Morgunblaðið - 16.04.1993, Blaðsíða 48
MORGUNBLAÐIÐ, KRINGLAN I 103 REYKJAVlK
SÍMI 691100, SÍMBRÉF 691181, PÓSTHÓLF 1555 / AKUREYRl: HAFNARSTRÆTl 85
FÖSTUDAGUR 16. APRÍL 1993
VERÐ í LAUSASÖLU 110 KR.
Aætlað að aðgerðir tengdar samningum kosti ríkissjóð um 5,5 milljarða
Víðtæk samstaða er skil-
yrði ríkisstj órnarinnar
Mikil óánægja innan raða ASÍ
með marga þætti í yfirlýsingunni
ENDANLEG yfirlýsing ríkissljórnarinnar um aðgerðir
hennar í tengslum við kjarasamninga var send aðilum
vinnumarkaðarins í húsakynni sáttasemjara ríkisins í Borg-
artúni í gærkveldi. í upphafi yfirlýsingarinnar segir: „Ríkis-
stjórnin telur mikilvægt að eyða óvissu í kjaramálum og
treysta þannig stöðugleika í efnahagsmálum með víðtækri
samstöðu um kjarasamninga til loka næsta árs. Á þessum
forsendum er rikissljórnin reiðubúin að ganga eins langt
og nokkur kostur er í ljósi erfiðrar stöðu í ríkisbúskapnum
í þá átt að greiða fyrir gerð kjarasamninga.“ Stóra samn-
inganefnd ASÍ byrjaði fund um málið kl. 21.30 í gærkvöldi
og teygðist úr fundinum, en klukkustundarhlé var gert á
honum laust eftir klukkan 23 og hvert landssamband fund-
aði í sinn hóp. Samkvæmt heimildum Morgunblaðsins töldu
langflestir sem til máls tóku að yfirlýsingin gæti ekki orð-
ið grundvöllur samninga. Þá mun sú hugmynd hafa komið
upp á fundi nefndarinnar að kanna hvort möguleiki væri
á að gera samning til skamms tíma, sem tryggði láglauna-
bætur og orlofsuppbót.
> Morgunblaðið/Þorkell
Astand og horfur
JOHANNES Nordal seðlabankastjóri og Þórður Friðjónsson for-
stjóri Þjóðhagsstofnunar takast í hendur að viðstöddum Guðlaugi
Þorvaldssyni ríkissáttasemjara. Þeir komu i húsnæði sáttasemjara
um klukkan 23 í gær til að fara yfir horfur í efnahagsmálum.
Skiptum
hjarta í Is-
lendingi í
Gautaborg
VALUR Snorrason, Blöndu-
ósingur á sextugsaldri,
gekkst undir hjartaskipta-
aðgerð á Sahlgrenska-
sjúkrahúsinu í Gautaborg í
Svíþjóð í fyrrinótt. Aðgerð-
in tókst vel samkvæmt upp-
lýsingum blaðsins, en ekki
náðist í lækna á Sahl-
grenska sjúkrahúsinu í gær-
kvöldi.
Jón Þór Sverrisson, hjarta-
sérfræðingur á sjúkrahúsinu á
Akureyri, sendi Val út fyrir
nokkrum vikum. Hann sagði
að aðgerðin í fyrrinótt hefði
gengið vel og líðan sjúklings-
ins væri eftir atvikum góð.
Valur er í Gautaborg ásamt
•eiginkonu sinni.
Banaslys
Jl Jökuldal
RÚMLEGA fertugur maður lést
þegar jeppi sem hann var far-
þegi í valt ofan í gil í Þverá á
Jökuldal í fyrrinótt. Ökumaður
og annar farþegi sem var í jepp-
anum slösuðust ekki hættulega
og fengu þeir að fara heim að
lokinni læknisrannsókn.
