Morgunblaðið - 10.07.1993, Blaðsíða 22

Morgunblaðið - 10.07.1993, Blaðsíða 22
22 MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 10. JÚLÍ 1993 MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 10. JÚLÍ 1993 23 Jpgirjgptjl>Míi§» Útgefandi Framkvæmdastjóri Ritstjórar Fulltrúar ritstjóra Fréttastjórar Ritstjórnarfulltrúi Árvakur h.f., Reykjavík Haraldur Sveinsson. Matthías Johannessen, Styrmir Gunnarsson. Björn Jóhannsson, Árni Jörgensen. Freysteinn Jóhannsson, Magnús Finnsson, Sigtryggur Sigtryggsson, Ágúst Ingi Jónsson. Björn Vignir Sigurpálsson. Kringlan 1, 103 Reykjavík. Símar: Skiptiborð 691100. Auglýsingar: 691111. Áskriftir 691122. Áskriftargjald 1200 kr. á mánuði innan- lands. í lausasölu 110 kr. eintakið. Leitað eftir svörum A Iopnu bréfí sem birtist í Morg- unblaðinu fyrir réttri viku frá ónafngreindri móður er frá því skýrt, að fyrir ári hafí uppgötv- ast að dóttir hennar, þá ú'ögurra ára, hafi verið misnotuð kynferð- islega. Móðirin segir í bréfinu, að dóttirin ásamt öðrum börnum hafi um nokkurt skeið verið mis- notuð af manni sem bjó í sama húsi og börnin. Málið var kært til Rannsókn- arlögreglu ríkisins og við yfír- heyrslur segir móðirin að maður- inn hafí játað afbrot sitt gagn- vart dóttur hennar. Eftir rann- sókn RLR var málið sent til ríkis- saksóknara í fyrrasumar. Um miðjan maímánuð sl. fékk móðir- in þær upplýsingar hjá ríkissak- sóknaraembættinu að maðurinn hefði ekki verið dæmdur þrátt fýrir játningu, heldur hefði mál- inu verið frestað í þrjú ár. í bréfínu spyr móðirin, hvort þessi ákvörðun ríkissaksóknara- embættisins endurspegli mat samfélagsins á alvarleika þessa brots. Hún spyr jafnframt, hvort fordæmi séu fyrir því, að kyn- ferðisafbrotamaður sem játað hafi á sig kynmök við fjögurra ára barn hljóti ekki dóm. Orð- rétt spyr móðirin: „Hefur ríkis- saksóknaraembættið frjálst mat á því hvenær það frestar ákæru og hvenær það fer með mál fyr- ir dómstóla, eða eru einhveijar leiðbeiningarreglur í lögunum um hvenær það er hægt? T.d. vegna alvarleika brota eða ald- urs geranda?“ Til þessa hafa engin svör bor- izt frá embætti ríkissaksóknara vegna þessa bréfs. Nú kann að vera að embætti ríkissaksóknara setji fyrir sig, að um nafnleynd var að ræða í hinu opna bréfi. Ástæðan fyrir því, að Morgun- blaðið tók ákvörðun um að birta bréf móðurinnar, þrátt fyrir nafnleynd, var sú, að fallast verður á það sjónarmið móður- innar að nafnbirting kynni að verða dóttur hennar skaðleg síð- ar á lífsleiðinni. Bréfið var af þeim sökum birt í dálki Velvak- anda, þar sem bréf hafa verið birt áratugum saman undir dul- nefni og er það eini þáttur blaðs- ins, þar sem slíkt tíðkast. Ef nafnleyndin er ástæðan fyrir því, að embætti ríkissaksóknara hefur ekki svarað spumingum þeim, sem til þess var beint í bréfínu, ætti embættið að geta fallist á ofangreind sjónarmið varðandi hana. Hér verður enginn dómur lagður á það, hvort afgreiðsla saksóknaraembættisins er eðli- leg eða ekki. Hins vegar er það réttmæt krafa móður fórnar- lambs í þessu tilviki að grein sé gerð fyrir þeim rökum, sem liggja til grundvallar afgreiðslu málsins. Embætti ríkissaksókn- ara þarf að skýra frá því hvaða rök voru fyrir því að fresta ákæm í þijú ár. Jafnframt þarf embættið að