Morgunblaðið - 16.04.1993, Síða 4
MORGUNBLAÐIÐ FÖSÍUDAGUR 16. APRÍL 1993
-
\
4
Deilt er um stað fyrir listaverk í Björgvin 1 Noregi
Styttan af Snorra
stendur áfram ein
DEILUR hafa verið undanfarið meðal íbúa í Björgvin í Noregi með
staðsetningu listaverks þar í borg. Hugmyndir voru uppi um að
koma verkinu fyrir á túni skammt frá styttu af Snorra Sturiusyni,
en borgarstjórnin ákvað fyrir skömmu að það yrði ekki gert, vegna
mikilla mótmæla.
Anna Kristín Helgadóttir, for-
maður Islendingafélagsins í Björg-
vin, sagði að hópur frammámanna
í borginni hefði fengið listamanninn
Knut Steen til að gera minnisvarða
um Ólaf Haraldsson kyrra, son
Haraldar harðráða. Ólafur var uppi
á árunum 1050-1093 og er talinn
upphafsmaður byggðar í Björgvin.
„Listamaðurinn vann minnisvarða,
sem þessi hópur einstakiinga færði
borginni að gjöf,“ sagði Anna
Kristín. „Gefendurnir höfðu áhuga
á að verkinu yrði valinn staður á
túni fyrir framan Maríukirkjuna,
en á því sama túni stendur stytta
af Snorra Sturlusyni, sem Vest-
mannaiaget gaf borginni árið
1947.“
Mikil mótmæli
Vestmannalaget er félagsskap-
ur, sem hefur það að markmiði að
halda við ýmsum hefðum, auk þess
að beijast fyrir vemdun nýnorsku.
Félagsskapurinn gaf Islendingum
styttuna af Snorra, sem var reist
í Reykholti árið 1947 og sama
stytta var gefin Björgvin og reist
þar ári síðar. „Styttan stendur á
mjög fallegum stað í merku um-
hverfi fallegr^ húsa,“ sagði Anna
Kristín. „Minnisvarðinn um Ólaf
kyrra á alls ekki heima á þessum
sama stað, því hann er nútímalegt
listaverk úr stáli. Það urðu miki!
blaðaskrif í Björgvin vegna málsins
og fjölmargir aðilar mótmæltu, þar
á meðal Vestmannalaget, íslend-
Styttan af Snorra
NÚ ER ljóst að minnismerki um
Ólaf Haraldsson kyrra verður
ekki staðsett í grennd við stytt-
una af Snorra Sturlusyni.
ingafélagið, Arne Holm, sem er
ræðismaður íslands í Björgvin og
Einar Benediktsson, sendiherra.
Nú hefur unnist sigur í málinu, því
borgarstjóm samþykkti að þiggja
listaverkið, en jafnframt að finna
annan stað,“ sagði Anna Kristín.
VEÐURHORFUR I DAG, 16. APRIL
YFIRLIT: Skammt vestur af landinu er smálægð og önnur á líka við norðvestur-
strönd landsins, báðar á austnoröausturleið. Við Færeyjar er þriðja lægðin
og hreyfist hún norðnorðaustur.
STORMVIÐVÖRUN: Gert er ráð fyrir stormi á Norðurdjupi. Fremur hæg sunn-
an- og síðar austanátt landinu og að lokum norðanátt, þegar kemur fram á
nóttina. Sunnan- og vestanlands verður snjókoma eða slydda, sem fara mun
austur yfir landið. Þegar kemur fram á nóttina fer að létta til sunnanlands,
en áfram verða él vestan- og norðanlands. Hiti mun lítiö breytast.
SPÁ: Norðan- og norðvestanátt v(ða él um norðanvert landið og vestanlands
en úrkomulaust sunnan- og suðaustanlands.
VEÐURHORFUR NÆSTU DAGA;
HORFUR Á LAUGARDAG: Norðan kaldi eða stinningskaldi og él um norðan-
vert landið, en þurrt og víða lóttskýjað syðra. Frost 1 ~6 stig.
HORFUR A SUNNUDAG: Norðaustan og austan gola eða kaldi. Smáél við
norðaustur ströndina, en annars þurrt og víða lóttskýjaö. Fremur kalt I veðri.
HORFUR Á MANUDAG: Austan og suðaustan gola eða kaldi og skýjað við
suöur- og austurströndina, en viða léttskýjað norðan- og vestanlands. Fremur
kalt í veðri.
Nýir veðurfregnatímar: 1.30, 4.30, 7.30, 10.45, 12.45, 16.30, 19.30, 22.
30.Svarsími Veðurstofu Islands — Veðurfregnir: 990600.
Heiðskírt
/ / /
r r
r r r
Rigning
Léttskýjað
* / *
* /
/ * /
Slydda
•'A & CS
Hálfskýjað Skýjað Alskýjað
* * *
* *
* * *
Snjókoma
V ^ V
Skúrir Slydduél Él
Sunnan, 4 vindstig.
