Morgunblaðið - 16.04.1993, Blaðsíða 47
MORGUNBLAÐIÐ
ÍÞRÓTTIR
FÓSTUDAGUR 16. APRÍL 1993
47
HANDKNATTLEIKUR
Sigmar Þröst-
ur verður
aðveraí
banastuði
- til að stöðva Valsmenn," segirAlfreð Gísla-.
son, sem spáir í spilin varðandi úrslitakeppnina
Hvað segja
þjálfararnir?
■Við munum gera allt sem í okkar
valdi stendur til að verja meist-
aratitilinn. Leikirnir gegn Víkingum
verða miklir baráttuleikir," sagði
Kristján Arason, þjálfari Islands-
meistara FH. „Víkingar eru með
stemmningslið og það styrkir þá
mikið að Birgir Sigurðsson er byrjað-
ur að leika aftur og þá er Bjarki
Sigurðsson búinn að ná sér fullkom-
lega.“
Gunnar Gunnarsson, þjálfari
Víkings, sagði að það væri ánægu-
legt að allir leikmenn sínir væru klár-
ir í slaginn þegar úrslitakeppnin
væri að hefjast. „Við gerum okkur
grein fyrir að það er á brattann að
sækja gegn FH, en það er allt hægt
ef viljinn er fyrir hendi. Við viljum
vera lengur með í baráttunni en fram
í næstu viku og því /verður ekkert
gefið eftir gegn FH.“
„Núna eða aldrei, er það sem við
hugsum um,“ sagði Þorbjöm Jens-
son, þjálfari Valsmanna, sem taka
á móti Eyjamönnum. „Þeir hafa allt-
af verið okkur erfiðir og það hljómar
ótrúlega - okkur hefur gengið betur
gegn þeim út í Eyjum. Það verður
ekkert gefið eftir,“ sagði Þorbjörn.
Sigurður Gunnarsson, þjálfari
Eyjamanna, sagðist reikna með
hörkuleik. „Okkur hefur gengið vel
að undanfömu og tapað aðeins ein-
um af átta síðustu leikjum okkar.
Það er mitt hlutverk að fá mína leik-
menn til að trúa því að þeir geti
lagt Valsmenn að velli. Við þurfum
að vinna á h-unum þremur hjá Vals-
mönnum. Valsliðið er sterkt, eins
og það hefur sýnt - er bæði deild-
ar- og bikarmeistari.“
„Við munum að sjálfsögðu reyna
að nýta okkur það að leika á heima-
velli. Mínir menn koma tvíefldir til
leiks eftir skellinn gegn Valsmönn-
um,“ sagði Gunnar Einarsson,
þjálfari Stjörnunnar, sem leikur
gegn ÍR. „Það er slæmt að leika án
Patreks Jóhannessonar og þá hefur
Magnús Sigurðsson verið meiddur,
en er allur að koma til.“
Brynjar Kvaran, þjálfari ÍR,
sagði að um líf og dauða væri að
tefla í baráttunni gegn Stjömunni.
„Það verður ekkert auðveldara fyrir
okkur að leika gegn Stjörnunni án
Patreks, því það kemur maður í
manns stað. Stjörnumenn hafa hvílt
Magnús Sigurðsson fyrir leikinn
gegn okkur. Við mætum grimmir til
leiks - ætlum okkur áfram.“
Jóhann Ingi Gunnarsson, þjálf-
ari Hauka, sagði að leikurinn gegn
Selfyssingum yrði harður línudans.
„Við mætum spútnikliði síðustu ára
- liði sem lék til úrslita um íslands-
meistaratitlinn í fyrra og bikar-
úrslitaleik í ár. Ég tel að möguleik-
arnir séu jafnir. Þó svo að bæði liðin
séu sóknarlið, leika þau ólíkan hand-
knattleik. Þetta verður leikur hinna
sterku sókna, en úrslitin ráðast á
því hvort liðið leikur betri varnarleik
- og hvaða markverðir séu betur
upplagðir."
Einar Þorvarðarson, þjálfari
Selfyssinga, sagði að leikurinn gegn
Haukum yrði mjög erfiður. „Við eig-
um á brattann að sækja og við verð-
um að sjá hvað við getum gert.
Haukar eru mjög erfiðir mótherjar."
LOKABARÁTTAN um íslands-
meistaratitilinn í 1. deild karla
hefst í kvöld á fjórum vígstöð-
um - að Hlíðarenda, í Garðabæ
og á tveimur stöðum í Hafnar-
firði, í Kaplakrika og við Strand-
götu. Það þarf ekki að fara
mörgum orðum um að það
verður hart barist í öllum leikj-
unum. Eyjamenn sækja Vals-
menn heim, Stjarnan fær ÍR í
heimsókn, FH-ingar taka á
móti Víkingum og Haukarfá
Selfyssinga íheimsókn.
