Morgunblaðið - 16.04.1993, Page 2

Morgunblaðið - 16.04.1993, Page 2
2 MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 16. APRÍL 1993 Morgunblaðið/RAX Dimission hjá MR SJÖTTU bekkingar Menntaskólans í Reykjavík dimitt- eruðu í gær, þ.e.a.s. kvöddu skólann sem kennslustofn- un og fara nú í upplestrarfrí. Remenantarnir, þ.e.a.s. þeir nemendur skólans sem eftir verða, kveðja jafnan dimitantana með viðhöfn, en þeir klæðast gjarnan skemmtilegum búningum í tilefni dagsins. Þessi bekk- ur á myndinni er í mörgæsagervi. Annar var í ballerínu- gervi og hinn þriðji í gervi lífvarða Breta- eða Dana- drottningar, með háa svarta húfu, í rauðum jakka og svörtum buxum með rauðum borðum. Litskrúðugir búningarnir lífga upp á umhverfi þessa gamla og virðu- lega skóla. Stefnir í tíllögnr um 175 þúsund tonna þorskafla ÞORSTEINN Pálsson sjávarút- vegsráðherra segir að búast megi við að Hafrannsóknastofnun haldi við tillögu sína frá í fyrra um að veidd verði 175.000 tonn á fisk- L veiðiárinu 1993-1994. Endanleg ráðgjöf stofnunarinnai' mun liggja fyrir í lok maí. „Bæði seiðamælingarnar í fyrra- haust og togararallið benda til að engin breyting verði á fyrri ráðgjöf. Hún er því það, sem menn mega búast við,“ sagði Þorsteinn í samtali við Morgunblaðið. „Það er ekki búið að fullvinna matið, en þau gögn sem menn hafa í höndunum benda til þess að aðstæður séu að mestu óbreyttar." Sömu sjónarmið við ákvörðun Aðspurður hvort hann myndi fara að tillögum Hafrannsóknastofnunar, legði hún til samdrátt þorskafla_ í þessum mæli, sagði Þorsteinn: „Ég mun byggja mínar tillögur á sömu sjónarmiðum og í fyrra; að við verð- um að byggja stofninn upp.“ Síðast- liðið sumar lagði Hafrannsókna- stofnun til 190.000 tonna þorsk- kvóta, en ráðherra tók ákvörðun um 215.000 tonn. Hillir undir aiþjóðasamning um öryggi um borð í fiskiskipum Bætir stöðu felenzkra útgerða í samkeppni við útlendinga ÚTLIT er fyrir að innan fárra ára gangi í gildi nýr alþjóðasamningur um öryggiskröfur í fiskiskipum, sem undirritaður var á ráðstefnu Alþjóðasiglingamálastofn- unarinnar (IMO) í Torremolinos á Spáni í byrjun mánað- arins. Að sögn Ragnhildar Hjaltadóttur, skrifstofusijóra í samgönguráðuneytinu, sem var einn af varaforsetum ráðstefnunnar, mun gildistaka samningsins hafa í för með sér að samkeppnisstaða íslenzkra útgerða batni. Útgerðarfélög í helztu samkeppnislöndum okkar, t.d. Portúgal og Rússlandi, muni þurfa að leggja nokkurt fé til endurbóta í öryggismálum, en íslenzk skip upp- fylli kröfurnar nú þegar. Morgunblaðið/Valdimar Kristinsson Æft fyrir norðlenska hestadaga ÆFT var í gær fyrir norðlenska hestadaga sem hefjast í kvöld í Reiðhöllinni í Víðidal. Meðal þeirra sem koma fram er Ford- fyrirsæta ársins, Birna Willards frá Dalvík, sem hér lætur vel að gæðingnum Ögra frá Keldu- dal sem mun ríða á þeim þrem- ur sýningum sem boðið verður upp á. Auk þess kemur fram fjöldi gæðinga og kynbóta- hrossa. Einnig verður boðið upp á leiksýningu og söng. Ráðstefnan í Torremplinos var haldin að frumkvæði íslendinga, sem fjármögnuðu hana ásamt nokkrum öðrum aðildarþjóðum IMO. Á ráðstefnunni var samþykkt ný bókun við svokallaða Torremol- inos-alþjóðasamþykkt frá 1977 um öryggismál í fiskiskipum. Sú sam- þykkt hefur aldrei verið fullgilt, þar sem ýmsar stærstu fiskveiðiþjóðim- ar töldu ákvæði hennar of ströng. Gildistaka tryggð í bókuninni, sem nú var sam- þykkt, voru sum ákvæði eldri sam- þykktarinnar látin gilda fyrir skip 45 metra og lengri í stað skipa 24 metra og lengri. Hún felur engu að síður í sér verulega hertar lág- markskröfur. Samkomulagið tekur gildi einu ári eftir að 15 ríki, sem samtals eiga 14.000 fískiskip, hafa fullgilt hana. Að sögu Ragnhildar Hjaltadóttur er gildistaka nú tryggð, þar sem Asíuþjóðirnar inn- an IMO, sem uppfylla þessi skil- yrði, komu sér saman um það fyrir í dag Háskólinn á Akureyri Skólinn verður weð kynningu & starfsemi sinni milli kl. 13 og 17 á laugardaginn 18 Þolfimi________________________ Magnúsi Scheving hefur verið boð- ið að gerast atvinnumaður íþolfimi 21 Vextir_________________________ Breytiiegir vextir torvelda barátt- una gegn verðbólgu 24 Leiðari Evrópubankinn og bruðiið 24 ráðstefnuna að fullgilda samkomu- lagið. „Það er því talið öruggt að innan fárra ára muni samþykktin taka gildi,“ sagði Ragnhildur. „Þetta mun beinlínis hafa áhrif á hag og afkomu útgerða og þar með á mark- aðsverð á fiski.