Morgunblaðið - 11.07.1993, Qupperneq 4
4 FRÉTTIR/YFIRLIT
MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 11. JÚLÍ 1993
ERLEINIT
INNLENT
Ljót að-
koma eft-
ir útisam-
komu
Ljót aðkoma var að Þjórsárdal
eftir útisamkomu þar um síðustu
helgi. Ölvun var töluverð en án
umtalsverðra óspekta. Eitt alvar-
legt umferðarslys varð á svæðinu
þegar 18 ára piltur varð undir
rútubifreið. Fimm stúlkur leituðu
til starfskvenna Stígamóta vegna
nauðgana.
Vestfjarðagöng
Jarðfræðingar frá Vegamála-
stjórn segja að meira vatn sé í
Vestfjarðagöngum en þeir hafi
haldið í upphafi. Haldi jafnrennsli
áfram rennur sem svarar tveggja
ára vatnsþörf ísfirðinga inn í
göngin í hveijum mánuði. Vatnið
er 3,6 gráðu heitt.
SR-mjöI hf.
Stofnfundur hlutafélags um
rekstur Síldarverksmiðja ríkisins
var haldinn á Siglufirði á þriðju-
dag. Nýja hlutafélagið ber heitið
SR-mjöl hf. og tekur yfir rekstur-
inn 1. ágúst. Nýkjörin stjórn sér
um sölu á eignarhlut ríkisins I
fyrirtækinu en hlutafé hins nýja
félags verður 650 milljónir. Ríkis-
sjóður yfirtekur 400 milljónir af
skuldum SR.
Verðlagseftirlit
ASÍ hefur komið á fót fjögurra
manna starfshópi undir forystu
Hervars Gunnarssonar til þess að
fylgjast með verðlagsþróun í kjöl-
far gengisfellingar. Hervar segir
að sambandinu hafi borist þó-
nokkrar ábendingar um óeðlilega
miklar hækkanir.
Útþrá
Votviðri hefur orðið til þess að
ásókn í sólarlandaferðir hefur
aukist og telja forsvarsmenn
ferðaskrifstofa að sætanýting
verði viðunandi í sumar. Spánn
og Portúgal eru vinsælir áfanga-
staðir.
Hrafn braut ekki af sér
Ríkislögmaður hefur komist að
þeirri niðurstöðu að ekkert bendi
til þess að Hrafn Gunnlaugsson
hafi brotið af sér í opinberu starfi
eða dregið sér fé er hann var
dagskrárstjóri innlendrar dag-
skrárgerðar í Sjónvarpinu. Fram
kemur að Hrafn hafi fengið rúm-
lega 130 milljónir að núvirði í
styrki, greiðslur og lán frá opin-
berum sjóðum og stofnunum en
þar af eru rúmlega 90 milljónir
vegna styrkja úr Kvikmyndasjóði
vegna sjö kvikmynda Hrafns á
undanförnum 14 árum.
Söluaukning
Mikil söluaukning hefur orðið
hjá Coldwater í Bandaríkjunum-á
fyrstu sex mánuðum þessa árs
miðað við sama tíma í fyrra.
Aukningin nemur tæplega 12
milljónum dollara eða 840 milljón-
um króna á núverandi gengi.
ERLENT
Auknar lík-
ur á GATT-
samkomulagi
LEIÐTOGAR sjö helstu iðnríkja
heims samþykktu á fundi sínum,
sem lauk í Tókýó á fimmtudag,
að stefna bæri að því að auka
eftirspum eftir innfluttum vam-
ingi í Japan, lækka vexti í Evrópu
og draga úr fjárlagahallanum í
Bandaríkjunum. Leiðtogarnir
náðu ennfremur samkomulagi um
víðtækar tollalækkanir sem ná til
18 vöruflokka og glæðir það vonir
manna um að takast muni að ljúka
Uruguay-lotu GATT-viðræðnanna
um aukið frjálsræði í heimsvið-
skiptum. Fulltrúar Bandaríkja-
stjórnar sögðu að í samkomulag-
inu fælist umfangsmesta tolla-
lækkun sem nokkum tíma hefði
verið samið um í sögunni. Þá var
samþykkt tillaga Bandaríkja-
manna um að leggja Rússum til
sem svarar rúmlega 200 milljörð-
um króna á næstu 18 mánuðum
og á að nota féð tii að efla einka-
væðingu.
Hættan á upplausn
Rússlands eykst
HÆTTAN á að Rússland liðist í
sundur jókst á fimmtudag þegar
þingið í Vladívostok í Austur-Asíu
samþykkti að lýsa yfir stofnun
lýðveldis innan rússneska sam-
bandslýðveldisins. Áður hafði
Katrínarborg, sem áður hét
Sverdlovsk, lýst yfir lýðveldis-
stofnun en talsmenn beggja hérað-
anna leggja þó áherslu á að ástæð-
urnar séu efnahagslegar en ekki
pólitískar. Eru þessi tfðindi mikið
áfall fyrir Borís Jeltsín, forseta
Rússlands.
