Morgunblaðið - 07.03.1993, Síða 33

Morgunblaðið - 07.03.1993, Síða 33
MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 7. MARZ 1993 33 sér umskipta í átt til meira frelsis. Stúdentar voru þar fremstir í flokki og fóru þess á leit við hinn nýja konung að hann veitti Danmörku nýja stjórnarskrá, áþekka þeirri sem hann hafði veitt Noregi 1914. Krist- ján konungur VIII var um flest ólík- ur fýrirrennara sínum. Hann var glæsimenni, unnandi fagurra lista og bar ægishjálm yfir þá sem setið höfðu á konungsstóli í Danmörku á síðustu mannsöldrum. Það urðu því mörgum vonbrigði að konungur tók dauflega í óskir þegnanna. íslending- ar í Kaupmannahöfn efndu til funda- halda í tilefni af konungsskiptunum. A fundi sem haldinn var 11. desem- ber 1939 var samið ávarp til kon- ungs þar sem m.a. var borin fram ósk um að skynsamir Islendingar kæmu saman í landinu sjálfu til að ráðgast um málefni þjóðarinnar. Fimm manna sendinefnd gekk fyrir konung sem tók máli þeirra vinsam- lega.“ KÓNGUR VILDISÉRSTAKT ÞING „Á meðan þessu fór fram meðal íslendinga í Kaupmannahöfn urðu bréfaskipti milli rentukammers og kansellís um hvemig vali fulltrúa íslands yrði haganlegast komið fyrir og varð niðurstaðan hin sama og hjá embættismannasamkomunni að láta allt standa óbreytt. Þessi tillaga var lögð fyrir konung og þá gerðist það merkilega, að í stað þess að sam- þykkja tillöguna, mælti hann svo fyrir að komið yrði á fót sérstöku þingi á íslandi og benti á hvort ekki væri réttast að gefa því heitið alþing og halda það á Þingvelli eins og al- þingi hið foma. Það heyrði til undan- tekninga að konungur gengi á móti | tillögum stjómardeilda sinna. Hins vegar hafði hann látið í ljós þá skoð- un að Islendingum bæri að hafa sitt | eigið þing. Eins og vænta mátti vakti boðskapur konungs mikinn fögnuð meðal Islendinga í Kaupmannahöfn. i Sendinefnd gekk á fund hans til að ' færa honum þakkir. Hann tók henni ljúfmannlega og óskaði þess að ís- lendingum mætti auðnast að færa sér úrskurðinn sem best í nyt. Af þessu tilefni orti Jónas Hallgrimsson kvæðið Alþing hið nýja, fegursta þakklætivottinn sem konungur hlaut frá íslensku þjóðinni.“ Embættismannasamkoman kom að nýju saman í Reykjavík 5. júlí 1841. Alþingismálið var tekið fýrir á fyrsta fundi hennar og nefnd Iqor- in til að fjalla um skipulag hins vænt- anlega þings. Er skemmst frá að segja að skipulag hins nýja þings var sniðið eftir dönsku stéttaþingunum eins og unnt var. Verulegur ágrein- i ingur varð um þingstaðinn. Flestir '3 vildu halda þingið í Reykjavík, en Bjarni Thorarensen og einn nefndar- maður til vildu hafa það á Þingvöllum og einn stakk upp á Bessastöðum. Niðurstöður embættismannasam- komunnar voru sendar konungi og stjórnarráðum hans, en þar áttu þær eftir að fara gegnum margskonar hindranir áður en endanleg niður- staða fékkst, sem ekki er rúm til að rekja hér þótt fróðlegt sé. En Alþing- ismálið var lagt fyrir Hróarskeldu- þing sumarið 1842. íslendingar í Kaupmannahöfn fylgdust af áhuga með því sem fram fór í Hróarskeldu, efndu til fundahalda og fóru með áskoranir þangað, m.a. um að al- þingi yrði háð í heyranda hljóði og þingstörf færu fram á íslensku. Var Biynjólfur Pétursson þar dijúgur áróðursmaður. Svo og Jón Sigurðs- son. Til að gera langa sögu