Morgunblaðið - 16.04.1993, Síða 28

Morgunblaðið - 16.04.1993, Síða 28
28: MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 16. APRÍL 1993 Davíð Oddsson forsætisráðherra svarar fyrirspurn Finns Ingólfssonar Bætur vegna aflabrestsins tengdar kjarasamningum DAVIÐ Oddsson forsætisráðherra svaraði í gær fyrirspurn frá Finni Ingólfssyni (F-Rv) um hvenær útgerðarmenn mættu búast við að fá bætur vegna þorskaflabrests á yfir- standandi fiskveiðiári. Forsætisráðherra sagði þessi mál vera orðin þátt í viðræðum um kjarasamninga og ef þeir næðust vænti hann þess að niðurstaðan myndi vera í sam- ræmi við bæði sín sjónarmið og fyrirspyrjanda. Finnur Ingólfsson sagði að þeg- ar aflahámörk hefðu verið ákveðin síðasta sumar hefði verið ljóst að Stuttar þingfréttir Samningsveð og þinglýsingar Allsheijarnefnd hefur nú til umfjöllunar frumvarp til laga um samningsveð. Það kom fram í framsöguræðu Þor- steins Pálssonar dómsmála- ráðherra að mat flestra sem til þekkja sé að gildandi veðlög fullnægi ekki nútímakröfum. Er þá einkanlega átt við að gildandi íslenskar réttarreglur á sviði veðréttar svari hvorki þörfum atvinnuveganna til aukinna veðsetningarheimilda og þar með eftirspurn þeirra eftir lánsfé, né heldur veiti reglurnar lánastofnunum og öðrum lánveitendum nægjan- legt öryggi við lánveitingar. Samhliða fyrrgreindu frum- varpi var frumvarp um breyt- ingu á þinglýsingarlögum nr. 39 10. maí 1978, sbr. lög nr. 63 24. maí 1988 lagt fram. Frumvarpið mælir fyrir um stofnun sérstakrar lausafjár- skrár, sem nái til landsins alls og halda skal við embætti sýslumannsins í Reykjavík. Regnfatnaöur í miklu úrvali 'K ÚTILÍFf GLÆSIBÆ. SÍMI812922 einstök skip og byggðarlög hefðu orðið mjög hart úti. Allir hefðu verið sammála um nauðsyn þess að bæta þetta áfall en menn hefði grdin á um leiðir. Sjávarútvegsráð- herra, fjöldi þingmanna og einnig hagsmunasamtök í sjávarútvegi voru um það sammála að eðlileg- ast væri að nota aflaheimildir Hagræðingarsjóðs. En Davíð Oddsson forsætisráðherra vildi aðra leið; þá að greiða sérstakar bætur eða styrk úr ríkissjóði að upphæð 450 milljónir króna. Þetta virtist hafa orðið niðurstaðan. For- sætisráðherra hefði lýst því yfir 11. ágúst að frá þessu máli yrði gengið innan fárra daga. Það hefði Sjálfstæðisflokkur réð? í gær 15. apríl birtist í Morgun- blaðinu grein eftir Jóhann Ársæls- son, fulltrúa Alþýðubandalagsins í sjávarútvegsnefnd, undir yfír- skriftinni: „Tvíhöfði skilar áliti, kvótaeigendur hrósa sigri.“ í þess- ari grein er því haldið fram að „hrossakaup stjórnarflokkanna frá í haust“ séu nú staðfest þegar svonefnd tvíhöfðanefnd hafí skilað áliti. „Höfuðniðurstaða stjórnar- flokkanna er að festa núgildandi kvótakerfí í sessi með því ígildi eignarhalds á auðlindinni sem því fylgir,“ sagði greinarhöfundur. Einnig: „Veikburða viðnám Al- þýðuflokksins sem fólst í því að reyna að koma á sölu veiðiheimilda hafði þann árangur að gert er ráð fyrir að farið verði að innheimta veiðleyfagjöld í árslok 1996. Það breytir engu um algeran sigur veiðiréttareigenda í sjálfu grund- vallaratriði málsins, þ.e.a.s. ígildi eignarréttar kvótaeigenda í því að nýta auðlindina verður áfram í gildi ... Hugmyndir Alþýðuflokks- ins stóðust ekki umræðuna milli stjómarflokkanna, þeir urðu að viðurkenna að þær gengju ekki upp. Forsvarsmenn kvótaeigenda, sem virðast fara með þessi mál í Sjálfstæðisflokknum, fóru með sigur af hólmi.