Morgunblaðið - 16.04.1993, Page 13
M0RGUNBLAÐIÐ1<XíSTOBAGUR-rerAPRit-W93 -
13
„Loksins, loksins“
eftir Sigurbjörn
Sveinsson
Á þennan skemmtilega hátt
fagnaði Kristján Albertsson nýrri
öld íslenskra bókmennta, sem hófst
með Halldóri Laxness.
Oft hefur verið klappað á íslandi
af minna tilefni.
Nú er sérstök ástæða til að fagna
því, að nýlega fengust tveir and-
stæðingar tilvísana í hópi lækna til
að ræða tilvísunarkerfi á öðrum
nótum en „siðleysi“ þess og einhliða
rétti sjúklinga til að ávísa sér lækn-
ishjálp úr tryggingakerfinu. En
þann vef hefur læknaforystan reynt
að spinna síðustu mánuði.
Afkoma lækna og sjúklinga
Sá fyrri viðurkenndi í Morgun-
blaðinu, að með tilvísunarkerfinu
kynni hann að verða fyrir fjárhags-
legum skakkaföllum, hann ætti
fjárhagslegra hagsmuna að gæta.
Hér var talað tæpitungulaust enda
ekki von á öðru úr þeim munni.
Sá síðari sagði einnig á síðum
Morgunblaðsins, að „eigi megi
svipta einstaklinginn tryggingarétti
sínum að öllu leyti eða hluta fari
hann í stöku tilvikum beint til sér-
fræðings". Með öðrum orðum:
Stjórnvöld geti með engu móti beitt
tilvísunum til stýringar í heilbrigðis-
kerfinu án þess að bijóta í bága
við þessa skoðun.
Andstæðingum tilvísunarkerfis
hefur verið legið á hálsi fyrir að
ræða einungis tilvísunarskyldu, sem
ekki er til umræðu, og rétt sjúk-
linga, án þess að horfast í augu við
hina kjaralegu þýðingu, sem skipu-
lagið að þessu leyti hefur fyrir
lækna.
Ekki er hægt að túlka orð þess-
ara lækna öðruvísi, en að þeim líði
vel í kerfinu eins og það er, og á
því megi ekki gera neinar breyting-
ar.
í þessu sambandi er rétt að benda
á tvennt.
í fyrsta lagi gengur allt trygg-
ingakerfi okkar út á einhvers konar
mismunun. Við höfum öll mismun-
andi rétt eftir aldri, sjúkdómum og
félagslegri stöðu og afkomu. stjórn-
völd hafa stöðug áhrif á val okkar
á meðferðarúrræðum með ákvörð-
unum sínum um þátttöku almanna-
trygginga í greiðslu. Því yrði það
engin nýlunda eða í blóra við hefð
eða rétt stjómvalda að nota tilvísan-
ir sem greiðsluheimild í trygginga-
kerfinu.
í öðru lagi er rétt að víkja að
afkomuvanda lækna. Lítið þjóðfélag
eins og okkar, sem vill halda úti
heilbrigðisþjónustu af sama toga
og ríkar stórþjóðir, verður að sætta
sig við óhagkvæmari og dýrari sér-
hæfingu lækna og að afkoma þeirra
sé tryggð þrátt fyrir takmörkuð
viðfangsefni á stundum. Vandi
þjóðfélagsins er sá, að afkoma
lækna í föstum stöðum á sjúkrahús-
um er rýr og og þeim því flestum
nauðsynlegt að bæta hana utan
veggja stofnananna. Greiðasta leið-
in til þess, er að bjóða almenningi
þjónustu sína í frítímanum og vinna
sem verktakar fyrir almannatrygg-
ingarnar. Ef vinna á stofu kæmi
ekki til, yrði afkoma þessara lækna
allt önnur en hún er nú. Það er því
pólitísk ákvörðun, hvort þjóðfélagið
vill deila hæfilegum kjörum til þess-
ara sérfræðilækna með þessari
vinnu við sjúklingamóttöku utan
sjúkrahúsanna eða með öðrum
hætti. Tilvísunarmálið verður ekki
séð í réttu ljósi nema þessi hlið
þess sé skoðuð ásamt öðrum.