Morgunblaðið fékk Alfreð
Gíslason, þjálfara og leik-
mann KA, til að spá í spilin og
velta möguleikum liðanna fyrir sér.
Valsmenn öruggir
„Valsmenn eru með mjög öflugt lið
og eiga að klára dæmið gegn Eyja-
mönnum nokkuð örugglega. Það
eina sem getur stöðvað Valsmenn
er að þeir skjóti Sigmar Þröst Ósk-
arsson í banastuð, en það þarf
markvörslu í heimsgæðaflokki til
að stöðva Valsmenn."
Jafnræði
„Viðureign FH-inga og Víkinga
verður jafnari. FH-ingar eru sterk-
ari, en Víkingar þurfa að rífa sig
upp til að veita þeim keppni."
ÍR kemur á óvart
„Það er slæmt fyrir Stjörnumenn
að Patrekur Jóhannesson er í leik-
banni og Magnús Sigurðsson á við
meiðsli að stríða. ÍR-ingar hafa allt
að vinna og eru með mikið baráttul-
ið. Ég spái að ÍR-ingar komi á óvart
og brjóti Stjörnumenn á bak aftur.
Ég er ekki að segja að Stjarnan sé
m
Birgir Sigurðsson er byijaður að leika með Víkingum og styrkir þá mikið,
segir Alfreð Gíslason um þennan snjalla línumann.
úr leik - en hún þarf þriðja leikinn
til að komast í undanúrslit.“
Haukar betri
„Haukar eru með betra lið en
Selfyssingar. Konráð Olavson hefur
styrkt Hauka mikið og þá eru þeir
með starka menn í hverri stöðu og
einnig mjög góða varamenn. Sel-
fyssingar eru ekki eins góðir og
þeir voru í fyrra. Ég tel að Haukar
komist örugglega í undanúrslit.
Valur og FH í úrslit
Valsmenn og Haukar, sem eru
að mínu mati með bestu liðin,
mætast í undanúrslitum. Haukar
eru þar óheppnir, því að þeir hefðu
án efa leikið til úrslita um Islands-
meistaratitilinn - ef þeir hefðu leik-
ið gegn FH eða Stjörnunni. Ég spái
því að Valur og FH leiki til úrslita
og má segja að það sé draumaúr-
slitaleikur," sagði Alfreð Gíslason.
KORFUKNATTLEIKUR
Valur þjálfar Njarðvík
Valur Ingimundarson, landsliðsmaður í körfuknatt-
leik, sem hefur þjálfað og leikið með Tindastól
undanfarin ár, takur við þjálfun Njarðvíkurliðsins,
sem hann lék áður með. Það þarf ekki að fara mörg-
um orðum um að endurkoma Vals er geysilegur styrk-
ur fyrir Njarðvíkinga.
Njarðvíkingar fá tvo aðra sterka leikmenn til liðs
við sig. Kristinn Einarsson, sem lék með Snæfelli,
ætlar einnig að snúa heim og þá mun Hreiðar Hreið-
areson, fyrrum fyrirliði Njarðvíkurliðsins, sem hefur
verið til sjós, taka fram skóna.
„Við getum ekki annað en horft björtum augum
fram á veg, þar sem við verðum með geysilega sterk-
an leikmannahóp," sagði Ólafur Eyjólfsson, formaður
Körfuknattleiksdeildar UMFN.
Valur.
Kristinn.
Hreíðar.
KNATTSPYRNA
Svíar lögðu
Ungverja
Aaðeins fjögur þúsund áhorfendur
voru saman komnir á NEP-þjóð-
arleikvanginum í Búdapest í gær-
kvöldf, til að sjá Ungveija taka á
móti Svíum. Ungveijar, sem eiga langt
í land að ná fyrri styrkleika, máttu
þola tap 0:2. Markahrókurinn Johnny
Ekström skoraði fyrra mark Svía á
66. mín. og Stefan Rehn bætti öðru
marki við tveimur mín. fyrir leikslok.
KNATTSPYRNA / LANDSLIÐIÐ
Erfitt ferðalag
íslenska liðið fer á leik Lakers og Houston í kvöld
Islenska landsliðið í knattspyrnu
kom til Los Angeles í gær eftir
17 klukkustunda ferðalag frá ís-
landi. í dag verður
æfing en síðan mun
liðið mæta í Forum-
höllina og sjá Los
Angeles Lakers
Skapti
Hallgrímsson
skrifar frá.
Los Angeles
leika gegn Houston Rockets í NBA-
deildinni í kvöld.