gera grein fyrir því hvað felst í skilyrtri frestun ákæra. Stígamót, samtök kvenna gegn kynferðislegu ofbeldi, hafa unnið mikið og þarft verk á þessu sviði. Sömuleiðis hafa grannskólar landsins stóraukið fræðslu sína og forvarnarstarf að því er varðar kynferðisafbrot. Móðirin segir í bréfí sínu, að það sé skrifað til þess að dómar í sambærilegum málum verði í samræmi við alvarléika brotsins og hafi þau fyrirbyggjandi áhrif sem refsingu sé m.a. ætlað að hafa. Þess verður að vænta, að saksóknaraembættið veiti svör við þeim spurningum, sem born- ar hafa verið fram um þetta mál. Það skiptir miklu máli fyrir 'alla þá, sem starfa að því að framfylgja lögum og reglum í landinu, að þeir njóti trausts al- mennings. Yaxtar- broddar í sjávarút- vegi ótt staða sjávarútvegs sé erfíð og ástand helztu físk- stofna ískyggilegt era engu að síður að skjóta upp kollinum hér og þar vaxtarbroddar í undir- stöðuatvinnugrein okkar, sem vert er að gefa gaum. Áður hef- ur verið fjallað um kaup Útgerð- arfélags Akureyringa hf. á hlut í þýzku útgerðarfyrirtæki og þátttöku Granda hf. í sjávarút- vegi í Chile. Að undanförnu hef- ur athyglin beinzt að úthafs- karfaveiðum mörg hundrað sjómílur frá landi og rækjuveið- um við Nýfundnaland, sem ís- lenzk rækjuskip stunda. Sl. miðvikudag skýrði Morg- unblaðið frá stofnun íslenzks hlutafélags um veiðar í Barents- hafí, sem stefnir að samvinnu við Rússa um fiskveiðar á þeim slóðum. Allt eru þetta vísbend- ingar um, að þeir sem starfa í sjávarútvegi leita nú nýrra leiða bæði til þess að nýta hinn mikla fiskiskipaflota okkar á öðrum miðum en hefðbundnum físki- miðum okkar og eins til þess að nýta þá miklu þekkingu og reynslu, sem við búum yfír á sviði sjávarútvegsmála. í þessum efnum eram við tvímælalaust á réttri leið. Loðnan vítamínssprauta fyrir lífið á Raufarhöfn SVEIFLUR í afla hafa mikil áhrif á lífið á Raufarhöfn og börnin segjast sjá það á foreldrum sínum þegar iítið er að hafa úr sjónum. En börnin geta glaðst um stundarsakir því loðnuvertíðin er hafin og von er á nýju skipi í plássið. Loðnan boðar alltaf gott á sumrin og í ár kemur hún óvei\ju snemma. Vinnslusljórinn er ánægður og vonar að vertíðin verði bæði gjöful og góð. Sveitarstjórinn gerir sér grein fyrir því að fjárhagur sveitarfélagsins á allt undir sjávarútveg. Sljórnarformaður Fiskiðjunnar bíður eftir nýjum togara en sá gamli hefur í gegnum tíðina fært bæjarbú- um von og vinnu. Raufarhöfn á allt undir sjávarútvegi. Síldarævintýri hófst á Raufarhöfn með komu Norðmanna á staðinn. Margir Raufarhafnarbúar muna þá tíð en þeir muna jafn vel að síldin er löngu farin. Það eru þessar sveiflur sem íbú- ar sjávarþorpa og bæja þurfa að sætta sig við. Síldarverksmiðjur ríkisins, sem settar voru upp á Raufarhöfn árið 1940, hafa í fyllingu tímans feng- ið nýtt hlutverk. Loðna hefur komið í stað síldar en hún er soðin, þurrkuð og fullunnin sem mjöl sem síðan er selt til útflutnings. Loðnan kemur snemma „Við höfum nú þegar landað yfir fimm þúsund tonnum af loðnu það sem af er vertíðinni," segir Hafþór Sig- urðsson, vinnslustjóri Síldarverksmiðj- anna á Raufarhöfn. „Það einkennir vertíðina að hún hefst að þessu sinni mjög snemma og því fylgja bæði kost- ir og gallar. Okkar starfsmenn eru margir hveijir sjómenn samhliða verk- smiðjustörfum og gera út á grá- sleppu. Kosturinn er augljós því að loðna skapar örugga atvinnu en hængurinn er sá að þeir hafa ekki allir getað fullnýtt kvóta sinn á grá- sleppunni. Það er þó ekki hægt að segja ann- að en að bjart sé framundan og allt bendir til þess að komandi vertíð verði góð.