-Grænlands
(Eystribyggðar), aðallega ferð-
inni síðastliðið sumar. Spenn-
andi myndasýning sem óhætt
er að mæla með. Góðar kaffiveit-
ingar í hléi. Verð 500,- kr. (kaffi
og meðlæti innifalið). Allir vel-
komnir, félagar sem aðrir. Tilval-
ið að ganga í Ferðafélagið.
Helgarferð á Snæfellsnes og
Snæfellsjökul um næstu helgi
5.-7. mars.
Fjölmennið á vetrarfagnaðinn á
Flúðum 20.-21. mars. Upplýs-
ingar og farmiðar á skrifstofunni.
Ferðafélag Islands,
félag allra landsmanna!