Morgunblaðið - 16.04.1993, Page 31

Morgunblaðið - 16.04.1993, Page 31
MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 16. APRÍL 1993 31 Júdit Polgar tefl- ir í Sjónvarpinu Skák Margeir Pétursson EIN SKÆRASTA stjarnan í hinum alþjóðlega skákheimi, ungverska stúlkan Júdit Polg- ar kemur til Islands um helg- ina og teflir á sjónvarpsmóti með þremur íslenskum stór- meisturum. Hún er aðeins sextán ára gðmul en að undan- förnu hefur hún samt sigrað hvert karlavígið á fætur öðru. Fyrir nokkrum dögum lagði hún bæði Nigel Short og Ana- tólí Karpov 2-0 á atskákmóti í Mónakó. Það er Mjólkursam- salan sem kostar skákmótið sem fram fer í beinni útsend- ingu í Ríkissjónvarpinu, hefst sunnudaginn 18. april kl. 12.45 og stendur til kl. 16. Það er sérstaklega í hinum svonefndu atskákum, með hálf- tíma umhugsunartíma, sem Júdit hefur blómstrað að undanfömu. Sjónvarpsmótið verður einmitt með því sniði. Auk Júditar verða þeir Helgi Ólafsson, Jóhann Hjartarson og Margeir Pétursson á meðal keppenda. Hermann Gunnarsson verður kynnir og Jón L. Amason verður honum til halds og trausts í skákskýring- um. Áður en Júdit Polgar fór á atskákmótið í Mónakó varð hún fyrsta konan til að tryggja sér þátttökurétt á millisvæðamóti. Á svæðamóti í Búdapest í mars varð hún í öðm til fimmta sæti og þurfti að heyja aukakeppni til að skera úr um það hveijir tveir skákmenn kæmust áfram. Júdit sigraði örugglega í aukakeppn- inni, hlaut fjóra vinninga af sex mögulegum, stórmeistararnir Ftacnik, Slóvakíu, og Wojtki- ewicz, Póllandi, komu næstir með þijá vinninga og pólski alþjóða- meistarinn Gdanski rak lestina með tvo vinninga. Við skulum líta á bráð- skemmtilega skák Júditar úr aukakeppninni. Svartur reyndi að stilla upp varnarvígi á kóngs- væng, en hefur líklega yfirsést leið þar sem Júdit undirbjó tvö- falda drottningarfórn, sjá skýr- ingamar við 20. leik svarts. Fyrst ætlaði hún að fórna drottning- unni, síðan vekja upp nýja og fóma henni líka og máta síðan með samspili hróks, riddara og biskups. Sannarlega glæsilegt og óvenjulegt stef sem Pólveijinn sneiddi hjá á síðustu stundu, en staða hans var samt sem áður óveijandi. Hvítt: Júdit Polgar Svart: Jacek Gdanski Frönsk vöm I. e4 - e6 2. d4 - d5 3. Rc3 - Bb4 4. e5 - Re7 5. a3 - Bxc3+ 6. bxc3 — c5 7. Dg4 — Dc7 8. Bd3 Júdit hefur mikið dálæti á þessum leik. Hér er mun algeng- ara að leika 8. Dxg7 — Hg8 9. Dxh7 sem er afar tvísýnt af- brigði og vinsælt á undanfömum árum. 8. - c4!? Svarta staðan verður fremur óvirk eftir þetta. Hér er næstum alltaf leikið 8. — cxd4 9. Re2 — dxc3 10. Dxg7, en í sjónvarps- skák í Köln 1990 reyndi þýski stórmeistarinn Knaak 9. — Dxe5 gegn Júdit, en fékk erfiða stöðu eftir 10. Bf4 - Df6 11. Bg5 - De5 12. cxd4. Á Immopar at- skákmótinu í París í haust vildi Timman einnig beina skák þeirra Júditar út á ótroðnar slóðir, en fékk verra endatafl eftir 9. — h5 10. Dxg7 - Hg8 11. Dh7 - dxc3 12. J)xh5 - Rbc6 13. 0-0 — Dxe5. 9. Be2 - 0-0 Anand lék 9. — Rf5 gegn Júd- it á atskákmóti í Roquebrane í Frakklandi í fyrra og vann eftir þunga stöðubaráttu. 10. Rf3 - Rbc6 11. Bg5! Undirbýr að láta kónginn valda akkillesarhæl hvítu stöð- unnar, peðið á c3. II. - Da5 12. Kd2 - f5 13. Dh3 Svartur nær stórhættuleg mótspili eftir 13. exf6? (fram- hjáhlaup) — e5! eða 13. Dg3 — f4! 