“ bætir Hafþór við. „Við á Raufar- höfn höfum fengið hátt í helming alls loðnuafla á landinu til þessa og mun- um hafa næg verkefni ef fram heldur sem horfir.“ Hann segir að í verk- smiðjunni vinni 25 manns á vöktum í vinnslunni og aðrir 25 vinna að öðr- um störfum tengdum henni. En hver eru verkefni verksmiðjanna þegar loðnuvertfð er lokið? „Þeir starfsmenn okkar sem ekki fara á sjóinn vinna við viðhald og við- gerðir frá marsmánuði fram á sumar þegar loðnan birtist. Við fullvinnum jafnframt fiskúrgang frá frystihúsinu og framleiðum beinamjöl." Aðspurður um þróun og nýjungar í vinnslunni segir Hafþór: „Við höfum reynt að fylgja þróuninni í þessum iðnaði. Nýting hefur verið aukin með uppsetningu nýrra soðningartækja en þau spara mikla orku.“ Úr Breiðholtinu á Raufarhöfn Guðmundur Guðmundsson flutti úr Breiðholtinu fyrir um tveimur árum til að gerast sveitarstjóri í Raufar- hafnarhreppi. Hann er staðfastur í þeirri trú að hreppurinn geti dafnað vel sem einangrað sjávarþorp. „Óvíða má finna sveitarfélög sem byggja jafn mikið á sjávarútvegi eins og hér á Raufarhöfn. Hreppurinn er til að mynda ekki þjónustusvæði fyrir land- Vinnslusljórinn HAFÞÓR Sigurðsson segir að margt bendi til þess að komandi vertíð verði gjöful. Stjórnarformaðurinn SIGURBJÖRG Jónsdóttir segir komu nýs togara í byggðarlagið blása auknu lífi í sveitarfélagið. búnað eins og raunin er annars staðar á landinu. Sjávarútvegur hefur augljós áhrif á sveitarfélagið Áhrif sjávarútvegs á afkomu hreppsins og íbúa þess eru því augljós að mati Guðmundar. „Eftir að síldin hvarf var gengið í það að byggja upp fiskvinnslufyrirtæki en þau urðu tvö, Fiskiðja Raufarhafnar og Jökull hf. Hreppurinn á mikinn meirihluta í báð- um fyrirtækjunum og þau eru kjölfest- an í þessum sjávarútvegi hérna ásamt loðnuvinnslu SR og þó nokkurri smá- bátaútgerð. Sveitarfélagið hefur tekj- ur af hafnargjöldum og þegar vel gengur þá léttir verulega á fjárhag Sveitarstjórinn GUÐMUNDUR Guðmundsson segir bæinn geta dafnað vel sem fyrr. sveitarfélagsins.“ Hvaða áhrif hafa miklar aflaskerð- ingar á reksturinn og sveitarfélagið? „Við stöndum mjög vel með kvóta. Hreppurinn hefur ekki tekið út arð sinn sem stærsti hluthafi í fiskvinnslu- fyrirtækjunum tveimur heldur nýtt hann til að styrkja kvótastöðu fyrir- tækisins. Satt best að segja held ég að Jökull og Fiskiðjan séu vel rekin fyrirtæki en þau hafa nær undantekn- ingarlaust skilað hagnaði síðustu ár.