Morgunblaðið - 16.04.1993, Blaðsíða 29
MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 16. APRÍL 1993
29
Blóðgjafar sem heiðraðir voru á aðalfundi BGFÍ 1993 ásamt fráfarandi og nýkjörnum formanni.
Aðalfundur Blóðgjafafélags íslands
Tveimur veitt viðurkenn-
ing fyrir 7 5 blóðgjafir
TVEIR blóðgjafar, þeir Árni Ásmundsson og Hávarður
Emilsson, voru heiðraðir fyrir að hafa gefið 75 sinnum
á aðalfundi Blóðgjafafélags Islands sem haldinn var
nýlega. Að auki fengu 23 viðurkenningu fyrir að hafa
gefið blóð 50 sinnum.
í fyrra náði fyrsti íslendingur-
inn, Þórður Þórðarson, því marki
að gefa blóð í hundraðasta sinn. Á
fundinum var kjörinn nýr formað-
ur, Anna María Snorradóttir,
hjúkrunarfræðingur Rauða kross
íslands, sem tók við af Ólafí Jens-
syni, yfirlækni, en hann hefur ver-
ið formaður félagsins frá upphafi,
eða í 12 ár.
Félagar í Blóðgjafafélaginu eru
allir sem gefa blóð á Islandi auk
áhugasamra einstaklinga. Megint-
ilgangur félagsins er að fræða blóð-
gjafa, almenning og stjórnvöld um
blóðsöfnun, blóðbankastarfsemi og
mikilvægi blóðs í lækningum og
læknavísindum. Félagið hefur einn-
ig gefið tæki sem tengjast blóð-
rannsóknum, það hefur styrkt
rannsóknarverkefni og gert kleift
að sækja námskeið sem tengjast
starfseminni hér heima og í útlönd-
um.
Fornsagnaþing
á Akureyri 1994
NÍUNDA alþjóðlega fornsagnaþingið verður haldið í Verk-
menntaskólanum á Akureyri dagana 31. júlí til 6. ágúst
1994. Á ráðstefnunni verður fjallað um samtíðarsögur. (bisk-
upasögur, veraldlegar samtíðarsögur og sögur um Sverri
konung Sigurðarson og afkomendur hans) af sjónarhóli
textafræði, málfræði, bókmenntafræði, helgisagnafræði,
sagnfræði, mannfræði og skyldra fræðigreina.
Undirbúningsnefnd fornsagna-
þingsins á Akureyri skipa: Sverrir
Tómasson, formaður, sem sæti á
í Alþjóðlegu ráðgjafarnefndinni,
Stofnun Árna Magnússonar; Ásdís
Egilsdóttir, Rannsóknastofnun í
bókmenntafræði, heimspekideild
Háskóla íslands; Stefán Karlsson,
Stofnun Árna Magnússonar; Har-
aldur Bessason, Háskólanum á
Akureyri; Tryggvi Gíslason,
Menntaskólanum á Akureyri; og
Ulfar Bragason, Stofnun Sigurðar
Nordals.
Hér innanlands hafa bréf um
þingið verið send félagsmönnum í
Félagi íslenskra fræða, en aðrir
sem hefðu áhuga á að sækja það
geta fengið nánari upplýsingar og
þátttökueyðublöð með því að snúa
sér til Stofnunar Árna Magnússon-
ar, Árnagarði við Suðurgötu, 101
Reykjavík. Þátttöku þarf að til-
kynna fyrir 25» apríl nk.
Alþjóðlegt fornsagnaþing var
fyrst haldið í Edinborg 1971 að
frumkvæði Hermanns Pálssonar
ogsannað þingið í Reykjavík 1973.
Síðan hafa þessi þing verið haldin
reglulega á þriggja ára fresti, í
sínu landinu hvert skipti, Noregi,
Þýskalandi, Frakklandi, Dan-
mörku, Ítalíu og Svíþjóð.