stutta, þá var greinargerð frá kansellíinu, sem miðaði öll að því að andæfa breyting- artillögum frá íslendingum, að lokum tekin fyrir á fundi í ríkisráðinu til afgreiðslu ásamt alþingismálinu í heild. Ekki er vitað hvaða orð féllu þar. Hins vegar skrifaði konungur við greinargerð kansellísins um bæn- arskrá Hafnar-íslendinga 25. febr- úar 1843, að málið væri útkljáð. Danski textinn hljóðar á þessa leið: „Denne sag ansee vi som afgjort ved vor alh. Resol. af Dags Dato paa vort Cancellies Hovedforestilling angaanede det islandske Alting./Kb- havn 8 Marts 1843./CR." Sama dag birtist úrskurður konungs í alþingis- málinu þar sem frumvarp embættis- mannasamkomunnar var samþykkt lítið breytt. Þessi málalok urðu Hafnar-íslend- ingum mikil vonbrigði. Brynjólfur Pétursson skrifaði Jóni bróður sínum fréttirnar og sagði: „Lítið kom út af öllum tilraunum okkar íslendinga með alþingismálið ... og komið nærri orðrétt frá nefndinni í Reykja- vík, en á hinn bóginn hefir maður þó við þetta komið hreyfingu á hjá þjóðinni ...“ Jón Sigurðsson var heldur ekki ánægður með skipan al- þingis, en hann tók lítinn þátt í nöldr- inu. Hann vildi að sjálfsögðu breyta alþingi og það átti þjóðin sjálf að gera. Hann hugsaði sér það sem eins- konar þjóðskóla landsmanna til að venja þá á að hugsa og tala með greind og þekkingu um málefni þau sem alla varða. Alþingi var nú skipað 26 alþingis- mönnum, 20 þjóðkjömum þingmönn- um, einum úr hveiju kjördæmi. Kon- ungur skipaði auk þess sex þing- menn, tvo andlegrar stéttar og íjóra veraldlegrar, og nefndust þeir kon- ungskjömir. Kosningarétt höfðu karlmenn 25 ára og eldri sem upp- fylltu slík skilyrði. Munu tæp 5% landsmanna hafa notið kosningaiétt- ar í upphafi. Alþingi skyldi koma saman til fundar í Latínuskólanum í Reykjavík annað hvert ár 1. júlí og sitja í fjórar vikur eða lengur ef nauðsyn þótti. ÞJÓÐFUNDURINN 1851 í stað reglulegs þings 1851 var kallaður saman þjóðfundur, sem hafði það meginverkefni að fjalla um stjórnskipun fslands. Seinni hluti bókar dr. Aðalgeirs Kristjánssonar fjallar um Þjóðfundinn, aðdraganda hans og afleiðingar. Áhrifa febrúar- byltingarinnar 1848 í Frakklandi gætti víða um lönd og náðu áhrifin til íslands. Árið 1848 hóf Þjóðólfur göngu sína. Hann varð höfuðmál- gagn íslendinga í sjálfstæðisbarátt- unni við hliðina á Nýjum félagsritum. Lanztíðindi vom málgagn embættis- manna í andstöðu við hann. Ný fé- lagsrit og Norðurfari boðuðu breytta tíma byltingarárið og Hugvekja til íslendinga eftir Jón Sigurðsson varð stefnumarkandi í sjálfstæðisbarátt- unni, eins og Aðalgeir Kristjánsson bendir á. Jón færði að því rök að við endalok einveldisins lægi beint við að samband Danmerkur og íslands yrði með líkum hætti og kveðið var á í Gamla sáttmála. Þjóðólfur birti ákvæði Gamla sáttmála til að hafa til hliðsjónar þegar gengið yrði frp sambandi landanna. „Alþingi 1849 gekk frá kosninga- lögum til væntanlegs þjóðfundar þar sem kosningarétturinn var rýmkaður og þingið var haldið fyrir opnum dyrum", útskýrir Aðalgeir. „Grund- vallarlagaþingið leiddi hjá sér að kveða á um hversu sambandi íslands og Danmerkur yrði háttað því að konungur hafði heitið fslendingum að engar ákvarðanir yrðu um það teknar fyrr en íslendingar hefðu lát- ið skoðanir sínar í ljós