13. - Bd7 14. a4 - Rc8? Upphafið á rangri áætlun. Þessa riddara er brýn þörf í vöm- inni, eins og framhaldið leiðir í ljós. 15. Dg3 - Kh8 16. h4 - Rb6 17. h5 - Rxa4 Svartur getur ekki stöðvað framrás h peðsins. Eftir 17. — h6 18. Bxh6! - gxh6 19. Dg6 hefur hvítur óstöðvandi sókn. 18. Hxa4! — Dxa4 19. h6 — g6 20. Bf6+ - Hxf6 Svartur er óveijandi mát með tvöfaldri drottningarfórn eftir 20. - Kg8 21. Dxg6+ - hxg6 22. h7+ - Kf7 23. h8=D!, því 23. - Hxh8 er auðvitað svarað með 24. Rg5+ og næst 25. Hxh8 mát. 21. exf6 - Kg8 Svarta staðan er töpuð, en 21. — Rd8 eða 21. — Da5 hefðu veitt neira viðnám. 22. Dc7 - Rb4 23. cxb4 - Dxb4+ 24. Ke3 — g5 25. Rxg5 og svartur gafst upp. Skákkeppni framhaldsskóla Fjölbrautaskólinn í Breiðholti sigraði mjög örugglega í skák- keppni framhaldsskólanna 1993. Úrslit urðu þessi: 1. Fjölbrautaskólinn í Breiðholti, A sveit 26 v. af 28 mögulegum 2. Menntaskólinn við Hamrahlíð 21'/2 v. 3. Menntaskólinn í Reykjavík 19 v. 4. Flensborgarskólinn lö'/z v. 5. Fjölbrautaskólinn í Breiðholti, B sveit 10 v. 6. Fjölbrautaskóli Vesturlands 8'/2 v. 7. Fjölbrautaskólinn í Breiðholti C sveit 6 'h v. 8. Fjölbrautaskóli Suðurnesja 5 v. _ í sigursveit Fjölbrautaskólans í Breiðholti voru þeir Ólafur B. Þórsson, Magnús Örn Úlfarsson, Kristján Eðvarðsson og Ragnar Fjalar Sævarsson. Júdit Polgar Skákkeppni grunnskóla í Reykjavík Æfingaskóli Kennaraháskóla íslands sigraði með miklum yfir- burðum í skákkeppni grunnskól- anna í Reykjavík. Sveit Æfinga- skólans vann sjö af níu viðureign- um sínum 4—0. Úrslit urðu þessi: 1. Æfingaskóli Kennarahá- skóla Islands, A sveit 34'/2 '/2 v. 2. Breiðholtsskóli, A sveit 23 v. 3. Hlíðaskóli 22'/2 v. 4. Hólabrekkuskóli, A sveit 22 v. 5. Æfíngaskóli KHÍ, B sveit 21 'h v. 6. Melaskóli, A sveit 20 v. 7. Seljaskóli 19'/2 v. 8. Ártúnsskóli, A sveit 19'/2 v. 9. Hólabrekkuskóli, B sveit 19 v. 10. Selásskóli, A sveit 19 v. 11. Breiðholtsskóli, B sveit 19 v. 12. Melaskóli, B sveit 18'/2 v. 13. Grandaskóli 18 v. 14. Álftamýrarskóli, A sveit 18 v. 15. Hamraskóli, A sveit 18 v. 16. Hamraskóli, B sveit 18 v. 17. Breiðagerðisskóli 17'/2 v. 18. Ölduselsskóli 17'/2 v. 19. Ártúnsskóli, B sveit 16‘/2 v. 20. Fossvogsskóli, A sveit 15 '/2 v. 21. Selásskóli, B sveit 15'/2 v. 22. Hagaskóli IOV2 v. 23. Fossvogsskóli, B sveit IV2 v. 24. Álftamýrarskóli, B sveit 2 v. í sigursveit Æfingaskóla Kennaraháskóla íslands voru þeir Bragi Þorfinnsson, Arnar Gunnarsson, Björn Þorfinnsson, Davíð Ó. Ingimarsson og Oddur Ingimarsson. __________Brids____________ Umsjón Arnór Ragnarsson Úrslit í páskaspilamennsku í Reykjavík Mjög góð aðsókn var hjá Skagfirð- ingum þriðjudaginn fyrir páska. Vel yfir 30 pör. Úrslit urðu (efstu pör): Andrés Þórarinsson - Halldór Þórólfsson 407 JakobKristinsson-ÓlafurLárusson .382 ÞórirLeifsson-ÓskarKarlsson 382 Gústaf A. Bjömsson - Jens Jensson 378 BjömÞorvaldsson-AlfreðAlfreðsson 362 Spilað er alla þriðjudaga í Stakka- hlíð 17 og er boðið upp á eins kvölds tvímenningskeppni. Spilamennska hefst kl. 19.30. Allir velkomnir. Á skírdag var spilað í húsi Bridssam- bandsins. Yfir 40 pör mættu þá til leiks. Úrslit urðu: N/S: ÓskarKarlsson-ÞórirLeifsson 548 JóhannesÁgústsson-FriðrikFriðriksson 509 Jón Þór Daníelsson - Ásmundur Ömólfsson 509 Lucinda Grimsdóttir - Eiður Gunnarsson 498 A/V: AronÞorfmnsson-Jónlngólfsson 511 Sturla Snæbjömss. - Rósmundur Guðmundss. 