Á þessum þingum hafa að jafn-
aði verið um það bil 200 þátttak-
endur auk maka, einkum háskóla-
kennarar, og hafa þeir komið úr
öllum heimsálfum, enda er lögð
stund á íslenskar fornbókmenntir
við fjölmarga háskóla um víða
veröld, einkum þó í Evrópu og
Norður-Ameríku. Hvert þing hefur
staðið tæpa viku, og eitt megin-
svið fornbókmennta okkar hefur
verið aðalumfjöllunarefni hveiju
sinni. Fjöldi fyrirlestra hefur verið
fluttur, og þessi þing hafa tví-
mælalaust átt mikinn þátt í aukn-
um fræðilegum og persónulegum
kynnum þess fólks sem vinnur að
rannsóknum á íslenskum fornbók-
menntum og orðið til þess að efla
áhuga á þessu merka framlagi
íslendinga til heimsbókmennt-
anna.
(Úr fréttatilkynningu)
Bankar sem annast gjaldeyrisviðskipti
Enginn skiptir
erlendri mynt
ERLENDRI mynt og óvenjulegum erlendum gjaldmiðlum er
ekki skipt fyrir íslenskar krónur í bönkum hérlendis sem ann-
ast gjaldeyrisviðskipti. Mjög hefur borið á því undanfarin ár
að fólki sem vill fá slíkum gjaldmiðlum skipt sé bent á Seðla-
banka íslands, en að sögn Skúla Sigurðssonar starfsmanns þar,
fæst Seðlabankinn ekki við slíka hluti.
leiðrétta þennan misskilning, en
þetta komi þó upp aftur og aftur.
Sá misskilningur hafi einhvern tím-
ann komist á að Seðlabankinn taki
við óvenjulegri mynt og seðlum.
„Staðreyndin er sú að það kaupir
enginn bankinn hérlendis erlenda
slegna mynt og hefur ekki gert árum
saman. Hún er mjög dýr í flutning-
um,“ sagði Skúli.
Verðlitlir seðlar
Hann sagði að oft væri um verð-
litla seðla að ræða, eins og t.a.m. frá
Suður-Ameríkuríkjum, þótt háar
upphæðir séu á seðlunum þá sé geng-
ið afar lágt. „Það sem er kannski
verst af öllu er hve erfitt það er fyr-
ir útlendinga að skipta seðlum frá
Ástralíu, Singapore, Japan og Hong
Kong, þar sem gengi er almennt
hátt. Bankarnir eru að senda okkur
fólk með slíka seðla,“ sagði Skúli.
Landsbankinn í
Grindavík 30 ára
Grindavík.
LANDSBANKINN í Grindavík átti 30 ára afmæli nú nýverið. Haldið
var upp á afmælið með pomp og pragt þar sem fjöldi bæjarbúa og
annarra komu í heimsókn og nutu góðgerða.
Landsbankinn hóf starfsemi sína Bankinn bauð í afmæliskaffi í
í Grindavík á Víkurbraut 9 þar sem tilefni dagsins og skemmtiatriði.
heitir Gimli. Þaðan flutti hann að Landsbankakórinn kom í heimsókn
Víkurbraut 25 sem núna hýsir lög- og Trausti bankastjóri heilsaði upp
regluna og í október 1987 flutti á yngstu gestina. Þá léku nemendur
hann í núverandi húsnæði sem var Tónlistarskólans í Grindavík.
sérstaklega byggt undir starfsemi
hans og þykir mjög glæsilegt. FÓ
Skúli skrifaði grein í SÍB tíðindi,
sem Samband íslenskra bankamanna
gefur út, þar sem hann skýrir frá
því að það hafi viðgengist í áratugi
að viðskiptavinum banka og spari-
sjóða, sem vilja selja eða kaupa er-
lenda seðla eða slegna mynt, sem
ekki finnst á gengisskráningu Seðla-
bankans, sé vísað á Seðlabankann
og þeim sagt að hann sjái um að
versla með óvenjulega seðla og mynt.
„Seðlabankinn er, eins og allir
bankastarfsmenn ættu að vita, banki
ríkisins, banka og sparisjóða, og
stundar ekki bankaviðskipti við al-
menning nema við sölu nýrra ríkis-
verðbréfa," segir í grein Skúla.
Dýr í flutningi
Skúli segir að Seðlabankinn hafi
reynt að bregðast við þessu með því
að hringja í viðkomandi banka og
Félags íslens