Varað við
„mannkynskreppu“
MEIRI fólksflutningar eiga sér nú
stað um heim allan en dæmi eru
um og er undirrótin aðallega Ieit
að betri lífskjörum en bjóðast í
heimalandinu. Kemur þetta fram
i nýrri skýrslu frá Sameinuðu þjóð-
unum, en þar segir að margir ótt-
ist að þessir flutningar geti orðið
að því sem kallað er „mannkyns-
kreppa okkar tíma“.
Slæmt ástand fiskstofna við
austurströnd Kanada
FISKIFRÆÐINGAR í Kanada
draga upp dökka mynd af ástandi
fiskstofna við austurströnd lands-
ins í skýrslu sem nýkomin er út.
Segja þeir að draga verði verulega
úr veiðunum í langan tíma til að
byggja þorskinn og aðra stofna
upp aftur og þeir fullyrða einnig
að á liðnum árum hafi veiðiþol
þeirra verið ofmetið.
Bjartsýni í Finnlandi
GRUNNVEXTIR voru lækkaðir í
Finnlandi á fimmtudag um hálft
prósentustig, úr 7% í 6,5%. Er til-
gangurinn með lækkuninni að
hjálpa atvinnulífínu og glæða þá
bjartsýni, sem Vart hefur orðið, á
endurreisn efnahagslífsins. Er
spáð 2% aukningu þjóðarfram-
leiðslu á næsta ári og útlit er fyr-
ir að útflutningur aukist um 12%
á þessu ári og jafn mikið á því
næsta.
Kravtsjúk vill halda
kjarnavopnunum
LEONÍD Kravtsjúk, forseti
Úkraínu, kvaðst á miðvikudag
vera samþykkur því að kjamorku-
flaugar úr vopnabúri Sovétríkj-
anna fyrrverandi, sem geymdar
eru í Úkraínu, yrðu tímabundið
lýstar eign Úkraníumanna.
*
Deilur Ukraínumanna og Rússa um Sevastopol
Jeltsín fordæmir ákvörð-
un rússneska þingsins
Moskvu, Tókýó. Reuter.
BORÍS Jeltsín, forseti Rússlands, fordæmdi í gær
þá ákvörðun Rússlandsþings frá því á föstudag að
lýsa yfir eign sinni á borginni Sevastopol í Úkra-
ínu. „Ég skammast mín fyrir þessa ákvörðun,“
hafði fréttastofan Itar-Tass eftir Jeltsín, þar sem
hann var staddur í borginni Irkutsk í Síberíu á
leið heim frá fundi með leiðtogum sjö helstu iðn-
rílga heims.
Sevastopol er helsta borg Krímskaga og þar hefur
Svartahafsflotinn aðsetur sitt. Þingið skipaði jafnframt
Úkraínustjóm að flytja herlið sitt frá borginni. Seva-
stopol og skaginn allur hafa tilheyrt Úkraínu frá 1954
og hafa þarlend stjórnvöld mótmælt samþykkt þingsins.
Jeltsín og þingið hafa átt í harðri valdabaráttu
undanfarið ár og er talið ólíklegt að Jeltsín, sem fer
með framkvæmdavaldið í Rússlandi, muni sinna
ákvörðun þingsins.
Bandarílcjastjórn gagnrýndi einnig samþykkt þings-
ins í g'ær. I yfirlýsingu sem Roman Popadiuk, sendi-
herra Bandlaríkjanna í Kiev, sendi frá sér í gær segir
að Sevastopol sé hluti af Úkraínu.
Reuter.
Haldið heim
BORIS Jeltsíns og eiginkona hans Maina kveðja
áður en þau leggja af stað heim til Rússlands frá
Japan.
Alsír: Átök stríðandi fylkinga.
Morð daglegt brauð. Herskáir
íslamskir bókstafstrúarmenn.
Marokkó/V-Sahara:
Polisario berst tyrir að- skilnaði. Landamæraerjur. í / f
Malí: Ættbálkaerjur.
Nígería: Brösuglega
gengur að koma á lýðræði
Kamerún: Kosninga-
úrslitum hagrætt. Hætta á
aðskilnaði héraða í norðri.
| Sierra Leone: 1 Einræói, herstjórn V'
Mw J
| Líbería: Borgarastyrjöld.
Togo: Átök stríðandi fylkinga. Itrekaðar valdaránstilraunir.
Kongó: Brösuglega
gengur að koma á lýðræði
Zaire: Stjórnleysi. Átök stríð-
andi fylkinga. Hungursneyð.
Egyptaland: Herskáir ís-
lamskir bókstafstrúarmenn.
Súdan: Borgarastyrjöld.
„Þjóðernishreinsanir".
Herskáir íslamskir bókstafs-
trúarmenn. Hungursneyð.
Djibouti: Átök
milli ættbálka.
Eþíópía: Ættbálkaerjur
gætu hindrað lýðræði.
Sómalia: Stjórnleysi.
Sam. þjóðirnar eiga í
brösum við stríðsherra.
a: Átök milli ættbálka.