“ Einnig má lesa: „I hugmyndum um „þróunarsjóð“ er gengið útfrá því að aflamarkskerfl verði áfram í gildi þannig að verði þau áform að veruleika hefur núgildandi kvótakerfi verið fest í sessi.“ Um afstöðu Framsóknarflokksins er sagt eftirfarandi: „Fyrrverandi ekki gengið eftir. Fyrir nokkrum vikum hefði forsætisráðherra sagt að þessi vandamál yrðu leyst í tengslum við Þróunarsjóð sjávar- útvegsins. Finnur vildi taka því eins og hveiju öðru gríni; þeir peningar yrðu þá teknir frá sjáv- arútveginum. Finni var spurn: „Hvenær mega útgerðarmenn bú- ast við að fá bætur vegna þorsk- aflabrests á yfírstandandi físk- veiðiári, sem forsætisráðherra lof- aði í ágú.st síðastliðnum að þeir fengju þá innan tíðar?" Frá biðstöðu til kjarasamninga Davíð Oddsson forsætisráð- herra sagði þessi mál hafa iðulega verið rædd á Alþingi og víðar. Upphaflegar tillögur um framlög úr Atvinnuleysistryggingasjóði, ríkissjóði og Fiskveiðasjóði hefðu mætt mikilli andstöðu hagsmuna- aðila, einstakra þingmanna. Einn- ig hefði Fiskveiðasjóður ekki viljað ganga til þessa verks. Forsætis- ráðherra sagði að hann teldi þessa sjávarútvegráðherra, Halldór Ás- grímsson, hefur talað þannig um þessar hugmyndir og meðferð málsins, að leiða má að því líkur að Framsóknarflokkurinn muni vera tiltölulega ánægður með þró- un þessa máls og væri jafnvel til- búinn að liðka fyrir því að það fái í heild framgang á þessu þingi.“ Styðja ekki allt Fyrsta mál á dagskrá 156. þing- fundar í gær var fyrirspum Finns Ingólfssonar (F-Rv) um hvenær útgerðarmenn mættu vænta bóta vegna þorskaflabrests og lofað hefði verið í ágúst á síðasta ári. Stefna ríkistjómarinnar og tillögur tvíhöfðanefnarinnar komu þar nokkuð til umræðu. Össur Skarp- héðinsson (A-Rv), formaður þing- flokks Alþýðuflokks, sagði ríkis- stjórnina hafa lagt fram tillögur sem hefðu hlotið „nokkuð góðar undirtekir" hjá Framsóknar- flokknum. Þessar undirtektir hefðu reyndar leitt til þess að Jó- hann Ársælsson hefði lýst því yfir í Morgunblaðsgrein þennai. dag að framsóknarmenn styddu þessar tillögur. Össur sagði að Þróunar- sjóðurinn og sú nýbreytni sem í honum fælist væri auðvitað ekki annað en viðleitni ríkisstjórnarinn- ar til að gera útgerðinni kleift að laga sig að breyttu ástandi físk- stofnanna. Össur vildi fá fram afstöðu framsóknarmanna. Páll Pétursson (F-Nv), formað- ur þingflokks Framsóknarflokks- ins, vildi ekki una því að Jóhann Ársælsson svaraði fyrir hvað Framsóknarflokkurinn styddi eða styddi ekki. Páll sagðist geta sagt afstöðu Fiskveiðasjóðs ekki hafa verið nægjanlega rökstudda. Þess- ir þættir hefðu orðið til að málið hefði farið í biðstöðu. Forsætisráðherra ítrekaði þá skoðun að það væri réttlætismál að bæta þeim útgerðum og byggð- arlögum sem verst urðu úti þorsk- veiðibrestinn. Hann væri enn þess- arar skoðunar þótt raddir hefðu hefðu heyrst, þ. á m. innan ríkis- stjórnarinnar, um að forsendur hefðu breyst með aðgerðunum í