Morgunblaðið - 16.04.1993, Page 46

Morgunblaðið - 16.04.1993, Page 46
MORGUNBLAÐIÐ IÞROTTIR FÖSTUDAGUR 16. APRÍL 1993 46 KORFUKNATTLEIKUR JónKr. ogBow áfram með Keflavík Jón Kr. Gíslason. Jón Kr. Gíslason hefur verið endurráðinn þjálfari íslands- og bikarmeistara Keflavikur í körfuknattleik. Þá hefur verið gengið frá því að Bandaríkjamað- urinn Jonathan Bow verður áfram í herbúðum Keflvíkinga. „Við gerum ráð fyrir að við höldum flestum þeim leikmönnum sem léku með okkur síðastliðið keppnistímabil. Það er hugur í mönnum og spennandi verkefni framundan," sagði Hannes Ragn- arsson, formaður Körfuknatt- leiksráðs ÍBK, í samtali við Morg- unblaðið. Keflavíkurliðið mun taka þátt í Evrópukeppni meist- araliða og einnig í Austur-Evrópu- keppni um næstu áramót. Hannes sagði búið væri að end- urráða Sigurð Ingimundarson sem þjálfara kvennaliðs ÍBK, sem varð einnig íslands- og bikarmeistari. Jordan og félagar gefa ekkert eftir Chicago Bulls vann sinn fjórða leik í röð MICHAEL Jordan og félagar hans í Chicago Bulls eru í miklu stuði þessa dagana. í fyrrinótt unnu þeir Miami Heat 119:92 og var það fjórði sigurleikur liðsins í röð og tólfti sigurinn i síðustu 14 leikjum. Jordan gerði 34 stig í leiknum. New York Knicks gerði góða ferð til Charlotte og vann 107:111. Patrick Ewing gerði 39 stig og þar af 17 stig í fjórða leik- hluta. Knicks hefur nú unnið 10 leiki af síðustu 11 og hefur besta vinningshlutfallið í Austurdeildinni, unnið 55 og tapað 21 sem er besti árangur liðsins síðan 1972 en þá vann liðið 57 leiki. Lakers sigraði Dallas Mavericks í Dallas, 99:112, þar sem Anthony Peeler gerði 11 stig í fjórða leik- hluta fyrir Lakers. Þetta var fjórða tap Mavericks í röð. Sadale Threatt var stigahæstur í liði Lakers með 22 stig, Vlade Divac kom næstur með 21 og James Worthy 20. Randy White og Jimmy Jackson voru með 20 stig hvor fyrir Mavericks. Vernon Maxwell gerði 30 stig og Hakeem Olajuwon 29 fyrir Ho- uston sem vann sjöunda leikinn í röð, gegn Denver Nuggets 96:107 - ví Denver. Chris Jackson var stiga- hæstur heimamanna með 24 stig, Dikembe Mutombo gerði 17 og tók jafnmörg fráköst. Reggie Miller gerði 16 af 20 stig- um sínum í fyrri hálfleik og hjálp- aði það Indiana Pacers til að ná 20 stiga forskoti á New Jersey Nets í leikhlé, 60:40 og vinna síðan 109:90. Þetta var sjötta tap Nets í röð, en Indinan hefur verið á mik- illi siglingu og vann í 12. sinn í síð- ustu 14 heimaleikjum sínum. Phoenix Suns vann 13. leik sinn af síðustu 14, gegn Minnesota 98:84 þar sem Dan Majerle gerði 12 af 25 stigum sínum í fjórða leik- hluta og Cedric Ceballos gerði 23 og tók 13 fráköst fyrir Suns. Doug West var stighæstur í liði „Úlfanna" með 27 stig en Christian Laettner kom næstur með 20. San Antonio Spurs vann góðan útisigur á Golden State Warriors, 93:96. David Robinson fór á kostum og gerði 33 stig og tók 17 fráköst fyrir Spurs. Latrell Sprewell gerði 20 stig fyrir heimaliðið. Reuter Johnny Newman (nr. 22) í liði Charlotte Hornets hefur hér betur — tekur frákast gegn New York Knicks áður en Anthony Mason nær til knattarins. New York vann leikinn 111:107. , Morgunblaðið/Júltus Islandsmeistarar Víkings Víkingur varð á mánudaginn íslandsmeistari kvenna í handknattleik 1993. Aftari röð frá vinstri: Hróbjartur Jónatansson, formaður handknattleiksdeildar, Oddný Guðmundsdóttir, Halla María Helgadóttir, Svava Sigurðardóttir, Heiðrún Guðmundsdóttir, Matthildur Hannesdóttir, Elísabet Sveinsdóttir, Sigurbjörg Hannesdótt- ir, Harpa Amardóttir, Theodór Guðfinnsson, þjálfari og Svava Yr Baldvinsdóttir, liðsstjóri. Fremri röð frá vinstri: