Morgunblaðið - 16.04.1993, Blaðsíða 9

Morgunblaðið - 16.04.1993, Blaðsíða 9
MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 16. APRÍL 1993 9 Bílamarkaburinn Smiðjuvegi 46E v/Reykjanesbraut Kopavogi, simi 671800 Talsverð hreyfing Vantar góða bíla á sýningarsvæðið Opið sunnud. kl. 14 - 18. [ Vlí X Jfi v NÍÐSr m I DUNHAGA, _______________________A S. 622230. Opið virka daga 9-18, laugardag 10-14. Notkun FileMaker Pro- fpaefnagrunns við skfalavörslu ojg skyld verkefni Félag um skjalastjórn oa Tölvuskóli Tölvu- og verkfræðiþjónustunnar, Ljóða 22 kennslustunda nómskeið í notkun FileMaker Pro-gagnagrunns i skjalavörslu og skyldum verkefnum. Nómskeiðið er sniðið fyrir skjalaverði, einkaritara oa skrifstofustjóra, sem bera óbyrgð ó skjalavörslu ó skrifstofum og vilja hafa röð og reglu ó upplýsingum. Nómskeiðið er jafnt fyrir byrjendur, sem lengra komna. Kennd verður uppsetning ó skróm sem auðvelda vinnu við skjalavörslu og stjórn upplýsinga, s.s. gerð bréfa- dagbókar, geymsluskrór, skróryfir Ijósmyndir, teikningar, myndbönd, smóprent o.fl. Nómskeiðið verður haldið dagana 19., 21., 26., 28. og 30. apríl nk. kl. 13:00 til 16:00 að Grensósvegi 16. Kennarar verða Halldór Kristjónsson verkfræðingur og Bjarni Þórðarson sérfræðingur ó Þjóðskjalasafni. Kennt verður ó Apple Macintosh-tölvur. Vinsamlegast tilkynnið þótttöku hjó Tölvuskóla Tölvu- og verkfræðiþjónustunnar i síma 688090. Þótttökugjald er 12.500,- kr. Ifl Lóðahreinsun í Reykjavík vorið 1993 Umráðamenn lóða í Reykjavík eru hvattir til að flytja nú þegar af lóðum sínum allt er veldur óþrifnaði og óprýði. Til að auðvelda fólki að losna við rusl eru gám- ar við eftirtalda staði: Ánanaust móts við Mýrargötu. Sævarhöfða móts við Malbikunarstöð. Gylfaflöt austan Gufunesvegar. Jafnasel í Breiðholti. Sérstakir hreinsunardagar verða laugardagana 8. og 15. maí og verða ruslapokar afhentir í hverfabækistöðvum gatnamálastjóra. Eftir hreinsunardagana munu starfsmenn Reykjavíkurborgar fara um hverfi borgarinnar og hirða upp fyllta poka. Rusl sem flutt er til eyðingar skal vera í umbúð- um eða bundið og hafa skal ábreiður yfir flutn- ingakössum. Umráðamenn óskráðra og umhirðulausra bíl- garma, sem eru til óþrifnaðar á götum, bílastæð- um, lóðum og opnum svæðum í borginni, eru minntir á að fjarlægja þá hið fyrsta, annars má búast við að þeir verði teknir til geymslu um takmarkaðan tíma en síðan fluttir til fórgunar. Gatnamálastjórinn í Reykjavík, hreinsunardeild. feítóÉíHS? IKísiliðjan ( Mývatnssveit: Námaleyfið framlengt til ársins 2010 - “Ég tel aS viS höfum þarna náSfarsœlu jafhvœgi á milli sjónarmiSa náttúruverndar og atvinnullfs. ViS höfum virt Jafnvægi milli sjónarmiða atvinnulífs og náttúruverndar Námaleyfi Kfsiliðjunnar í Mývatnssveit hefur verið framlengt til ársins 2010. „Ég tel að við höfum þarna náð farsælu jafnvægi milli sjónar- miða náttúruverndar og atvinnulífs," segir Jón Sigurðsson iðnaðarráð- herra. Hluti leyfisgjalds verður nýttur til rannsókna, eftirlits og efling- ar atvinnulífs á Mývatnssvæðinu. Rannsóknir á nýrri vinnslu- tækni Jón Sigurðsson, iðnað- arráðherra, segir m.a. í Alþýðublaðinu síðastlið- inn miðvikudag; „Það var einkar ánœgjulegt að kyimast því á þessum kynningar- fundum með Mývetning- um hversu vel menn tóku niðurstöðum um fram- lengingu leyfis til Kisiliðj- unnar vegna námavinnslu í vatninu. Ég tel að við höfum þama náð farsælu jafnvægi milli sjónarmiða náttúruvemdar og at- vinnulífs. Við