Hin siðræna hlið
Andstæðingar tilvísunarkerfis
hafa mikið látið með meintan sið-
ferðisbrest þeirra, sem ræða vilja
möguleikana á að nota það sem
greiðsluheimild til sérfræðilæknis-
hjálpar utan sjúkrahúsa. Vísað hef-
ur verið til samþykkta Alþjóðaheil-
brigðismálastofnunarinnar og sam-
þykkta Alþjóðasamtaka lækna. Sér-
staklega hefur verið bent á 1. grein
hinnar svonefndu Lissabon-yfirlýs-
ingar, þar sem segir að sjúklingur-
inn eigi þann rétt að vera frjáls að
því að velja sér lækni.
Undirrituðum bauð í hug að hér
kynni að vera fijálslega farið með
túlkun þessarar greinar í hita leiks-
ins. Ljóst var af síðari greinum
Sigurbjörn Sveinsson
„Þjóðin er áreiðanlega
orðin hundleið á þessu
tilvísunarkarpi í lækn-
um, ef hún á annað borð
hefur nokkuð fylgst
með því. Enda á hún
annað og betra skilið.“
samþykktarinnar, að önnur sjónar-
mið en notkun tilvísunarkerfis við
almannatryggingar kynnu að hafa
verið þyngri á metunum við gerð
hennar. Því var nauðsynlegt að fá
upplýsingar um forsendur sam-
þykktarinnar og umræður þær er
að baki henni lágu.
Aðalritari Alþjóðasamtaka lækna
hefur nú svarað fyrirspurn minni
um þetta efni á þann veg, að ekki
sé að finna neinar ástæður fyrir
samþyktinni er varða notkun tilvís-
ana í heilbrigðisþjónustu („reasons
related to the use of referrals in
health systems").
Og þar með fór í vaskinn eitt
höfuðatriðið í málatilbúnaði Lækna-
félags Reykjavíkur.
Að lokum
Þjóðin er áreiðanlega orðin hund-
leið á þessu tilvísunarkarpi í lækn-
um, ef hún á annað borð hefur
nokkuð fylgst með því. Enda á hún
annað og betra skilið.
Nú á hún að snúa sér að góð-
viðri og gróandi náttúru, þeim
Schubert og Beethoven og láta feg-
urðina ríkja ofar hverri kröfu. Er
það betra til heilsubótar en krytur
og hnýfilyrði.
Það er mín skoðun og henni vil
ég að síðustu koma á framfæri:
— að stjómvöldum er ekki heimilt
að meina fólki að finna þann lækni,
sem það óskar, sé það gert á grund-
velli samkomulags á milli þessara
tveggja aðilja,
— að stjómvöldum er fullkomlega
heimilt að nota tilvísanir sem
greiðsluheimild fyrir sérfræðiþjón-
ustu utan sjúkrahúsa, sem greidd
er af almannatryggingum,
— og að sú ráðstöfun brýtur á eng-
an hátt í bága við almennt sið-
ferði, siðreglur eða alþjóðasamn-
inga.
Höfundur er læknir.
Sumarleyfi í Kerlingarfjöllum
eftir Jónas
Hallgrímsson
Nú er tími skipulagningar sumar-
leyfa. Enn er vetur á fjöllum og í
skíðalöndum okkar. Skíðavertíðin
hefur verið rysjótt í ár þótt páskar
hafi bætt hana mikið. Flestum sem
skíði stunda þykir vafalaust of lítið
hafa gefið á skíðin og vilja gjaman
meira. Hægt er að bæta úr því með
því að nota hluta af sumarleyfinu
til skíðaiðkana.
Skíðaskólinn í Kerlingaríjöllum
hefur nú auglýst sumarnámskeiðin
vinsælu en skólinn er á þrítugasta
og þriðja starfsári, síungur og eflist
ár frá ári. Námskeiðin hefjast 23.
júní og verða samtals 17 og lýkur
því síðasta 25. ágúst. Fyrir unglinga
eru haldin 4 námskeið en almenn
námskeið sem vinsælust em fyrir
fjölskyldur og fullorðna em 13. Áuk
námskeiðanna eru farnar 7 helgar-
ferðir sem em 3 dagar en námskeið-
in sjálf eru ýmist 3 eða 4 dagar.