Vindörin sýnir vindstefnu
og fjaðrimar vindstyrk,
heil fjöður er 2 vindstig.
10° Hitastig
V Súld
= Þoka
3tig..
FÆRÐÁ VEGUM:
(Kl. 17.30ígær)
Það er góð færð á öllum helstu þjóðvegum landsins, og hálka sem var
á vegum sunnan og vestanlands í morgunn er óðum að hverfa. Á Vest-
fjörðum er þó þungfært um Kleifaheiði og Hálfdán, og Steingrímsfjarðar-
heiði er ófær. Þungatakmarkanir, vegna aurbleytu eru víða á útvegum,
og eru þessar takmarkanir sýndar með merkjum við viðkomandi vegi.
Upplýsingar um færð eru veittar hjá Vegaeftirliti í sfma 91-631500 og
ígrænnilínu 99-6315. Vegagerðin.
/ VEÐUR VÍÐA UM HEIM kl. 12.00 í gær að ísl. tíma hítl veður Akureyrl 4 skýjaft Reykjavík 2 skýjaö
Bergen 8 skýjað
Helsinki 2 léttskýjað
Kaupmannahöfn 10 léttskýjað
Narssarssuaq +10 heiðskírt
Nuuk vantar
Osló 10 léttskýjað
Stokkhólmur 9 skýjað
Þórshöfn 6 rigning
Algarve 19 léttskýjað
Amstérdam 13 þokumóða
Barcelona 14 hálfskýjað
Berlfn 13. hálfskýjað
Chicago 6 rigning
Feneyjar 13 rigning
Frankfurt 16 hálfskýjað
Glasgow 11 mistur
Hamborg 12 léttskýjað
London 11 mistur
LosAngeles 14 alskýjað
Lúxemborg 11 skúr
Madrid 14 skýjað
Malaga 18 léttskýjað
Mallorca 14 skruggur
Montreal 1 alskýjað
New York 12 alskýjað
Orlando vantar
Parfs 9 þokumóða
Madelra 15 skýjað
Róm 16 hálfskýjað
Vfn 12 alskýjað
Washington 12 alskýjað
Winnipeg +5 Iétt8kýjað
Bótamáli Stálsmiðj-
urniar gegn Dagsbrún
vísað frá Félagsdómi j
FÉLAGSDÓMUR tók í gær til greina frávísunarkröfu lögmanna ASÍ
í skaðabótamáli sem Stálsmiðjan í Reykjavík höfðaði vegna aðgerða
sem forsvarsmenn Verkalýðsfélagsins Dagsbrúnar stóðu fyrir í slipp
Stálsmiðjunnar í janúarmánuði. I niðurstöðum dómsins kemur fram
að ekki sé um að ræða ágreining sem falli undir ákvæði laga um stétt-
arfélög og vinnudeilur. Aður hafði ASÍ hefur fyrir hönd Dagsbrúnar
unnið mál fyrir Félagsdómi um það að uppsögn Stálsmiðjunnar á yfir-
vinnusamningi þeim sem aðgerðirnar risu af hafi verið ólögmæt.
Verkamannafélagið Dagsbrún
stóð fyrir Jdví að hindra sjósetningu
Júlíusar AR úr dráttarbraut Stál-
smiðjunnar laugardaginn 30. jan-
úar til að mótmæla einhliða upp-
sögn fyrirtækisins á samningi við
verkamenn um fasta yfirvinnu.
Fyrir vikið var sjósetningunni
frestað fram yfir helgi.
Stálsmiðjan krafðist 113 þús.
króna skaðabóta vegna aðgerð-
anna fyrir tjón sem hlotist hefði
af þessari meintu ólögmætu vinnu-
stöðvun.
í niðurstöðum meirihluta Fé-
lagsdóms, héraðsdómaranna Auð-
ar Þorbergsdóttur, Ingibjargar
Benediktdsdóttur og Jóns Þor-
steinssonar hrl., segir að líta beri
á framgöngu verkamanna og for-
manns Dagsbrúnar á staðnum sem
sérstaka vettvangsaðgerð er falli
ekki undir ákvæði laga um stéttar-
félög og vinnudeilur. Úrlausnar-
efnið sé því utan valdsviðs Félags-
dóms. Með þessu sé hins vegar
ekkert um það sagt hvort í aðgerð-
inni hafi falist brot gegn öðrum
lögum og bótaskylda af hálfu
verkalýðsfélagsins af þeim sökum.
Minnihluti, Björn Helgason sak-
sóknari og Gunnar Guðmundsson
hdl., skiluðu sératkvæði og vildu
taka frávísunarkröfuna til greina.