Rwanda: Hætta á
nýrri borgarastyrjöld.
Malawi: Einsflokkskerfi
við lýði þótt því hafi verið
hafnað í þjóðaratkvæði
Zambía: Þjóðkjörín
stjórn stendur höllum fæti.
Mozambiqe: Endurupp-
bygging eftir borgarastyrjöld
S
S-Afríka: Átök stríðandi fylkinga.
Vandamál við að koma á lýðræði.
Óeining einkennir Einingarsamtök Afríku eftir þriggja áratuga starf
Stöðnun, óstjórn o g kúgun
þrátt fyrir fögur fyrirheit
ÞEGAR Einingarsamtök Afríku (OAU) voru stofnuð fyrir þremur
áratugum skorti þau ekki háleit markmið; stefnt var að einingu í
álfunni, samvinnu milli ríkja, efnahagsuppbyggingu og leiðtogamir
boðuðu jafnvel virðingu fyrir mannréttindum. Ijóst er hins vegar
að þær vonir sem bundnar voru við samtökin hafa gjörsamlega
brugðist; það sem einkennir enn álfuna er óeining, efnahagsleg
stöðnun, ósljórn og gróf mannréttindabrot.
Botswana, Namibía og Benín eru
einu Afríkuríkin þar sem farið hef-
ur saman lýðræði, efnahagsupp-
bygging og hagvöxtur. Listin yfir
þau ríki sem eru hrjáð af borgara-
styijöld, stjómleysi, heiftúðugum
átökum stríðandi fylkinga eða póli-
tískri upplausn er miklu lengri.
í Malawi hefur lífstíðarforsetinn
dr. Hastings Banda hunsað þjóðar-
atkvæði þar sem meirihlutinn lagð-
ist gegn einræði hans og studdi
fjölflokkalýðræði. í fjölmennasta
ríki álfunnar, Nígeríu, ákvað for-
seti herforingjastjómarinnar, Ibra-
him Babangida, að ógilda forseta-
kosningar þótt hann hefði aðeins
leyft tveimur flokkum að bjóða
fram. Herforingjastjórnin hafði þar
að auki sjálf mótað stefnu flokk-
anna og lagt blessun sína yfir for-
setaframbjóðendur þeirra.
Borgarastyijöldin í Angóla held-
ur áfram, eftir aðeins 16 mánaða
hlé, og um 1.000 manns verða þar
hungurmorða á hverjum degi. í
Líberíu hafa fjöldamorð verið fram-
in hartnær mánaðarlega frá 1990.
í Súdan geisar grimmileg borgara-
styrjöld milli ættflokka í suðurhlut-
anum og stjómarhers íslamskra
bókstafstrúarmanna í Khartoum.
íbúar suðurhlutans svelta og
stjómarflokkurinn, íslamska þjóð-
arfylkingin, hefur verið sökuð um
„þjóðemishreinsanir" á Nuba-ætt-
bálkinum í norðurhlutanum.
Landamærastríð Chad og Libýu
er um það bil að hefjast að nýju.
Mikil spenna er I samskiptum
Egypta og Súdana, sem hafa hvor-
ir tveggju hótað að ráðast yfir
landamæri n'kjanna.
Ótraust og táknrænt lýðræði
Gömlu einræðisherramir í Afríku
eiga í vök að veijast þótt erfiðlega
hafi gengið í mörgum ríkjum að
festa Qölflokkalýðræði í sessi. {
Zambíu, Kongó, Burundi og Madag-
ascar hafa lýðræðislegar kosningar
farið fram á tiltölulega friðsamlegan
hátt en nýju stjómarherrarnir hafa
verið sakaðir um að beita sömu
kúgunaraðferðunum og einræðis-
herramir fýrrverandi. Spillingin og
efnahagslega óstjómin er sú sama
og nýju stjórnarherramir gera allt
sem þeir geta til að tryggja sér
völd til lífstíðar eins og dr. Banda
í Malawi. í nokkrum ríkjum, svo sem
Kenýu, hefur verið komið á tákn-
rænum lýðræðisumbótum til að sefa
stjómvöld á Vesturlöndum og
áhrifamiklar fjármálastofnanir eins
og Alþjóðabankann og Alþjóða-
gjaldeyrissjóðinn. Umbætumar
hafa aðeins orðið til þess að fegra
ásýnd stjómvaldanna út á við og
það pólítíska frelsi, sem margir
bundu vonir við, er víðs fjarri. •
í mörgum löndum hafa stjóm-
málaumbætur stuðlað að upplausn.
Algjör glundroði hefur til að mynda
ríkt í efnahagslífí og stjómmálum
Zaire, þar sem Mobutu Sese Seko
hefur verið einráður í 28 ár. Frá
því hann heimilaði starfsemi stjóm-
arandstöðuflokka fyrir þremur
árum hafa hvorki meira né minna
en 350 flokkar verið stofnaðir og
Mobutu er sagður notfæra sér
glundroðann í röðum stjómarand-
stæðinga út í ystu æsar til að halda
völdunum.