“ Atvinnuástand ágætt Hér á Raufarhöfn er atvinnuástand ágætt en það er jafnframt mjög við- kvæmt. Hér fá allir unglingar vinnu og miklu fyrr en aðrir á landinu. Guð- mundur telur brýnt að bæta samgöng- ur á Melrakkasléttunni milli bæja á borð við Kópasker, Raufarhöfn og Þórshöfn. „Bættar samgöngur þýddu að samfelldara og breiðara atvinnu- svæði myndaðist. Atvinnumynstur þessara þriggja sveitarfélaga er til- tölulega ólíkt og því yrði samgöngu- bót mikil upplyfting fyrir atvinnulíf á þessu svæði," segir Guðmundur. En getur sveitarfélagið aukið um- svif sín? „Eins og stendur er athyglinni beint að eflingu ferðamannaiðnaðar í hreppnum og á öllu norðaustur horn- inu. Hreppurinn á núna Hótel Norður- ljós sem leigt er út ungum hjónum. Þau reka þar hótel árið um kring. Við teljum ferðamannaútgerð væn- lega vegna þess hversu hún er vinnu- aflsfrek," sagði Guðmundur að end- ingu. Sannur Raufarhafnarbúi Stjómarformaðurinn í Fiskiðjunni og fyrrverandi sveitarstjóri, Sigur- björg Jónsdóttir, segir stöðu útvegs í dag nokkuð erfiða en minnir jafn- framt á ástandið hefi verið verra. „Ég hef búið á Raufarhöfn alla mína ævi og þekki hvernig það er að lifa í kreppu. Það hefur mikið að segja að vinna hefur haldist stöðug hér á Raufarhöfn." Nýr togari? „Síðasti vetur var erfiður sökum þess að vélin í togaranum okkar, Rauðanúpi, bilaði. Vélin bilaði reyndar daginn sem 20 ár voru liðin frá því hann kom í byggðina. Við höfum því ákveðið að fá hingað nýjan togara sem kæmi í staðinn fyrir Rauðanúp og verður líklega fenginn frá Spáni.“ Hún segir að nýr og stærri togari í byggðina þýddi uppsveiflu fyrir sveit- arfélagið. Með komu nýs skips fjölg- aði skipverjum og þeim fylgdi skyldul- ið. Einnig yrði hægt að nýta ýmsa kvóta sem hingað til hafa farið í súg- inn. Það má með sanni segja að Rauð- inúpur hafi í gegnum tíðina verið bæjarlífinu allt og það verður nýi tog- arinn líka,“ segir Sigurbjörg en legg- ur á það ríka áherslu að farið verði varlega því enginn vilji kaffæra sveit- arfélagið. Að bíða eftir loðnunni „Það getur verið erfitt að bíða eft- ir loðnunni," segir Sigurbjörg. „Marg- ar fjölskyldur byggja afkomu sína á loðnuveiðum og því hefur biðin eftir henni oft verið niðurdrepandi. Þegar hún kemur virkar hún aftur á móti sem vítamínssprauta fyrir bæjarlífið og tekjurnar birtast strax,“ segir Sig- urbjörg. „Það kemur okkur vel að loðnan birtist snemma því að á þessum árstíma er hún á miðum nálægt okk- ar byggðarlagi." Allir jafnir á Raufarhöfn Það hefur ótvíræða kosti að búa á Raufarhöfn segir sá innfæddi. „Ég hef til að mynda alltaf vorkennt fólki að ala upp börn sín í borgarumhvefi. Hér finnst mér aðstæður hinar bestu og umfram allt öruggar. Annar kostur felst í því að að hér fá unglingar mun fyrr að takast á við þroskandi störf. Þegar unglingar í borgum og bæjum eru í unglingavinnunni hefur unga fólkið hér þegar starfað í henni og er farið að takast við ábyrgðarmikil störf í fiskvinnslu," sagði hún. „Eitt enn tel ég vert að nefna en það er hversu samfélagið hér er jafnt. Eng- inn er hafinn yfir annan enda býr fólk við svipuð kjör og starfar að lík- um störfum. Ég hef því hlegið að þeim sem ekki spyija hvort ég vilji flytja héðan heldur hvenær ég muni láta verða af þvfl“ Grein: Þórmundur Jónatansson Myndir: Kristinn Ingvarsson og Helgi Ólafsson. Drekkhlaðin Gígja SJÓN sem þessi er ekki óalgeng á höfninni á Raufarhöfn. Gígja VE siglir inn drekkhlaðin með 730 tonna fullfermi af loðnu. Fjölbreytt mannlíf einkennir sjávarþorpið Raufarhöfn Unga fólkið SIGRÍÐUR Dögg, Margrét og Helga Sif eru allar á því að fiskurinn sé nauðsynlegur byggðarlaginu, að öðrum kosti færi allt í gjaldþrot. Skipstjórinn RAGNAR Tómasson hefur búið og unnið á Raufarhöfn