Morgunblaðið - 12.05.1993, Qupperneq 43
MORGUNBLAÐIÐ
ÍÞRÓTTIR
MIÐVIKUDAGUR 12. MAI 1993
HANDKNATTLEIKUR / ISLANDSMOTIÐ
Besta afmælisgjöfivt
VALSMENN héldu upp á af-
mælisdag félagsins, 11. maí,
með því að tryggja sér ís-
landsmeistaratitilinn í hand-
knattleik karla. Þeir sigruðu
FH ífjórða úrslitaleik liðanna,
23:21, ískemmtilegum bar-
áttuleik ítroðfullu íþróttahús-
inu i Kaplakrika. „Ég held að
félag geti varla hugsað sér
betri afmælisgjöf. Þetta hefur
verið löng og ströng barátta
því það er langur vegur að
titlinum í upphafi keppnis-
tímabils," sagði Geir Sveins-
son, fyrirliði Valsmanna, eftir
að hann hafði tekið við ís-
landsbikarnum.
Valsmenn eru vel að titlinum
komnir. Þeir hafa óumdeiian-
lega v.erið með besta liðið í vetur,
■■■■■I enda unnið öll fjög-
ValurB. ur mótin sem þeir
Jónatansson tóku þátt í; Reykja-
skrífar víkurmótið, bikar-
keppnina, deildarkeppnina og nú
æðstu verðlaunin í íslenskum hand-
knattleik — íslandsmeistaratitilinn.
Til hamingju Valsmenn!
FH byijaði betur í leiknum í gær
og var Guðjón Árnason þar fremst-
ur í flokki og skoraði 6 af fyrstu
7 mörkum liðsins. Guðmundur
Hrafnkelsson, markvörður Vals,
sagði þá hingað og ekki lengra í
stöðunni 7:6. Hann varði þá m.a.
tvö vítaköst og Valsmenn nýttu ser
það og náðu yfirhöndinni 7:9. „Ég
var aldrei hræddur um að ég kæm-
ist ekki inní leikinn. Ég hafði alltaf
á tilfinningunni að þetta kæmi og
það kom,“ sagði Guðmundur.
Valsmenn létu forystuhlutverkið
ekki af hendi, þó svo FH-ingar
næðu einu sinni að jafna í stöðunni
12:12. Eftir það náði Valur mest
þriggja marka forskoti, 19:22, en
FH-ingar játuðu sig ekki sigraða
og náðu að minnka muninn í eitt
mark, 21:22, þegar rétt rúm mín-
úta var til leiksloka og spennan í
hámarki. Hinn ungi og efnilegi
Olafur Stefánsson tók af skarið —
sýndi áræði er hann braust í gegn
30 sekúndum fyrir leikslok og gull-
tryggði sigur Vals. „Sóknin var
stutt og eftilvill fór ég inn vegna
reynsluleysis. Ég hélt ég fengi
aukakast, en ég væri sjálfsagt
skúrkur ef ég hefði klikkað — svo
stutt er á milli,“ sagði Ólafur um
síðasta markið.
„Byijunin hjá okkur lofaði
góðu,“ sagði Guðjón Árnason, fyr-
irliðið FH. „Eftir að Valsmenn
komust yfir í fyrri hálfleik var á
brattann að sækja. Við náðum þó
að jafna í upphafi seinni hálfleiks
en nýttum ekki dauðafærin og það
má ekki í leik sem þessum. Vals-
menn eru vel að titlinum komnir
og ég óska þeim til hamingju,"
sagði Guðjón.
Valsmenn léku veí sem heild og
ekki veikan hlekk að finna. Geir
var hreint frábær og eins Guð-
mundur í markinu. Ingi Rafn hefur
vaxið með hveijum leik og nýtti
vel tækifærið í fjarveru Jóns Kristj-
ánssonar. Valdimar og Jakob'
standa alltaf fyrir sínu og það verð-
ur sjónarsviptir af Jakobi næsta
vetur. Ungu strákarnir, Ólafur og
Dagur — sem eru ekki lengur
reynslulitir — sýndu skemmtileg
tilþrif. Ólafur hefur undirstrikað
að hann er arftaki Sigurðar Sveins-
sonar á hægri vængnum í íslenska
landsliðinu.
