Morgunblaðið - 16.04.1993, Side 22

Morgunblaðið - 16.04.1993, Side 22
22 MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 16. APRÍL 1993 Japanir veiddu 330 hrefnur MÓÐURSKIP japanskra hval- veiðimanna, Nisshin Maru, kom í gær til Osaka frá hafsvæðum við Suðurskautslandið með af- urðir 330 hrefna. Segja tals- menn sambands hvalveiðifé- laga að veiddur hafí verið sá kvóti sem Alþjóðahvalveiðiráð- ið, IWC, hafí úthlutað Japan til vísindaveiða. Í næsta mánuði hefst fundur IWC í nágranna- borginni Kyoto og verður þar flallað um framtíð hvalveiða. Fulltrúi sjávarútvegsráðuneyt- isins japanska sagðist vona að fundurinn yrði Japönum hag- stæður. Hann taldi samt að þeir hefðu tapað stríðinu um hugi Vesturlandabúa sem iðr- uðust ofveiði sinnar á hvölum fyrr á árum og krefðust því algers banns. Vilja auka hagvöxt í EB FRAMKVÆMDASTJÓRN Evrópubandalagsins hefur í samráði við aðildarríkin sett saman áætlun um fjárveitingar til að örva hagvöxt í bandalag- inu og hyggst veija til þess 42,4 milljörðum Bandaríkja- dollara. Er búist við að þessar aðgerðir auki vöxt um 0,6% á næsta ári. Flestar ráðstafanirn- ar hafa verið kynntar áður. Fangar á lausum kili BRESKT fyrirtæki sem hefur gert samning við yfírvöld um að flytja fanga milli áfanga- staða, m.a. til yfirheyrslna, við- urkenndi í gær að hafa látið fímm manns sleppa úr greipum sér í síðustu viku. Þar af voru tveir óvart látnir lausir. Stjóm- arandstaðan segir yfirvöld eiga sök á því að þessi þjónusta sé farin að minna á skopmynd. Deilt um við- skiptahömlur í SKÝRSLU framkvæmda- stjórnar EB, sem kom út í gær, eru Bandaríkjamenn sak- aðir um að halda uppi ýmiss konar viðskiptahindrunum og hefði ekki verði gerð þar á mikil bragarbót síðan í fyrra. Eftir nokkra daga hefjast í Washington samningaviðræður EB og Bandaríkjanna sem hafa það að markmiði að koma í veg fyrir viðskiptastríð. Ofbeldi verði stöðvað STJÓRNVÖLD í Suður-Afríku hvöttu í gær Afríska þjóðarráð- ið, ANC, til að stöðva ofbeldis- aðgerðir liðsmanna sinna og sjá til þess að hægt yrði að semja um kosningar þar sem allir kynþættir hefðu jafnan kosn- ingarétt. AIls féllu 17 manns í óeirðum á miðvikudag. Viðvörunum mótmælt YFIRVÖLD í Miami í Flórída gagnrýna þýsk stjómvöld fyrir að senda frá sér yfírlýsingu þar sem þýskir ferðamenn eru var- aðir við því að vera á ferli á vissum stöðum í borginni eftir sólsetur. Nýlega var þýsk kona myrt í Miami af glæpamönnum fyrir framan móður sína og tvö lítil börn. Borgaryfírvöld segj- ast hafa fulla stjóm á ástandinu en morðum á ferðamönnum hefur fjölgað mjög í Flórída undanfarna mánuði. Jeltsín Rússlandsforseti þjarmar að varaforsetanum Rútskoj sakaður um andúð á einkabúskap Moskvu. Reuter. ÁGREININGURINN milli Borísar Jeltsíns, forseta Rússlands, og Alexanders Rútskojs varaforseta fer enn vaxandi. Talsmaður hins síðarnefnda skýrði frá því í gær að fækkað hefði verið fyrirvaralaust í lífvarðaliði hans, einkalæknir hans fluttur úr starfi og brynvarin embættisbifreið af Mercedes Benz-gerð hefði verið fjarlægð. í stað- inn fengi varaforsetinn Volgu. Jeltsín gaf í skyn á miðvikudag að hann myndi ef til vill reyna að bola Rútskoj úr embætti. Forsetinn sagðist í gær myndu hundsa reglur sem þingið hefur sett um þjóðar- atkvæðið 25. apríl. Þingið telur að ekki sé um ótvíræðan stuðning við stefnu forsetans að ræða nema meira en helmingur atkvæðis- bærra Rússa styðji hana. Yfirmaður lífvarða Jeltsíns sagði síðdegis að Benz-bifreið Rútskojs