höfum virt meginkröfur náttúm- vemdarmanna. Til að mynda með þvi að fara ekki í vinnslu úti á Syðri- Flóa. Án undantekningar vom menn sáttir við niðurstöðu þessa máls. Þessi 17 ár sem em þang- að til samningurinn renn- ur út em hugsuð sem einskonar umþóttunar- tími til að finna ný verk- efni fyrir Kísiliðjuna og nýjar leiðir í atvinnulifinu á svæðinu. Ég hefi ákveð- ið að beita mér fyrir því að í samvinnu við hags- munaaðila verði gerðar rannsóknir á nýrri vinnslutækni við kísilg- úmám í vatninu og einnig á hugsanlegri nýtingu á kísilgúr sem lenti undir hraunið sem rann út í vatnið á átjándu öld í Mývatnseldum." Undirbúnings- sjóður - efling atvinnulífs Alþýðublaðið segir og: „A fundinum kom með- al annars fram í máli Jóns Sigurðssonar að ákveðið hafi verið að hluti leyfis- gjaldsins (20%) muni renna í sjóð til atvinnuefi- ingar á svæðinu. Nánar tiltekið í nokk- urskonar undirbúnings- sjóð til efiingar atvinnu- lífs í þeim sveitarfélögum þar sem hagur íbúaima stendur og fellur með starfsemi Kisiliðjunnar. Einnig er í leyfinu að finna ákvæði um ráðstöf- un á leyfisgjaldi verk- smiðjunnar sem notast skuli til rannsókna og eft- irlits. Þess ber að geta að á síðari hluta leyfistímans verður námagjaldið aukið og rennur aukningin öll í fyrrgreindan sjóð. Verð- ur sjóður þessi undir sljóm fuiltrúa heima- manna, verksmiðjunnar, umhverfisráðuneytisins, samgönguráðuneytisins og iðnaðarráðuneytisins. Á fundinum var sagt frá því að ein helzta ástæða þess að leyfið til kisilgúmáms væri fram- lengt núna til ársins 2010, væri sú að eyða þurfi óvissu sem hefur rikt nú um skeið vegna framtíðar Kisiliðjunnar. Þama væm í húfi miklir hags- munir, félagslegir sem fjárhagslegir. Bæði em það hagsmunir íbúa sveit- arfélaganna á svæðinu en ekki sízt þjóðfélagsins í heild.“ Niðurstöður rannsókna Siðan segir Alþýðublaðið: „Jón Signrðsson sagði frá þvi að við veitingu nýja leyfisins hefði verið tekið sérstakt tillit til nið- urstaðna rannsókna sem gerðar hafa verið á lífríki vatnsins af starfshópi umhverfisráðuneytis um Mývatnsrannsóknir. Einnig vom teknar með í reikninginn niður- stöður umfangsmikilla rannsókna sem gerðar vom árin 1986-1991 á vegum Sérfræðinga- nefndar um Mývatns- rannsóknir og einnig vom rannsóknir sem far- ið hafa fram á vegum Rannsóknarstöðvarinnar við Mývatn hafðar til hlið- sjónar. Allar þessar rannsókn- ir sýna svo ekki verður um villst að lita má á Ytri-Flóa og Syðri-Flóa sem aðskilin svæði hvað varðar strauma og set- flutninga. Einnig kemur þar fram að langvarandi námavinnsla i Bolum, sunnan Teigahoms, myndi hafi í för með sér verulegar breytingar á lifsskilyrðum í Mývatni. Það mun vera mat ráðu- neytisins að leyfi fyrir námavinnslu í Syðri-Flóa jafngildi leyfi fyrir vinnslu í nýju stöðuvatni og ekki sé veijandi að taka þá áhættu sem þvi gæti fylgt fyrir lifrikið í vatninu". Ályktun kennara við Menntaskólann í Reykjavík Afangaskýrslu um mót- un menntastefnu fagnað MORGUNBLAÐINU hefur borist eftirfarandi fréttatil- kynning frá Félagi kennara við Menntaskólann í Reykja- vík: „Fundur í Félagi kennara við Menntaskólann ,í Reykjavík þriðju- daginn 16. mars 1993 fagnar því að nefnd um mótun menntastefnu hefur sent frá sér áfangaskýrslu, svo að kennurum og öðrum gefist kostur á að ræða efni hennar. Fundurinn telur að ýmislegt í skýrslunni horfi til bóta. Þar má nefna að skólastarf, bæði í grunnskóla og framhaldsskóla, skal nú gert markvissara en verið hefur og