nóvember. Forsætisráðherra sagði þessi mál hafa nú verið rædd í tengslum við gerð kjarasamninga og væru orðin þáttur í þeim. Hann taldi að ef gengið yrði til kjarasamninga á næstu 2-3 dögum myndu þær niðurstöður mjög svo uppfylla þau sjónarmið sem Finnur Ingólfsson hefði, og jafnframt þau sjónamið sem hann hefði. En forsætisráð- herra tók fram að þessi lausn væri tengd því að kjarasamningar næðust. frá því að Framsóknarflokkurinn styddi ekki alla sjávarútvegsstefnu núverandi ríkisstjómar. Fram- sóknarflokkurinn væri andvígur því veiðileyfagjaldi sem nú væri verið að innleiða. Framsóknar- flokkurinn væri ekki heldur á því að níðast á smábátaútgerðinni. Alþýðuflokkur réði? Formaður þingflokks framsókn- armanna sagði fyrirspurn Finns Ingólfssonar fyllilega tímabæra. Þetta mál væri orðið að allgjörri „lönguvitleysu“ sem sýndi van- mátt ríkisstjómarinnar til að með- höndla vandann í sjávarútveginum og sjávarútvegsstefnuna. „Al- þýðuflokkurinn hefur verið að hnoðast við það í allan vetur að beygja Sjálfstæðisflokkinn í mál- inu og hefur nú tekist það að tölu- verðum hluta. Og það tel ég illt.“ Gjald ekki útilokað Halldór Ásgrímsson, varafor- Davíð Oddsson Finnur Ingólfsson fagnaði því að forsætisráðherra væri þeirrar skoðunar að bæta þyrfti útgerð- inni aflabrestinn þrátt fyrir efna- hagsaðgerðirnar í nóvember, enda væri staða útgerðarinnar í dag verri en fyrir þær aðgerðir. Nú ætti að leysa þetta allt saman í tengslum við kjarasamninga. Þama væri nú komið að nákvæm- lega sömu niðurstöðunni; að nota aflaheimildir Hagræðingarsjóðsins eins og stjórnarandstaðan og sjáv- arútvegsráðherra hefðu viljað upp- haflega. maður Framsóknarflokksins, sagði í samtali við Morgunblaðið að framsóknarmenn væru sam- mála svonefndri tvíhöfðanefnd í því áliti að byggja í aðalatriðum á því fiskveiðistjórnunarkerfi sem verið hefði. En skiljanlega væri ýmislegt í þessum tillögum sem þeir gætu ekki skrifað fyrirvara- laust uppá, enda hefði stjórnarliðið ekki haft neitt samráð við stjórnar- andstöðuna um mótun tillagnanna og margt væri enn óljóst um út- færslu þeirra. Halldór ítrekaði þá afstöðu framsóknarmanna að þeir væm á móti auðlindaskatti á sjávarutveg- inn; þ.e. gjaldtöku sem væri ætlað að renna til sameiginlegra verk- efna samfélagsins, t.d. hafrann- sókna. Hins vegar væru þeir ekki á móti gjaldi sem væri ætlað til vissra sameiginlegra þarfa sjávar- útvegsins, s.s. til úreldingar fiski- skipa. Deilt um afstöðu Framsókn ar til hugmynda Tvíhöfða JOHANN Arsælsson (Ab-Vl), fulltrúi Alþýðubandalagsins í sjávar- útvegsnefnd, telur Framsókn líklega til að styðja hugmyndir og tillögur svonefndrar tvíhöfðanefndar. Páll Pétursson, formaður þingflokks Framsóknarmanna, taldi það standa sér nær að segja til um það hvað Framsókn styddi eða styddi ekki. Framsóknar- flokkurinn styddi ekki alla sjávarútvegsstefnu ríkisstjórnarinnar. I samtali við Morgunblaðið ítrekaði Halldór Ásgrímsson (F-Al), varaformaður Framsóknarflokksins og fyrrum sjávarútvegsráð- herra, að hann væri sammála tvíhöfðanefndinni í því að farsælast væri að byggja á því fiskveiðistjórnunarkerfi sem verið hefði.

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.