væri í viðgerð, fækkun lífvarðanna úr 20 í 3 væri hluti af endurskipu- lagningu varðgæslunnar og Rútskoj ætti engan rétt á einkalækni. Heimildarmenn höfðu eftir Jeltsín að hann hygðist víkja Rútskoj úr stöðu yfirmanns landbúnaðarmála en stuðningsmenn forsetans segja Rútskoj andvígan einkavæðingu landbúnaðar. Talsmaður varaforset- ans, Andrej Fjodorov, vísaði þeim ásökunum harðlega á bug í gær. „Rútskoj er mjög hlynntur einkabú- skap ... en hann telur að við ættum ekki að skilja bændur eftir á köldum klaka án lánafyrirgreiðslu, án hæfi- legrar tækniaðstoðar ... Við ætt- um ekki að einkavæða og bijóta í sömu andrá niður allt kerfí sa- myrkjubúskaparins, það gæti gert út af við okkur,“ sagði Fjodorov. Rútskoj útskýrði þessi sjónarmið sín í langri og harðorðri grein í Prövdu í gær en blaðið er talið eitt helsta málgagn afturhaldsmanna í Rússlandi. Þess má geta að Sajudis- hreyfíngin í Litháen, er tapaði ný- lega í þingkosningum fýrir arftaka kommúnistaflokksins, var einnig gagnrýnd fyrir að bijóta niður sam- yrkjukerfið án þess að hafa fýrst undirbúið einkabúskap. Jeltsín boðar tilskipun Jeltsín var skorinorður í gær er hann minnti á að stjórnlagadómstól landsins bæri að úrskurða fyrir 20. apríl hvort kosningareglur þingsins stæðust. „Eftir 20. apríl mun ég gefa út tilskipun þess efnis að álykt- un þingsins sé gróft brot á stjórnar- skránni og lögum um þjóðarat- Haavisto er óreyndur í utanríkis- málum og sumir telja að Váyrynen sé að koma á framfæri eigin eftir- manni, aðrir að verið sé að koma Borís Jeltsín Reut«r kvæði, telja verði atkvæðin í sam- ræmi við lög um þjóðaratkvæði," sagði forsetinn. Verði tilskipun hans hlítt merkir það að atkvæðagreiðsl- an er gild þótt aðeins helmingur mæti á kjörstað. Forsetanum nægir þá að fá stuðning rúmlega 25% at- kvæðisbærra til að geta hrósað sigri. til móts við EB-andstæðinga sem eru margir í flokknum er hefur mikið fýlgi meðal bænda og í strjál- býli. Váyrynen hættir Helsinki. Frá Lars Lundsten, fréttaritara Morgunblaðsins. PAAVO Vayrynen skýrði í gær frá væntanlegri afsögn sinni úr emb- ætti utanríkisráðherra Finnlands en hann verður frambjóðandi Mið- flokksins í komandi forsetakosningum. Flokkurinn mun að líkindum tilnefna Heikki Haavisto í stað Vayrynens en hann er harður andstæð- ingur aðildar Finna að Evrópubandalaginu. Deilur og uppsagnir eru daglegt brauð í Evrópubankanum Attali fannst það brýn- ast að ráða matsvein London. Daily Telegraph. ÞEGAR fulltrúar hluthafanna 53ja í Endurreisnar- og þróunarbanka Evrópu, öðru nafni Evrópubankanum, koma saman til aðalfundar í London eftir um tvær vikur verður liklega spurt um árangurinn af ferðalögum Jacques Attalis bankasijóra á einkaþotum um víða veröld. Hins vegar er óþarfi að spyija um kostnað við ferðalög bankastjór- ans, það sem fyrir liggur að hann var 60 milljónir króna á síðasta ári. í marmarahöllinni ÚR ríkmannlegum salarkynnum Endurreisnar- og þróunarbanka Evrópu í London. Marmari af bestu gerð þekur alla veggi og öll gólf í húsinu og kostaði klæðningin rúmar 70 milljónir króna. Þegar fulltrúar hluthafa, almenn- ings í mörgum ríkjum, safnast saman í risastóru bankaanddyrinu þar sem skjanna- hvítur marmarinn þekur veggi og gólf mun það heldur ekki fara framhjá þeim í hvað fjármagnið hefur farið, að minnsta kosti stór hluti þess. Þegar bankinn keypti bygging- una var að vísu marmari á veggjun- um en það var bara venjulegur Travertine-marmari sem er algeng- ur í breskum