í tuttugu ár og kann mjög vel við sig. Morgunblaðið/Kristinn Smábátaeigandinn ÞORBERGUR Guðmundsson segir tíðina erfiða og grásleppan brást honum alveg. Aliir tengjast sjávarútvegi MANNLÍFIÐ á Raufarhöfn er fjölbreytt en íbúarnir eiga það flestir sameiginlegt að tengjast sjávarútvegi á einhvern hátt. Einn er sjómaður, annar vinnur við vinnslu sjávar- afurða og sá þriðji á bræður, systur eða for- eldra sem starfa í sjómennsku. Rætt er um afla í sjoppunni og á bryggjunni hjálpast menn að við netaviðgerðir. Flestir eru ánægð- ir á Raufarhöfn en það einkennir þó fólkið í byggðarlaginu að annað hvort fer það hvergi eða að það leitar allra leiða að losna þaðan. Sé ekki eftir borgarlífinu Ragnar Tómasson skipstjóri fylgdi Rauðanúp- inum ÞH þegar skipið kom á Raufarhöfn fyrir rúmum 20 árum. Hann er fæddur og uppalinn Reykvíkingur en segist ekki sjá eftir borgarlífínu á nokkum hátt. „Sjómennskan er mitt starf og ég ákvað að setjast hér að. Það var sjálfsagt að vera hér og mér líkar það vel.“ Ragnar var að koma úr túr með Öxarnúpi ÞH, öðru tveggja skipa Jökuls hf., þegar talið barst að aflabrögðum. „Við erum nú bara rétt að byija og vorum að koma úr fyrsta róðrinum með tólf hundruð kíló af kola.“ Hann segir áhöfn hafa verið á rækjuveiðum í vetur en nokkuð óljóst sé hvað taki við. En hvíla aflaskerðingar ekki þungt á Raufar- hafnarbúum? „Það er í sjálfu sér ferlegt að grípa þurfi til þess að skera kvótann niður. Ég er nú samt sem áður á þeirri skoðun að mark verði að taka á fiskifræðingunum. Þeir hljóta að vita eitt- hvað um þetta, mennirnir. Menn verða að sækja á sjóinn af mikilli forsjá,“ sagði Ragnar að lokum. Kann alls staðar vel við mig Þorbergur Guðmundsson er smábátaeigandi á Raufarhöfn. Hann gerir út 8 tonna bát, Rögn- vald Jónsson, ásamt tveimur bræðrum sínum. „Mér líkar ákaflega vel hér í minni heimabyggð en það er í raun hvar sem ég er, mér líkar alls- staðar jafn vel.“ Þorbergur er á því að menn verði að sætta sig við skerðingar á afla. Tíðin sé erfið en hafa verði það. „Ég hef verið á grá- sleppuveiðum frá miðjum marsmánuði en hún hefur brugðist allverulega. Það er sama sem eng- an físk að fá,“ útskýrði Þorbergur með mæðu- svip og hvarf með það sama er hann kvaddi blaða- mann og ljósmyndara Morgunblaðsins. Það var fiskur! Börn og unglingar hitta oft naglann á höfuðið. Þegar blaðamaður Morgunblaðsins mætti þremur ungum stúlkum í hádegishléi í unglingavinnunni bað hann þær að segja sér hvað einkenndi Raufar- höfn að þeirra mati. Ekki stóð á svari: „Fiskur!“ Stúlkurnar þrjár, Sigríður Dögg Guðmundsdóttir, Margrét Sigríður Höskuldsdóttir og Helga Sif Jónasdóttir, voru einnig fullvissar um það að ef enginn afli bærist í land þá færi allt í gjaldþrot. Sigríður Dögg, sem er aðflutt, sagðist kunná vel við sig á Raufinni. „Krakkarnir eru skemmti- legir, umhverfið er fallegt. Það er þó miklu meira hægt að gera í Reykjavík,“ sagði Sigríður. Margrét og Helga voru heldur óánægðar með það hve lítið væri við að vera í bænum en töldu það kost á móti að vinna er gulltryggð. Og áður en þær hlupu í vinnuna læddu þær því að blaða- manni að lífíð væri hér mjög fijálslegt og að hér fengju þær að vera úti við leik óáreittar.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.