Morgunblaðið - 11.07.1993, Qupperneq 6
6 FRÉTTIR/INNLENT
MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 11. JÚLÍ 1993
Loðnu-
aflinn
yfir 22
þús. tonn
RÚMLEGA 22 þúsund tonn af
loðnu höfðu borist á land á föstu-
dag. en þann dag veiddust um
fjögur þúsund lestir af loðnu
Aðalloðnugangan er nú djúpt út
af Siglufirði.
Að sögn Hauks Stefánssonar
stýrimanns á Svani RE er loðnan
fremur dreifð en bátarnir hafa þó
náð ágætisköstum. Guðmundur VE,
Háberg GK og Svanur RE lönduðu
á föstudag 2.150 tonnum á Siglu-
firði, Keflvíkingur KE landaði 510
tonnum á Akureyri og Hólmaborg
SU 1.350 tonnum á Neskaupstað.
♦ ♦ ♦----
Skákmót í Korfú
Islending-
ar í 5. sæti
Á OPNA aiþjóðamótinu í Korfu
unnu bæði Margeir Pétursson og
Hannes Hlífar Stefánsson skákir
sínar í sjöundu umferð og deila
nú fimmta sætinu ásamt fleirum
með fimm vinninga. Þrír skák-
menn hafa sex vinninga og einn
fimm og hálfan.
Einvígi Jan Timmans og Grikkj-
ans Skambris, sem haldið var sam-
hliða mótinu á Korfu, endaði 3-1
fyrir Skembris. íjórðu og síðustu
skákinni lauk með jafntefli. Timm-
an kenndi mikilli þreytu um þessi
óvæntu úrslit.
í síðustu viku tefldi hann á hrað-
móti í Moskvu og fór síðan til Bruss-
el þar sem stórmeistarasamtökin
voru endurvakin og Timman kosinn
forseti þeirra. Þaðan hélt hann beint
til Grikklands. Miðað við slaka tafl-
mennsku Timmans í þessu einvígi
á hann litla eða enga möguleika í
FIDE-heimsmeistaraeinvíginu gegn
Karpov í haust.
Ný aðferð
við að lækna
krabbamein
lofar góðu
Washington. Reuter.
NÝ AÐFERÐ við að lækna
krabbamein í lungum, bijósti,
ristli og eggjastokkum lofar
góðu í tilraunum á dýrum og
hefur í för með sér minni auka-
verkanir en hefðbundnar aðferð-
ir að sögn vísindamanna hjá
lyfjafyrirtækinu Bristol-Myers
Squibb, sem þróuðu aðferðina.
Vísindamennimir tóku mótefnið
BR96, sem binst krabbameinsfrum-
um í mönnum og rottum og tengdu
það við krabbameinslyfið doxo-
rubicin. Próteinið festist síðan við
vegg krabbameinsfrumunnar,
smýgur inn í hana og leysir doxo-
rubicinið úr læðingi sem drepur
frumuna.
Sigurður Björnsson, læknir,
sagði í samtali við Morgunblaðið
að tilgangurinn með þessari aðferð
væri að koma doxorubicininu beint
inn í krabbameinsfrumurnar og
gera það beinskeyttara. Krabba-
meinslyf yllu miklum aukaverkun-
um og skemmdu heilbrigðar frumur
og vefi, en þessi aðferð drægi úr
því. Hann sagði að doxorubicin eða
adriamycin eins og það er kallað
hér á landi vera eitt mestnotaða og
virkasta lyfíð gegn kcabbameini í
bijóstum, eggjastokkum og lung-
um.
Loftsteinar á sveimi
Á þessari tölvumynd sjást loftsteinar á sveimi í kringum Mars, en rannsóknir sýna að vatn í steinunum er komið frá annarri plánetu.
íslenskur vísindamaður
rannsakaði vatn frá Mars
ÍSLENSKUR vísindamaður
Haraldur Rúnar Karlsson, jarð-
efnafræðingur, vann hjá
NASA, bandarísku geimvís-
indastofnuninni á árunum 1989
til 1991 við athuganir og mæl-
ingar á vatni í loftsteinum, sem
talið er að komið hafi frá Mars.
I rannsóknunum tókst í fyrsta
skipti að sýna fram á að vatn
í loftsteinum komi frá annarri
plánetu. Vonast er til að hægt
verði að nota niðurstöðurnar
til að segja eitthvað um framtíð
jarðarinnar. Haraldur starfar
nú sem aðstoðarprófessor við
jarðvísindadeild Texas Tech
Háskólans í Texas.