Ferðaskrifstofa íslands annast bók-
anir og gefur allar nauðsynlegar
upplýsingar.
Síðastliðið sumar skrifaði ég
stutta grein í Morgunblaðið um
skíðanámið sjálft og benti á að í
Kerlingarfjöllum er á boðstólum
eitthvað við allra hæfi, jafnt þeirra
sem aidrei hafa stigið á skíði fyrr
og þeirra sem blátt áfram hafa alist
upp með skíðin á fótunum. Nú ætla
Tíu tilboð bámst í verkið og
átti Þórhallur Einarsson næst
lægsta boð eða rúmlega 32,9 millj.,
sem er 82,63% af kostnaðaráætl-
un. Sveinbjörn Sigurðsson hf.,
bauð 32,9 millj. eða 82,74% af
kostnaðaráætlun, Bygging. og
verktakaf. S.Þ. hf., bauð 34,1 millj.
eða 85,62% af kostnaðaráætlun,
ísvirki hf. bauð 35 millj. eða
87,86% af kostnaðaráætlun og Sel
Jónas Hallgrímsson
ég að lýsa dæmigerðum degi í „fjöll-
unum“.
Eftir morgunþvott og aðra snyrt-
ingu er sest að morgunverði sem
sæma mundi hveiju betra hóteli.
Fyrir þá sem ætla að nota daginn
til líkamsþjálfunar er morgunverð-
urinn mikilvægasta máltíð dagsins
og því er vel fyrir öllu séð þar á
borðum. Svokallað heilsufæði er í
öndvegi og hægt er að sneiða alveg
hjá öllu sem tilheyrir dýraríkinu
þótt nóg sé af að taka þaðan lika.
Langferðabílar flytja fólkið síðan
sf. bauð 36,4 millj. eða 91,38% af
kostnaðaráætlun.
Sigurður K. Eggertsson hf.,
bauð 36,9 millj. eða 92,76% af
kostnaðaráætlun, G. Valgeirsson
hf., bauð 37,8 millj. eða 95,09%
af kostnaðaráætlun, Byggingafél.
Virki hf., bauð 35,5 millj. eða
99,11% af kostnaðaráætlun og
Fagverktakar hf. buðu 64,9 millj.
eða 162,98% af kostnaðaráætlun.
„Fyrir þá sem vinnu-
streitan er alveg að
buga veit ég ekkert
betra en að hverfa í
gjörólíkt umhverfi eins
og til snæviþaktra fjalla
þar sem nánast ekkert
er til að minna á dag-
legt amstur og allir eru
komnir með það eitt í
huga að stunda líkams-
rækt í hollu fjallalofti í
góðum félagsskap.
Reynið þetta í sumar,
því sjón er sögu ríkari.“
upp að skíðasvæðinu og þar hefst
vinnudagurinn nálægt klukkan hálf-
ellefu. í upphafi námskeiðs er nem-
endum skipt í hópa eftir kunnáttu.
Hóparnir eru yfirleitt fámennir
þannig að kennarinn getur veitt
hveijum nemanda þær leiðbeiningar
sem hann þarf. Slík kennsla er að-
alsmerki skólans og hafín langt yfir
marga erlenda skíðaskóla þar sem
kennsludagurinn er að mestu fólg-
inn í því að nemendur elta kenn-
arann um allar trissur og aðeins sá,
sem næstur honum er í röðinni nýt-
ur sýnikennslunnar. Kennararnir í
Kerlingarfjöllum eru tillitssamir og
liprir og skilja þarfir hvers og eins.