Að sögn lögreglunnar á Egils-
stöðum var tilkynnt um slysið
snemma í gærmorgun. Staðurinn
þar sem jeppinn valt ofan í gilið
er um 2-3 km utan vegar og þar
er nú mikið harðfenni. Gilið er
40-50 metra djúpt á þessum slóð-
__jm og kastaðist jeppinn alllangt
ófan í það.
Ríkisstjórnin áætlar kostnað boð-
aðra aðgerða fyrir ríkissjóð nálægt
5,5 milljörðum króna, fyrir árið í ár
og árið 1994. Samkvæmt upplýsing-
um Morgunblaðsins sundurliðast
aukin útgjöld ríkissjóðs á þessu ári
svo: 500 milljónir króna vegna
orlofseingreiðslna
750 milljónir króna vegna afnáms
tryggingagjalds til útflutningsgreina
til ársloka; 500 milljónir króna vegna
framkvæmda og viðhalds; 210 millj-
ónir króna vegna aukinna niður-
greiðslna á búvörum; 220 milljónir
króna vegna úthlutunar aflaheimilda
Hagræðingarsjóðs.
Utgjöld ríkissjóðs á næsta ári
vegna boðaðra aðgerða skiptast svo:
Lækkun vsk. á matvöru frá 1. jan-
úar nk. kostar brúttó 4 milljarða
króna, en áætlaður kostnaður ríkis-
sjóðs verður 2,3 milljarðar króna (þá
hefur verið tekið tillit til tekna af
áætluðum 10% nafnvaxtaskatti á
sparifé og hækkunar vörugjalds á
sælgæti og gosdrykki); verklegar
framkvæmdir 900 milljónir króna.
Samtals má því áætla að útlagður
kostnaður ríkissjóðs vegna þessara
kjarasamninga yrði um 5,5 milljarðar
króna.
Dagsbrún verður að vera með
Samkvæmt upplýsingum Morg-
unblaðsins felur orðalagið „víðtæk
samstaða um kjarasamninga" það í
sér að ríkisstjómin skilyrðir aðgerðir
sínar á þann veg að BSRB geri samn-
ing við ríkið á sömu nótum og ASÍ
og VSI takist samningar á annað
borð á milli þeirra. Sama máli mun
gegna um Verkamannafélagið Dags-
brún. Raunar er talið að ef Dagsbrún
ákveður að skerast úr leik, þá muni
hvorki Alþýðusambandið né Vinnu-
veitendasambandið undirrita kjara-
samning.
Á fundi sem þeir Davíð Oddsson
forsætisráðherra og Jón Baldvin
Hannibalsson utanríkisráðherra áttu
síðdegis í gær með Magnúsi Gunn-
arssyni, formanni VSÍ, og Benedikt
Davíðssyni, forseta ASÍ, gerði for-
seti ASI kröfu um að ríkisstjómin
samþykkti að auka niðurgreiðslur
búvara um 400 til 500 milljónir króna
á þessu ári, en af ofangreindu má
sjá að ríkisstjómin hefur ákveðið að
verða ekki við þeirri kröfu. Við lok
þess fundar tilkynntu ráðherrarnir
að endanleg yfirlýsing ríkisstjórnar-
innar um aðgerðir tengdar kjara-
samningum yrði send þeim síðar um
kvöldið. Eftir það væru kjarasamn-
ingar í höndum og á ábyrgð aðila
vinnumarkaðarins
Ekki nógu langt gengið
Óánægju gætti innan raða Al-
þýðusambandsins með marga liði i
yfirlýsingu ríkisstjómarinnar, t.d.
hvað varðar vaxtamál og heilbrigðis-
og tryggingamál, og þótti ekki nógu
langt gengið til móts við verkalýðs-
hreyfinguna. Fram kom hjá fulltrú-
um beggja samningsaðila í húsnæði
ríkissáttasemjara í gærkvöldi að aðr-
ir aðilar í þjóðfélaginu væru að frýja
sig ábyrgð af erfiðum ákvörðunum
í efnahagsmálum og aðilar vinnu-
markaðarins væm látnir sitja uppi
með ábyrgðina.
