Morgunblaðið - 16.04.1993, Blaðsíða 23
MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 16. APRÍL 1993
23
Reuter
Maraþonkúrekinn
MEXÍKÓSKI Maraþonhlauparinn Salvador Garcia beinir leikfangabyssu sinni
að ljósmyndurum í London. Garcia er liðþjálfi í hernum, var gerður að liðs-
foringja eftir sigur í New York_ 1991 en lækkaður í tign á ný eftir að hafa
mistekist að ljúka hlaupinu á Ólympíuleikunum í fyrra. Hann hyggst taka
þátt í hlaupi í London á sunnudag, klæddur kúrekafötum, og hefur þjálfað
sig með aðstoð vígalegra Doberman-hunda er gegna heitunum Napóleon,
Hitler og Gaddafi. Hann fékk þó ekki að taka þá með sér til Bretiands.
Iðnríkin rausnarlegri en búist hafði verið við
Rússar fá 43,4 millj-
arða dollara í stvrk
Tókvó. Moskvu. Reuter.
Tókýó, Moskvu. Reuter.
SJÖ helstu iðnríki heims ætla að styðja Rússland með 43,4 milljörðum
dollara eða sem svarar til 2.734 milljarða ísl. kr. Er vonast til, að
þetta framlag, sem er 50% hærra en búist hafði verið við, verði til
að auka stuðning rússneskra kjósenda við Borís Jeltsín forseta í þjóðar-
atkvæðagreiðslunni 25. þessa mánaðar. Sergei Stankevítsj, ráðgjafi
Jeltsíns, sagði í gær, að þessi stuðningur væri gífurlega mikilvægur
fyrir Rússa.
Fjármála- og utanríkisráðherrar
iðnríkjanna sjö, Bandaríkjanna, Bret-
lands, Frakklands, Ítalíu, Japans,
Kanada og Þýskalands, lýstu auk
þess yfir á fundinum í Tókýó, að um
yrði að ræða áframhaldandi stuðning
við Rússland og lýðræðisþróunina
þar. Sögðu þeir, að óhjákvæmilegar
umbætur í efnahagsiífínu myndu
koma hart niður á rússneskum ai-
menningi og buðust til að létta und-
ir með þeim þjóðfélagshópum, sem
verst yrðu úti.
Fjárstuðningnum við Rússa má í
grófum dráttum skipta í 15 miiljarða
dollara eftirgjöf af skuldum, 13,1
milljarðs dollara framlag frá Alþjóða-
gjaldeyrissjóðnum, sjö milljarða doll-
ara framlag, sem átti að greiðast í
fyrra en var frestað vegna óvissunn-
ar í rússneskum stjórnmálum, og 4,5
milljarða dollara frá Alþjóðabankan-
um.
Brýnast að hægja á
prentvélunum
í yfirlýsingu iðnríkjanna eða G7-
hópsins segir, að framlagið verði innt
fljótt og vei af hendi en það sé hins
vegar Rússa sjálfra að tryggja um-
bætur í landinu, einkum með því
hafa hemil á stjórnlausri seðiaprent-
un seðlabankans. Hann lýtur aftur-
haldssömu þinginu en ekki Jeltsín
og prentar peninga eftir pöntun frá
ríkisfyrirtækjum með þeim afleiðing-
um, að verðbólgan er stjórnlaus.
Talsmenn rússneskra stjórnvalda
hafa fagnað stuðningnum en fáir
búast við, að hann muni ráða miklu
um afstöðu kjósenda í þjóðarat-
kvæðagreiðslunni á sunnudag annan
er kemur. Moskvubúar, sem teknir
voru tali, sögðu margir, að það væri
niðurlægjandi að þurfa að leita ásjár
hjá vestrænum ríkjum.
„Mér finnst skammarlegt að þurfa
að gera þetta en það er svo hörmu-
lega fyrir okkur komið,“ sagði einn
þeirra.
Jacques Delors í sænska þinginu
Afskekkt svæði njóta
góðs af aðild að EB
Stokkliólmi. Frá Erik Lidén, fréttaritara Morgunblaðsins.
VANDRÆÐI Evrópubandalagsins hafa verið ýkt. Aðild að bandalag-
inu væri Svíum verulega í hag ekki síst hvað varðar byggðamál.
EB-aðild væri mikill kostur fyrir afskekktar byggðir í Svíþjóð, þar
sem þær myndu njóta góðs af stuðningi frá bandalaginu. Þetta var í
stórum dráttum sá boðskapur sem Jacques Delors, forseti fram-
kvæmdasljórnar EB, flutti sænska þinginu í ræðu í gær.
„Það er fullkomlega ljóst að ekki skilja vel að sjálfstæði ríkja væri
er hægt að leysa umhverfisrnálin á
vettvangi einstakra ríkja. Ég þarf
bara að minna á eyðilegginguna í
Eystrasalti eða á Kólaskaga í því
sambandi," sagði Delors. Hann sagði
einnig að írafárið á gjaldeyrismörk-
uðum í Evrópu síðastliðið haust hefði
verið vegna þess að einstaka ríki
væru ófær um að reka eigin vaxta-
eða gengisstefnu. Delors sagðist
mikið tilfinningamál. Aðild að EB
væri ekki um að gefa sjálfstæðið
upp á bátinn heldur að „deila“ því.
Hann lagði ríka áherslu á byggða-
stefnu bandalagsins í máli sínu og
minnti á að við lok þessa áratugar
myndu um 35% útgjalda EB, eða
um 2.700 milljarðar, rennatil styrkt-
ar vanþróaðra svæða innan banda-
lagsins.
%
%
1
JGhflSITUR
UHOIRSTÍRlf
Líttu við og sjáðu hvað bíllinn er nettur
en rúmgóður, kraftmikill en sparneytinn.
Tigulegur í útliti en með látlaust yfirbragð,
tæknilega vel útbúinn og á ótrúlega
lágu verði.
Verð frá
hr. 1 139 000
Bíll ársins í Kanada
BIFREIÐAR & LANDBÚNAÐARVÉLAR HF. • ÁRMÚLA 13. SÍMI: 68 12 00 • BEINN SÍMI: 3 12 36