Skíðabrekkurnar eru sléttar og jafn-
ar og hallinn í þeim er hinn ákjósan-
legasti til kennslu og ekki síst fyrir
byijendur. Eftir 2 til 3 klukkustund-
ir er nemendum fært nesti, brauð,
kex, ávaxtasafi, kaffi og heitt kakó
og er sú hvíld og næring yfírleitt
kærkomin. Þar er á boðstólum hin
einstæða blanda af kaffi og kakói
sem bæði hressir og hlýjar. Síðan
hefst kennsla að nýju og lýkur deg-
inum á skíðasvæðinu oftast á milli
klukkan 4 og 5 síðdegis. í bæki-
stöðvum skólans bíða síðan allra
heit böð og heitir pottar og þar er
hægt að láta mestu þreytuna líða
úr sér áður en stuttur hvíldartími
gefst í koju. Heit og kjarngóð mál-
tíð er framreidd í aðalskálanum um
klukkan 7. Síðan gefst tími til hvíld-
ar eða leikja úti á meðan borð eru
tekin upp og undirbúningur fer fram
í eldhúsinu fyrir hið hefðbundna
kvöldkaffi og kex. Kvöldvökumar
hafa á sér sérstakt snið sem enginn
vill breyta og falla alveg að ævintýr-
um dagsins. Fjöldasöngur er mikill
og sérstaklega hafa svokallaðir
Kerlingarfjallasöngvar þá náttúru
að allir syngja með óháð lagvísi.
Forsöngvarar skólans sjá um að
enginn fari of langt út af laginu.
Textamir eru margir frumortir fyrir
skíðaskólann og þá er að finna í
söngbókinni Valdimaríu sem hefur
fengist í flestum bókabúðum og all-
ir ættu í raun að eiga. Auk söngsins
eru yfirleitt einhver heimatilbúin
skemmtiatriði sem börnin fara best
með þótt fullorðnir taki einnig þátt
í þeim. Þegar við á lýkur sumum
kvöldvökum með dansleik. Dálítið
þreyttir en jafnframt sælir skríða
nemendur síðan í bólið og hlakka
til að endurtaka allt næsta dag.
Mikið er um að fjölskyldur, sam-
stafsmenn, stéttarfélagar og skóla-
systkini mæli sér mót á þessum
skíðanámskeiðum. Auk skíðaiðkana
gefst nægur tími til gönguferða um
einstakt fjallaland og hverasvæði
og til leikja og samræðna, úti eða
inni. Fyrir þá sem vinnustreitan er
alveg að buga veit ég ekkert betra
en að hverfa í gjörólíkt umhverfi
eins og til snæviþaktra fjalla þar
sem nánast ekkert er til að minna
á daglegt amstur og allir eru komn-
ir með það eitt í huga að stunda
líkamsrækt í hollu fjallalofti í góðum
félagsskap. Reynið þetta í sumar,
því sjón er sögu ríkari.
Höfundur er kennari við
læknadeild Háskóla Islands.
„ „ BJÖRGUN UR RUSTUM - a
^SInámsstefna, námskeib
Verkfræðingafélag íslands gengst ásamt björg-
unaraðilum á íslandi fyrir heilsdags námsstefnu
um björgunarstörf vegna náttúruhamfara.
VFÍ heldur síðan framhaldsnámskeið um sama efni.
Námsstefna: Laugardag 17. apríl í Háskólabíó.
Allir velkomnir.
Skráning hefst kl. 8.00.
Setning kl. 8.30.
Námskeið: Þriðjudag 20. apríl í Verkfræðingahúsi
kl. 8.00. Opið verkfræðingum
og tæknifræðingum.
Aðalfyrirlesari: Sólveig Þorvaldsdóttir, verkfræðingur.
Þátttökugjald: Kr. 7.000,- á hvort námskeið,
kr. 12.000 fyrir bæði.
Hádegismatur og kaffi innifalið.
Skráning hjá VFÍ í símum
688511 og 688505. Fax 689703.
Verkfræðingafélag íslands
28 milljónir króna í
lokaáfanga Hlíðarskóla
BORGARRÁÐ hefur samþykkt að taka 28 milljón króna tilboði
lægstbjóðanda V. ívars Ström í lokaáfanga Hlíðarskóla. Tilboðið
er 70,35% af kostnaðaráætlun og var samþykkt að hækka banka-
tryggingu í 15% af tilboðsupphæð.