“ Rætt um svæðisbundið samkomulag í Evrópu Ragnhildur segir að Evrópu- bandalagið hafí nú boðið EFTA- ríkjunum til viðræðna um gerð svæðisbundins samkomulags á grundvelli Torremolinos-samþykkt- arinnar, sem kveði á um öryggis- kröfur fyrir minni skip. Hún segir Spánverja og Portúgala ekki hafa andmælt slíkum viðræðum. Ragnhildur segir að vonazt sé til að á næstu ráðstefnum IMO um fiskiskip náist fram samræming á menntunarkröfum áhafna fiski- skipa, sem muni enn bæta stöðu íslenzkra útgerða gagnvart erlend- um. Fasteignir ► Viðhald fasteigna - Varnir gegn innbrotum - Voriðboðið velkomið - U.P. húsið í Mos- fellsbæ Átök á stjórnarfundi í Félagsstofnun stúdenta Framkvæmdastjóran- um sagt upp störfum Starfsfólk ogjbyggingamefnd lýsa stuðningi við framkvæmdastjóm SAMÞYKKT var á fundi sljórnar Félagsstofnunar stúdenta í gær með þremur atkvæðum Röskvumanna gegn tveimur atkvæðum fulltrúa Háskólaráðs og menntamálaráðuneytis að segja framkvæmdastjóra fyrirtækisins, Arnari Þóris- syni, upp störfum, en tillaga Röskvumanna þess efnis kom fyrst fram fyrir um hálfum mánuði. Starfsmenn FS hafa lýst yfir stuðningi við framkvæmdastjórann í bréfi til stjórnarmanna. Jafnframt hefur byggingarnefnd FS bókað að starfsskilyrðum hennar sé teflt í tvísýnu með uppsögn framkvæmdastjórans. ! Streita! -y CTmí.md.j P FMelAli lldja a Ttmlul 3 mf Ömmulegirr Uppsögnin var samþykkt með þremur atkvæðum meirihluta Röskvu gegn atkvæðum Viktors Borgars Kjartanssonar, fulltrúa menntamálaráðuneytisins, og Þor- steins Sigfússonar prófessors, full- trúa Háskólaráðs. Þeir tveir síðar- nefndu létu bóka að þeir áskildu sér rétt til að skjóta ákvörðuninni til menntamálaráðherra, samkvæmt 5. grein réglugerðar um FS. I bókun- inni segir jafnframt að rekstur FS hafí gengið mjög vel undir stjóm Amars: „Fyrir þeirri ákvörðun að víkja framkvæmdastjóra hafa ekki verið færð fram nein haldbær rök. Með henni eru fagleg vinnubrögð undanfarinna ára látin víkja fyrir pólitískum stundarhagsmunum." Daglegtlíf ► Sprækur hlaupari - Reynslu- akstur Nissan Micra - Snaps í Bosníu - Hvert í sumarleyfi? - Leyndarmálið í Indlandshafi - Jöf- ur veitir ábyrgð á notuðiun bílum „Hugmyndafræðilegur ágreiningur" í greinargerð fulltrúa Röskvu seg- ir að nokkurrar óánægju hafi gætt með störf framkvæmdastjóra meðal stjórnarmanna Röskvu „og stúdenta almennt, t.d. garðsbúa". Þá segja Röskvumenn að „hugmyndafræði- legur ágreiningur" sé milli þeirra og framkvæmdastjórans. „Félagsstofn- un hefur á síðustu árum fengið á sig ímynd stórgróðafyrirtækis í augum stúdenta," segir í greinargerðinni. „Fyrir núverandi ímynd fyrirtækisins er meirihluti stjómar ekki tilbúinn að standa." „Vinnubrögð þessa fólks eru stór- undarleg og markmið þess virðast miðast við eitthvað annað en gott gengi fyrirtækisins, sem er það sem skiptir stúdenta mestu máli,“ sagði Arnar Þórisson í samtali við Morgun- blaðið. „Þrátt fyrir að ég hafí farið fram á faglegan rökstuðning fyrir uppsögn minni hefur meirihluti Röskvu ekki getað borið fram neinar röksemdir í þá átt.“ Óðinn hf. endurvakinn Eyrarbakka. Hluthafafundur I Útgerðarfé- laginu Oðni á Eyrarbakka var haldinn í gærkvöldi, og þar var ákveðið að blása lífi í félagið. Mættir á fundinn voru 40 handhaf- ar hlutabréfa í félaginu, og voru þeir Eiríkur Guðmundsson, Jón Val- geir Olafsson og Gísli Guðlaugsson valdir til að undirbúa aðalfund þess, en þeir voru allir á stofnfundi félags- ins fyrir 50 árum. Óskar.

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.