byggingum. Attali vildi hins vegar fá glæsilegri stein og lét því rífa hann niður og sækja í staðinn sérstakan höggmynda- marmara til Forte di Marmi í Tosc- ana-héraði á Ítalíu. Kostnaðurinn við það eitt var 750.000 pund eða rúmar 70 milljónir króna. Skýrt hefur verið frá óvenjuleg- um ferðamáta bankastjórans. Blaðamaður Daily Telegraph var með í ferð til Alma Ata í Kazakhst- an í fyrra. Skömmu eftir flugtak einkaþotunnar í London brá Attali sér spariklæddur inn í baðherbergi og kom skömmu síðar þaðan út á fínum náttfötum, tilbúin til að leggj- ast í koju en átta stunda flug var framundan. Settist hann þó fyrst niður í djúpa leðurstóla og franskt þjónustulið bar fram þríréttaða máltíð og kampavín á undan. Eftir lendingu í Alma Ata var tekið á móti Attali sem þjóðhöfð- ingja, rauðir dreglar lagðir að land- ganginum og sérstök bílalest flutti hann og fylgdarlið inn til borgarinn- ar. í opinberu mótttökunefndinni bar nokkuð mikið á manni í svörtum leðuijakka sem minnti helst á leigu- bílstjóra en reyndist svo vera sjálfur seðlabankastjórinn í Kazakhstan. Stórhuga bankastjóri Attali þykir stórhuga og lítt jarð- bundinn. Honum er lýst sem gáfuðu en einráðu og hrokafullu glæsi- menni sem lifí í napóleonskum draumaheimi. Stjórn hans á bank- anum hefur veríð umdeild frá upp- hafi og deilur milli hans og æðstu manna stofnunarinnar eru daglegt brauð. Af þeim sökum hafa upp- sagnir verið tíðar í bankanum þó staða þar þyki með því eftirsóknar- verðasta í breskum fjármálaheimi. Rekstur bankans hefur verið umdeildur og fáir bera honum vel söguna en enginn hefur þó orðið til að gagnrýna bankann opinber- lega. Er ástæðan meðal annars sú, að þótt menn séu ekki fastir starfs- menn er hægt að græða vel á því að vinna fyrir hann, svo sem með -ýmiss konar ráðgjöf, sem auðvelt er að verða sér úti um þekki menn fulltrúa innandyra. Tilgangurinn með stofnun bank- ans var að styðja og styrkja þær þjóðir sem kommúnisminn hafði skilið eftir í sárri fátækt í austan- verðri Evrópu. Litlum árangri hefur bankinn náð í þeim efnum en hins vegar hafa hundruð starfsmanna hans, lögmenn og ráðgjafar lifað í vellystingum praktuglega frá því hann tók til starfa 1990. Um síðustu áramót, tveimur og hálfu ári eftir að bankinn hóf starf- semi, hafði hann varið 101 milljón punda, jafnvirði 10 milljarða króna, til fjárfestinga í austanverðri Evr- ópu en rúmlega tvisvar sinnum meiri upphæð til eigin þarfa. Þykir það heldur skrítin ráðsmennska en bankinn á hlut í súkkulaðiverk- smiðju í Tékklandi, í fj'árfestinga- sjóði og í pólskum banka. Attali hefur svarað gagnrýni á starfsemi bankans með því að segja að fjár- festingar sem nema fimm milljörð- um punda, nálægt 500 milljörðum króna, séu til skoðunar hjá bankan- um. Byrjaði á því að ráða kokk Fyrsti maðurinn sem Attali réð til starfa hjá Evrópubankanum var kokkurinn. Að því búnu spurðu fjöl- miðlar hvemig hann hygðist standa að vali æðri stjórnenda og hann svaraði að bragði: „Einfalt mál. Ég verð mér úti um lista yfir Nóbels- verðlaunahafa í hagfræði og vel af honum.“ Fyrsta viðfangsefni bankans sem skýrt var frá opinberlega reyndist ekki góð auglýsing. Það var, að bankinn hygðist kaupa hlut í tékkn- eska flugfélaginu CSA í samvinnu við franska ríkisflugfélagið Air France. Forstjóri þess var enginn annar en tvíburabróðir bankastjór- ans, Bernard Attali. Það þótti ekki góð latína og hagsmunatengslin einum of augljós.

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.