FH-ingar eiga hrós skilið fyrir
hetjulega baráttu í allri úrslita-
keppninni. Guðjón og Bergsveinn
voru bestu leikmenn liðsins í gær.
Sigurður Sveinsson og Gunnar
Beinteinsson voru einnig traustir
og eins Hálfdán á línunni. Kristján
og Trúfan virkuðu þreyttir og
fundu sig ekki alveg og munar um
minna.
„Hann á afmæli í dag...“
Morgunblaðið/Kristinn
Valsmenn fögnuðu að sjálfsögðu gríðarlega að leikslokum í gærkvöldi; íslandsmeistarabikarnum náðu þeir að Hlíðarenda og það á afmælisdegi félagsins — sem
varð 82 ára. Stuðningsmenn félagsins kyijuðu afmælissönginn af miklum krafti í Kaplakrikanum, og hafa eflaust haldið áfram að Hlíðarenda, þar sem halda
átti sigurhátið.
KORFUKNATTLEIKUR / LANDSLEIKUR
20 stiga sigur
URSLIT
ISLENSKA landsliðið í körfu-
knattleik vann Eistlendinga
111:91 ívináttulandsleik í
Keflavík í gærkvöldi.
Eistlendingamir voru greinilega
þreyttir og erfitt ferðalag síð-
an snemma um morguninn virtist
sitja í þeim. Þeir
hreinlega gáfust
upp í síðari hálfleik,
en eru greinilega
með sterkt lið og ég
hef trú á að þeir taki á honum stóra
sínum á Sauðárkróki," sagði Torfi
Björn
Btöndat
skrifar
frá Keflavík
ísl. - Eistland 111:91
Gan^ur leiksins: 0:6,2:6,12:14,23:30,
30:37, 42:46,51:50, 58:58, 58:64,
75:68.85:72,90:75, 98:77,111:91.
Stig íslands: Guðmundur Bragason 20,
Nökkvi Már Jónsson 19, Guðjón Skúla-
son 15, Magnús Matthíasson 9, Jón Kr.
Gíslason 8, Teitur Örlygsson 8, Jón
Amar Ingvarsson 8, Kristinn Friðriks-
son 8, Valur Ingimundarson 6, Albert
Óskarsson 5, Herbert Amarsson 5.
Stig Eistlands: Kausamaa 19, Rumma
19, Metstak 12, Moormets 12, Kullamae
11, Pehke 9, Saksakum 9.
Dómarar: Kristinn Albertsson og Helgi
Bragason.
Áhorfendur: Um 100.
Magnússon, landsliðsþjálfari, eftir
20 stiga sigurinn.
Leikurinn var frekar kaflaskipt-
ur. Jafnræði var með liðunum í fyrri
hálfleik og sýndu þau þá ágæt til-
þrif, en eftir hlé gekk lítið upp hjá
gestunum. Þeir létu líka dómgæsl-
una fara fýrir bijóstið á sér og
bætti það ekki úr skák, en að lokum
gáfust þeir upp.
íslenska liðið var að leika fjórða
leik sinn á fimm dögum og mætast
liðin á Sauðárkróki í kvöld kl. 20,
en það verður fyrsti landsleikurinn
i körfuknattleik á staðnum.
KNATTSPYRNA / LANDSLIÐ
Landsliðshópurinn fyrir HM-leikinn gegn Lúxemborg:
Lrtið um breytingar
ASGEIR Elíasson, landsliðs-
þjálfari f knattspyrnu, valdi í
gær 16 manna hóp vegna leiks-
ins við Lúxemborg í undan-
keppni HM, sem verður ytra
20. maí. Daginn áður mætast
U-21 s árs lið þjóðanna í riðla-
keppni EM og valdi Ásgeir 16
leikmenn vegna fararinnar.
jr
Island vann Ungveijaland ytra
■ fyrir tæplega ári og er með tvö
stig í fimmta riðli, en þrír leikir
liafa tapast 1:0, báðir gegn Grikkj-
um og útileikurinn gegn Rússum.