„Hugmyndin var sú að kanna
hvort vatn í þessum loftsteinum
væri jarðneskt eða „himneskt." í
ljós kom að mikill hluti vatnsins
var ekki jarðarvatn,“ segir Har-
aldur. „Ég einangraði vatnið og
það var hægt að sjá það í gler-
hylki. Þetta vakti athygli og það
var auðvitað spennandi að spá í
hvort maður væri þarna fyrstur
til horfa á vatn frá annarri plá-
netu.“
Hann segir að merkilegasta
niðurstaðan hafi verið sú að vatn-
ið sem úr loftsteinunum kom var
ekki í jafnvægi við grjótið sjálft.
„Þetta er algerlega andstætt því
sem gerist á jörðu. Á jörðu veldur
Starfsmenn þvottastöðvar Hagvagna fóru í fargjaldabaukana
Merktir seðlar komu upp um stuld
Fræðimaðurinn
Haraldur Rúnar Karlsson.
landrek því að súrefni í sjó nær
jafnvægi við jarðskorpu. Lofthjúp-
urinn nær einnig jafnvægi við sjó-
inn þannig að súrefni í þessum
mismunandi hlutum blandast vel
saman. Á Mars er landrek ekki
fyrir hendi þannig að lofthjúpur-
inn hefur einangrast frá jarð-
skorpunni."
Á Mars eru mikil gljúfur og
árdalir sem bendir til þess að þar
Vatn frá Mars
Hér má sjá sýnishom af vatni frá Mars í glerhylki.
hafi verið vatn í fymdinni en það
hafi svo allt horfið. Ekki er vitað
hvenær það gerðist eða hvers
vegna. Að sögn Haraldar vonast
sumir til að niðurstöður rann-
sóknanna muni segja eitthvað
um framti'ð jarðarinnar. Merk-
úr, Venus, Jörð og Mars hafi í
upphafi verið mjög svipaðar.
„Þær eru svipaðar að stærð og
talið er að upphaflega hafi þær
haft svipaðan lofthjúp. Nú er hann
hins vegar afar ólíkur. Á Mars
og Venus er aðallega koldíoxíð
en hér er mikið súrefni sem varð
til fyrir tilstuðlan lífvera,“ segir
hann. „Ýmsir hafa verið með til-
gátur vegna þessa en við höfum
hins vegar látið þessar niðurstöð-
ur nægja en ekki sett fram frek-
ari tilgátur um framtíð jarðarinn-
ar,“ segir hann.
INNANHÚSSRANNSÓKN hjá Almennings-
vögnum bs. og undirverktaka þeirra, Hag-
vögnum, kom upp um fjárdrátt fjögurra
starfsmanna þvottastöðvar Hagvagna úr far-
gjaldabaukum strætisvagna fyrirtækisins.
Settir voru merktir peningaseðlar í baukana
og þegar þeir komu ekki allir fram er talið
var upp úr baukunum var hringurinn þrengd-
ur um viðkomandi. Rannsóknarlögregla rík-
isins hefur nú tekið við rannsókn málsins.
Samkvæmt upplýsingum frá Almennings-
vögnum voru það starfsmenn þvottastöðvar
Hagvagna, sem opnuðu fargjaldabaukana og
tóku úr þeim reiðufé, sem farþegar höfðu greitt
fargjaldið með. Um samantekin ráð fjögurra
starfsmanna var að ræða, en þeir höfðu meðal
annars þann starfa að skipta um peningabauka
í vögnunum. Fjárdrátturinn virðist hafa staðið
í þó nokkum tíma. Starfsmönnunum fjórum
hefur verið sagt upp störfum.
Málið er talið að hluta upplýst, þar sem starfs-
mennirnir fjórir hafa játað verknaðinn. Ingi-
mundur Sigurpálsson, stjórnarformaður Al-
menningsvagna, segir að þeir hafi enn sem kom-
ið er ekki greitt til baka það sem þeir tóku úr
baukunum.
Komið í veg fyrir að endurtaki sig
Ingimundur segir að verklagsreglum hjá Hag-
vögnum hafí verið breytt og skipt um læsingar
á fargjaldabaukunum. Með því eigi að vera búið
að koma í veg fyrir að athæfi af þessu tagi
endurtaki sig.