Landsleikurinn við Bandaríkin
verður aðfaranótt sunnudags á há
skólavelli í útjaðri Los Angeles og
er búist við 5.000 þúsund áhorfend-
um á leikinn.
ÍÞRÚmR
FOLK
MAGNÚS Sigurðsson, sem
hefur átt við meiðsli að stríða, mun
leika með Stjörnunni gegn ÍR í
kvöld.
BRYNJAR Kvarnn, þjálfari
IR, er fyrrum markvörður Stjörn-
unnar. Gunnar Einarsson, þjálfari
Stjörnunnar, þjálfaði ÍR áður en
Brynjar tók við liðinu. Þeir félagar
vita því ýmislegt um mótheija sína.
GUÐMUNDUR Þórðarson,
varnarmaðurinn sterki hjá IR, hefur
einnig leikið með Stjörnunni.
KONRÁÐ Olavson, hornamað-
ur úr Haukum, hefur ekki getað
æft tvo síðustu daga - hann mis-
steig sig á æfingu. „Konráð verður
klár í slaginn gegn Selfyssingum,"
sagði Jóhann Ingi, þjálfari Hauka.
ALEXEJ Trúfan, leikmaður
FH, mun leika gegn sínum fyrrum
félögum hjá í Víkingi.
BOGDAN Kowalczyk, þjálfari
Pólveija, byijaði vel í Evrópu-
keppni landsliða því Pólverjar
unnu Sviss 24:22 í fyrri leik liðanna
á heimavelli sínum um helgina.
■ ARNO Ehret stjórnaði sviss-
neska landsliðinu í síðasta sinn
gegn Pólveijum því nú tekur hann
við þjálfun U-18 og U-21 árs liðum
Þjóðverja.
■ GUNNAR Blomback, sem hef-
ur þjálfað unglingalandslið Svía,
tekur við svissneska landsliðinu af
Ehret.
■ Ulf Schefvert, sem er Svíi og
hefur þjálfað Drott frá Halmstad,
hefur verið ráðinn þjálfari Dana og
mun fá það verkefni að undirbúa
og stjórna danska liðinu í HM á
íslandi 1995. Hann tekur við af
Keld Nielson. *>-
■ KARIN Thorin, 18 ára gömul
sænsk skíðakona, lést á sjúkrahúsi
í bænum Umeá í Svíþjóð í gær
eftir að hún hafði slasast illa á
höfði á æfingu í bruni á mánudag.
Hún var að æfa sig fyrir sænska
meistaramótið og datt í brunbraut-
inni á 60 km hraða með fyrrgreind-
um afleiðingum. Brunkeppnin átti
að fara fram í gær en var aflýst
vegna fráfalls hennar.
■ JÚGÓSLAVÍA fær ekki að
senda lið á heimsmeistaramótið í
borðtennis sem fram fer í Gauta-
borg í Svíþjóð dagana 11. - 23.
maí. Júgóslavar mega hins vegar
keppa í einstaklings greinum -
mótinu. 87 karlalið og 71 kvennalið
þar á meðal lið frá Bosníu-Her-
sigovínu, Króatíu og Slóveníu eru
skráð til leiks. Suður-Afríka er nú
með í fyrsta sinn á HM síðan 1957.
■ KÚBANSKI kringlukastarinn
Hilda Elisa Ramos hefur verið
dæmd í fjögurra ára keppnisbann
fyrir notkun á anaboliskum sterum.
Ramos, sem varð sjötta á Ólympíu-
leikunum í sumar, er þriðji íþrótta-
maðurinn frá Kúbu sem fær bann
vegna lyfjanotkunar.
■ TYRKNESKI lyftingakappinn,
Naim Suleymanoglu óttast um líf
sitt fari hann á HM í Búlgaríu í
næstu viku. Hann er fæddur í Búlg-
aríu en flúði til Tyrklands árið ~
1986 til að mótmæla illir meðferð
á Tyrkjum þar í landi. Hann keppti
á OL í Seoul 1988 enda greiddu
Tyrkir Búlgörum eina milljón doll-
ara til að fá það samþykkt.
I dag
Skíði
Alþjóðlegt skfðamót í alpagreinum,
„Icelandair Cup“ verður í Hlíðarfjalli
við Akureyri í dag og á morgun. Keppt
verður í stórsvigi kvenna og karla og
hefst keppni kl. 10. Keppendur á
mótinu er frá 15 þjóðum.
Handknattleikur
Úrslitakeppni karia kl. 20
Garðabær: Stjarnan - ÍR
Kaplakriki: FH - Vikingur
Valsheimili: Valur - ÍBV
Strandgata: Haukar - Selfoss
Golf
Golfklúbbur Suðumesja verður með
púttmót i Röstinni kl. 20.