Afkastamikil
brugggerð í
Hafnarfírði
LÖGREGLAN í Hafnarfirði
handtók í fyrradag systkini,
mann um fertugt og konu
um þrítugt, vegna gruns um
umfangsmikla bruggstarf-
semi. í bílskúr við hús manns-
ins fannst mannhæðarhá
bruggtækjasamstæða, 500
lítrar af gambra og 50-60
lítrar af eimuðum landa.
Lögreglan stöðvaði manninn
akandi á bíl þar sem fundust
um 20 lítrar af landa. Við hús-
leit á heimili hans fundust
bruggtækin sem voru mun
vandaðri að allri gerð en lög-
regla kveðst eiga að venjast.
Þannig örlaði ekki á því að lykt
frá framleiðslunni bærist um
húsið þrátt fyrir að alit flóði í
landa. Fólkið hefur ekki áður
verið staðið að bruggun en hef-
ur m.a. komið við sögu fíkni-
efnamála, og sama á við um
allmarga þeirra bruggara sem
lögregla hefur undanfarið haft
afskipti af.
)
>
Þrotabú E. Guðfinnssonar á Bolungarvík
Rækjuverksmiðjan
leigð heimamönnum
Bolungarvík.
TVEIR aðilar í Bolungarvík hafa tekið rækjuverksmiðju þrotabús EG
á leigu og hófu þeir starfsemi þar í gær. Það er nýstofnað fyrirtæki,
Þuríður hf., sem stofnað var 10. apríl síðastliðinn, sem rekur starfsem-
ina. Hjá verksmiðjunni leggja sem stendur upp 6 bátar sem eru á inn-
fjarðarrækju, og einn bátur sem er á djúprækju. Rækjuverksmiðjan á
óveiddan 170 tonna kvóta í ísafjarðardjúpi, og vélbáturinn Gunnbjörn,
sem er á djúprækju, er með 220 tonna rækjukvóta.
í gær þegar vinnsla hófst í rækju-
verksmiðjunni voru komin þangað
25 tonn af rækju og afkastaði verk-
smiðjan 9 tonnum á þessum fyrsta
degi. Samningur hefur verið gerður
við Marfang um sölu afurðanna.
Stjórnarformaður Þuríðar hf. er
Jón Guðbjartsson og framkvæmda-
stjóri fyrirtækisins er Valdimar L.
Gíslason. Leigusamningur fyrirtæks-
ins er til 1. ágúst næstkomandi, en
að sögn Valdimars kemur sterklega
til greina a_ð kaupa verksmiðjuna ef
um semst. í verksmiðjunni starfa 15
manns, þar af einn verkstjóri og einn
framleiðslustjóri. Að sögn Valdimars
er þetta eina yfirbyggingin, þvi
hvorki framkvæmdastjóri né stjórn-
arformaður eru á launaskrá.
„Ef ekki er hægt að vinna rækju
þannig að vinnslan beri sig með slíkri
stjórnun og góðu starfsfólki er lítil
von í fiskvinnslu á íslandi í dag,“
sagði Valdimar. Gunnar.
6 mánaða fangelsi
fyrir árás og ónæði
36 ARA maður, sem á við geðræn vandamál að stríða, var í Hér-
aðsdómi Reykjavíkur í gær dæmdur til 6 mánaða fangelsisvistar
fyrir húsbrot, líkamsárás, ofsóknir og ónæði. Þrír mánuðir af
refsingunni eru skilorðsbundnir til þriggja ára.
Maðurinn ruddist í heimildar-
leysi inn í íbúð fullorðinna hjóna
í Reykjavík þann 19. febrúar.
Hann veittist að hjónunum og
kom til átaka milli þeirra. Hjónin
hlutu nokkra áverka af, voru bólg-
in, hrufluð og marin víða um lík-
amann.
Maðurinn hefur lengi ofsótt
hjónin og dóttur mannsins og var
m.a. dæmdur nú fyrir að hafa
valdið hjónunum ónæði með því
að hringja oft heim til þeirra á
tímabilinu 26. janúartil 6. febrúar
sl., oftast að næturlagi eða mjög
snemma morguns. Honum var
veitt lögregluáminning þann 22.
janúar sl. fyrir síendurteknar of-
sóknir og hótanir í garð dóttur
mannsins undanfarin tæp 20 ár.
Dómarinn, Hjörtur 0. Aðal-
steinsson, taldi refsingu hæfilega
ákveðna fangelsi í 6 mánuði, en
fullnustu helmings refsivistarinn-
ar er frestað í þrjú ár, haldi mað-
urinn almennt skilorð. Til frá-
dráttar refsingu kemur gæslu-
varðhaldsvist frá 26. febrúar. Þá
er manninum gert að greiða allan
sakarkostnað og rúmar 5 þúsund
kr. í skaðabætur vegna læknis-
kostnaðar hjónanna.