á að skila betri árangri. Þá má nefna til bóta skiptingu náms eftir grunnskóla í fornám, gagnfræðanám og námsbrautir framhaldsskóla eftir einkunn á grunnskólaprófi. Einnig að námsbrautir til stúdentsprófs verði færri en verið hefur um leið og gætt verður meira samræmis í námskröfum til prófsins. Hins vegar bendir fundurinn á að eigi að færa grunnskólann alveg til sveitarfélaga, verði að tryggja jafn- rétti til náms. Tekjur sveitarfélaga eru ákaflega misjafnar, mörg þeirra skuldum vafin og illt að treysta að sameining þeirra í stærri einingar verði alveg á næstunni. Þó lítur fund- urinn svo á að kostur geti verið við að sveitarfélög reki grunnskóla al- veg, því að þá er skammt á milli sjórnenda og starfsmanna. í skýrslunni er talað um að dreifa valdi frá ráðuneyti til skóla og sveit- arfélaga, en samt er ekkert getið um fræðsluskrifstofur og því óljóst hvert hlutverk þeirra verður. Jafnframt kemur fram talsverð miðstýring, þar sem lagt er til að samræmdum próf- um verði fjölgað verulega og Rann- sóknarstofnun uppeldis- og mennta- mála falið að semja þau. Fagleg og fjárhagsleg ábyrgð þarf að fara sam- an. Fundurinn telur að huga þurfi betur að formlegum tengslum milli grunn- og framhaldsskóla og fram- haldsskóla og háskóla, td. með sam- starfsnefndum og sameiginlegri námskrá fyrir efstu bekki grunn- skóla og framhaldsskóla. Fundarmenn eru þeirrar skoðunar að þörf sé nokkurrar samræmingar í skólastarfi frá því sem nú er. En fundurinn varar við samræmingu stúdentsprófs nema hún sé vel undir- búin. Hér skortir alveg rannsóknir á skólastarfi í framhaldsskóla og því vita menn ekki á hvaða grunni þeir byggja. Hafa ber samvinnu við Há- skóla íslands um hinar samræmdu kröfur. Þá virðist fýsilegt að skólum séu boðin samræmd próf í ákveðnum greinum sem þeir geti þegið eftir því hvaða framhaldsnám nemendur þeirra ætla að stunda. Þá bendir fundurinn á þann vanda sem því fylg- ir að leggja fram samræmd próf sem nái bæði til bekkjarskóla og áfanga- skóla. Með öllum þessum prófum, sem Rannsóknarstofnun uppeldis- og menntamála virðist eiga að annast, er henni mikill vandi búinn. Krefjast verður að þar starfi reyndir kennarar en ekki einungis próffræðingar, svo að reynsla og þekking ráði í þeim efnum. Fundurinn telur óæskilegt að stytta framhaldsskólann í þijú ár og lengja grunnskólann um eitt, telur heppilegra að framhaldsskólinn verði áfram fjögurra ára skóli. En ef eigi að lengja skólaárið, verði að sjálf- sögðu að semja að nýju við kennara. Að síðustu bendir fundurinn á að í flestum skýrslum um skólamál er tekið fram að efla beri verknám og virðast allir vera samþykkir því. En ekki nægir að sjá það í skýrslum, heldur þarf verulegt aukið fé til þeirr- ar starfsemi. Umbætur í skólastarfi verða best unnar með markvissri þróun en síður með kerfísbreytingum. Með tilraun- um í smærri einingum er hægt að komast að niðurstöðu sem byggja má á.“ -------♦---------- Málþing um aðstöðu fæð- andikvenna MÁLÞING verður haldið um að- stöðu fyrir fæðandi konur á Is- landi laugardaginn 17. april kl. 10-14 á Hóte! Sögu, þingsalur A. Kvenréttindafélag íslands, Kven- félagssamband íslands og fulltrúar allra stjórnmálaflokka sem sæti eiga á Alþingi gangast fyrir málþingi um aðstöðu fyrir fæðandi konur. Tilgangur þingsins er að varpa ljósi á stöðu mála í dag, leiðir til úrbóta og kynna ýmsa valkosti fyrir fæðandi konur. (Fréttatilkynning)

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.