á innlendu þingi. Því lá næst fyrir að boða til kosninga til þessa stjómlagaþings, sem hlotið hefur nafnið þjóðfundur í sögu okkar. Slíkar samkomur voru haldnar víða um álfuna um þetta leyti. Sumum var hleypt upp með vopnavaldi. Okkar þjóðfundur var því rólegur miðað við það. Það haustaði fljótt eftir vorleysingar byltingarinn- ar í Evrópu. Sakir styijaldarinnar í hertogadæmunum höfðu Danir öðru mikilvægara að sinna en sjálfstæð- iskröfum íslendinga. Afturhaldsöflin í álfunni sóttu í sig veðrið jafnt og þétt. Milli Dana og Rússa hafði lengi verið vinátta, ekki síst vegna legu Danmerkur og siglinga um Eyrar- sund. Að auki hafði einveldið haldið lengur velli í Danmörku en annars staðar í álfunni. Rússar og fleiri þjóð- ir litu óhýru auga að þýska ríkjasam- bandið seildist til landa innan vé- banda danska ríkisins. Því fór svo að Þjóðvetjar drógu sig út úr stuðn- ingi við hertogadæmin þegar ná- granninn í austri gaf þeim í skyn að honum félli engan veginn afskipti þeirra af uppreisninni í hertogadæ- munum. Danska stjómin varð því að gæta þess að gefa hertogadæmunum engin færi á að geta notað samband íslands og Danmerkur til saman- burðar og reist kröfur um aukna sjálfstjóm eða samband við þýsku ríkin á ákvæðum sem lögleidd yrðu um samband íslands og Danmerkur. Þetta var höfuðástæðan til þess að þjóðfundinum var frestað vorið 1850, en jafnframt gefið út opið bréf um að kalla hann saman 4. júlí 1851.“ „Dönsku ráðherramir tóku að hugleiða hvemig sambandi ríkjanna yrði fyrir komið á útmánuðum 1851. Þar kom skýrt fram að þeir töldu að Islendingum bæri ekki að fá lög- gjafarvald í eigin málum og vildu búa þannig um hnútana að ísland hefði svipaða sérstöðu og ömtin í danska ríkinu. Að vísu var nokkur skoðanamunur meðal ráðherranna um þessi atriði. Þetta frumvarp og fleira því tengt var sent heim til ís- lands til að leggja fyrir hinn vænt- anlega þjóðfund þegar á vorið leið 1851. Einnig sendi stjómin heim til Islands fmmvarp um aukið verslun- arfrelsi og átti það að verða íslend- ingum sárabót fyrir að ekki átti að verða við óskum þeirra og kröfum um aukið sjálfstæði. Svo illa tókst þó til að þessi gögn bárast ekki til Reykjavíkur í tæka tíð. Þegar frum- vörpin loks komu í hendur þingheims kom fljótt í ljós að mikill meiri hluti þingmanna var þeim andsnúinn." „Trampe skynjaði að mikillar and- stöðu mátti vænta“, heldur Aðalgeir áfram frásögn sinni af þessum fræga fundi. „Hann hugðist vinna tíma með því að taka verslunarmálið fyrst á dagskrá og ganga frá því. Því næst var framvarp stjórnarinnar um sam- band landanna lagt fyrir og það sem því fylgdi, svo sem seta Islendinga á danska ríkisþinginu. Þegar mátti heyra að stjómarfrumvarpinu var lítt fagnað. Var það sett í nefnd þar sem Jón Sigurðsson var áhrifamesti mað- urinn. Þegar nefndin hafði lokið störfum og komið fram með nýtt framvarp sem reist var á stefnu Jóns Sigurðssonar um víðtækt sjálfstæði íslendingum til handa, brá Trampe stiftamtmaður og konungsfulltrúi á það ráð að slíta þjóðfundinum. Hann hafði í uþphafi fundar talað um ákveðin tímamörk sem hann mætti standa og nú væri komið að þeim.