486 ÓmarOlgeirsson-KristinnÞórisson 483 Lárus Hermannsson - Guðlaugur Sveinsson 470 Á annan í páskum varð svo metþátt- taka. 54 pör mættu til leiks. Úrslit urðu: N/S: Ásmundur Ömólfsson - Jón Þór Daníelsson 553 Sveinn Þorvaldsson - Páll Þór Bergsson 540 ViðarJónsson-SiguijónHelgason 515 Bjöm Theodórsson - Gísli Hafliðason 509 A/V: Kjartan Jóhannsson - Þórður Sigfússon 507 Jón Viðar Jónmundss. - Aðalbjöm Benediktss. 493 CecilHaraldsson-EggertBergsson 485 RagnheiðurNielsen-SigurðurÓlafsson 485 Vetrarmichell BSÍ Föstudagskvöldið 9. apríl var spilað í Vetrar-Mitchell Bridssambands ís- lands. 44 pör mættu og spiluðu og urðu úrslit þannig: N-S riðill: Maria Ásmundsdóttir - Steindór Ingimundarson524 Rúnar Einarsson - Guðjón Siguijónsson489 SveinnÞorvaldsson-PállÞórBergsson 488 Anne Mette Kokholm - Friða Óskarsdóttir 479 A-V riðill: Elín Jónsdóttir - Lilja Guðnadóttir 546 JensJensson-SævarJónsson 512 ÓskarKarlsson-ÞórirLeifsson 493 SiguijónHelgason-ViðarJónsson 472 Vetrarmitchell Bridgesambands ís- lands eru eins kvölds keppnir sem allt- af eru spilaðar í Sigtúni 9 á föstudags- kvöldum og hefjast kl. 19.00. Allir velkomnir meðan húsrúm leyfir. Bridsfélag Tálknafjarðar Þriðjudagskvöldið 13. apríl lauk firmakeppni félagsins. Spilaður var þriggja kvölda einmenningur og drógu spilarar _ nýtt fyrirtæki fyrir hverí kvöld. Úrslitin urðu þessi eftir röð fyrirtækja: Fróðamjöl, Patreksfirði 314 Þórsberg hf. 309 Landsbanki íslands 294 Veitingastofan Hópið 290 Tálknafjarðarhreppur 277 Röð spilara varð þessi: Snæbjörn Geir Viggósson 301 Brynjar Olgeirsson 284 Símon Viggósson 278 Kristín Magnúsdóttir 277 RAÐAUGi YSINGAR ATVINNUHÚSNÆÐI Verslunarhúsnæði Óskum eftir góðu verslunarhúsnæði til leigu á Laugavegi. Vinsamlega sendið tilboð til auglýsingadeild- ar Mbl., merkt: „L - 505“, fyrir 22. apríl. 100-150 fm húsnæði óskast 100-150 fm skrifstofu- og lagerhúsnæði óskast, helst á póstsvæði 101. Ýmsir aðrir staðir koma til greina. Upplýsingar í síma 621826. LÖGMENN ÁSGHIR ÞÓR ÁRNASON hdl. OSKAR MAGNÚSSON hrl. I.auj>avc(ri 154, 105 Rcykjavik Sími 62 10 90, brcfsími 62 10 46 Verslunarhúsnæði óskast Traustur aðili óskar eftir að taka á leigu eða kaupa 600-1000 m2 verslunarhúsnæði við Laugaveg. Tilboðum skal skilað til undirritaðs sem jafn- framt veitir nánari upplýsingar. Ásgeir Þór Árnason hdl., sími 621090. TundÍr - "mÁnnfÁgnÁðlÍr Aðalfundur Aðalfundur Þormóðs Ramma hf. fyrir árið 1992 verður haldinn þann 16. apríl nk. kl. 17.00 í kaffistofu frystihúss félagsins á Siglufirði. Dagskrá: 1. Venjuleg aðalfundarstörf. 2. Tillaga um útgreiðslu arðs. 3. Önnur mál. Reikningar félagsins ásamt ofangreindri til- lögu munu liggja frammi á skrifstofu félags- ins á Siglufirði frá 7. apríl nk., þar sem hlut- hafar geta kynnt sér þessi gögn, en atkvæða- seðlar og önnur fundargögn verða afhent á fundarstað. Stjórnin. Háskóli íslands - læknadeild Jóhann Ágúst Sigurðsson, prófessor í heimil- islækningum, flytur erindið Nýjar áherslur og ávinningur í heilsuvernd í Odda í stofu 101 sunnudaginn 18. apríl kl. 15.00.

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.