Liðið á ekki möguleika á tveimur
efstu sætum riðilsins, sem veita
sæti í úrslitakeppninni í Bandaríkj-
unum að ári, en möguleiki er á að
flytjast upp um styrkleikaflokk með
hagstæðum úrslitum í leikjunum
sem eftir eru í keppninni.
Eftirtaldir lcikmenn er í a-Iiðinu:
Birkir Kristinsson...............Fram
Ólafur Gottskálksson...............KR
Guðni Bergsson..............Tottenham
Hlynur Birgisson..................Þór
Knstján Jónsson Ólafur Þórðarson Fi*am ÍA
Andri Marteinsson FH
Þorvaldur Örlygsson Nott. For.
Arnar Grétarsson UBK
KR
Hlynur Stefánsson Örebro
Haraldur Ingólfsson ÍA
Baldur Bragason.
..Val
Eyjólfur Sverrisson.........Stuttgart
Arnór Guðjohnsen...............Hacken
Arnar Gunnlaugsson..........Feyenoord
U-21s árs liðið:
Ólafur Pétursson................í BK
Friðrik Þorsteinsson............Fylki
Lárus O. Sigurðsson...............Þór
Pétur Marteinsson.............Leiftri
Sturlaugur Haraldsson..............IA
Þórhallur Dan Jóhannsson........Fylki
Steinar Guðgeirsson............. Fram
Finnur Kolbeinsson..............Fylki
Ásmundur Arnarsson..............v.Þór
ÁsgeirÁsgeirsson................Fylki
Hákon Sverrisson..................UBK
Kristófer Sigurgeirsson...........UBK
Ágúst Gyifason....................Val
Kristinn Lárusson.................Val
Ómar Bendtsen......................KR
Þórður Guðjónsson..................ÍA
FH-Valur 21:23
Kaplakriki, fjórði úrlsitaleikurinn um ís-
landsmeistaratitilinn,- þriðjudagurinn 11.
mai 1993.
Gangur leiksins: 1:0, 1:1, 3:1, 4:3, 5:4,
6:5, 6:6, 7:6, 7:7, 7:9, 8:10, 10:12, 11:12,
12:12, 12:15, 13:16, 15:16, 15:18, 17:18,
17:21, 18:21, 19:22, 21:22, 21:23. —
Mörk FH: Guðjón Ámason 9, Sigurður
Sveinsson 4, Gunnar Beinteinsson 3, Alexej
Trúfan 3/2, Hálfdán Þórðarson 2.
Utan vallar: 2 mínútur.
Mörk Vals: Geir Sveinsson 6, Ólafur Stef-
ánsson 5, Valdimar Grímsson 5/4, Dagur
Sigurðsson 3, Ingi Rafn Jónsson 3, Jakob
Sigurðsson 1.
Utan vallar: 4 mínútur.
Áhorfendur: 2.800.
Dómarar: Gunnar Viðarsson og Sigurgeir
Sveinsson. Dæmdu mjög vel.
Knattspyrna
England
1. deild f gærkvöldi:
Arsenal - Tottenham................1:3
Paul Dickov — Teddy Sheringham, John
Hendry 2.
QPR - Sheff. Wednesday.....™.......3:1
Bradley AUen 2, Les Ferdinand' - Mark
Bright.
■Arsenal og Wednesday, sem leika' til úr-
siita um enska bikarinn á laugardag, stilltu
nánast upp varaliðunum í gærkvöldi; níu
fastamenn vantaði í lið Arsenal og sjö hjá
Wednesday. Þjálfararnir vildu greinilega
ekki taka neina áhættu á að leikmenn þeirra
meiddust fyrir viðureignina á laugardag.
Frakkland
Átta liða úrslit bikarkeppninnar:
St. Etienne - Marseille............2:1
Gerald Passi (19.), Lubomir Moravcik (104.)
- Rudi Völler (63.)
Körf uknattleikur
NBA-deildin
2. umferð úrslitakeppninnar:
Seattle - Houston..............99:90
■Þetta var fyrsti leikur liðanna, en fjóra
sigra þarf til að komast áfram.
Íshokkí
NHL-deildin
Úrslitakeppni Patrick-riðils:
Pittsburgh - NY Islanders..........6:3
■Pittsburgh, sem á titil að verja, leiðir 3-2.