“ TRAMPE HAFÐISÍN FYRIRMÆLI Auðheyrt er að Aðalgeir dæmir ekki Trampe greifa jafnhart og margir íslendingar hafa löngum gert. Hann segir: „Meginástæðan var sú að hann hafði í höndum fyrirmæli frá dönsku stjórninni um að leyfa ekki umræður sem brytu í bága við frumvarp hennar. Hann fór því að fyrirmælum dönsku stjórnarinnar þegar hann sleit þjóðfundinum. Hins vegar hlaut Trampe litlar þakkir fyr- ir frammistöðu sína á þjóðfundinum í dönskum blöðum og meðal dönsku ráðherranna. Jafnvel var talað um að kalla hann heim eða að minnsta kosti senda sljómarfulltrúa til ís- lands til að bera klæði á vopnin. Af þessu varð ekkert og Trampe sat í áratug sem stiftamtmaður, en galt þess jafnan að hafa lent í því að verða að hafa afskipti af þjóðfundin- um með þeim hætti sem alþjóð veit.“ Aðalgeir vekur athygli á því að lítt hafi verið á loft haldið að Trampe tókst að koma kyrrð á í Lærða skól- anum eftir „pereatið" og hann beitti sér fyrir því að íslenska var almennt tekin upp í innlendri embættisfærslu. Fyrir það var hann gerður að heið- ursfélaga í Bókmenntafélaginu. Aðalgeir bætir því við að tæpast verði með sanni sagt að íslendingar hafi trúað þvf að stefnumið þeirra myndu ná fram að ganga á þjóðfund- inum. Samt höfðu þeir þá reynslu af dönsku stjórninni að hún gat ver- ið þeim eftirlát í því sem minna máli skipti og fór að tillögum þeirra, þótt ekki þættu þær alltaf skynsam- legar. En hér var hins vegar stungið við fótum og þar réð miklu um að um sama leyti var verið að binda lausa enda í Slésvíkurdeilunni og samband Danmerkur og íslands mátti ekki trafla það bindingsverk. „Á þjóðfundinum varð Jón Sig- urðsson ókrýndur foringi íslendinga í sjálfstæðisbaráttunni. Þegar gengið var til kosninga til þjóðfundarins gætti hins vegar andblásturs gegn honum í kjördæmi hans, svo að Páll Melsteð amtmaður skarst í leikinn og tryggði kosningu hans. Fyrir það uppskar hann að eftir þjóðfundinn lét Jón skrifa honum bréf með ávítum sem flestir fundarmenn undirrituðu fyrir hvemig hann brást við sem forseti þegar þjóðfundinum var slitið. Þannig hlutu menn ýmist lof eða last fyrir afstöðu sína, urðu ýmist þjóðardýrlingar eða urðu svartir sauðir í sögu okkar.“ NÁÐI AFMÆLISDEGINUM Að lokum er Aðalgeir Kristjánsson spurður um tildrög þess að hann lagði í þetta stórvirki. Þegar hann skrifaði bók um Brynjólf Pétursson fyrir 20 áram kvaðst hann hafa rek- ist á ýmislegt sem ekki átti þar heima. Þá vaknaði áhugi á að halda áfram þar sem Brynjólfi sleppir. Kveðst Áðalgeir hafa verið með ann- að augað á þessu verkefni síðan og aflað heimilda. Þá fór hann að hugsa um að ekki mætti láta skriftirnar híða of lengi og hann ákvað að hætta skjalavarðarstarfinu 65 ára gamall og einhenda sér í skriftir. Sá tími entist honum til að ljúka bókinni á þessum tímamótum, þegar 150 ár era síðan lögin um endurreisn Al- þingis tóku gildi. Kveðst hann hafa treyst því varlega að verða enn á lífi og með einhverju viti eftir alda- mótin þegar 150 ár verða liðin frá þjóðfundinum. Um efni verksins og hvort hann hafi gert þar einhvetjar nýjar upp- götvanir, svarar Aðalgeir einfald- lega: „Meginatburðirnir vora þekktir áður, en í myndina var unnt að bæta allmörgum nýjum dráttum. Fyrir bragðið verður hún nokkuð öðruvísi en áður.“ Morgunblaðið/Kristinn Aðalgeir Kristjánsson með nýju bókina sína, Endurreisn Alþingis og Þjóðfundurinn.

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.