Hanna Margrét Einarsdóttir, Iris Sæmunds- _ dóttir, Maija Samandizja, Inga Lára Þórisdóttir, Helga Torfadóttir, Valdís Birgisdóttir, Helga Jónsdóttir og Helga Brynjólfsdóttir. ■ RON Atkinson, framkvæmda- stjóri Aston Villa, náði aldrei að vinna meistaratitilinn á sex ára þjálf- araferli með Manchester United og var það m.a. til þess að hann var látinn víkja. Hann er nú í þreirri stöðu að geta tekið titilinn af United. ■ FRANK Stapleton, fyrrum leik- maður Manchester United, segir að Atkinson hafi öðlast mikla reynslu er hann var hjá United og gæti hún reynst dýrmæt í lokabarátt- unni. „Stóri Ron virðist rrijög yfir- vegaður o'g rólegur um þessar mund- ir og hann þekkir þá miklu pressu sem var á honum hjá United,“ sagði Stapleton. ■ STAPLETON segir að Alex Ferguson hafi fengið fremur óskemmtilega reynslu er hann rétt missti af enska meistaratitlinum í fyrra og spumig hvort hann þoli þann þrýsting sem er nú. „En Un- ited hefur svo marga góða leikmenn núna og það gæti dugð alla leið,“ sagði Stapleton. ■ TEDDY Sheringham, framheiji Tottenham, var í gær valinn í enska landsliðshópinn í fyrsta sinn. Sher- ingham, sem hefur skorað 25 mörk í 41 leik fyrir Tottenham á þessu keppnistímabili, gæti fengið fyrsta landsleik sinn skráðan gegn Hol- lendingum í undankeppni HM á Wembley 28. apríl. „Teddy á það skilið að vera í hópnum eftir góða frammistöðu í vetur,“ sagði Taylor, landsliðsþjálfari Englands. ■ ENSKI landsliðshópurinn er skipaður eftirtöldum leikmönnum: Chris Woods, David Seaman; Lee Dixon, David Bardsley, Nigel Winterburn, Earl Barrett, Des Walker, Tony Adams, Gary Pal- lister; David Platt, Trevor Steven, Carlton Palmer, Paul Ince, Paul Gascoigne, John Barnes, Andy Sinton, Lee Sharpe, Paul Merson; Nigel Clough, Ian Wright, Les Ferdinand og Teddy Sheringham. ■ BRUCE Grobbelaar, markvörð- ur Liverpool, átti mjög góðan leik í marki Zimbawe sem gerði marka- laust jafntefli við Egyptaland í und- ankeppni HM (C riðli Asíu). Zimbawe tryggði sér þar með sæti í sérstakri úrslitakeppni Asíuþjóða ásamt Ka- merún og Nýju Gineu, en Egyptar eru úr leik. Leikurinn fór fram á hlutlausum velli, í Lyon í Frakk- landi. ■ STÓRLEIKUR ítölsku knatt- spyrnunnar um helgina verður við- ureign AC Milan og Juventus á laugardag. ítalska sjónvarpsstöðin, RAI, hefur greitt 1,1 milljón dollara eða um 70 milljónir íslenskar krónur fyrir einkaréttinn á beinni útsend- ingu frá leiknum. En honum var flýtt vegna þátttöku liðanna í Evrópu- keppninni í næstu viku. ■ JEAN-Pierre Papin og Stefano Eranio, leikmenn AC Milan, verða báðir í leikbanni og eins verður Mauro Tassotti ekki með á morgun vegna meiðsla. Hollendingarnir Frank Rijkaard og Ruud Gullit og Króatinn Zvonimir Boban fylla útlendinga kvótann í liðinu gegn Juventus. I JUVENTUS mun líklega hvíla Þjóðverjann Jiirgen Kohler fyrir Evrópuleikinn og nota Massimo Carrera í hans stað. Englending- urinn David Platt og Þjóðveijinn Andreas Möller verða hins vegar báðir með. Fabrizio Ravanelli verð- ur í leikbanni og verða Pier Luigi Casiraghi og Gianluca Vialli í framlínunni ásamt Roberto Baggio, sem gerði gullfallegt mark fyrir Ital- íu gegn Eistlandi í undankeppni HM í fyrrakvöld. ÚRSLIT Körfuknattleikur NBA-deildin Miðvikudagur. Charlotte — New York...........107:111 Detroit — Atlanta..............87: 84 Chicago — Miami Heat...........119: 92 Dallas — L.A. Lakers...........99:112 Indiana —NewJersey.............109: 90 Denver — Houston...............96:107 Golden State — San Antonio.....93: 96 Phoenix — Minnesota............98: 84

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.