Sjá yfirlýsingu ríkissljórn-
arinnar í heild á miðopnu.
Morgunblaðið/Árni Sæberg
Prins í spelkur
ÐÝR GETA engu síður en menn lent í margs konar hremmingum og
slasast eins og þessi 5 mánaða gamli Sankti Bernharðshundur sem
varð fyrir því óhappi að fótbrotna á báðum framfótum fyrir stuttu.
Þrautagöngu hvolpsins Prins var heldur ekki lokið þó brotin greru því
sinarnar veiktust og til þess að styrkja þær og strekkja var brugðið á
það ráð að smíða handa honum sérstakar gönguspelkur. Siíkar spelkur
munu ekki áður hafa verið gerðar á hunda. Að ofan er verið að frum-
móta spelkurnar (f.v.): Jan Kristensen, stoðtækjafræðingur hjá Össur
hf og Þorvaldur Þórðarson, dýralæknir.
Fjármagn í samræmi við árangur í sænskum háskólum
Vilja íslendinga til
að bæta árangurinn
HÁSKÓLINN í Skövde í Suður-Svíþjóð hefur ákveðið að bjóða a.m.k.
tíu íslendingum til náms í skólanum á næsta skólaári, gagngert til
að bæta námsáraiigur í skólanum, að sögn Stig Emanuelsson, deildar-
stjóra í kerfis- og tölvufræðideild Háskólans í Skövde. Ný lög hafa
verið sett um menntakerfið í Svíþjóð og hafa háskólar þar fijálsari
hendur um val á sínum nemenduin. Þá er í umræðunni að fjármagn
til háskóla verði veitt í samræmi við námsárangur nemenda.
Ingi Jónasson, 27 ára gamall
nemi í kerfisfræði í Háskólanum í
Skövde, er væntanlegur hingað til
lands um næstu mánaðamót á veg-
um skólans til að kynna hann ís-
lenskum menntaskólanemum. Ingi
segir að skólinn muni hafa hönd í
bagga með útvegun húsnæðis og
nemendur frá íslandi gangi inn í
sænska styrkja- og velferðarkerfið.
Góður árangur íslendinga
„Ég spurði Inga hvort hann
væri fáanlegur til að fara til ís-
lands og athuga hvort áhugi væri
meðal íslenskra nemenda á námi í
tölvufræðum hér í Skövde. Við
höfum haft námsmenn frá íslandi
og þeir hafa náð mjög góðum
árangri hér,“ sagði Stig Emanuels-
son, deildarstjóri í kerfis- og tölvu-
fræðideild Háskólans í Skövde.
íslendingar betur undirbúnir
Hann sagði að markmiðið með
þessu væri að fá til skólans góða
námsmenn, en með því yrði hann
betri háskóli. „Ég er þeirrar skoð-
unar að íslendingar séu betri náms-
menn en Svíar. Mun meiri kröfur
eru gerðar í menntaskólum á ís-
landi en í Svíþjóð. Menntaskólar í
Svíþjóð eru erfiðari ef menn ætla
að ná hæstu einkunnum en allir
ná ef þeim er sama um einkunnirn-
ar. Islendingar eru betur undirbún-
ir undir háskólanám en Svíar,“
sagði Emanuelsson.
Verið að fjölga nemendum
„Háskólinn okkar mun stækka
mikið á næstu árum. Næsta ár
verður unnt að fjölga nemendum
um 600 og við þurfum því að leita
að góðum námsmönnum. Verið er
að breyta menntakerfínu í Svíþjóð
og við getum í auknum mæli valið
þá námsmenn sem við viljum sjálf-
ir hafa, og í framtíðinni verða opin-
ber fjárframlög til okkar reiknuð
út eftir því hve marga námsmenn
við höfum. Áður voru þau reiknuð
út eftir því hve marga við gátum
haft. Sömuleiðis er hugsanlegt að
fjárframlög til okkar ráðist í fram-
tíðinni af námsárangri, en það hef-
ur ekki verið ákveðið enn,“ sagði
Emanuelsson.